Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 23
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 23 BANDARÍSKA leyniþjónustan, CIA, þjálfaði árið 1999 sextíu pak- istanska leyniþjónustumenn sér- staklega með það í huga að hafa hendur í hári Osama bin Ladens, mannsins sem talinn er hafa staðið á bak viðhryðjuverkin í Wash- ington og New York, eða ráða hann af dögum. Dagblaðið The Washington Post greindi frá þessu í gær. Það var þáverandi forsætisráð- herra Pakistans, Nawaz Sharif, sem skipulagði verkefnið í sam- vinnu við pakistönsku leyniþjón- ustuna og bandarísk yfirvöld. Rík- isstjórn Bills Clintons mun hafa lofað Pakistanstjórn á móti að við- skiptabann, sem í gildi var gegn Pakistan, yrði lagt af og að Banda- ríkin myndu veita Pakistan um- talsverða efnahagsaðstoð. Pakistanski herinn vék Sharif hins vegar úr forsætisráð- herrastóli síðla árs 1999 og áform um sérstaka sérsveitaraðgerð á vegum Pakistana voru lögð til hlið- ar. Sumir mannanna einnig viðriðnir ódæðin í A-Afríku John Ashcroft, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, greindi einn- ig frá því í gær að öll gögn bentu til þess að nokkrir hryðjuverka- mannanna, sem frömdu ódæðið í Bandaríkjunum 11. september síð- astliðinn, hefðu einnig átt þátt í sprengjutilræðunum við sendiráð Bandaríkjanna í Tanzaníu og Ken- ýa sumarið 1998, og árásinni á bandaríska herskipið USS Cole í fyrra. Beiðni um rann- sóknarheimild hafnað Hefur jafnframt komið á daginn að nokkrum dögum fyrir ódæð- isverkin í New York og Wash- ington hafnaði dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna ósk alríkislögregl- unnar, FBI, um heimild til að rannsaka tölvu manns, Zacarias Moussaoui, sem síðar var handtek- inn í tengslum við rannsókn sjálfs- morðsárásanna. Beiðninni var hafnað á þeim for- sendum að ekki hefðu legið fyrir nægjanlegar upplýsingar til að réttlæta slíka heimild. Eftir að Moussaoui var handtek- inn fundust hins vegar gögn í tölvu hans sem bentu til þess að hann hefði með einum eða öðrum hætti verið viðriðinn undirbúning árás- anna. Hugðust ráða niður- lögum bin Ladens 60 manna pak- istönsk sérsveit var í þjálfun hjá CIA árið 1999 BANDARÍSKIR embættismenn telja líklegt að talibanar standi á bak við ópíumsmygl frá Afganistan til Evrópu og Asíuríkja, en það hefur færst mjög í aukana að und- anförnu. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna hafa sagt að þessi skyndilegi straumur ópíums kunni að stafa af því að afganskir smyglarar, sem tengist ekki talibönum, vilji losa sig við birgðir sínar áður en Bandaríkjamenn grípi til hernaðar- aðgerða í Afganistan. Bandarískir embættismenn telja hins vegar að talibanar standi fyrir smyglinu. „Þetta er að mjög miklu leyti undir stjórn talibana,“ sagði einn þeirra. Ópíumframleiðsla hefur verið mikilvæg tekjulind fyrir talibana. Embættismennirnir í Washington telja að talibanar séu nú ef til vill að losa sig við ópíumbirgðir til að afla gjaldeyris nú þegar Banda- ríkjamenn undirbúa hernaðarað- gerðir gegn þeim. Þegar ópíumframleiðslan var mest í Afganistan á síðasta áratug var hún rúm 70% af allri ópíum- framleiðslu í heiminum. Talibanar bönnuðu framleiðsluna í fyrra en embættismenn Sameinuðu þjóð- anna og Bandaríkjanna telja að miklar ópíumbirgðir séu enn í Afg- anistan. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna telja líklegt að birgðirnar séu í höndum glæpahópa sem séu „eins áhrifamiklir í Afganistan og talib- anar“. Bandarískir embættismenn efast hins vegar um að talibanar hafi rofið tengslin við smyglarana. Þeir segja talibana hafa fengið andvirði allt að fimm milljarða króna á ári bæði með því að skattleggja smygl- arana og taka þátt í smyglinu. Osama bin Laden er einnig tal- inn tengjast smyglurunum og hreyfing hans er sögð vernda þá, verksmiðjur þeirra og birgðir. Hann er ekki talinn hafa miklar tekjur af smyglinu en sjá sér akk í því að vera í bandalagi með smygl- urunum. Talibanar bendlaðir við ópíumsmygl Washington. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.