Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 24
ERLENT 24 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUÐUR-AMERÍKA er heillandi heimur ómótstæðilegrar fegurðar og lífsgleði á mörkum vors/sumars í nóvember. Þessi lífsgæði bjóðum við þér á verði sem svarar til 3 fyrir 1, ef þú stað- festir með greiðslu núna! - AÐEINS 15 sæti laus. - ATH! Flug og ferða- þjónusta í S.Am. með eðlilegu móti. Río de Janeiro - Buenos Aires 14.-25. nóv. 2001 DRÖG AÐ FERÐALÝSINGU (birt með fyrirvara) - Vinsaml. staðfestið val fyrir 6. okt. 14. nóv. Allir þáttt. fljúga með Flugleiðum til London Heathrow, FI 450 kl. 8.50-12.00. Farþegar, sem fara aðeins til Buenos Aires fljúga áfram með British Airways, BA2267 frá Gatwick kl. 21.40 og fljúga beint til Buenos Aires án millilendingar til EZE flugvallar, þar sem lent er kl. 8.15 næsta morgun. Kvöldverður og morgunv. um borð í einum vinsælasta farkosti nútímans, Boeing 777, sem þykir einstaklega þægilegur. Þeir sem dveljast allan tímann í Buenos Aires, fljúga til baka frá EZE með BA2266 24. nóv. frá EZE-LGW kl. 14.15 og lenda kl. 6.10 næsta morgun. Heimflug frá LHR með FI 451 kl. 13.00 25. nóv. og lending í KEF kl. 16.00. Aðrir farþegar, sem taka báðar borgirnar, geta einnig ferðast með þessu flugi frá Gatwick 14. nóv. kl. 21.40 og byrjað ferðina í Buenos Aires, þar sem lent er næsta morgun. TILHÖGUN A: Viðmiðunarverð kr. 159.900 + flugv.sk. 15. nóv. Lent í Buenos Aires kl. 8.15. Eftir vegabréfaskoðun (áritun nú afnumin) og toll ekið til gististaðar í borginni, viðmiðun arverð Comfort Aspen Suites, 3*, en flestir kjósa að búa á Courtyard by Marriott 4*+ gegn aukagjaldi kr. 2.500 á d. x 4 n.= kr. 10.000 og sumir á 5* lúxushótelunum Claridge eða Emperador, aukagj. kr. 4000 á d. x 4 n.=kr. 16.000.- Til hagræðis verður reynt að dreifa farþegum ekki á fleiri hótel. 16. nóv. Kynnisferð um hina stórfögru borg (sjá lýsingu á kynnisferðum - sérblað). 17. nóv. Frjáls tími til að kynnast skemmtilegum hliðum borgar og borgarlífs. Um kvöldið tangósýning með kvöldverði á frægasta tangóstað heimsins, SENJOR TANGO. 18. nóv. Dagsferð út á slétturnar miklu, Las Pampas, að kynnast þjóðlífinu, hestamennskunni og taka þátt í lífi kúrekanna í stórsteikarveislu, FIESTA GAUCHA. 19. nóv. Flug til IGUAZU fossa til að sjá eitt af undrum heimsins. Gist á 5* MABU FOZ með kvöldv. 20. nóv. Ógleymanleg kynnisferð um fossasvæðið, þar sem 270 fossar steypast fram af þverhníptri brún. Kynnisferðin, ásamt gistingu m. morgunv.+kvöldv., innif. í viðbótargj. flugs kr. 35.500 (sjá bréf). Síðdegis flogið áfram til RÍO DE JANEIRO, 2½ klst. innanlandsflug. Eftir lendingu ekið beint til hótels, viðmiðunarverð Hotel Augustos 3*, flestir kjósa að búa á Plaza Copacabana, fallegu nýuppgerðu 4* hóteli rétt við ströndina, gegn aukagjaldi kr. 1000 x 4 n.=kr. 4000. Sumir velja Hotel EXCELSIOR 4* + alveg á ströndinni gegn aukagjaldi kr. 2000 á d. x 4 n.=kr. 8000. 21. nóv. Fyrri kynnisferð um þessa fegurstu borg heims, fulla af lífsgleði, sjá sérblað um kynnisf. 22. nóv. Síðari kynnisferð um Río, sjá sérblað um kynnisferðir. Ferðirnar eru sjálfstæðar, ólíkar. 23. nóv. Frjáls dagur að njóta lífsins. Um kvöldið stórveisla og fræg þjóðleg Sambasýning. 24. nóv. Frjáls dagur fram að brottför til flugvallar. Flug British Airways, BA246 GIG-LHR kl. 18.30. 25. nóv. Lent á Heathrow, London kl. 10.00. Heimflug með FI 451 kl. 13.00, nema óskað sé framl. TILHÖGUN B: Viðmiðunarverð kr. 149.900, aðeins RÍO - annars sama og A, sjá ofan. 14. nóv. Allir þáttt. fljúga að morgni með Flugleiðum, FI450 til London. Frjáls dagur í borginni, hægt að útvega dagherbergi gegn aukagjaldi kr. 7.000 á mann. Brottför frá Heathrow, Terminal 3, flug VARIG 8757 kl. 22.00 með breiðþotu M11 beint til Río. Góðar veitingar, kvöldverður, morgunverður. Gott sætarými. 15. nóv. Lent í Río kl. 9.20. Eftir vegabréf og toll ekið beint til hótels, viðmiðunarverð Augustos 3*, en flestir kjósa að búa á Plaza Copacabana, fallegu nýuppgerðu hóteli 4*, sjá tilh. A 20. nóv. 16. nóv. Fyrri kynnisferð um þessa fegurstu borg heims, fulla af lífsgleði, sjá sérblað um kynnisf. 17. nóv. Síðari hálfsd. kynnisferð um Río, sjá sérblað. Ferðirnar eru sjálfstæðar, ólíkar. 18. nóv. Frjáls dagur að njóta lífsins. Um kvöldið stórveisla og fræg þjóðleg Samabsýning. 19. nóv. Eftir morgunv. ekið til flugvallar fyrir flug RG8614 kl. 8.35-10.45 beint til BUENOS AIRES (nema þeir sem dveljast í Río allan tímann og fljúga heim þaðan 24. nóv.). Eftir vegabréf og toll, ekið beint til hótels, viðmiðunarverð Comfort Aspen Suites 3*, en flestir kjósa að búa á Courtyard by Marriott 4* +, sjá tilhögun A 15. nóv. 20. nóv. Kynnisferð um hina stórfögru borg, sjá lýsingu á sérblaði - kynnisferðir. 21. nóv. Dagsferð út á slétturnar miklu, Las Pampas, að kynnast þjóðlífinu, hestamennskunni, og taka þátt í lífi kúrekanna í stórsteikarveislu, FIESTA GAUCHA. 22. nóv. Frjáls tími til að kynnast skemmtilegum hliðum borgar og borgarlífs. Um kvöldið tangósýning með kvöldverði á frægasta tangóstað heimsins, SENJOR TANGO. 23. nóv. Flug til IGUAZU fossa að sjá undur heimsins. Gist á 5* MABU FOZ m. kvöldv. og morgunv. 24. nóv. Ógleymanleg kynnisferð um mesta fossasvæði heims, innif. í viðb. fluggj. (sjá bréf). Kl. 15.30 flug RG2250 til Sao Paulo og flug RG8756 kl. 23.00 til London Heathrow. Kvöldv. u.b. 25. nóv. Lent á Terminal 3, London Heathrow kl. 12.00. Heimfl. til KEF. FI451 kl.13 eða FI453 kl. 21. ATH. til samanburðar: Lægsta skráð flugfar til Río kr. 197.200, til Buenos Aires kr. 212.700 + skattar. Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK fyrir frábærar ferðir LJÓST er orðið, að lítið verður úr skattalækkununum, sem væntan- legir stjórnarflokkar í Noregi lofuðu fyrir kosningar. Segja þeir nú, að hugað verði að þeim síðar á kjör- tímabilinu að því er fram kemur í Aftenposten. Sáttmáli nýrrar stjórnar Hægri- flokksins, Kristilega þjóðarflokksins og Venstre er ekki fullfrágenginn en talsmenn flokkanna eru strax farnir að draga í land með skatta- lækkanirnar, sem lofað var í kosn- ingabaráttunni, 285 milljarða ís- lenskra króna á fjórum árum. Nú segja þeir, að aðeins sé unnt að skera niður skatta um 34 millj- arða ísl. kr. umfram það, sem Verkamannaflokkurinn, fráfarandi stjórnarflokkur, leggur til. Stoltenberg leggur fram fjárlagafrumvarp Það gerir væntanlegri stjórn dá- lítið erfitt fyrir, að Jens Stolten- berg, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, leggur fram frumvarp til fjárlaga í dag og þar er gert ráð fyrir allmiklum skatta- lækkunum, næstum jafnmiklum og væntanleg ríkisstjórn treystir sér til. Haft er eftir heimildum innan væntanlegra stjórnarflokka, að frammi fyrir þessum vanda sé nú leitað logandi ljósi að einhverjum málum, sem sýni, að ný stjórn sé að taka við, en þau megi samt ekki kosta of mikið. Í kosningabaráttunni var það að- allega Hægriflokkurinn, sem boðaði miklar skattalækkanir, en Kristilegi þjóðarflokkurinn og Venstre lögðu hins vegar áherslu á aukin útgjöld til velferðar- og umhverfismála. Það er því augljóst, að stefnumál stjórn- arflokkanna stangast verulega á og ekki er víst, að niðurstaðan verði neinum að skapi. Búast margir við, að stjórnin fái á sig harða gagnrýni strax í upphafi og þá einkum frá talsmönnum atvinnulífsins og öðr- um þeim, sem trúðu á miklar skattalækkanir strax. Stjórnarmyndunarviðræður Hægriflokksins og tveggja miðflokka í Noregi Erfitt reynist að lækka skattana Í FYRSTA skiptið í 18 mánuði lýsa fleiri Svíar sig hlynnta því en andvíga að evran verði tekin upp þar í landi í stað krónunnar. Er þetta rakið til falls sænsku krónunnar að undanförnu. Dagblaðið Financial Times greindi frá því á þriðjudag að ný könnun hefði leitt í ljós að 44% Svía væru nú hlynnt því að evran yrði tekin upp, 42% væru því andvíg en 14% hefðu ekki gert upp hug sinn. Eru þetta, að sögn blaðsins, nokkur umskipti frá því sem var fyrir ári þegar 52% lýstu sig andvíg evrunni, 30% hlynnt og 18% óákveðin. Svíar ásamt Dönum og Bretum hafa ekki í hyggju að taka upp evruna, ein- ir 15 aðildarríkja Evrópusam- bandsins. Mats Kinvall, yfirhagfræð- ingur á alþjóðasviði hjá sænska Handelsbanken, ber fram þessa skýringu á sinnaskiptun- um: „Svíar hafa verið á ferða- lagi í sumar og komist að því að krónan er einskis virði.“ Sænska krónan hefur hríð- fallið að undanförnu, um heil 17% ef miðað er við það þegar hún stóð hæst í maí í fyrra. Handtaka Karadzics líklegri ÞING Bosníu-Serba afgreiddi á þriðjudag frá sér lög sem kveða á um samstarf við stríðsglæpa- dómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag. Er talið að þessi ákvörðun þingsins geti leitt til handtöku þeirra Ratk- os Mlatics og Radov- ans Karad- zics en fulltrúar stríðsglæpadómstólsins hafa lengi viljað hafa hendur í hári þeirra. Þeir eru sakaðir um stríðsglæpi í Bosníustríðinu 1992–1995 en hafa fram að þessu fengið að leika lausum hala í serbneska hluta Bosníu. Enn dregst að lyfta Kúrsk KÖFURUM hefur tekist að festa fyrstu stálkaplana í skrokk rússneska kafbátsins Kúrsk sem sökk í Barentshafi í ágúst í fyrra. Enn mun þó drag- ast að bátnum verði lyft upp á yfirborðið, að því er björgunar- menn greindu frá í gær. Alls þarf að festa 26 stálkapla í bátinn til að unnt verði að lyfta honum og draga síðan til hafn- ar. Vonir stóðu til að takast myndi að ljúka undirbúningi verksins í dag, en nú er ljóst að enn verður töf þar á sökum veð- urs. Er nú horft til helgarinnar eða næstu viku. Upphaflega átti að hífa Kúrsk upp á yfirborðið 15. sept- ember en veðurskilyrði hafa verið afar slæm og tafir orðið á verkinu. Keppa björgunar- menn nú við tímann því senn skellur vetur á og gerir allar björgunaraðgerðir á þessum slóðum óhugsandi. STUTT Evran í sókn í Svíþjóð Karadzic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.