Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 26
LISTIR
26 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavik Collection
Valentiono Jeans
Helmut Lang
Day
Bruuns Bazaar
Calvin Klein
Base
Ahler
Whistles
Minus
Reiss
Jigsaw
pom’dap
fluxa
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
er í fullum gangi á Skúlagötu 32
útsölumarkaðurinn verður opinn
mánudaga til laugardaga frá kl. 10–16
HÁSKÓLAÚTGÁFAN hefur í
samvinnu við Félagsmálaráðu-
neytið gefið út bókina Fötlun og
samfélag eftir Margréti Margeirs-
dóttur. Í frétt frá útgefenda kemur
fram að um er að einstaka sögulega
heimild um málefni fatlaðra og á
bókin sér enga hliðstæðu á ís-
lensku.
Bókin skiptist í tvo meginhluta. Í
þeim fyrri er
fjallað um mál-
efni fatlaðra
meðal erlendra
þjóða með sér-
stakri áherslu á
Norðurlöndin. Í
síðari hlutanum
er fjallað um Ís-
land og þróun
mála hér á landi
rakin. Fjallað er
um sögu nokk-
urra helstu félaga fatlaðra, aðdrag-
anda að stofnun þeirra, markmið og
starfsemi. Fjallað er um lög um að-
stoð við þroskahefta, og lög málefna
fatlaðra, sem byggðu á hug-
myndafræði um jafnrétti og þátt-
töku fatlaðra í samfélaginu. Fjallað
er um uppbyggingu á þjónustu við
fatlaða í samræmi við þessi lög svo
og hvernig viðhorf til fatlaðra hafa
mótast í samhljómi við hinar hröðu
breytingar í þjóðfélaginu.
Bókin er byggð á yfirgripsmikilli
þekkinga höfundar og er brautryðj-
endaverk á þessum vettvangi. Bók-
in á erindi til framhaldsskóla og há-
skóla, félagasamtaka, sveitarfélaga,
foreldra, fatlaðra og allra annarra
sem vilja hag þeirra sem bestan.
Höfundur bókarinnar, Margrét
Margeirsdóttir, er félagsráðgjafi að
mennt og hóf að starfa að málefnum
fatlaðra 1971. Hún átti sæti í
stjórnarnefnd ríkisspítalanna um
nokkurra ára skeið, starfaði sem
ráðgjafi hjá Styrktarfélagi Vangef-
inna, var formaður Landssamtak-
anna Þroskahjálpar og deildarstjóri
málefna fatlaðra í félagsmálaráðu-
neytinu frá 1980-1999. Hún hefur
tekið virkan þátt í alþjóðlegu starfi
um málefni fatlaðra um áratuga
skeið.
Útgefandi er Háskólaútgáfan í
samvinnu við félagsmálaráðuneytið.
Bókin er 298 bls., Dreifing-
armiðstöðin sér um dreifingu. Verð:
Innbundin: 5.900 kr., kilja: 4.500 kr.
Nýjar bækur
Margrét
Margeirsdóttir
ENGLABÖRN eftir Jóhann Jó-
hannsson hefur að geyma tónlist úr
samnefndu leikriti eftir Hávar Sig-
urjónsson. Jóhanni til aðstoðar er
Eþos-strengjakvartettinn, skipaður
fiðluleikurunum Auði Hafsteins-
dóttur og Gretu Guðnadóttur, Guð-
mundi Kristmundssyni lágfiðluleik-
ara og Bryndísi Höllu Gylfadóttur
sellóleikara en sjálfur leikur Jóhann
á píanó, klukkuspil, hljómborð og
tölvur.
Jóhann hefur m.a. verið meðlimur
í hljómsveitunum Ham, Lhoog og
Orgelkvartettinum Apparat. Hann
hefur auk þess unnið með mörgum
kunnum tónlistarmönnum bæði
heima og erlendis.
Útgefandi Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör, Stef sér um
dreifingu. Upptökur fóru fram í Frí-
kirkjunni í Reykjavík og NTOV og
upptökumaður var Viðar Hákon
Gíslason.
Nýjar geislaplötur
STARFSÁR Tónlistarfélags Ísa-
fjarðar hefst með píanótónleikum í
Hömrum, tónlistarhúsi Ísafjarðar, í
kvöld kl. 20.30 Það er rússneskur
píanóleikari, Nina Kavtaradze, sem
kemur fram á þessum tónleikum og
flytur nokkur píanóverk eftir Rich-
ard Wagner, Ungverska dansa eftir
Johannes Brahms og Ungverska
rapsódíu nr. 6 eftir Liszt, en eftir
hlé verður flutt verk Mussorgskys,
Myndir á sýningu.
Nina Kavtaradze hefur haldið
einleikstónleika um víða veröld, í
fyrrverandi Sovétríkjunum, Banda-
ríkjunum og mörgum Evr-
ópulöndum. Þá hefur hún leikið
sem einleikari með virtum hljóm-
sveitarstjórum. Má þar nefna Yuri
Abronovitch, Sir Charles Groves,
Leif Segerstam, Jorma Panula og
ýmsa fleiri.
Nina hefur lagt talsverða rækt
við tónlist, sem ekki hefur verið
mjög mikið leikin hingað til og
þannig gefið út einleiksdiska með
allri tónlist, sem Richard Wagner
samdi fyrir píanó og einnig allri pí-
anótónlist Modests Mussorgskys.
Hún hefur einnig leikið með
mörgum kunnum listamönnum, s.s
Jean-Pierre Rampal, Felix Ayo,
Liana Isakadze og Victor Pikaizen,
og frá árinu 1986 hefur hún starfað
með sellóleikaranum og tengda-
föður sínum Erling Blöndal Bengts-
son og hafa þau gefið út hljómdiska
saman. Nina er gift listmálaranum
Stefáni Blöndal.
Rússneskur píanó-
leikari í Hömrum
Nina Kavtaradze
BÆKUR að vestan er samheiti
yfir bækur sem gefnar verða út
hjá Vestfirska forlaginu á
Hrafnseyri í haust og er lögð
áhersla á að blanda saman blíðu
og stríðu, gamni og alvöru.
Eftirtaldar bækur eru vænt-
anlegar: Frá Bjargtöngum að
Djúpi, 4. bindi, eftir Ara Ív-
arsson frá Melanesi; Mannlíf og
saga fyrir vestan, ritröð, 9. og
10. hefti; Engill ástarinnar og
fleiri sögur. Smásögur eftir al-
þýðulistamanninn Hafliða Magn-
ússon frá Bíldudal; Strandamað-
ur segir frá, 2. bindi.
Æviminningar Torfa Guðbrands-
sonar skólastjóra frá Heydalsá;
101 ný vestfirsk þjóðsaga, 4.
hefti, eftir Gísla Hjartarson.
Gluggavofan, barnabók eftir
Steinunni Eyjólfsdóttur og Þeir
voru svona í Djúpinu. Frásagnir
úr Ísafjarðardjúpi eftir Guðvarð
Jónsson frá Rauðamýri.
Þjóðsögur
meðal
bóka Vest-
firska
bókafor-
lagsins
♦ ♦ ♦
NÚ stendur yfir sýning Árna
Ingólfssonar í Galleríi Sævars
Karls, Bankastræti. Á sýning-
unni eru 15 ný verk, sem hvert
fyrir sig segja sögu, stutta eða
langa, fyndna eða sorglega,
vekjar spurningar hjá áhorf-
andanum. Sýningin stendur til
18. október.
Ný verk
hjá
Sævari