Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 27
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
VILTU SELJA? - VANTAR EIGNIR
Opið frá kl. 8.30-18.00, fös. til kl. 17.00, helgar frá kl. 12.00-14.00
Við á Lundi höfum selt vel að undanförnu og því vantar
okkur allar gerðir eigna á söluskrá. Meðal annars höfum
við kaupendur að:
Góðu einbýlishúsi eða raðhúsi í Árbæ.
Helst nýlegu einbýli á einni hæð í Kópavogi eða Hafnarfirði,
annað skoðað.
4ra-5 herb. íbúð í Árbæ á 1. hæð.
Einbýlis- eða raðhúsi, helst með 2ja íbúða möguleika,
í Seljahverfi.
2ja herbergja íbúð í Árbæ.
Raðhúsi eða sérhæð í Hamrahverfi.
120-140 fm sérhæð í Norðurmýri eða nágrenni.
Góðri íbúð, allt að 16 millj. í vesturbæ.
2ja herbergja íbúð í Kópavogi.
Sérhæð í Kópavogi.
3ja herbergja íbúð í neðra Breiðholti.
Góðri 4ra herbergja íbúð á jarðhæð, opin staðsetning.
Að semja við okkur er afar einfalt og vel þess virði að
kynna sér kjörin okkar.
Karl Gunnarsson
sölumaður
Erlendur Tryggvason
sölumaður
Ellert Róbertsson
sölumaður
Kristján P.
Arnarsson
sölumaður
Í BANDARÍSKU gamanmyndinni
Hvað er það versta sem getur gerst?
leikur Danny DeVito hrokafullan
milljarðamæring sem fær óvænta
heimsókn í sveitasetur sitt. Þar er
kominn innbrotsþjófur, sem grínar-
inn Martin Lawrence leikur, og haga
atvik því svo til að lögreglan mætir á
staðinn og handtekur hann. En áður
en þjófurinn er leiddur burtu í járnum
tekur DeVito af honum hring og seg-
ist eiga hann. Hringur þessi hefur
gríðarlega mikið tilfinningalegt gildi
fyrir þjófinn, kærastan gaf honum
hann, og upphefst nú stríð mikið á
milli mannanna tveggja um gripinn.
Allt er það stríð mikil hringavit-
leysa sem kæmi ekki að sök ef hægt
hefði verið að gera hana fyndna. Það
tekst ekki. Líklega nær barnalegur
húmor myndarinnar botni þegar
Martin Lawrence og John Leguiz-
amo, sem leikur hægri hönd þjófsins,
þykjast vera tveir arabar og bulla ein-
hverja tóma vitleysu í gamanatriði
sem ætlar engan enda að taka.
Ef á annað borð glittir í ögn af
húmor er DeVito ekki fjarri. Hann
hefur greinilega nokkra ánægju af að
leika þann forherta kvennamann og
svindlara sem millinn er og gerir
margt gott úr hlutverkinu. Lawrence
hefur ekki eins bitastætt hlutverk og
DeVito, þjófurinn er ótrúlega svalur
og einhliða. Leikarinn hefur ekki úr
miklu að moða auk þess sem hann
þarf að kljást við það að vera að mestu
ófyndinn. Aðrir leikarar gera flestir í
því að ofleika.
Svo hér er á ferðinni heldur mis-
heppnuð gamanmynd sem reynir
mikið til þess að vera fyndin en nær
litlum árangri.
Hringavitleysa
Arnaldur Indriðason
KVIKMYNDIR
L a u g a r á s b í ó ,
S t j ö r n u b í ó , B o r g -
a r b í ó A k u r e y r i
Leikstjóri: Sam Weisman.
Handrit: Matthew Chapman eftir
sögu Donald E. Westlake.
Aðalhlutverk: Martin Lawrence,
Danny DeVito, John Leguizamo,
Glenne Headly, Carmen Ejogo.
Bandarísk. 2001. 95 mín.
„WHAT’S THE WORST
THAT COULD HAPPEN?“
MENNINGARMÁLANEFND
Reykjavíkurborgar telur brýnt
að ráðuneyti mennta- og
menningarmála kanni á þessu
stigi ítarlega með hverjum
hætti óperustarfsemi verði
þáttur í starfsemi hins nýja
tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Það er mat nefndarinnar að
óperustarfsemi styrki mjög
fjölbreytta nýtingu tónlistar-
hússins. Var þetta bókað á
fundi nefndarinnar í gær og
samþykkt samhljóða.
Ennfremur segir í bókun-
inni: „Menningarmálanefnd
Reykjavíkur fagnar mjög
þeirri framsýni sem felst í því
að nú skuli hilla undir að ríki
og borg ýti úr vör áformum
um byggingu Tónlistarhúss í
Reykjavík. Tónlistar- og ráð-
stefnuhúsið mun marka skil í
íslensku menningarlífi. Það
mun einnig vega þungt í að
efla miðborg Reykjavíkur og
gefa henni það glæsilega og
fjölþætta yfirbragð sem sæm-
ir. Þegar húsið er risið mun
Sinfóníuhljómsveit Íslands
eignast heimili og aðstöðu við
hæfi og tónlistarmenn allra
tónlistarstefna munu eiga að-
gang að fullkomnu tónlistar-
húsi fyrir list sína.“
Menningarmála-
nefnd Reykjavíkur
Óperu-
starfsemi
styrkir tón-
listarhús
MENNTAMÁL
SPÓLA systir er barnabók eftir
Vestur – íslenska rithöfundinn
Gillian Kristínu Johnson. Böðvar
Guðmundsson íslenskaði söguna
sem er öll í bundnu máli. Höf-
undur hefur einnig myndskreytt
bókina.
Sagan fjallar um hundinn Kát
sem hlakkar mikið til þess að eign-
ast lítinn fjörugan bróður en
Spóla, þunglamaleg flækingstík,
veldur honum ólýsanlegum von-
brigðum. Þegar vandræðin steðja
svo að standa systkinin saman og
læra að meta hvort annað.
Spóla systir var gefin út í Kan-
ada. Gillian fékk á árinu Mr.
Christie’s barnabókaverðlaunin
fyrir þessa bók sína.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 36 síður, prentuð í Hong
Kong. Verð: 1.890 kr.
Nýjar bækur