Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Kringlunni 8–12 sími 568 6211
Skóhöllin Bæjarhrauni 16 Hf. sími 555 4420
4.490
nú 3.590
4.490
nú 3.590
4.990
nú 3.990
4.490
nú 3.590
3ja daga tilboð
fimmtud., föstud. og laugard.
afsláttur
af öllum
barnastrigaskóm!
20%
VETRARSTARF Leikfélags
Seltjarnarness hefst með
opnu leiklistarnámskeiði í Val-
húsaskóla á mánudag. Kennt
verður tvisvar í viku í þrjár
vikur, á mánudögum og
þriðjudögum frá kl. 19.30-
21.30. Þátttaka er ókeypis og
er námskeiðið opið öllum 14
ára og eldri. Leiðbeinendur
verða leikararnir Einar Þor-
bergsson og Linda Sif Þor-
láksdóttir, sem bæði hafa unn-
ið lengi með félaginu og hafa
mikla reynslu af leiklistar-
kennslu.
Stefnt er að því að nám-
skeiðinu ljúki á stuttri sýn-
ingu þar sem þeir þátttakend-
ur, sem vilja, geta tekið þátt.
Þátttaka tilkynnist til ein-
hverra eftirtalinna félaga í
Leiklistarfélaginu: Moniku
Abendroth, Arnfríðar Einars-
dóttur, Grétars Guðmunds-
sonar og Bryndísar Richter.
Leiklistar-
námskeið
á Seltjarn-
arnesi GIAMPIERO Monaca heitir ungurÍtali, sem hefur á liðnum misserum
verið að bralla ýmislegt skemmti-
legt. Eftir margar ferðir til Íslands,
og margar ferðir í gallerí Meistara
Jakobs á Skólavörðustíg, bauð
hann félögum gallerísins að koma
til Ítalíu og halda sýningu á verkum
sínum í heimaborg hans, Asti, og
vígja listhús í nýuppgerðu herra-
garðssetri í bænum. Með þessu vel
heppnaða uppátæki lauk Giamp-
iero upp ævintýri sem enn er í
mótun, og er farið að spinnast í
ýmsar áttir. Markmið Giampieros
var að koma á menningar-
samskiptum milli Asti-héraðs og Ís-
lands og það virðist ætla að lukkast
vel. Í sumar, eftir að listamennirnir
komu heim frá Asti, var þeim boðið
að sýna verk sín í Listasafni ASÍ.
„Það má segja að sýningin í Lista-
safni ASÍ hafi verið sjálfstætt fram-
hald af sýningunni í Asti,“ segir
Guðný Hafsteinsdóttir leir-
listakona. „Umsjónarmaður lista-
safnsins hafði séð viðtal við okkur í
Morgunblaðinu og vissi að við
hefðum verið að sýna úti, og það
varð úr að við ákváðum að slá til.“
Þórður Hall listmálari segir að
þeim hafi líka þótt það spennandi
að sjá verk sín í stærra rými en þau
hafa yfir að ráða á Skólavörðu-
stígnum. Þau vissu ekkert hvað
beið þeirra þegar þau fóru með
verk sín til Asti, en salinn á Freyju-
götunni þekktu þau og gátu miðað
sýninguna við rýmið.
Ævintýrið sem hófst með ferð-
inni til Asti hefur nú þróast þannig
að félagar Meistarans eru að vinna
að því að fá sýningu á verkum eins
frægasta listamanns Asti-héraðs,
Eugenios Guglielminettis, til Ís-
lands, og vonast er til að af henni
geti orðið árið 2003.
En Giampiero hefur ekki látið
deigan síga. Í haust stóð hann fyrir
kynningu á vínum Asti-héraðs á Ís-
landi í samvinnu við Ferðamálaráð
staðarins, og nú er hann að vinna
að því að fá íslenska tónlistarmenn
til Asti, en auk þess hefur nokkrum
íslenskum matgæðingum verið boð-
ið utan til að kynna sér frekar þær
unaðssemdir í mat og drykk sem fé-
lagar Meistara Jakobs fengu að
þátttöku á árlegu rithöf-
undaþingi Dante Alegh-
ieri-stofnunarinnar í Asti.
Þórður Hall segir að
Giampiero Monaca hafi
haft mikla ánægju af því
að koma þessu verkefni
sínu af stað og sjá það
vaxa eins og raunin er að
verða. Giampiero dvaldi á
Íslandi í allt sumar, og
eyddi síðustu vikunni á
sveitabæ í Borgarfirði.
„Hann er heillaður af Ís-
landi og fólkinu hér,“
segir Guðný, „og hann
vildi prófa að vinna svolít-
ið við bústörf til að kynn-
ast þjóðinni innan frá.“
En félagar í Meistara
Jakobi halda samt sínu
striki þótt tengsl við Ítal-
íu hafi hlaupið á snærið.
Þeim hefur verið boðið að
sýna í Noregi og er verið
að undirbúa það og
hvernig að því verður
staðið. Aðaláhersla
þeirra er þó lögð á að
reka áfram galleríið sitt á Skóla-
vörðustígnum; allt annað er auka-
geta. En hvað ítölsku tengslin varð-
ar segja listamennirnir að þau eigi
örugglega eftir að haldast, og að
þau eigi áreiðanlega eftir að fara
aftur til Asti, þar sem þeim var tek-
ið svo forkunnarvel.
Ævintýrið í Asti
spinnst áfram
Nokkrir af listamönnum Meistara Jakobs
með Giampiero Monaca fremst í miðju.
Myndin var tekin í Asti í vor.
kynnast í ferð sinni til Asti í vor.
Giampiero er einnig að vinna að því
að einn frægasti tónlistarmaður
Ítalíu, Paolo Conte, haldi tónleika á
Íslandi. Þá standa vonir til að hægt
verði að koma á samskiptum milli
rithöfunda Asti og Íslands, með því
að bjóða íslenskum rithöfundum
GUITAR Islancio leikur í Salnum í
Kópavogi kl. 20.00 í kvöld. Tríóið er
skipað Birni Thoroddsen og Gunnari
Þórðarsyni gítarleikurum og Jóni
Rafnssyni kontrabassaleikara. Á
tónleikunum leikur tríóið úrval gít-
artónlistar tuttugustu aldarinnar.
Sérstakur gestur á tónleikunum er
franski gítarleikarinn Sylvain Luc,
sem fyrir löngu er þekktur fyrir leik
sinn.
Efnisskrá tónleikanna saman-
stendur af íslenskum þjóðlögum af
þriðja geisladiski tríósins, sem vænt-
anlegur er á markað innan skamms.
Sylvain Luc leikur svo nokkur frönsk
lög með tríóinu og loks verða leiknir
„standardar“ og verður lögð áhersla
á tónlist sem Guitar Islancio hefur
ekki leikið á tónleikum áður.
Tríóið hefur leikið saman frá
haustinu 1998, og haldið fjölda tón-
leika, bæði hér á Íslandi og erlendis.
Þeir félagar hafa gefið út tvo geisla-
diska með íslenskum þjóðlögum í
léttdjössuðum útsetningum og báðir
hafa fengið góðar viðtökur.
Björn Thoroddsen segir mikinn
feng að því að fá Sylvain Luc hingað
til að leika með þeim. „Það má
kannski líkja okkur við Diddú, þegar
hún var að syngja með Carreras. Luc
er mjög þekktur og einn aðaldjass-
gítarleikari Frakka í dag. Hann var
algjört undrabarn – gaf út sína
fyrstu plötu fimm ára. Hann spilar
með okkur í Salnum og líka á fleiri
stöðum um helgina. Við ætlum að
hafa léttleikann í fyrirrúmi á þessum
tónleikum og sláum hvergi af kröf-
unum.“ Björn segist hafa mikið
hlustað á Sylvain Luc á liðnum árum,
og segir að þeir í Guitar Islancio séu
mjög spenntir að fá að leika með hon-
um.
Guitar Islancio gefur út plötu nú í
haust eins og fyrr greinir, en þeir fé-
lagar hafa einnig verið mjög upp-
teknir við tónleikahald hér heima og
erlendis. „Við erum að fara til
Bandaríkjanna nú í október og
seinna til Þýskalands. Við höfum
þegar farið tvær ferðir til Kanada, og
þar erum við að eignast grunn að
áheyrendahópi. Það er verið að biðja
okkur að koma aftur og aftur og við
finnum fyrir miklum veljvilja í okkar
garð. Við byrjuðum að spila á Íslend-
ingaslóðum, en nú er þetta orðið tals-
vert umfangsmeira, þannig að þetta
lítur mjög vel út.“ Það eru íslensku
þjóðlögin sem þeir félagar hafa haft
með sér í farteskinu sem hafa heillað
svo Kanadamenn og aðra þá sem
hafa hlustað á Guitar Islancio.
En eru þau ótæmandi brunnur?
„Nei, þau eru það nú ekki, og þetta
verður sennilega síðasta platan okk-
ar með íslenskum þjóðlögum. Hins
vegar er langt því frá að við höfum
verið að hreinsa botninn með þriðju
þjóðlagaplötunni eins og sumir hafa
haldið; við erum með fín lög þarna og
þetta verður ekki sísta platan okkar.
Við erum með lög eins og Á Sprengi-
sandi, Fuglinn í fjörunni, Þorraþræl
og Stóð ég út í tunglsljósi. En það
kemur að því að við snúum okkur að
öðru, og við höfum verið að hugsa
svolítið um þjóðlög annarra landa í
framhaldi af þessu.“
Það var tilviljun að Guitar Islancio
varð til, að sögn Björns. „Við Gunnar
Þórðarson fórum að hittast reglulega
fyrir þremur árum til að skiptast á
hugmyndum á gítar. Í framhaldi af
því kom upp sú hugmynd hjá okkur
að fara að spila þjóðlög og fyrsti disk-
urinn okkar fékk það góðar viðtökur
að það varð ekki aftur snúið. Hann er
að nálgast það að verða gullplata,
sem er met fyrir djassplötu. Því er
náð þegar 5.000 eintök eru seld. Ég
hef aldrei getað talið svona hátt í
mínum geira fyrr.“ Björn segir að ís-
lenska þjóðlagið hafi verið sérstak-
lega gott í viðkynningu. „Það var nýr
heimur sem opnaðist okkur og satt
að segja vorum við skíthræddir til að
byrja með um að fólki fyndist við
vera að eyðileggja gersemar þjóðar-
innar. En reyndin varð önnur og fólk
hefur kunnað vel að meta þetta.“
Sylvain Luc leikur með Guitar Islancio í Salnum
„Eins og að syngja
með Carreras“
Guitar Islancio leikur íslensk þjóðlög, franska músík og „standarda“.
Sylvain Luc, gestur Guitar Islancio á tónleikunum í Salnum.