Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 32

Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 32
UMRÆÐAN 32 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ > Ný tækifæri í námi CTEC á Íslandi kynnir spennandi námsbrautir í upplýsingatækni > Fornám í forritun > MCP forritun Visual Basic forritun til MCP prófs > MCP vefforritun Visual InterDev forritun til MCP prófs > Vefstjórn+ iNet+, Windows 2000 og Internet Information Server Stuttar hagnýtar námsbrautir. Hagstæð verð. Námskynning sunnudag 7. október kl. 14:00-16:00 Komið og kynnist hinum fjölbreyttu möguleikum sem standa til boða. Ræðið við kennarana og skoðið aðstöðuna. Allir velkomnir. Faxafeni 10, 1. hæð · 108 Reykjavík · Sími 533 3533 · Fax 533 2533 · skoli@ctec.is · www.ctec.is CTEC á Íslandi er í eigu Rafiðnaðarskólans og býr yfir margra ára reynslu í miðlun þekkingar til sérfræðinga og nýliða. CTEC á Ísland er eini skóli landsins með vottun frá Microsoft sem Certified Technical Education Center = CTEC. KALDRANALEGAR eru kveðjurnar sem ber- ast úr herbúðum Sjálf- stæðisflokksins þessa dagana. Nú á að ráðast í víðtæka einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu og byrja á því að hrifsa heil- brigðisráðuneytið úr höndum framsóknar- manna, enda félags- hyggjumaðurinn var- færni, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, ekki mjög líklegur til að stíga fyrstu skrefin í þessa átt. Þessar hug- myndir eru uppi í landsfundardrög- um flokksins, sem meðal annars má finna á vefsetri hans. Ábyrgð manns á manni Drögin að framtíðarsamfélagi Sjálfstæðisflokksins eru ekki glæsi- leg lesning. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að rjúfa sáttina um sam- ábyrgðina og sjá á bak þeim gildum sem hvað merkust eru í íslensku samfélagi; að við gætum þeirra sem eiga undir högg að sækja, um ábyrgð manns á manni í samfélagi jafnra tækifæra. Það er stefna Samfylking- arinnar að hið opinbera eigi ekki að taka þátt í samkeppnisrekstri. Lög- mál framboðs og eftirspurnar eiga hinsvegar alls ekki við í heilbrigð- isþjónustunni, líkt og dæmin sanna. Þjónustan versnar til muna. Ójöfn- uður eykst mjög í samfélaginu og að- gengi að velferðarþjónustu versnar. Þetta sýna erlend dæmi og vandaðar rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið á samanburði einkarekinnar velferðarþjónustu og ríkisrekinnar. Gullni þríhyrningurinn Það hefur komið í ljós, bæði hér heima og erlendis, að samhliða auk- inni einkavæðingu í heilbrigðiskerf- inu hefur kostnaður ríkisins af því einnig aukist. Útgjöld ríkis- ins til heilbrigðisþjón- ustunnar aukast við einkavæðinguna enda reikningurinn frá einkastofunum send- ur til ríkisins og bitn- ar að lokum á þeim sem þurfa að nota þjónustuna í formi aukinna sjúklinga- skatta. Þessi samfélagssýn Sjálfstæðisflokksins er ógeðfelld og henni ber að hafna með afgerandi hætti. Með einkavæð- ingu velferðarinnar væri verið að hleypa á harðastökk í átt til aukins ójafnaðar og óréttlætis. Þess í stað eigum við af alefli að skapa á Íslandi fyrimyndarsamfélag jafnra tæki- færa. Samfélag, þar sem góð velferð- arþjónusta helst í hendur við traust atvinnulíf sem hvílir á öflugri menntasókn. Í þessu felst sá gullni þríhyrningur sem leið Samfylkingar- innar hvílir á: Öflug velferðarþjón- usta, sem styðst við öflugt atvinnulíf sem hvílir á öflugri menntun. Drög að sam- félagi Sjálfstæð- isflokksins Björgvin G. Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Stjórnmál Þess í stað eigum við af alefli, segir Björgvin G. Sigurðsson, að skapa á Íslandi fyrirmyndar- samfélag jafnra tækifæra. ATBURÐIRNIR 11. september hafa ger- breytt heimsmyndinni. George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur réttilega skorað á alla heimsbyggðina að sam- einast, undir öflugri for- ystu Bandaríkjanna, gegn hryðjuverka- mönnum um heim allan. Íslendingar hafa, líka réttilega, orðið við þess- ari áskorun og skipað sér í órofafylkingu með öðrum NATO-þjóðum, og raunar flestum ríkjum heims, í þeirri baráttu, sem framundan er, og ljóst er að verður löng og ströng, og raunar óvíst hvort nokkurn tíma verður lokið, meðan ofstæki, sem einskis svífst, er við lýði í þessum heimi. George Bush hefur einnig réttilega bent á, að þessi barátta hljóti ekki ein- ungis að beinast gegn hryðjuverka- mönnunum sjálfum og samtökum þeirra heldur gegn sérhverju því ríki sem þá hýsir og veitir þeim skjól. Undir það hljóta allir Íslendingar líka að taka heilshugar. Fordæma verður öll hryðjuverk jafnt, hvort sem þau eru af trúarleg- um eða pólitískum rótum runnin, eiga upptök sín í hugmynd- um um meðfædda yfir- burði eða menningaryf- irburði eins kynstofns yfir aðra eða annan (rasismi), ellegar koma t.d. frá ofstækisfullum umhverfissinnum, sem eru svo sannfærðir um réttmæti síns málstað- ar, að tilgangurinn helgi meðalið, og því megi jafnvel fórna mannslíf- um í nafni málstaðarins. Um leið og Íslending- ar skipa sér heilshugar undir gunnfána baráttunnar gegn hryðjuverkamönnum hljóta ráða- menn þjóðarinnar að minna Banda- ríkjamenn á, að því miður höfum við ekki farið varhluta af hryðjuverkum ofstækismanna, og mesta mildi að þau ekki kostuðu mannslíf. Í október 1986 var unnið verulegt tjón á hval- stöðinni í Hvalfirði og sömu nótt var tveimur hvalbátum sökkt í Reykja- víkurhöfn með því að opna botnhlera þeirra. Vaktmenn um borð hefðu hæglega getað farist. Tilræðismenn- irnir komust undan, en skömmu síðar lýsti Paul Watson, forystumaður samtakanna Sea Shepard, verknaðin- um á hendur sér. Svo vildi til að nokkrum árum síðar, þegar sama Paul Watson hafði verið boðið að koma til landsins og halda fyrirlestur á vegum innlendra samtaka, var hann gripinn og leiddur fyrir lögreglu. Sýndi hann þá að hann er „huglaus og andlitslaus gunga“ og dró játningu sína til baka og sagði hana eintómt grobb. Var honum þá vísað úr landi og lýstur „persona non grata“ (óæskileg persóna). Það hafði í för með sér á þeim tíma að hann var sjálfkrafa úti- lokaður frá landvist á öllum Norður- löndum. Eftir að Ísland varð útvörður Evrópu með Schengensam- komulaginu var Paul Watson fyrsti maður, sem Ísland tilkynnti sem „persona non grata“, og er hann því nú útilokaður frá landvist í öllum Evr- ópulöndum. Eftir að Watson hafði dregið játningu sína um beina aðild að hryðjuverkunum í Hvalfirði og Reykjavíkurhöfn til baka munu tveir samverkamenn hans og meðlimir Sea Shepard hafa komið fram undir nafni í sjónvarpi í Bandaríkjunum og stært sig af verknaðinum. Samtökin Sea Shepard eru skráð í borginni Pasadena í Kaliforníu og gera út samnefnt skip, sem gert hefur verið út til árása á friðsöm veiðiskip að löglegum veiðum víða um heim með það fyrir augum að sökkva þeim. Vefslóð þessara samtaka er www.seashepard.org. Samtökin eru skráð sem góðgerðarsamtök (charity organization) samkvæmt bandarísk- um lögum og samþykkt sem slík af yf- irvöldum. Það þýðir að þau eru und- anþegin skattgreiðslum. Öll framlög einstakra borgara til hryðjuverka þessara samtaka eru einnig frádrátt- arbær til skatts. Því vil ég beina því til réttra ís- lenskra yfirvalda að minna yfirvöld í Bandaríkjunum á það af fullri einurð og einlægni, að sérhvert ríki, sem hýsir hryðjuverkamenn og samtök þeirra og veitir þeim skjól, er að brjóta gegn algildum reglum alþjóða- samfélagsins. Þetta var enn frekar staðfest með þeirri bindandi ályktun, sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti einróma sl. föstudag og kvað á um, að öll 189 aðildarríki Sam- einuðu þjóðanna skuli „neita hryðju- verkamönnum um peninga, stuðning og skjól“. Í þessu sambandi má engan greinarmun gera á þeim hugsjónum, sem liggja að baki ofstækinu. Trú- verðugleiki þeirra ríkja, sem samein- ast hafa í baráttunni gegn skipulögð- um hryðjuverkum, er í veði. Það er lágmarkskrafa að Bandaríkjastjórn afnemi þau fríðindi sem hryðjuverka- samtök Sea Shepard njóta í dag. Að réttu lagi ætti líka að lögsækja alla þá meðlimi þessara samtaka sem opin- berlega hafa stært sig af hryðjuverk- um sínum í fjölmiðlum í Bandaríkj- unum – og hingað til komist upp með það. Hryðjuverkamenn á Íslandi Ólafur Hannibalsson Hryðjuverk Það er lágmarkskrafa, segir Ólafur Hannibals- son, að Bandaríkja- stjórn afnemi þau fríð- indi sem hryðjuverka- samtök Sea Shepard njóta í dag. Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. Bankastræti 3, sími 551 3635 Póstkröfusendum Lífrænar jurtasnyrtivörur Hálskremið — hálskremið BIODROGA Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.