Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 33

Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 33 VEIKBURÐA til- raun varalögreglu- stjórans í Reykjavík í Mbl. í gær til að halda uppi vörnum fyrir dómsmálaráðherra vegna vanhugsaðs nið- urskurðar hennar til löggæslunnar er hálf- hallærisleg. Hlutverk lögregl- unnar að gæta al- mannaöryggis Í fyrsta lagi er reynt að gera lítið úr þeim skorti sem er á lög- reglumönnum í borg- inni. Í öðru lagi segir varalögreglustjórinn að ekki hafi verið talað um öryggismörk í fjár- lagatillögum lögreglustjórans í Reykjavík heldur lágmarksþjón- ustu. Þegar litið er til lögreglulaga frá 1996 sést að varalögreglustjórinn gengur ansi langt til að verja gjörð- ir dómsmálaráðherrans og þjónusta hann. Í lögunum segir skýrt að rík- ið haldi uppi starfsemi lögreglu til að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi borgaranna. Stemma á stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna. Þar er talað um öryggi borgaranna en ekki þjónustu við borgarana enda er lög- og örygg- isgæsla meginviðfangsefni lögregl- unnar. Þegar lögreglustjórinn í Reykja- vík setur það fram að 303 lögreglu- menn þurfi til að halda uppi lág- marksþjónustu er ekki hægt að skilgreina það öðruvísi en svo að yf- irmaður lögreglunnar í Reykjavík, sem starfa á í samræmi við lög og reglur, telji það lág- marksstarfslið sem hann þurfi til að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi borgaranna eins og lög- in kveða á um. Því er ekkert ofsagt þegar því er haldið fram að fjöldi lögreglumanna sé und- ir öryggismörkum þegar þeir eru nú 253. Í fjárlagatillögum lög- reglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2000 segir að umfang starfseminn- ar sem yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík telji lágmarksþjónustu- stig sé 303 lögreglumenn. Frá því þessar tölur voru settar fram flutt- ist stjórnstöð lögreglunnar í Reykjavík til fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjórans, en þá færð- ust 15 lögreglumenn yfir til þess embættis. Engu að síður vantar nú 35 lögreglumenn til að gæta al- mannaöryggis og tryggja réttarör- yggi borgaranna sem skylt er sam- kvæmt lögreglulögum. Eftir þeim á yfirstjórn lögreglunnar að vinna, enda þurfa lögreglumenn að vinna heit að því að halda uppi stjórn- arskrá lýðveldisins og öðrum lögum þess. Yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík skilgreindi það lágmarks lögreglulið sem til þess þyrfti á sl. ári eða 303 lögreglumenn og til þess að halda upp æskilegu þjón- ustustigi eða almannaöryggi eins og lögin orða það þarf 70 lögreglu- menn til viðbótar samkvæmt fjár- lagatillögum embættis lögreglu- stjórans. Mat Sjálfstæðisflokksins á réttaröryggi borgaranna Ljóst er því að dómsmálaráð- herra gengur á svig við lögin með sífelldum niðurskurði til lögregl- unnar í Reykjavík og það er varla hægt að draga það í efa að það ógni öryggi borgaranna. Því til vitnis eru drög að ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem halda á innan skamms – flokks sjálfs dóms- málaráðherrans, en þar segir: „Landsfundurinn telur nauðsynlegt að styrkja löggæslustofnanir.“ Og síðar í sömu ályktun: „Landsfundur Sjálfstæðisfloksins varar við því að of nærri réttaröryggi borgara landsins sé gengið með sparnaði í ríkisútgjöldum á vettvangi lög- gæslu og dómstóla.“ Þannig er helsta stofnun flokksins að búa sig undir að hirta ráðherrann vegna slælegrar stjórnunar löggæslumála. Sveltir áfram lögregluna í Reykjavík á næsta fjárlagaári Talað er fyrir daufum eyrum, þegar dómsmálaráðherra er ítrekað bent á að öryggi íbúa sé ógnað með þeim gífurlega niðurskurði sem orðið hefur til löggæslunnar í Reykjavík. Fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár talar þar sínu máli. Ein- ungis er gert ráð fyrir 9 milljóna króna hækkun að raungildi á fram- lögum til löggæslunnar í borginni á næsta ári. Fjárframlög til lögregl- unnar þurfa að hækka um a.m.k. 100 milljónir króna að raungildi til að hægt sé að halda uppi almanna- öryggi og tryggja réttaröryggi borgaranna. Tillögur dómsmálaráð- herra fyrir næsta ár eru að fjölga lögreglumönnum um tvo í grennd- arlöggæslu, en 35 lögreglumenn vantar nú að lágmarki til að gæta almannaöryggis eins og lögin kveða á um. Lögreglumenn hér eru t.d. miklu færri hlutfallslega á íbúa en í Kaupmannahöfn. Þar eru 242 íbúar á hvern lögreglumann en inni í þeirri tölu er einnig Kastrup-flug- völlur. Það eru helmingi færri íbúar á lögregluþjón en í Reykjavík en 490 íbúar eru í Reykjavík á hvern lögregluþjón nú síðari hluta þessa árs en voru 402 íbúar á hvern lög- reglumann á árinu 1998. Yfirvinna lögreglumanna hefur líka verið skorin niður um 25% frá 1998. Raunaukning til starfsemi lögregl- unnar hefur nær engin orðið sl. 3 ár. Athyglisvert er að á sama tíma og lögreglan í Reykjavík er fjár- svelt blæs út embætti Ríkislög- reglustjóra sem nú á að fá að ráða trúnaðarlækni til að herða allt eft- irlit með langtímaveikindum lög- reglumanna. Það er greinilega for- gangsverkefni dómsmálaráðherr- ans í löggæslumálum borgarinnar. Dómsmálaráðherra láti af hendi fjárlagatillögur fyrir næsta ár Á sama tíma og sífellt er verið að fækka lögreglumönnum og draga með því úr öryggi borgaranna fer ofbeldi og fíkniefnaneysla vaxandi og vínveitingastöðum fjölgar. Hættuástand skapast iðulega vegna mikils umferðaöngþveitis á háanna- tíma í höfuðborginni. Niðurskurður á framlagi til lögreglunnar er því alvarleg ógn við umferðaröryggi, sem eykur verulega slysahættu. Ég hef beðið dómsmálaráðuneytið með vísan til rökstuðnings og niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál að fá líka að sjá fjárlagatillögur lögreglustjórans í Reykjavík fyrir næsta ár. Engin viðbrögð eru enn frá ráðuneytinu við þeirri beiðni, en eftir því verður gengið. Þessi nið- urskurður gengur ekki lengur. Það verða stjórnvöld að skilja. Lögreglulögin kveða á um öryggi borgaranna Jóhanna Sigurðardóttir Lögreglan Þegar litið er til lög- reglulaga frá 1996, segir Jóhanna Sigurðardótt- ir, sést að varalög- reglustjórinn gengur ansi langt til að verja gjörðir dómsmálaráð- herrans. Höfundur er alþingismaður. strets- gallabuxur tískuverslun v. Nesveg, Seltjarnarnesi. sími 561 1680. Kringlunni - sími 588 1680.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.