Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VELGJÖRÐARMENN RANNSÓKNA VIÐ HÍ Hjónin Bent Scheving Thor-steinsson og Margaret Ritter Ross Wolfe hafa á tæpu ári stofnað við Háskóla Íslands þrjá sjóði, með samanlagt stofnfé upp á rúmar 30 milljónir króna. Einn sjóðurinn er stofnaður í minningu Óskars Þórð- arsonar barnalæknis, fósturföður Bents, og á að verðlauna vísindaaf- rek og rannsóknir á sviði barna- lækninga. Annar er stofnaður í minningu Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinsson, foreldra Bents, og á að styrkja vísindaleg af- rek, rannsóknir og framhaldsnám í lyfjafræði. Í síðustu viku var svo stofnaður styrktarsjóður kenndur við þau hjón, Bent og Margaret, en hann á að standa fyrir rannsóknum á einelti og kanna lagalegar og sið- ferðilegar leiðir til að fyrirbyggja einelti og bæta fyrir afleiðingar þess. Bent og Margaret eru góðir fulltrúar þeirra mörgu velunnara Háskóla Íslands, annarra mennta- og menningarstofnana og góðgerð- arstarfsemi hvers konar, sem hafa ekki látið nægja að standa skil á sköttum sínum og skyldum við rík- isvaldið, heldur talið ástæðu til að leggja enn meira af mörkum í þágu góðs málstaðar og uppbyggilegrar starfsemi í þágu samfélagsins. Þau málefni og fræðasvið, sem þau hafa kosið að styrkja, eru öll mikilvæg og skipta framtíð þjóðarinnar miklu. Það er vissulega dýrmætt að eiga að fólk sem hugsar eins og Bent Scheving Thorsteinsson, en hann sagði hér í blaðinu sl. vor þeg- ar minningarsjóður foreldra hans var stofnaður: „Mér hefur gengið vel í verðbréfa- og hlutabréfavið- skiptum og fannst orðið tilhlýðilegt að láta aðra njóta þess.“ KYNNINGARKERFI HELGAÐ ÍSLENSKUM SAMTÍMALISTUM Íslenski myndlistarmaðurinnÓlafur Elíasson hefur á stutt-um tíma skapað sér nafn á sviði samtímalista í hinum alþjóðlega listheimi. Sem stendur eru verk hans til að mynda bæði til sýnis í Nútímalistasafninu í New York og í Samtímalistastofnuninni í Boston, en á undanförnum árum hefur Ólaf- ur sýnt í helstu söfnum og sýning- arrýmum í Evrópu og Japan, auk þess sem verk hans hafa oftar en einu sinni vakið verðskuldaða at- hygli á Feneyjatvíæringnum. Í viðtali við þennan unga mynd- listarmann, sem birtist í Lesbók síðastliðinn laugardag, kemur fram að hann telji íslenska myndlist eiga fullt erindi inn í hinn alþjóðlega myndlistarheim, en til þess að svo megi verða þurfi ýmislegt að koma til. Hann vekur athygli á því að vegna þess „hve hugtakið menning er ennþá nýtt hér á landi og sömu- leiðis tilfinningin fyrir þýðingu þess“ hafi Íslendingar enn fremur gamaldags viðhorf til menningar og vanmeti hlutverk hennar sem virks afls í þjóðfélaginu. Hann telur ekki nóg að leggja áherslu á framfarir á sviði tækniþróunar, hún sé lítils virði án menningarinnar. Ólafur segir ljóst að alþjóðlegir sýningarstjórar, sem ferðast um heiminn til að skoða list með það í huga að koma henni á framfæri á al- þjóðlegum vettvangi, verði að hafa aðgang að öflugu kynningarkerfi í hverju landi og ef rétt sé að kynn- ingarmálum staðið hér á landi „sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir upp- götvi íslenska list og komi henni inn í hið alþjóðlega listumhverfi“. Ólaf- ur bendir í þessu sambandi á það hlutverk sem stjórnvöld á sviði menningarmála geta gegnt við að koma listamönnum á framfæri og vísar þar til erlendra fyrirmynda á borð við British Council í Bretlandi og Jaspis og DCA á Norðurlöndum, en þessar stofnanir sinna allar mik- ilvægu kynningarstarfi á samtíma- listum og hafa til þess umtalsverða fjármuni. Í kynningu á vefsíðu DCA (Dan- ish Contemporary Art Foundation) segir m.a.: „Hlutverk [stofnunar- innar] er að stuðla að samfelldri orðræðu á milli danskra og alþjóð- legra samtímalista. DCA-stofnunin styrkir starf danskra listamanna á erlendum vettvangi sem og er- lendra listamanna í Danmörku, auk alþjóðlegs samstarfs í söfnum, gall- eríum, á sýningarsvæðum og á sviði sýningarstjórnar.“ Þannig tekur DCA þátt í öllum helstu tvíæringum og öðrum stærri viðburðum í hinum alþjóðlega listheimi, og á þar að auki frumkvæði að sýningum og skipulagningu vinnuferða lista- manna í Danmörku og erlendis. Að auki tekur DCA þátt í alþjóðlegum samvinnuverkefnum í tengslum við hinn alþjóðlega listheim, sinnir upplýsinga- og útgáfustarfsemi í Danmörku og erlendis, auk þess að vera virkur samstarfsaðili um al- þjóðlegan gagnabanka mikilvægra tengiliða. DCA-stofnunin hefur frá upphafi stutt dyggilega við bakið á Ólafi Elíassyni, sem sýnir ef til vill best hvers slíkt starf er megnugt þegar saman fer hæfileikaríkur listamað- ur og góður bakhjarl. Því er ekki úr vegi að velta þeirri spurningu fram hvort ekki sé þörf á slíkri stofnun hér á landi eins og í nágrannalönd- um okkar, svo við getum orðið virk- ir þátttakendur á sviði alþjóðlegra samtímalista og notið þess ávinn- ings sem það myndi skila íslensku samfélagi til baka. HALLDÓR Ásgrímsson (B), ut-anríkisráðherra, flutti Alþingiítarlega skýrslu um hryðju-verkin í Bandaríkin á þing- fundi í gær. Að því loknu fóru fram langar umræður um málið og tóku fjölmargir þingmenn úr öllum flokkum þátt í þeim umræðum. Í máli sínu sagði utanríkisráðherra að hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin hafi þegar haft djúpstæð áhrif um heim allan og ekki sjái fyrir endann á afleiðingum þeirra enn. Seint eða aldrei muni mönn- um líða úr minni þær ógnvekjandi mynd- ir sem fyrir augu bar er tveimur farþega- þotum var flogið á turnana tvo í New York-borg að morgni ellefta september sl. og síðan einnig á Pentagon. „Eflaust verður þess einnig langt að bíða að við áttum okkur til fullnustu á þýðingu þeirra voveiflegu atburða sem öll heimsbyggðin fylgdist með þennan ör- lagaríka dag fyrir þremur vikum. Eitt er þó hafið yfir allan vafa; að veröld okkar verður aldrei söm á eftir,“ sagði hann. Böndin berast að Osama bin Laden og Al Qaeda „Hverjir stóðu að baki hinum sam- viskulausu árásunum þennan dag er sú spurning sem bandarísk stjórnvöld í sam- vinnu við fjölmörg ríki hafa leitast við að svara að undanförnu. Hinir seku verða dregnir til ábyrgðar, um réttmæti þess efast enginn. Böndin bárust skjótt að hin- um samviskulausa hryðjuverkamanni Osama bin Laden og samverkamönnum hans í Al Qaeda hreyfingunni sem láta fyrir berast í Afganistan í skjóli talibana- stjórnarinnar í Kabúl,“ sagði ráðherra og bætti því við að á ráðsfundi í Atlantshafs- bandalaginu á þriðjudag hefðu Banda- ríkjamenn lagt fram gögn um að árás- irnar hafi verið skipulagðar af Al Qaeda með vitund og vilja bin Ladens. „Menn leita skýringa á voðaverkunum – en látum ekki blekkjast – þau hryðju- verkasamtök sem hér voru að verki eru ekki knúin áfram af háleitum pólitískum eða trúarlegum markmiðum heldur vakir einungis fyrir þeim að valda sem mestri eyðileggingu, sem dýpstum harmi og sem mestri upplausn. Þau ráðast að kjarna siðmenningar okkar og reyna með hug- lausum og grimmilegum árásum að grafa undan lýðræði og frelsi sem þau ríki sem samtökin beina helst spjótum sínum að hafa í hávegum. Ríkisstjórnir sem styðja og hýsa hryðjuverkamenn bera hér mikla ábyrgð. Markmið alþjóðasamfélagsins er að ein- angra þá seku svo þeir eigi sér hvergi skjól og aðeins þannig verða samtök þeirra upprætt. Til að skipuleggja og hrinda í fram- kvæmd voðaverkunum 11. september hefur þurft umtalsvert skipulag og ekki síður fjármagn. Hvaðan skyldi það kom- ið? Tengsl alþjóðlegra hryðjuverkasam- taka við smygl og sölu eiturlyfja og vopna eru löngu kunn. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um eiturlyf árið 2000 segir m.a. að Afganistan sé stærsti framleiðandi ópíums í heiminum og að framleiðsla hafi aukist um helming frá árinu 1999, auk þess sem landið væri að verða hið stór- tækasta í heiminum í framleiðslu á her- óíni. Alþjóðlegir glæpahringir í samvinnu við herskáar sveitir hryðjuverkamanna gæta þess að halda smyglleiðum um fá- farna fjallvegi opnum. Baráttan gegn hryðjuverkum tengist með beinum hætti hinni almennu baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi; peningaþvætti, smygli á eiturlyfjum, smygli á vopnum og man- sali.“ Utanríkisráðherra sagði jafnframt að efnahagslegt tjón af völdum árásanna væri gífurlegt, jafnt innan sem utan Bandaríkjanna. Samdráttur um heim all- an í vöruviðskiptum, fjárfestingum og ferðamannaiðnaði, sem rekja megi til vaxandi öryggisleysis, bitni ekki síst á þeim sem þegar standa höllum fæti. Al- þjóðabankinn hafi nú spáð fyrir um að um tíu milljón fleiri einstaklingar verði dæmdir til örbirgðar og um 40.000 fleiri börn muni deyja innan við 5 ára aldur í heiminum af völdum efnahagslegs sam- dráttar í kjölfar hryðjuverkanna. Nauðsynlegt að standa saman í baráttunni Utanríkisráðherra sagði að einstök samstaða hafi myndast um heim allan um nauðsyn þess að ríki standi saman í bar- áttunni gegn hryðjuverkamönnum. Starfsemi þeirra þekki engin landamæri og því dugi skammt þau ráð sem einstaka ríkisstjórnir geti beitt. Fagna beri frum- kvæði Bandaríkjastjórnar að vinna mál- efninu lið og baráttunni stuðning með myndun alþjóðlegs bandalags gegn hryðjuverkamönnum. „Samstaða innan alþjóðastofnanna sem Ísland á aðild að hefur verið meiri en nokkru sinni fyrr. Evrópuráðið, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu og Samein- uðu þjóðinar hafa allar sem ein fordæmt árásirnar harðlega. Yfirlýsing öryggis- ráðsins frá 12. september tekur af allan vafa um rétt ríkja til sjálfsvarnar og hvet- ur ríki heims að víkja hvergi í baráttunni við þessa ógn við friði og öryggi í heim- inum,“ sagði Halldór og vék síðan talinu að Atlantshafsbandalaginu og 5. gr. stofnasáttmála þess. „Í fyrsta sinn í sögu NATO var ákveðið að fólskuleg árás hryðjuverkamanna á Bandaríkin jafngilti árás á öll aðildarríki bandalagsins, eftir að í ljós kæmi að hún yrði skilgreind sem utanaðkomandi árás. Nú liggur fyrir að svo hefur verið. Yf- irlýsing bandalagsins markar straum- hvörf í hálfrar aldar sögu þess. Ákvæði 5. greinar koma nú til framkvæmda í fyrsta skipti. Ennfremur ber nú að líta svo á að gagnkvæmar varnarskuldbindingar að- ildarríkja geti einnig átt við um skipu- lagða hryðjuverkastarfsemi, sem beint er gegn einu eða fleirum aðildarríkja. Ákvæði 5. greinar byggja á 51. grein sátt- mála Sameinuðu þjóðanna, sem tryggir öllum ríkjum rétt til eigin varna og sam- eiginlegra. Enn er óvíst með aðgerðir af hálfu bandalagsins. Ekki ber að líta svo á að sá sem verður fyrir árásinni sé háður sam- þykki allra aðildarríkja um þær aðgerðir sem hann hyggst grípa til, enda væri það í mótsögn við réttinn til sjálfsvarnar sem sáttmáli Sameinuðu þjóðanna tryggir öll- um ríkjum. Íslensk stjórnvöld hafa lýst samstöðu með bandarískum stjórnvöld- um við tilraunir þeirra til að hafa hendur í hári sökudólganna og draga þá til ábyrgðar. Hin nýja öryggisstefna banda- lagsins, sem samþykkt var á leiðtoga- fundinum í Washington 1999, gerir ráð fyrir að bandalagið geti í auknum mæli þurft að bregðast við nýjum hættum og ógnum, svo sem hryðjuverkum, skipu- lagðri glæpastarfsemi og útbreiðslu ger- eyðingarvopna.“ Hlutverk og aðstoð Íslands Undir lok ræðu sinnar sagði Halldór Ásgrímsson mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í hinu alþjóðlega bandalagi gegn alþjóðahryðjuverkasamtökum og gerist svo skjótt sem kostur er aðili að þeim samningum sem miða að því að vinna gegn hryðjuverkum. „Þær aðgerðir sem Evrópusambandið hefur ákveðið að grípa til eru líklegar til að varða Ísland beint þar sem þær tengj- ast á ýmsum sviðum Schengen-samstarf- inu og því samstarfi sem Ísland á við Europol á grundvelli sérstaks samstarfs- samnings. Mun Ísland ekki láta sitt eftir liggja að grípa til þeirra aðgerða sem þörf er á á sviði alþjóðlegrar lögreglusam- vinnu í því skyni að efla enn frekar sam- starf þjóða í baráttunni gegn þeim vá- gesti sem hér um ræðir. Kann það að kalla á ýmsar breytingar á íslenskum lög- um sem nú er til athugunar,“ sagði Hall- dór að lokum um leið og hann lagði áherslu á nauðsyn á samstöðu þjóðarinn- ar á þessum viðsjárverðu tímum. Grunur léki á að fleiri ódæðisverk séu í undirbún- ingi, en mikil óvissa ríki um hvort, hve- nær og þá hvar. „Enginn er óhultur. Með samhentu átaki ríkja heims vona ég að koma megi í veg fyrir frekari ódæðisverk. Við verðum að taka höndum saman og berjast gegn þessari vá. Sú barátta er hafin yfir flokkadrætti. L standa saman.“ Samfylkin ráðherr Fram kom í inssonar, form dreginn stuðnin isráðherra og r málum. „Það er alve herra segir að þessum atburð stundum í lífi sé ist í hugann me ur yfir. Framtí inn ekki lengu vitnað sé til Hu að höfum í hál margar hörmun anna, okkur fin og veröldin haf sakleysi sínu. O inn eins og heim ar og verri he hann. Össur sagði órofa samstöðu ins og nú síðas forseti lýst því y inn að taka upp NATO til þess a vá. „Mér hefur fu ríkisráðherra á stilltur í þessu þótt hann gæti flokkur hans yr „alla leið“, vild stöðu Samfylki unum sem hann Össur gerði s á borð við Atlan ópusambandið Miklar umræður fóru fram á Halldór Ásgrímsson utanríkisráðh Hann ítrekaði að þessi barátta væ anleg. Fjölmargir þi Þjóðir um sa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.