Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 39
ÞÉR er boðið að
taka þátt í ótrúlega
spennandi verkefni.
Kiwanishreyfingin á
Íslandi safnar í þessari
viku fram til 6. október
fyrir þrenns konar
verkefnum til styrktar
geðsjúkum. Stærstur
hluti söfnunarfjárins
rennur til húsnæðis-
kaupa fyrir Klúbbinn
Geysi. Um 80 félagar
taka þátt í starfsemi
klúbbsins sem ætlað er
að vera fólki, sem
glímir við geðsjúk-
dóma, brú út í lífið að
lokinni læknismeðferð
eða dvöl á sjúkrastofnun. Hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar verðum við
þess áþreifanlega vör hve velferð
einstaklingsins er mikið undir að-
standendum hans komin. Þeir sem
sækja til okkar eiga það flestir sam-
merkt að eiga engan að sem getur
hjálpað þeim, hvorki fjárhagslega
né félagslega. Því höfum við fylgst
af áhuga með starfi Klúbbsins
Geysis enda á nokkur hluti skjól-
stæðinga Hjálparstarfsins við geð-
ræna sjúkdóma að etja.
Í klúbbnum hittast daglega 15–25
einstaklingar og reka nokkurs kon-
ar fyrirtæki, þar sem reksturinn
felst í að halda heimili, skipuleggja
tómstundastarf, leita að atvinnu fyr-
ir félaga og þátttöku í ýmsum verk-
efnum utan klúbbsins. Fólkið kemur
úr ólíkum áttum, hefur ólíka mennt-
un og reynslu, en meginmarkmið
allra er að styðja hvert annað við að
taka ný skref í átt að vinnu og eðli-
legu lífi.
Klúbburinn Geysir gefur út blað
sem félagar sjá alger-
lega um, allt frá því að
skrifa texta og taka
myndir, brjóta það um
og prenta. Klúbburinn
er vinnustaður sem
fólk hefur valið sér,
með öllum þeim kröf-
um, aðhaldi og sam-
starfi sem slík starf-
semi útheimtir. Þeir
sem ekki starfa að
rekstri klúbbsins,
sinna eigin vinnu,
stunda nám eða veita
öðrum aðstoð.
Lokamarkmiðið er
að komast í fasta
vinnu. Til að búa sig
undir það á klúbburinn samstarf við
ýmis fyrirtæki og félög. Hjálpar-
starf kirkjunnar hefur notið starfs-
krafta margra félaga við ýmis verk-
efni bæði til lengri og skemmri tíma.
Meðal verkefna má nefna flokkun
og skráningu skyggnu-, ljósmynda-
og myndbandasafns, afgreiðslu úr
matarbúri, þrif og flutninga.
Klúbburinn Geysir sinnir ein-
stöku starfi, sem byggt er á virð-
ingu og reisn, samvinnu og já-
kvæðni. Allir vita hve maðurinn má
sín lítils án umhyggju og fé-
lagsskapar. En af ýmsum ástæðum,
félagslegum, fjárhagslegum og ekki
síst heilsufarslegum, rofna böndin.
Klúbbfélagar halda því vel hver ut-
an um annan. Þeir reka m.a. heim-
sóknarþjónustu til geðsjúkra og
senda félögum afmælis- og jólakort
en það eru stundum einu kortin sem
fólkið fær. Ef einhver mætir ekki er
alltaf einhver sem sér um að hringja
og grennslast fyrir um líðan við-
komandi.
Hlýja, hvatning
og félagsskapur
Geysir er tveggja ára og þarf að
komast í öruggt húsaskjól svo starf-
semi klúbbsins geti vaxið og
blómstrað. Það er markmið lands-
söfnunar Kiwanis-hreyfingarinnar,
sem fram fer í þessari viku, að gera
klúbbnum kleift að kaupa eigið hús-
næði. Kaupir þú K-lykillinn mun
geðsjúkum standa til boða það sem
engin stofnun getur veitt; hlýja,
hvatning, félagsskapur og vinátta.
Sért þú, lesandi góður, svo lánsam-
ur að þekkja þetta, þá veistu um
hvað málið snýst. Kauptu K-lykilinn
eða hringdu í söfnunarsímana 907
2500 (500 krónur) eða 907 2100
(1.000 krónur).
Þér býðst að
kaupa gott hús
Anna M. Þ.
Ólafsdóttir
Höfundur er fræðslu- og upplýsinga-
fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
K-lykillinn
Klúbburinn Geysir
sinnir einstöku starfi,
segir Anna M. Þ. Ólafs-
dóttir, sem byggt er á
virðingu og reisn, sam-
vinnu og jákvæðni. Hrei
nsum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.