Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 41
OFNAR Ofnasmiðjan Flatahrauni 13 220 Hafnarfirði LANG HEITASTIR Sími 555-6100 Fax 555-6110 Reykjavíkurmót í tvímenningi 6. október Reykjavíkurmótið í tvímenningi fer fram laugardaginn 6. október og verður spilað í Hreyfilshúsinu. Mótið hefst kl. 11 og spilaður verð- ur Barómeter (allir við alla) eða Monrad-Barómeter og ræðst það eftir þátttöku. Efsta sætið gefur rétt til að spila í úrslitum Íslandsmótsins í tví- menningi 2001 auk þess sem veitt verða vegleg verðlaun fyrir 3 efstu sætin: 1. sæti: Gisting og uppihald á Arkarmótinu auk þátttökugjalds í tvímenningi Arkarmótsins 2001. 2–3. sæti: Keppnisgjald í Und- ankeppni Íslandsmótsins í tví- menningi 2001. Keppnisgjald er 4.000 kr. á par. Reykjavíkurmeistarar 2000 eru Guðjón Bragason og Vignir Hauks- son. Spilarar eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig fyrirfram og tekið er við skráningu hjá BSÍ, s: 587- 9360. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði í Glæsibæ fimmtudaginn 20. sept. sl. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Björn E. Péturss. – Magnús Oddsson 267 Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 249 Aðalbjörn Benediktss. – Leifur Kr. Jóh. 247 Árangur A-V: Ólafur Ingvarss. – Auðunn Guðmundss. 259 Sæmundur Björnss. – Oliver Kristóferss.252 Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 230 Tvímenningskeppni spiluð mánud. 24. september. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Eysteinn Einarss. – Sigurður Pálss. 249 Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 238 Þórarinn Árnason – Sigtryggur Ellertss. 233 Árangur A-V: Elín Jónsd. – Soffía Theódórsdóttir 268 Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 243 Ólafur Ingvarss. – Ragnar Björnss. 240 Íslenska sveitin spilar á OKBRIDGE næsta sunnudag Töluverður áhugi er fyrir næsta leik Iceland Expres-sveitarinnar í OK-keppninni. Sveitin spilar þá við öfluga franska sveit, www.fun- bridge.com, og leikurinn fer fram sunnudaginn 7. október og hefst kl. 13 að íslenskum tíma. Fjögurra liða úrslitakeppni í Bikarkeppni Bridssambandsins var spiluð um helgina og lauk með glæsilegum sigri Orkuveitu Reykjavíkur sem spilaði til úrslita við Síldarævintýrið. Aðeins voru spilaðar þrjár lotur af fjórum en þá var staða orðin 174-42 fyrir Orkuveituna. Sigurvegararnir eru talið frá vinstri: Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssambandsins, en hann afhenti verðlaunin í mótslok, Hermann Lárusson, Erlendur Jónsson, Páll Valdimarsson, Eiríkur Jónsson, Rúnar Magnússon og Ólafur Lárusson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 41 HM í brids flutt til Parísar Keppnin um Bermúdaskálina í brids, sem átti að hefjast 20. október á Bali í Indónesíu, hefur verið flutt til Parísar og hefst væntanlega 21. eða 22 þessa mánaðar. Ákveðið var að aflýsa keppninni á Balí eftir að fjöldi liða, sem þar átti að keppa, afboðaði þátttökuna vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september. Ekki hefur verið upplýst nánar um ástæður þessa, en sennilega þyk- ir mörgum Indónesía ekki spennandi staður til að dvelja á um þessar mundir. Nú hefur verið ákveðið að keppnin fari fram í höfuðstöðvum franska bridssambandsins í París og hafa keppendur gefið til kynna að þeir séu reiðubúnir að ferðast til Frakk- lands. Reykjanesmót í tvímenningi Reykjanesmót í tvímenningi verður haldið í Hafnarfirði 6. okt. nk. Spilað verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst mótið kl. 10 f.h. Fyrsta sætið veitir rétt á þátt- töku í Íslandsmótinu í tvímenningi sem verður haldið síðar í haust. Mjög léleg þátttaka var í þessu móti í fyrra. Vonandi verður betri mæting núna. Nánari upplýsingar og tilkynning um þátttöku veita: Sigurjón í síma 898-0970 og Kjartan í síma 421- 2287. Keppnisgjald verður 5.000 kr. á par.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.