Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 45 Mig langar til að yrkja lítið ljóð um ljúfa konu sem ávallt var mér góð. Þú liðna tíð með minninganna mátt sem megnar það að opnast upp á gátt. (Ó.Í.) Elsku tengdamamma, vinur og fé- lagi til margra ára eða í 50 ár, ég kom í hús þitt um tvítugsaldur, það voru alveg frábær kynni allt frá fyrstu stund, glaðvær og kát, glettin og uppátækjasöm, það átti vel við ungling eins og mig sem var á svip- aðri línu. Það er margs að minnast frá þeim gömlu og góðu árum, þó að þessi skrif verði ekki nema brot af því. Ekki spillti hann tengdafaðir minn þeirri mynd minninganna, hann Oddur Búason, hann var traustur maður, rólegur og yfirveg- aður. Einnig var í því húsi amma og afi, Þóra, góð kona og heilsteypt, og Daníel sem bar mikla umhyggju fyr- ir nafna sínum honum Dadda mín- um sem svo var ávallt kallaður. Það var oft búið þröngt í þá daga, þrjár fjölskyldur á Borgarbraut 25 og allt blessaðist þetta. Það var oft glatt á hjalla, spilað og rabbað á kvöldin. Á Borgarbraut 27 bjuggu þau heiðurs- hjón Stefán skósmiður og Sigur- björg kona hans, miklir vinir fjöl- skyldunnar. Iðulega kom Stefán að kvöldlagi og þá var slegið í einn manna eða svo. Mér fannst ég alltaf vera í öruggu skjóli þegar hún tengdamamma var nálægt mér, aldrei setti hún út á neitt sem ég gerði á heimilinu, tók ávallt minn málstað hvar og hvenær sem var. Svo kemur að því minningarbroti og ekki því síðasta þegar hún nafna hennar fæddist eftir 10 ára sambúð okkar Dadda, hún Guðrún Emilía, hún var mikið yndi og eftirlæti okk- ar allra og ekki síst ömmu sinnar Guðrúnar Emilíu. Þá var oft hlaupið niður stigann á stuttum fótum, svo var dansað og sungið því alltaf var hún tilbúin í smágrín með henni litlu nöfnu sinni. Ekki má gleyma barna- börnunum hennar, Ólöfu Kristínu og Daníel Andra sem henni þótti svo undur vænt um, ég gæti endalaust tínt til minningar um samveru okk- ar gegnum árin en læt hér staðar numið. En þó að endingu vil ég fyrir hönd fjölskyldunnar þakka starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra, Borgar- nesi, fyrir frábæra umönnun og elskulega framkomu við okkur. Af alhuga færum þér ástarþökk á auða sætið þitt horfum klökk. Heilsaðu föður og frændum. Að sjá þig aftur í annað sinn enn að komast í faðminn þinn við eigum eftir í vændum. (G. Björnsson.) Ég minnist góðrar konu með virð- ingu og þökk. Ólöf Ísleiksdóttir. Ég sé í anda svipinn þinn hann síast inn í huga minn. Ég kom til þín þú kættir mig með kærri þökk nú kveð ég þig. (Ó.Í.) Elsku amma mín, mig langar að GUÐRÚN EMILÍA DANÍELSDÓTTIR ✝ Guðrún EmilíaDaníelsdóttir fæddist 4. maí 1911. Hún lést 25. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Þóra J. Jóns- dóttir og Daníel Eyj- ólfsson. Guðrún gift- ist í október 1930 Oddi Búasyni frá Ballará í Dölum, d. 1989. Sonur þeirra er Daníel Þórir, kvæntur Ólöfu Ís- leiksdóttur og er dóttir þeirra Guðrún Emilía, gift Jóni Kristnis Jakobs- syni og eru börn þeirra Ólöf Krist- ín og Daníel Andri. Útför Guðrúnar Emilíu fer fram frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. minnast þín með fáein- um orðum, þú varst frábær amma og margt brölluðum við saman, oft sat ég á bríkinni á stólnum þín- um græna enda breiðir armar sem pössuðu vel undir lítinn rass. Þú tókst mér alltaf svo vel þótt það kæmi fyrir að ég truflaði einhvern framhaldsþáttinn í sjónvarpinu. Alltaf stóðu dyrnar á neðri hæðinni á Borgar- brautinni opnar, það var oftar en ekki að ég kom í einu hendingskasti niður stigann, reif upp hurðina og kallaði: „Hæ, amma, ég er komin.“ Sambúð okkar ömmu stóð í 21 ár og alltaf var jafngaman að koma til ömmu og afa þótt telpan yxi úr grasi. Minningarnar hrannast upp þegar hugsað er til hinna góðu daga á Borgarbrautinni, amma var svo mikil gella, ég man þegar hún keypti gulu buxnadraktina og var með kisusólgleraugun, það var nú ekkert smá flott. Svo þegar bridge- skvísurnar komu til að spila hafði ég oft það hlutverk að hlaupa með spilastokkana þegar kallað var „skipta“. Eftir að amma og afi fóru á Dvalarheimilið hér í Borgarnesi urðu ferðir okkar þangað fleiri. Ég veit að amma hefði viljað þakka mömmu og pabba fyrir allar heim- sóknirnar, en þau komu á hverjum degi í spjall og kaffisopa. Elsku amma mín, takk fyrir allt og allt, ég flyt góðar kveðjur frá honum Nonna mínum og einnig frá barnabörnun- um þínum, Ólöfu Kristínu og Daníel Andra, sem voru tíðir gestir hjá þér á Dvaló. Það var ekki slæmt að kíkja í stóra skápinn þinn og ekki spillti fyrir að heyra eina góða sögu eða tvær. Í veröld á hverfanda hveli er allt sem haustskýja sólroði brigðult og valt, og gæfan er brothætt sem glerið. En tryggð þín og umhyggja aldrei mér brást og ávallt í stóru og smáu hún sást þó einkum við örlagaskerið. (Einar M. Jónsson.) Jæja, amma mín, það er margs að minnast sem ég ætla að halda fyrir mig. Ég þakka þér samveruna og bið góðan Guð að geyma þig. Þín nafna og barnabarn. Guðrún Emilía Daníelsdóttir. Öllum sé í æsku kennt elska, vona, trúa. Varanlegt er þetta þrennt þar er að að búa. Trúin visku veitir þér, vonin hjartað kætir, kærleikurinn æðstur er allt hann lífið bætir. Ólöf Kristín Jónsdóttir. Orð guðs les þú oft og heyr, ávöxt mun það færa. Sælir eru allir þeir, er það heyra og læra. Einn og sérhver eftir því ævinlega breyti. Lífi og dauða einnig í oss það huggun veiti. Daníel Andri Jónsson. Guðrún E. Daníelsdóttir var tengdamóðir móðursystur minnar, hennar Lóu í Borgarnesi. Þegar mamma hringdi í mig í vinnuna í síð- ustu viku og tilkynnti mér að hún Guðrún gamla í Borgarnesi væri dá- in kom sú frétt mér ekki mjög á óvart. Guðrún var orðin öldruð og heilsan farin að gefa sig. Sem barn og unglingur varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fara á sumrin upp í Borgarnes til Lóu og Dadda. Þau bjuggu þá í fjöl- skylduhúsi á Borgarbraut 25 í Borg- arnesi. Á neðri hæðinni bjuggu Guð- rún og Oddur og var mikill samgangur á milli hæðanna. Alltaf stóð heimili Guðrúnar og Odds mér opið og mér krakkanum tekið með kostum og kynjum. Ég bjó að því í nokkur ár að vera eina barnið í fjöl- skyldunni, eða þar til hún Guðrún frænka mín fæddist þegar ég var fimm ára. Guðrún var alltaf tilbúin að spjalla við mig um heima og geima, fara niður í Skallagrímsgarð, spila við mig, kenna mér að leggja kapal og ef tækifæri gafst til að atast aðeins í Oddi sem tók öllu með stakri ró. Guðrún er í minningunni stór og glæsileg kona sem bar sig alltaf vel, ræðin og hláturmild. Alla tíð skipti það Guðrúnu miklu máli að líta vel út, vera í fötum sem klæddu hana vel og allt fram á síðasta dag hafði hún áhuga á að hafa vel greitt og lagt hár. Snyrtimennska var henni í blóð borin. Þegar ég hugsa til baka var alltaf gott veður í Borgarnesi og við því oft úti í garði. Í fámennum bæ eins og Borgarnes var þá, þekktu allir alla. Fólk sem leið átti um Borgarbrautina heilsaði, bauð góðan dag og oft fór langur tími hjá Guðrúnu úti á stétt í spjall við vini og kunningja. Þetta voru notalegir tímar og alltaf tilhlökkun hjá borg- arbarninu þegar leiðin lá upp í Nes. Eftir að Hörður, maðurinn minn, kom til sögunnar var honum vel tek- ið hjá Guðrúnu og Oddi. Hörður og Guðrún náðu vel saman þegar rætt var um stjórnmál og brids. Þau voru alltaf á sama máli og létu það ekki á sig fá þó svo að við hin fylgdum þeim ekki alltaf að málum. Stutt var í smástríðni og hláturinn ekki langt undan. Síðar bættist Gunnar sonur okkar við vina- og fjölskylduhóp Guðrúnar. Hún gaf sig alltaf að hon- um, ræddi við hann og sýndi áhuga á því sem hann hafði að segja og var að fást við. Hún var í hans augum „amman“ í Borgarnesi sem tók hon- um á sama hátt og barnabarnabörn- unum, en hjá þeim fékk hún við- urnefnið „langa“ eða langamma. Hún var því ósvikin ættmóðir fjöl- skyldunnar í Borgarnesi. Guðrún tók sig vel út og naut sín í ferming- arveislunni hjá Ólöfu Kristínu fyrir tveimur árum þrátt fyrir árin níutíu og dvínandi krafta. Þegar aldurinn færðist yfir Guð- rúnu og Odd fluttu þau á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi. Þau komu sér vel fyrir í notalegu her- bergi og þau gátu notið þess sem heimilið hafði upp á að bjóða. Eftir að Oddur lést mat Guðrún mikils að fá að dvelja áfram í herberginu þeirra og hafa alla sína persónulegu muni í kringum sig. Einnig naut hún þess að Daddi og Lóa fluttu í næsta hús og gátu heimsótt hana daglega og sinnt henni á ýmsa vegu. Lóa frænka mín á heiður skilinn fyrir allar þær stundir sem hún dvaldi hjá tengdamóður sinni og lét hennar þarfir og óskir ganga fyrir sínum eigin. Heimsóknir til Guðrúnar á Dval- arheimilið höfðu alltaf yfir sér léttan blæ, stutt í spaug og grín. Hún tók vel á móti okkur og alltaf átti hún til góðgæti sem gestum var boðið. Heilsu Guðrúnar hrakaði síðustu mánuði og hún varð kraftminni. Hún þreyttist fljótt í margmenni, heyrnin hafði daprast og því fækk- aði ferðum okkar í skotið til hennar. En alltaf fengum við góðar kveðjur og hamingjuóskir frá henni. Ég vil hér að leiðarlokum þakka Guðrúnu E. Daníelsdóttur alla þær ómetanlegu samverustundir sem við höfum átt saman frá því ég man fyrst eftir mér. Við fjölskyldan biðj- um góðan Guð að geyma hana og styrkja Dadda, Lóu, Guðrúnu, Jón, Ólöfu Kristínu og Daníel Andra í sorg þeirra. Blessuð sé minning um gengna sómakonu. Fanný Gunnarsdóttir og fjölskylda. Vinkona mín hún Gunna Dan, eins og hún var yfirleitt kölluð, er látin. Fregnin kom mér svo sem ekkert sérstaklega á óvart. Ég kynntist henni þegar ég hóf störf í kjörbúð KB í Borgarnesi. Hún var hávaxin og vel til höfð. Kona með reisn. Hún var rúmlega sextug, en ég rúmlega tvítug að aldri. Það var því fjörutíu ára aldursmunur á okk- ur, en það kom ekki í veg fyrir að með okkur tókst vinskapur sem hef- ur haldist þótt liðin séu um þrjátíu ár síðan. Okkur gekk mjög vel að vinna saman og það var ekki hægt að merkja að aldursmunurinn hefði nokkuð að segja. Gunna var alltaf létt í skapi og til í sprell. Við störf- uðum aðallega saman við vöruupp- fyllingu í verslunina. Oft var hlegið mikið á lagernum þegar vörurnar voru sóttar og oft var erfitt að hætta þegar við fórum fram í verslunina og þerra þurfti hláturtárin. Þegar ég kom fyrst í heimsókn til Gunnu á Borgarbrautina var Oddur maðurinn hennar enn á lífi (eða Kút- urinn minn eins og hún kallaði hann okkar á milli). Það var allt svo fínt og glansandi hjá þeim, bónað eld- húsgólf, heimabakað brauð og rúllu- pylsan lostæti. Síðan flutti Gunna á Dvalarheimilið í Borgarnesi eftir að Oddur dó og ég flutti til Reykjavík- ur ásamt fjölskyldu minni. Sam- bandið á milli okkar hélst alltaf. Við sendum hvor annarri jólakort og ég sendi henni myndir af börnunum mínum, henni þótti alltaf svo vænt um þau. Seinna hætti hún að senda jólakort, en sendi jólakveðjur í út- varpið. Alltaf hringdi hún á milli jóla og nýárs. Ég ásamt eiginmanni mín- um Þóri Þorvarðarsyni heimsótti hana öðru hvoru á Dvalarheimilið í Borgarnesi og alltaf voru móttök- urnar hlýjar og innilegar. Blessuð sé minning þessarar glæsilegu vin- konu minnar. Ég, Þórir og börnin sendum Daníel og Lóu og öðrum aðstand- endum innlegar samúðarkveðjur. Hjördís Harðardóttir.                                          !    "#"          !  "! #   !  $!% &'  (! )  * + ,  !  -  .   /0 $! .    1  23 $        %     $4) -$ 556675 . 0 1#   &     '"&  &     ()**    )   %  * . *   "! $!%  ! 3 $           8$ 569/75675  . #: ;1: # &    !  (! !   $!     (!  %    6  (  (!  1  . !     . *    . * 3 !               3- 8 6) 56675 .# ;  #. <: <( (= #: ;1:  + ,     -    -         .   &  /  (/** 0  &    1"    &  &2 2 .     )   - ( : !  6  (   ;    ! - ( :   2&'  !  )   - ( :   ( 6  ! !    - ( : !     !   *    . * 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.