Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 46
MINNINGAR 46 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurður Krist-inn Sigurðsson fæddist í Gildrunesi í Skutulsfirði 3. ágúst 1913. Hann lést á Hrafnistu, dvalar- heimili aldraðra sjó- manna, 26. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Kristín Helga Jensdóttir frá Gildrunesi, f. 14. okt. 1885, d. 30. sept. 1956, og Sigurður Kristján Sigurðsson frá Tungu í Skutuls- firði, f. 19. júní 1874, d. 19. júní 1956. Systkini Sigurðar eru Ólafur Elí Guðmundur, f. 14. nóv. 1907, Jens Ásgeir Hans, f. 25. nóv. 1909, Sigríður Svanhvít, f. 11. ágúst 1911, Þórunn Jónína Guðrún, f. 11. okt. 1915, Elís Pétur, f. 9. janúar 1927, og fóstursystirin Elín Petr- ína Snæbjörnsdóttir, f. 21. júní 1914, öll dáin. Steinþóra Margrét, Jón kerfisfræðingur, f. 24. júní 1940, kvæntur Jónínu Mich- aelsdóttur blaðamanni og rithöf- undi, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Þórður matreiðslu- meistari, f. 13. maí 1944, kvæntur Eddu Gunnarsdóttur hjúkrunar- fræðingi, þau eiga þrjá syni og fjögur barnabörn. 4) Sigrún Dag- björt leiðbeinandi, f. 7. okt. 1948, gift Jóhannesi Benediktssyni off- setprentara, börn þeirra eru fjög- ur. Sigurður kynntist Bergþóru Þórðardóttur ekkju frá Patreks- firði 1967. Vinátta þeirra var ein- læg og nutu þau stuðnings hvort annars. Bergþóra lést árið 1992. Sigurður Kr. stundaði sjó- mennsku allt frá 17 ára aldri. Hann tók mótoristapróf og bætti við vél- stjóranámi, var lengst af vélstjóri bæði á fiski- og kaupskipum. Árið 1964 réðst hann til Landhelgis- gæslunnar, fór í land 1982 og gerð- ist vaktmaður hjá Gæslunni, lauk hann þar sínum starfsferli. Hann var sæmdur heiðursmerki sjó- manna á sjómannadeginum í Hafn- arfirði árið 1983. Útför Sigurðar Kr. fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. f. 14. okt. 1919, lifir bróður sinn. Hinn 8. september 1938 kvæntist Sigurð- ur Kr. Þórunni Dag- björtu Sigurðardótt- ur, f. 11. janúar 1915 í Hafnarfirði, d. 11. jan- úar 1964. Hennar for- eldrar voru Þórólína Ingibjörg Þórðardótt- ir, f. 16. febr. 1886 í Móhúsum á Miðnesi, og Sigurður Jónsson fiskmatsmaður, f. 18. ágúst 1871 á Brúar- hrauni (kallaður Lóðs- bær) í Hafnarfirði, d. 4. nóv. 1947. Foreldrar hans voru Jón Guð- mundsson hafnsögumaður í Hafn- arfirði og Margrét Kristjánsdóttir Velding. Börn Sigurðar og Þór- unnar eru 1) Hilmar, grafískur hönnuður, f. 13. nóv. 1938, kvænt- ur Hildigunni Ólafsdóttur hjúkr- unarfræðingi, þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. 2) Sigþór Í bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer og man þá sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Kæri vinur. Þegar ég fann snjáða miðann sem þú barst á þér, með þess- um texta, varð mér hugsað til litla drengsins sem fæddist vestur við Ísa- fjarðardjúp. Fyrsta áratug ævi sinnar sat hann m.a. yfir kvíaánum í Aðalvík, og var mjólkurpóstur á Fossum fyrir innan Ísafjörð. 12 ára var hann send- ur í sveit til Önundarfjarðar, eftir að hafa legið í taugaveiki og smitað systkini sín heima. Upp úr því var hann í kaupamennsku víða um land, þar sem atlæti var misjafnt og vinnu- dagurinn oft langur við erfið störf, þótt hann væri ekki hár í lofti. Hug- urinn hefur eflaust oft leitað heim til mömmu og pabba, fundist sem hann reikaði á rangri leið og beðið Drottin að leiða sig og lýsa um ævistig. Þessi ár settu mark á líf þitt. Þú hést því að börnin þín færu aldrei í sveit. Þér hefur sjálfsagt brugðið þeg- ar þú komst einu sinni í land og ég, ellefu ára pollinn, var kominn austur í Byggðarhorn í Flóa í kaupavinnu og það með hjálp vinkonu ömmu Línu eftir pukur og nuð í mér við mömmu um að fá að fara í sveit, ég ætlaði nefnilega að verða bóndi þegar ég yrði stór. En þér var strax ljóst þegar þú komst austur til að sækja mig sam- dægurs hvað ég naut þess að vera í sveitinni og hvílík sæmdarhjón Lóa og Geir voru. Og sumrin í Byggðar- horni urðu fleiri. Þarna kynntist ég gömlu heyskaparháttunum af eigin raun við slátt á engjum og heyflutn- ing á hestalest. Seinna varstu mér sammála um að þarna hefði ég lært að vinna og er ég þeim ágætu bænda- hjónum ævarandi þakklátur. Sjómennskan tók við hjá þér af sveitastörfunum og þroski fylgdi hverju ári. Alls staðar komstu þér vel hjá þín- um húsbændum bæði til lands og sjávar, samviskusemi þín, elja og vandvirkni gerðu þér auðvelt að fá skipsrúm og ekki spillti létta lundin. Mér er minnisstæð frásögn þín, ein af mörgum í laugardagsmorgunkaffi í Smárahvamminum, um næmi þitt fyrir vélarhljóðinu, þótt þú svæfir í þinni koju þá vaknaðir þú upp við minnstu taktbreytingar í skipsvélinni. Með orðheldni vannstu þér traust allra þeirra sem kynntust þér. Faðir með þessa gullvægu mannkosti á allt stolt sinna barna. En þú áttir líka þitt stolt, móður okkar og þína ást. Sjó- mannskonuna sem var eðlis-uppeldis- fræðingur af Guðsnáð og listakona við húsmóðurstörf og hverskyns hand- verk. Þetta var stóra ljósið á ævistigi þínu, harmurinn var okkur öllum mikill þegar mamma féll frá í blóma lífsins. En ég trúi á líf að loknu þessu og að þú hafir aftur fundið skæra ljós- ið þitt. Elsku pabbi minn, ég kveð þig með þinni eigin kveðju; Guð veri með þér. Þakka þér allt og allt. Þinn Hilmar. Sigurður Kr. er farinn á fund feðra og ástvina. Hann staldraði aldrei lengi við þegar hann átti erindi eða kom í heimsókn. Eins var því varið, þegar hann veiktist nú, honum lá á. Hann afgreiddi hlutina hratt og örugglega – næstum alltaf með bros á vör. Það sæmdi ekki að velta sér upp úr vandræðum. Það tíðkaðist ekki að bera sárar til- finningar á borð fyrir aðra. Aðstæð- urnar í uppvextinum voru oft svo erf- iðar að án sterkrar trúar hefði ekki verið auðvelt að þrauka. Adrei var verið með kröfur til annarra en æv- inlega treyst á sjálfsbjargarhæfileik- ann og trúna á æðri hjálp. Hann fór aldrei burt eftir heimsókn án þess að faðma viðstadda og kvaddi alltaf með þessum orðum: „Guð veri með ykk- ur.“ Hann fól Guði alla forsjá sína og sinna og ósjaldan talaði hann um hve þakklátur hann væri fyrir gæfusamt líf og góða afkomendur, sagði: „Lánið fór að leika við mig um leið og ég kynntist Þórunni.“ Söknuðurinn var mikill þegar hún ung féll frá. Það var þó ekkert verið að víla, þetta hlaut að vera Guðs ráðstöfun. Gæfan leiddi hann nokkrum árum síðar í elskulegt vináttusamband við Bergþóru Þórð- ardóttur frá Patreksfirði. Hún lést ár- ið 1992. Mig langar að þakka hér Ein- ari bróður hennar og konu hans vináttu og tryggð, sem er einstök og var Sigurði ómetanleg. Af systkinahópi Sigurðar Kr. er Margrét ein á lífi. Á milli þeirra var afar kært. Hún er nú 82 ára, en sívök- ul, ung í anda og gefandi og heldur uppi glaðlyndi og styrkleika þessa mæta systkinahóps frá Ísafirði. Systkinabörnin hans áttu stóran sess í huga hans. – Kristinn frændi, eins og þau kölluðu hann, fylgdist vel með stóra hópnum og bar hag þeirra fyrir brjósti. Nú þegar ég kveð minn kæra vin og tengdaföður er mér efst í huga þakklæti fyrir að hann fékk að sofna – þurfti ekki að liggja ósjálfbjarga og auðnaðist að geyma bæði brosið sitt og léttleika fram undir síðasta dægur. Honum þakka ég sjálfum fyrst og fremst fyrir að hafa veitt mér þann lífsauð sem mér er dýrmætastur; manninn minn og börnin okkar. Hildigunnur Ólafsdóttir. Þegar tengdafaðir minn, Sigurður Kr. Sigurðsson, kvaddi lífið á fögrum haustmorgni í nýliðinni viku, fannst manni haustið í lífi hans rétt í sjón- máli þó að hann væri hátt á níræð- isaldri. Glettni æskumannsins leiftr- aði í dökkum augunum þar til heilsan fór að ónáða hann verulega fyrir fá- einum vikum, og ólýsanlegt brosið var eins og á unglingi sem er að hefja lífið fullur tilhlökkunar. Hann gat svo sem verið önugur líka og hafði yfir- leitt ekki fyrir því að gera sér upp nokkurn skapaðan hlut. En hann var alltaf sjálfum sér samkvæmur og lifði því lífi sem hann langaði til lengst af. Þegar fundum okkar bar fyrst saman fannst mér hann eins og mað- ur sem veit að lánið er hans megin í tilverunni. Hann var sjálfsöruggur, glaður og stríðinn, þótti gaman að slá fólk út af laginu með ögrandi athuga- semdum, var mannblendinn og gest- risinn með afbrigðum. Lífið brosti við honum og hann brosti á móti. Hann vann hjá traustu fyrirtæki, var á bát sem fiskaði vel, var nýfluttur inn í stórt einbýlishús sem hann hafði byggt sér, og börnin hans fjögur voru hvert öðru gæfulegra. Hann var aug- ljóslega stoltur af eiginkonu sinni, Þórunni Dagbjörtu Sigurðardóttur, og þegar siglt var með aflann keypti hann handa henni föt af slíkri smekk- vísi að jafnaldra vinkonur mínar hefðu klæðst þeim með ánægju. Sjálf- ur var hann einstakt snyrtimenni og klæddist vel upp og það gerði Þórunn tengdamóðir mín sannarlega líka. Hún bar með sér sérstaka mýkt og þokka, hafði fágað skopskyn, var orð- heppin og glaðsinna en rólynd og réð því sem hún vildi ráða. Enda var hún framkvæmdastjóri heimilisins þar sem hann var alltaf á sjó. Við hjónin höfum hitt fólk sem man eftir þeim ungum og var því tíðrætt um hvað þau hefðu verið glæsileg hjón, kát og skemmtileg saman. Elsti sonur okkar Sigþórs, Mich- ael, var fyrsta barnabarn þeirra og eftir að hann fæddist hringdi Sigurð- ur til okkar um leið og hann kom í land og spurði hvort við værum ekki á leiðinni suðureftir með barnið. Hann hafði mikið dálæti á drengnum og þótti vík milli vina þegar við hjónin fluttum vestur á land með hann á öðru ári. En nokkrum mánuðum síðar urðu vatnaskil í fjölskyldunni. Tengdamóðir mín veiktist alvarlega og lést á afmælisdaginn sinn 11. jan- úar 1964. Bræðurnir Hilmar og Þórð- ur voru þá fulltíða menn og lifðu sínu eigin lífi, en systirin Sigrún aðeins fimmtán ára. Hún flutti með okkur Sigþóri vestur á Snæfellsnes, húsið var selt og nýr kafli hófst í lífi Sig- urðar Kr. Sigurðssonar. Hann hóf störf hjá Landhelgisgæslunni, keypti sér íbúð og bíl og sá algjörlega um sig sjálfur. Hann var rúmlega fimmtugur og hafði ekki átt bíl áður, nema um þriggja mánaða skeið þegar hann var ungur. Hann naut þess að aka um landið, gjarnan einn og var ólatur við það. Mér er í fersku minni þegar hann renndi í hlaðið á Gufuskálum á amer- ískri bifreið af Rambler gerð, steig út í ljósum khakibuxum- og skyrtu með svört sólgleraugu og skundaði létt- stígur að dyrunum. Síst af öllu hefði SIGURÐUR KR. SIGURÐSSON $              )  36 ) 56675 :!,(    >?  &    & /  (/  .1 );     !  6;    + 16  ( !  "!  3    (      !  6.0 '  *    . * 3 .              8$ 5 8$ 56675  *(, +  ,   &     '    &     ()**  .  (! 6 1(  (! !     !    (! !    (,  ! 63 (! !   ./ 2    #    !   *    . * 3 $             4-/ 5@6  ( ; >= #( . (   &    3" &   &     ()** 6.0"!  "! 6.0 )1/ 1 6.0 !  6  (   !   !. 6  ( 3 4           "  )5) 6  )  ; AB 6. +   (5  !      :  6  1 1, !  / 2   %(  !        *     * 3              8@5"76) 56  6 %1(  &   6   &     /  (/**0  &    6   +  (,    "!  :6*; !  "   +. 1( +  !   *     * 3 $              8$4 /9)5) 6   *== #: ;1:   &     .   &  /  (77* (          0 !     *     * 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.