Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 04.10.2001, Qupperneq 48
MINNINGAR 48 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ólafía Sigurðar-dóttir fæddist í Reykjavík 4. október 1913. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 20. september síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Arnbjörg Guð- mundsdóttir, hús- móðir frá Ívars- húsum í Garði, f. 10.2. 1878, d. 3.2. 1941, og Sigurður Sigurðsson, sjómað- ur frá Blómsturvöll- um í Garði, f. 19.7. 1877, fórst með togaranum Skúla fógeta 10.4. 1933. Systkini Ólafíu eru Jóna G., húsmóðir í Reykjavík, f. 2.9. 1910, d. 6.4. 1998, og Guð- mundur Valur, klæðskeri í Reykja- vík, f. 29.3. 1921. Ólafía giftist 23.6. 1931 Gústaf Adolf Gíslasyni, f. að Hrauni í Tálknafirði 20.7. 1905. Hann fórst með togaranum Jóni Ólafssyni í október 1942. Gústaf Adolf var sonur Gísla Bjarnasonar sjómanns og Ingveld- ar Þuríðar Jónsdóttur húsmóður, beggja úr Tálknafirði. Börn Ólafíu barnabörn og eitt barnabarna- barn. Ólafía og Gústaf eignuðust stúlku sem var fædd 1941. Hún var gefin og ættleidd nokkru eftir að Gústaf lést. Ólafía giftist 14.7. 1945, Guðna Sveinssyni bifreiða- stjóra, f. 19.10. 1912, d. 9.2. 1987. Hann var sonur hjónanna Sveins Jónssonar áhaldavarðar frá Norð- urkoti í Miðneshreppi og Kristínar Jóhannesdóttur frá Tröð í Bessa- staðahreppi. Ólafía og Guðni skildu. Börn þeirra eru: Ólafía, f. 28.11. 1944, d. 6.8. 1996, var gift Erlendi Þórðarsyni, en þau skildu, börn þeirra eru þrjú og barna- börnin sex. Áður eignaðist Ólafía son, sem ólst upp hjá systur henn- ar, Sigurbjörgu, og á hann eitt barn; Gústaf Adolf, f. 21.7. 1947, kvæntur Valgerði Kristinsdóttur, þau eiga tvö börn og fjögur barna- börn. Ólafía giftist 14.7. 1957, Benedikt Bjarnasyni, bifreiða- stjóra í Reykjavík, f. 23.12. 1915, d. 3.10. 1991. Hann var sonur hjónanna Bjarna Benediktssonar verkamanns og Ólafíu Kristrúnar Magnúsdóttur húsmóður. Þau voru bæði frá Stokkseyri. Ólafía var lengst af húsmóðir á barnmörgu heimili og alla sína starfsævi helgaði hún heimili sínu og börnum. Útför Ólafíu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin kl. 15. og Gústafs eru: Ingólf- ur Gísli, f. 26.11. 1931, var kvæntur Laufeyju A. Lúðvíksdóttur, þau skildu, börn þeirra eru fjögur, barnabörn eru tíu og barna- barnabörn eru þrjú; Sigurbjörg, f. 18.2. 1933, gift Hjalta Gunnarssyni, þau eiga eitt barn og fimm barnabörn; Ólafur, f. 8.8. 1934, d. 19.11. 1988, eftirlifandi eig- inkona hans er Þuríð- ur Runólfsdóttir, börn þeirra eru fimm og barnabörnin átta; Magnfríður Perla, f. 9.8. 1936, var gift Rafni Bjarnasyni, þau skildu, börn þeirra eru sjö, barnabörnin fjórtán og eitt barna- barnabarn; Kristinn Adolf, f. 23.1. 1939, var kvæntur Erlu G. Waage, þau skildu, börn þeirra eru tvö og barnabörnin tvö. Seinni kona Kristins var Kristín B. Hallbjörns- dóttir, þau skildu, börn þeirra eru tvö; Guðni Steinar, f. 1.3. 40, kvæntur Guðrúnu Snæbjörnsdótt- ur, þau eiga þrjú börn, þrettán Nú þegar móðir mín hefur kvatt þessa veröld, södd lífdaga, er mér efst í huga söknuður og þakklæti fyr- ir langa samveru okkar og það vega- nesti sem við systkinin fengum út í lífið. Ég vil kveðja móður mína með orðum Þórunnar Sigurðardóttur: Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við, fjölskyldan í Grjótaseli 10, kveðjum þig öll með söknuði og biðj- um Guð að geyma þig. Sigurbjörg Gústafsdóttir og Hjalti Gunnarsson, Hjalti Reynis og fjölskylda, Ísafirði. Það er ávallt erfitt að kveðja vini og vandamenn hinstu kveðju en þeg- ar ég kveð móður mína nú er eins og með kveðjunni fari hluti af mér sjálfri. Ég naut þess alla ævi að fylgjast með móður minni á lífsbraut hennar og mjög náið síðasta spölinn. Eftir ævilanga lífsbaráttu hennar við barnauppeldi og heimilisumsjón, þar sem á skiptust gleði, ánægja og ýmis vandamál sem leysa þurfti, og að lokum erfiðleikar vegna þverr- andi þreks sem aldurinn laumar að okkur öllum, var lífsvilji hennar mik- ill til hinstu stundar. Minningin er fersk og geymist með mér. Elsku mamma mín, ég bið Guð að gæta þín. Magnfríður Perla Gústafsdóttir. Við andlát elskulegrar tengda- móður minnar, Ólafíu Sigurðardótt- ur, sækja minningar á hugann. Minningar um góða konu. Það var árið 1959, sem ég hitti Ólafíu fyrst. Hún tók mér opnum örmum á heimili sínu á Fálkagötu 19, leiddi mig til stofu og sagði við mig með stolti: „Þetta er nú fjölskyldan okkar.“ Þarna var þá stórfjölskyldan mætt og tók á móti mér á sinn elsku- lega og frjálslega hátt. Spennan, sem ég hafði fundið fyrir vegna þessa fyrsta fundar við fjölskylduna, hvarf um leið. Þótt ekki væri hátt til lofts né vítt til veggja, rúmaði þetta litla hús ótrúlega marga og alltaf virtist vera pláss fyrir einn í viðbót! Þangað var gott að koma og gestrisni var í há- vegum höfð. Ég skildi aldrei hvernig hún fór að því að galdra fram allar kræsingarnar sem komu úr litla eld- húsinu hennar. Síðar, þegar Ólafía og maður hennar, Benedikt, fluttu í nýja íbúð í Háaleitishverfi, má nærri geta hve mikil breyting það hefur verið, ekki síst fyrir húsmóðurina. Stofan í nýju íbúðinni var jafnstór og allt húsið á Fálkagötunni hafði verið. Ólafía lagði alla tíð mikinn metnað í sitt fallega heimili. Hún var fag- urkeri og naut þess að hafa fallegt í kringum sig. Allt lék í höndunum á henni og handavinnan hennar ber henni fagurt vitni. Í orðabók Ólafíu var ekkert „nærri því“, allt varð að vera nákvæmt, hvort sem var í frá- sögn eða verki. Fékk hún oft að heyra hnyttnar athugasemdir frá börnum sínum, þegar þeim þótti ná- kvæmnin vera fullmikil. Hún var minnug og hafði gaman af að segja frá. Þegar hin stóra fjöl- skylda kom saman var kátt á hjalla. Ólafía og systkini hennar, Jóna og Valur, voru ákaflega samrýnd og öll höfðu þau einstakt lag á að segja sögur, sem kitluðu hláturtaugarnar svo um munaði. Ekki þurftu þau að fara út fyrir fjölskylduna til að ná sér í efnivið í þessar sögur, þau sjálf lögðu hann til og fóru á kostum í túlkuninni. Kímnigáfa var þessu fólki í blóð borin. Oft var tekið í spil og kom þá fyrir að hressilegar at- hugasemdir heyrðust. Ekki fór á milli mála hverjir voru að vinna eða tapa. Ekki held ég að það hafi alltaf verið tilviljun að hún tengdamóðir mín bar fram kaffi og kræsingar ein- mitt þegar æsingur spilamannanna var að ná suðupunkti. Þegar barna- börnin komu í heimsókn til Ólafíu ömmu og Benna afa var alltaf tekið á móti þeim eins og þjóðhöfðingjum. Benni afi gat nú stundum verið ótta- lega stríðinn en smáfólkið átti traustan bandamann í ömmu sinni sem alltaf tók þeirra málstað. Ævistarf sitt helgaði Ólafía heimili sínu og börnum, enda voru verkefnin heima fyrir meira en næg og vinnu- dagurinn var langur. Hún gat verið mjög ákveðin og staðið fast á sínu. Líklega hefur sá eiginleiki oft komið sér vel þegar straumur lífsins varð þungur. Síðustu misserin voru Ólafíu erfið. Það var ekki hennar stíll að bogna og vera ekki sjálfbjarga. Nú er þrautum lokið og hvíldin kær. Í huganum geymi ég bjartar myndir dýrmætra samverustunda með tengdamóður minni. Blessuð sé minning þessarar góðu og fallegu konu. Börnum Ólafíu, Val bróður hennar og fjölskyldum þeirra óska ég Guðs blessunar. Guðrún Snæbjörnsdóttir. Í dag er jarðsungin elskuleg tengdamóðir mín, Ólafía Sigurðar- dóttir. Það var á kyrru vorkvöldi eftir bíóferð í Trípolíbíó að ég kom fyrst á heimili hennar í litla húsinu á Fálka- götunni. Heimilisfólkið var gengið til náða. Tvö falleg lítil systkin sváfu í hliðarherbergi við eldhúsið þar sem lagt var á borð fyrir tvo og nýbak- aðar kökur biðu eftir okkur. Ég man enn að ég dáðist að því hve kökurnar voru fallega bakaðar. Síðar átti ég eftir að sannreyna að svona vann hún öll sín verk, húsmóðirin á þessu heimili. Hún átti eftir að vera tengdamóðir mín í yfir fjörutíu ár. Hún tókst snemma á við lífið, gift- ist fyrst, með konungsleyfi, aðeins sautján ára, Gústaf Gíslasyni, góðum dreng sem stríðið tók frá henni og börnunum þeirra sem urðu sjö. Þarf ekki að hafa mörg orð um hvert áfall það hefur verið fyrir þau öll. Tvö yngstu börnin varð hún að láta frá sér. Mér er minnisstætt eitt sinn þegar verið var að ræða um barnslát, þá sagði hún: „Það er sagt að sárasta sorgin sé að missa barn.“ Auðheyrt var að þarna var hún að tala um sína sáru reynslu. Ólafía var einstaklega aðlaðandi kona, falleg svo af bar, hrífandi og skemmtileg. Við börn var hún einstaklega ljúf og blíð og talaði við þau af virðingu sem hún fékk óskipta til baka. Hún hafði þann góða hæfileika að geta gefið sig alla í augnablikið og þess vegna urðu sam- skiptin við hana svo lifandi og eft- irsóknarverð, að því ógleymdu að skopskynið var sjaldnast langt und- an. Hún giftist aftur, Guðna Sveins- syni, þau eignuðust tvö börn en skildu síðar. Þegar ég kynntist henni var hún nýgift Benedikt Bjarnasyni, sem þá keyrði vörubíl á Þrótti, en var svo í mörg ár vaktmaður á Borg- arspítalanum. Benni var hjartahlýr, örlyndur og örlátur og síðast en ekki síst glæsilegur eins og ítalskur greifi. Á þessum árum voru elstu börnin sem óðast að festa ráð sitt og stofna eigin heimili. Þau hjónin höfðu bæði mikinn áhuga fyrir öllu því stússi, Benni var alltaf boðinn og búinn ef eitthvað þurfti að flytja, kom á vöru- bílnum eftir langan vinnudag, hvort heldur þurfti að flytja ísskáp eða heila búslóð, og bauð fram hjálp sína á þann hátt að engu var líkara en við værum að gera honum greiða. Á ár- unum eftir 1960 var mikil gróska í byggingariðnaði, hörgull var á lóðum og mörg gömul hús viku fyrir nýjum. Þannig fór um litla húsið á Fálkagöt- unni. Þar reis stór blokk, til mikilla lýta fyrir þessa vinalegu götu, en það er önnur saga. Ólafía og Benni fluttu í mjög góða íbúð við Stóragerði sem listfeng út- sjónarsemi húsmóðurinnar og dugn- aður og áhugi húsbóndans breyttu fljótt í glæsilegt heimili. Nokkrum árum seinna var enn bætt um betur og flutt í íbúð við Háaleitisbraut. Þegar þau hjónin voru orðin tvö í heimili má segja að við tæki nýr kafli í lífi þeirra eins og verða vill. Nú gafst Ólafíu tími til að sinna gömlu áhugamáli, útsaumnum. Langar stundir sat hún við saumana, raðaði oftast litunum sjálf og gladdist við að sjá mynstrið og litina „spila“ saman. Þegar ég sýni jólalöberana frá henni, þá sýni ég gjarnan rönguna líka, því handbragðið er einstakt. Ferðalög voru henni og þeim báð- um mikið áhugamál. Þau ferðuðust mikið um Ísland og til útlanda fóru þau saman nokkrar ferðir; skoðunar- ferðir um Mið- og Suður-Evrópu, Danmörku, Bandaríkin og einnig til Kanaríeyja og fleiri sólarlanda. Ólafía hafði einstakt auga fyrir fegurð og samræmi. Ef mynd hékk skökk á vegg eða einhver hlutur fór betur á öðrum stað sá hún það strax og benti á eða lagfærði. Þetta varð oft að góðu gamni í þessari glaðlyndu og hláturmildu fjölskyldu og haft fyrir satt að hún sæi eiginlega allt of vel! Það var oft glatt á hjalla í þess- um stóra hópi. Ekki spillti fyrir þeg- ar Jóna og Binni og Valur og Dóló bættust í hópinn, þá var samkoman óðara orðin á við bestu revíu. Eftir því sem ég best veit starfaði tengdamóðir mín aldrei utan heim- ilis. Það var líka ærið verkefni að hugsa um stóran barnahóp, sjá um allar útréttingar, matreiða og sauma flest það sem fjölskyldan klæddist svo fátt eitt sé talið. Framan af voru efnin lítil, húsnæði ótryggt og ekkert af því, sem nútímakonur telja sjálf- sögð þægindi, til á venjulegum al- þýðuheimilum. En Ólafía vann heim- ili sínu af mikilli trúmennsku enda bar það henni fagurt vitni. Þegar ég svipast um í minningun- um finnst mér hún oftast vera glöð og brosandi. Það er gott að muna hana þannig. Um ævina mættu henni þó miklir erfiðleikar og oftast var hún heilsuveil. Eftir að Benni dó brá hún búi og dvaldi hjá börnum sínum nokkur ár en síðustu árin dvaldi hún á dvalar- heimilinu Eir þar sem hún naut góðrar hjúkrunar. Elsta dóttirin, hún Systa, reyndist henni einstak- lega vel alla tíð og sérstaklega nú þennan síðasta tíma, þótt ekki sé á neinn hallað. Nú er laufið byrjað að fjúka af trjánum hérna við Bjarkargötuna. Senn lýkur þessu milda hausti og við tekur hin langa vetrarhvíld. Ég held að hvíldin sé himnaríki út af fyrir sig fyrir þann sem þreyttur er. Þakklæti er mér efst í huga. Inni- legar samúðarkveðjur. Þuríður (Dúa). Margs er að minnast þegar svo stórbrotin kona, sem eftir sig skilur um 120 afkomendur, kveður jarðlíf- ið. Hér á eftir fara nokkur minning- arorð um hana ömmu, langömmu og langalangömmu okkar. Alltaf voru hún og Benni afi góð heim að sækja og ekki var kaffibrauðið af skornum skammti en amma var mikil húsmóð- ir og bar heimili þeirra þess glöggt merki, þar sem á stórkostlegum hannyrðum hennar, sem prýddu heimili þeirra, er ómögulegt að sjá mun á réttunni og röngunni. Amma lifði tímana tvenna eins og einhver myndi að orði komast. Þegar sjö börn höfðu fæðst lést afi Gústaf í sjóslysi, hart varð þá í búi hjá henni með öll þessi börn. Móðir okkar, Lúlú, var þá einungis 6 ára og yngsta barnið á fyrsta ári. Alls urðu börnin níu að tölu og eiginmennirnir þrír, en Benni afi féll frá fyrir 10 árum. Fas hennar var fas hefðarkonu, alltaf var hún jafn glæsileg og vel tilhöfð, allt var í stíl, taskan við skóna, litirnir í fötunum tónuðu hver við annan, einnig yfirflíkina. Skartið var alltaf í stíl, eyrnalokkar, hálsmen, hringar og armbönd. Ófáar voru ferðirnar í gegnum skartgripaskrín hennar. Það var unun að fylgjast með henni þegar hver hlutur á fætur öðrum var tekinn upp og handleikinn af mikilli virðingu og mýkt. Saga fylgdi hverj- um skartgrip sem í hennar huga voru allt gull og ekta demantar. Mik- ið var gaman að fylgjast með ömmu þegar hundur eða köttur var nærri og á seinni árum hennar kynntist hún Bangsa og Silver. Til marks um það hve mjög henni þótti vænt um þessi dýr voru myndir af þeim við rúm hennar í stórum ramma á hjúkr- unarheimilinu Eir. Elsku hjartans amma, það er með djúpu þakklæti, söknuði og sorg í hjarta sem við kveðjum þig hinztu kveðju og göngum með þér síðasta spölinn. Takk fyrir samfylgdina, elsku amma, allar þær gjöfulu gjafir, sem voru fylltar af kærleik, fegurð og gleði – ís, ísköldu mjólkina á Fálka- götunni – allar þær ánægjustundir þegar lokkarnir að lokum féllu á sinn stað – og það þakklæti sem þú sýndir þegar handklæðin voru hengd til þerris, ekki bara á réttri snúru þriðju frá hægri heldur líka raðað eftir stærð og lit. Fyrir ferðina sem við fórum sam- an siglandi um sænskan skerjagarð til Finnlands á glæsilegu 12 hæða skemmtiferðaskipi með skartgripa- verzlun um borð og allar þær við- burðaríku, skemmtilegu og yndis- legu stundir við fengum saman það sumarið. Fyrir þá ógleymanlegu tónleika þegar mamma missti stjórn á hjóla- stólnum sem þú sast í og þú rannst stjórnlaust að hljómsveitinni með út- réttan seðil í hendi. Þið fóruð á tveimur hjólum í beygjuna til að komast hjá árekstri, á bakaleiðinni misstir þú vasaklútinn sem mamma beygði sig eftir og enn og aftur rannst þú stjórnlaust og nú aftur á bak, mamma rétt náði þér og rétt eins og í fyrra skiptið á síðustu sek- úndunni. Þegar þú við mikinn fögnuð við- staddra sem klöppuðu ákaft og film- uðu viðburðinn, komst alsæl, heilu og höldu án þess að nokkuð færi úr skorðum, frá þessu. Þegar Eva Björk, sem helst af öllu vildi láta sig hverfa, sagði skellihlæjandi: Mamma, vita þær ekki að við neyð- umst til að búa hér áfram. Þegar ég sagði þér að nú kæmir þú í sjónvarpsfréttunum varst þú hugsi í smástund en sagðir síðan: Sjöbba, klukkan hvað verða fréttirn- ar sýndar – og síðan: eigum við ekki að fara að drífa okkur heim? Að lokum fórum við heim. Við för- um öll heim og það er með vissu og vitund um að okkar bíði önnur heim- kynni, þar sem þú tekur á móti okk- ur, býður okkur velkomin og að ferð- in haldi áfram í ljósi alheims. Þess óska börn Magnfríðar. Að eiga ömmu sem reynist manni vel er ómetanlegt. Á síðustu vikum hefur hugurinn leitað til samveru- stunda við Ólafíu ömmu, sem nú er nýlátin. Amma var alin upp í Garð- inum og kynntist hún ung raunum sjómannslífsins þegar hún missti föður sinn í sjóslysi á unga aldri. Með Gústafi afa eignaðist hún stóran barnahóp en varð fyrir þeirri ógæfu að missa hann á stríðsárunum þegar skipi sem hann var skipverji á var grandað af þýskum kafbáti á leið frá Englandi til Íslands. Þessi missir var mikill fyrir ömmu, móður mína og ÓLAFÍA SIGURÐARDÓTTIR EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. Skilafrestur minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.