Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 55
Einvalalið ungra listamanna skapar heillandi sýningu
sem hlotið hefur frábærar viðtökur óperugesta.
– töfraheimur á sviði Íslensku óperunnar
Athugið breyttan sýningartíma.
Þrjár söngkonur skipta með sér hlutverki þriðju meyjar.
Sigrún Jónsdóttir tekur við af Sesselju Kristjánsdóttur
13. október og syngur á fimm sýningum en eftir það
mun Sigríður Aðalsteinsdóttir syngja hlutverkið.
Gefðu þig ævintýrinu á vald! Sími miðasölu: 511 4200
Marta Guðrún Halldórsdóttir nam
söng í Reykjavík og München. Hún
hefur sungið í óperum og söng-
leikjum og lagt rækt við flutning
samtímatónlistar jafnt sem barokk-
og endurreisnartónlistar.
Sesselja Kristjánsdóttir stundaði
nám í tónmenntakennara- og
söngdeildum Tónlistarskólans í
Reykjavík og hefur nýlokið fram-
haldsnámi í Berlín. Hún hefur sungið
einsöngshlutverk í kirkjulegum
verkum jafnt sem óperum.
Þórunn Guðmundsdóttir lauk námi
í söng og flautuleik frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík og doktorsprófi
í söng frá Indiana University í
Bandaríkjunum. Hún hefur komið
fram sem einsöngvari við ýmis
tækifæri og starfar nú sem söng-
kennari við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar.
ölvu-
bókhald
Markmiðið með þessu 96 kennslustunda námi er að þjálfa
nemendur fyrir víðtæk tölvubókhaldsstörf í atvinnulífinu.
Kennt er á “Navision Financials” með viðbótarlausnum
sem skiptast niður í eftirfarandi námsgreinar:
Nemendur sem sækja námið þurfa að hafa haldgóða
tölvuþekkingu og skilning á bókhaldi.
Boðið er upp á bæði morgun- og kvöldnámskeið
sem hefjast 22. og 23. október.
Upplýsingar og innritun í símum
544 4500 og 555 4980 og á www.ntv.is
Grunnkerfi (6)
Fjárhagsbókhald og launakerfi (36)
Sölu- og viðskiptamannabókhald (24)
Birgða,- innkaupa- og tollakerfi (30)
Verklegar æfingar
(kennslustundir í sviga):
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
n
t
v
.
is
nt
v.
is
n
tv
.i
s
Persónuleg og
fagleg ráðgjöf
Klipping innifalin
Útsala á eldri birgðum
Skólavörðustíg 10.
Tímapantanir í síma 511 2100
HÁRKOLLUR NÝ GERÐ
Dóróthea Magnúsdóttir og Hugrún Stefánsdóttir
hárkollu- og hársnyrtifræðingar
Nýjar vörur
Heilsárskápur
Ullarkápur, stuttar og síðar
Stuttir kanínupelsar
Ódýrir gervipelsar
Úlpur — Jakkar
Hattar — Húfur
Silki — Sjöl — Slæður
Kr. 21.900
Kamel
Grátt
Svart
Mörkinni 6, 108 Reykjavík,
sími 588 5518
MARGBLESSAÐUR og sæll! Í
stuttu bréfi til þín langar mig að
spyrja þig fáeinna spurninga. Þannig
er nú mál með
vexti að í flestum
tilfellum tekur
það 9 mánuði fyrir
konu að ganga
með barn, en í ör-
fáum tilfellum fer
konan fram yfir
áætlaðan tíma og
þá er allt gert sem
í mannlegu valdi
stendur til að
grípa inní eða koma fæðingu barnsins
af stað eins og það er kallað og hjálpa
því í heiminn... En núna eru liðnir 11
mánuðir síðan lausir samningar urðu
hjá sjúkraliðum, sem sagt tveir mán-
uðir fram yfir eðlilega meðgöngu.
Mig langar að spyrja, hvers eiga þeir
að gjalda? Ég er sjúkraliði sem vinn
næturvaktir á heimili fyrir fjölfatlaða.
Það er líkamlega slítandi að vaka á
nóttunni enda vaktavinna yfir höfuð
slítandi, ekki bara fyrir okkur sjúkra-
liðana heldur einnig fyrir okkar fjöl-
skyldur. Hver vill fara í vinnu kl. 16 á
aðfangadag þegar allur þorri manna
er að undirbúa jólin og koma sér í
sparifötin? Eða hver vill fara í vinnu á
gamlárskvöld kl. 23 þegar allir aðrir
eru að skjóta upp flugeldum? Eða
hvaða barn eða maki vill segja bless
og góða vakt á svona stundu við móð-
ur eða maka? Já, þegar stórt er spurt
er oft lítið um svör. Ég held nefnilega
að þið ráðamenn skiljið ekki fólk sem
vinnur vaktavinnu... Maðurinn minn
hefur verið vaktavinnumaður í mörg
ár og þau ár sem ég var heimavinn-
andi þegar börnin voru smá þurfti ég
oft að óska manninum mínum gleði-
legs árs á vaktaskiptum eða bíða með
jólasteikina þangað til hann hafði
tækifæri til að skjótast heim. Þetta
voru leiðinlegustu tímar hátíðanna
þegar útskýra þurfti fyrir börnunum
að því miður væri vinnu pabba þannig
háttað að við værum ekki eins og
venjulegt fólk því að pabbi væri
vaktavinnumaður. Núna er það ég
sem er vaktavinnumanneskjan á
heimilinu og strax er farið að spyrja:
„Mamma, ertu að vinna á jólunum,
eða ertu um áramótin?“ ... Svona er
nú það... Svo er aldurinn farinn að
færast yfir og það sem ég er orðinn
uggandi yfir er, Geir: Hver verður til
að hugsa um okkur í ellinni? Þannig
er nú mál með vexti að sjúkraliðar eru
sú stétt sem meðal annars hlúir að
öldruðum, en þessi stétt er að deyja
út. Þeir fáu sem læra sjúkraliðann nú-
orðið skila sér illa út á vinnumark-
aðinn, því unga fólkið vill fá mann-
sæmandi laun, sem allir skilja. Þannig
að við, þessi kynslóð, þú og ég, eigum
kannski ekki eftir að hafa fagfólk til
að hugsa um okkur í ellinni. Kannski
verður þú svo brattur fram í andlátið,
Geir, að þú þarft ekki á Elló? Það
vona ég svo sannarlega fyrir þína
hönd að Guð gefi. En ég veit ekki
mína ævi sem betur fer og ég vona og
bið Guð þess að ef ég verð það hrum
að ég get ekki hugsað um mig sjálf
eða mína nánustu þá vil ég, að ég og
mitt fólk fái góða og faglega umönn-
un. Þess vegna höfða ég til þín í dag
að hætta að sýna sjúkraliðum þá lítils-
virðingu, sem okkur hefur verið sýnd,
með skeytingarleysi ykkar ráða-
manna og hvet þig til þess að sjá svo
til að samið verði við okkur strax og
eigi seinna en strax og það myndar-
lega. Við höfum setið eftir við samn-
ingaborðið bæði núna og fyrir fjórum
árum, en þá þurftum við að vera í 7
vikna verkfalli til að knýja á um nýjan
samning. Guð blessi þig, Geir, og allt
þitt heimili og ég bið þess að þér farn-
ist vel í starfi.
INGVELDUR TRAUSTADÓTTIR,
Reyrengi 29, 112 Reykjavík.
Opið bréf til Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra
Frá Ingveldi Traustadóttur:
Ingveldur
Traustadóttir