Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 57
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert framsækinn og
fylginn þér og átt því auðvelt
með að fá aðra á þitt band.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er engin ástæða til að
missa móðinn þótt eitthvað
blási á móti um sinn. Þolin-
mæði þrautir vinnur allar og
þú skalt bara láta fara sem
minnst fyrir þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gamall vinnufélagi skýtur upp
kollinum og þú skalt taka hon-
um vel því þið eigið eitt og
annað sameiginlegt og getið
því stutt hvor annan.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ástæðulaust að láta
einhverja drauga úr fortíðinni
skemma fyrir sér. Gakktu í
það að koma öllum málum á
hreint svo þú getir snúið þér
að framtíðinni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að líta í eigin barm og
athuga hvort þar sé ekki að
finna einhverja orsök fyrir
þeim erfiðleikum sem hrjá nú
samband þitt við vini og
vandamenn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að tala ekki af þér
því þér hefur verið trúað fyrir
ýmsum málum sem ekki mega
fara lengra jafnvel þótt nánir
aðilar eigi í hlut.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Óvænt tækifæri berst upp í
hendurnar á þér og nú hefur
þú enga afsökun fyrir því að
nýta þér það ekki. Farðu samt
að öllu með gát því ekkert
liggur á.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt það sé alltaf auðvelt að
leita uppi gamlar lausnir er
það lélegt til lengdar. Reyndu
að temja þér ný vinnubrögð
sem leiða til ferskra lausna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að hafa allt þitt á
hreinu gagnvart yfirvöldun-
um því það er ekkert grín þeg-
ar einhver vitleysa fer af stað í
kerfinu. Vertu þolinmóður.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er skynsamlegt að nema
öðru hverju staðar og líta um
öxl og gera sér grein fyrir
þeim árangri sem náðst hefur
á lífsleiðinni. Það gefur byr
undir báða vængi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki hugfallast þótt þú
þurfir að útskýra mál þitt oft-
ar en einu sinni áður en þú
færð samþykki fyrir fram-
haldinu. Þolinmæði er þér
sterkur lykill.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Stundum verða alls kyns tafir
á hlutunum og þá er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir or-
sökum þeirra. Ef þær eru ekki
á þínu valdi skaltu bara anda
rólega.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur slegið pappírsvinnu
á frest en getur nú ekki lengur
skotið þér undan henni. Það er
líka þér og þínum fyrir bestu
að þessi mál séu öll á hreinu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
5. október, er fimmtug Þor-
björg Magnúsdóttir, Vita-
braut 1, Hólmavík. Eigin-
maður hennar er Magnús
Hans Magnússon rafvirkja-
meistari. Þau taka á móti
ættingjum og vinum á Veit-
ingahúsinu Café Riis,
Hólmavík, laugardaginn 6.
október frá kl. 20.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Garða-
kirkju af sr. Þórhildi Ólafs-
dóttur Kristín Anna Þórar-
insdóttir og Baldvin
Valgarðsson. Heimili þeirra
er á Hvammabraut 6, Hafn-
arfirði.
Mynd, Hafnarfirði.
VESTUR opnar í fyrstu
hendi á fjórum hjörtum
og setur um leið af stað
sérkennilega atburðarás,
bæði í sögnum og úrspili:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ G5
♥ 4
♦ Á8653
♣ ÁKD72
Vestur Austur
♠ – ♠ 10972
♥ ÁG1097532 ♥ K6
♦ DG9 ♦ 10742
♣108 ♣G94
Suður
♠ ÁKD8643
♥ D8
♦ K
♣653
Vestur Norður Austur Suður
4 hjörtu 4 grönd Pass 5 spaðar
Pass 6 spaðar Pass Pass
Pass
Norður býður upp á lág-
litina með fjórum grönd-
um, en suður hefur aðrar
hugmyndir um besta
tromplitinn og nefnir
spaðann á fimmta þrepi,
sem norður hækkar í
slemmu. Nokkuð óvenju-
legt.
Slemman er góð og
borðleggjandi þegar allar
hendur sjást. En sagn-
hafi nýtur ekki slíkra
forréttinda við borðið og
hann þurfti að taka á öllu
sínu til að bregðast við
snjallri blekkingu aust-
urs í fyrsta slag. Út kom
hjartaás og austur lét
kónginn undir! Vestur
spilaði hjarta áfram og
sagnhafi stakk frá með
gosa. Þegar austur fylgdi
lit í hjartanu í öðrum
slag vöknuðu grunsemdir
um að hann ætti öll
trompin, en ekki er þó
víst að sagnhafi hefði
haft kjart til að djúp-
svína áttunni í næsta
slag. En á það reyndi
ekki, því austur stakk
spaðaníunni á milli.
Sem voru mistök, eftir
á hyggja. Sagnhafi yfir-
tók næst tígulkóng og
trompaði tígul. Fór svo
tvisvar inn í borð á lauf
til að trompa tígul tvisv-
ar í viðbót. Enn komst
hann inn á lauf til að
spila úr blindum í
þriggja spila endastöðu,
þar sem austur átti 1072
í trompi, en suður ÁK8.
Þrátt fyrir góða viðleitni
fékk austur því engan
slag á tromp.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STAÐAN kom upp í net-
keppni taflfélaga á Norður-
löndum. Daninn, Poul Re-
wits (2.311), hafði svart
gegn Svíanum Miralem
Dzevlan (2414). 16... Rc4!?
Fórn þessi er allrar
athygli verð, en
þarf hvítur að
þiggja hana og ef
hann gerir það hef-
ur svartur nægar
bætur? 17. bxc4
bxc4 18. c3? Eftir
þetta verður sókn
svarts erfið viður-
eignar. 18. Dc3
hefði verið ákjósan-
legra þar sem 18.
...Db6 gæti verið
svarað með 19. Da1
og er þá óvíst hvort
svartur hafi nægar
bætur fyrir manninn. 18. ...
Da5 19. Dc2 Ba3+ 20. Rxa3
Dxa3+ 21. Kd2 Hb2 22. Hb1
Hxc2+ 23. Kxc2 Da4+ 24.
Kc1 0-0 25. g4 Dxa2 26. Hb2
Da1+ 27. Kc2 Da4+ 28. Kd2
Rg7 29. Bh4 c5 30. Bf2 f6
31. Be3 fxe5 32. dxe5 d4 33.
cxd4 cxd4 34. Bxd4 c3+ 35.
Kxc3 Hxf4 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Þessir duglegu krakkar gengu í hús og seldu listaverk
eftir sig sjálf og söfnuðu 2.209 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands. Þau eru, talið frá vinstri: Guðrún Ósk
Leifsdóttir, Elín Hulda Harðardóttir, Elísabet Kristín
Kristmundsdóttir og Jóhannes Fossdal Birkisson. Á
bak við þau stendur formaður Húnavatnsdeildar
Rauða kross Íslands.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
LJÓÐABROT
STÖKUR
Ei mun hraun og eggjagrjót
iljum sárum vægja.
Legg ég upp á Leggjabrjót.
Langt er nú til bæja.
*
Hávært tal er heimskra rök.
Hæst í tómu bylur.
Oft er viss í sinni sök
sá, er ekkert skilur.
*
Herðir frost og byljablök.
Ber mig vetur ráðum.
Ævi mín er vörn í vök.
Vökina leggur bráðum.
Örn Arnarson.
Til styrktar Rauða krossinum
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Opið laugardag frá kl. 10—16
FYRIR VERÐANDI MÆÐUR
BUXUR
NÝ SENDING
margar stærðir
- gott verð
Opið virka daga
frá kl. 10—18
laugardaga
frá kl. 10—14
ÍSLAND OG
ALÞJÓÐASAMFÉLAGIÐ
Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra,
verður framsögumaður á opnum
hádegisverðarfundi á Hótel Borg
föstudaginn 5. október kl. 12-13.30
Nú eru utanríkismál í brennidepli og nauðsynlegt að ræða stöðu
Íslands á viðsjárverðum tímum í alþjóðamálum.
Utanríkisráðherra mun fjalla um þessi mál og ræða auk þess
stjórnmálaviðhorfin við upphaf Alþingis en margir
spá nú tíðindaþingi á komandi vetri.
Hádegisverður kostar kr. 1.400
og eru allir velkomnir.
Fundarboðandi er
Ólafur Örn Haraldsson, alþingismaður.
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
a
r
g
ja
fa
vö
ru
r Mokkabollar
kr. 1.850
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.
PASTAPOTTAR
4.5l og 7l, 18/10 stál
Verð frá 7.900
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614