Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 61

Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 61 S k r á n i n g e r í s í m a 5 6 5 - 9 5 0 0 Hraðlestrarnámskeið Lestur er undirstaða alls náms. Lestur er undirstaða flestra starfa. Er ekki kominn tími til að þú aukir afköstin? HRAÐLESTRARSKÓLINN w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s Lansinoh  brjóstaáburður  lekahlífar  brjóstahaldara  brjóstagjafabolir  náttkjólar Mæður með börn á brjósti Apótek - Þumalína - Mjaltavélaleigan Garún http://ymus.vefurinn.is BRJÓSTAGJAFARÁÐGJÖF Eldhús- og baðinnréttingar w w w .d es ig n. is © 20 01 D V R 07 8 Innréttingar – Raftæki – Hreinlætistæki OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 - trygging fyrir l águ Við Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is Allt að 3 0% afsl áttu r í o któb er ÞESSI frumraun raftónlistar- mannsins Salomon Kubl er með snotrari heimaalningum sem ég hef séð. Frá A til Ö er þetta gert í höndunum að heita má; disk- urinn brennd- ur, umslag lit- ljósritað (prýtt mjög smekk- legri mynd) og diskurinn sjálfur merktur með límmiða sem á er krotað með trélitum. Vel heppnað listaverk að öllu þessu leyti. En lít- um nú samt til tónlistarinnar; ætli hún skipti nú ekki einhverju. Á 003 er að finna átta lög, hvers titlar eru öll leikur að tölunni 003 (t.d. „;;;;003.“, „=003’“ og „,0 Eins og nærri má geta þegar ung- ir listamenn eru nýbyrjaðir að at- hafna sig gætir oft sterkra ítaka frá öðrum ráðsettari listamönnum inn- an svipaðs geira. Hentitaktar hinnar áhrifaríku sveitar Autechre eru Sal- omoni t.d. greinilega innblástur og stundum hljómar hann eins og villu- ráfandi og grófur Aphex Twin (les- ist sem hól). Hér er talsvert um stílaflökt og margar og mismunandi stemmur eru keyrðar. Sumar þeirra, eins og t.d. „„003“, eru skemmtileg tilbrigði við taktfléttur Autechre-manna á meðan „./003,.“ er aftur á móti skreytt frumlegri og furðukenndri melódíu sem er algerlega „kublísk“. Í „=003’“ er svo búinn til mergjaður hljóðheimur þar sem hlustanda líður eins og hann sé vitstola vitni að hinstu andköfum deyjandi kafara … já, eða þannig. Tónlistin hér er vélkennd; bæði dulmögnuð og drungaleg. Henni er gjarnt að vera sértæk og myrk og óvæntir krókar og beygjur eru ein- att handan við hornið. Kubl fer hér því grýttan rafstíg og virðist þar á heimavelli. Diskurinn ber með sér sterkan og heillandi blæ þar sem Salomon nær að gæða verkið per- sónulegri hulu, þrátt fyrir auðheyr- anlega áhrifavalda. Þetta er verkinu mikill styrkur. Tvö eða þrjú lög fljóta að vísu nokkuð tilþrifalítið framhjá en ríf- legur hluti plötunnar heldur hlust- anda vel við efnið, flest lögin bæði forvitnileg og spennandi og bera skapandi hugsun vitni. 003 er því á heildina litið vel heppnað og ánægjulegt ferðalag í útnára sam- tímaraftónlistar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Salomon Kubl Veggjakrot, stéttarkrot Arnar Eggert Thoroddsen Salomon Kubl 003 The JB project rec. 003, geisladiskur raftónlistarmannsins Salomon Kubls. 40:25 mínútur. Tónlist Ástarflækjan (Tangled) Spennumynd Leikstjórn Jay Lowi. Aðalhlutverk Rach- ael Leigh Cook, Shawn Halosy og Jonath- an Rhys-Meyers. (90 mín.) Bandaríkin 2001. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. ÞESSA má upp að vissu marki flokka með öldu unglingahrollvekja sem riðið hefur yfir undanfarin ár í kjölfar velgengni Scream-myndanna og I Know What You Did Last Summer. Hér eru þó engir draugar eða brjálaðir fjöldamorðingjar heldur er það ungt, fallegt, ástríðufullt en um fram allt venjulegt fólk sem lætur tilfinningarnar hlaupa með sig út í gönur. Plottið virðist næsta hefðbundið. Stelpa og strákur verða bestu vinir en um það leyti sem ástin virðist vera komin í spilið birtist þriðji að- ilinn, snælduvitlaus og ómótstæði- lega heillandi vinur stráksins og ástarflækjurnar hefjast. Það er margt ágætt við þessa annars alltof formúlukenndu ung- lingamynd. Leikurinn er t.a.m. nokkuð yfir meðallagi, sérstaklega hjá Rhys-Meyers, þeim er skaust fram á sjónarsviðið sem Bowie-týp- an í Velvet Goldmine. Þar að auki heldur myndin manni örugglega frá upphafi til enda, sem verður að telj- ast kostur þegar litið er til þess hversu fyrirsjáanleg fléttan er. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Hættuleg ást

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.