Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SURVIVOR er ein söluhæsta breið-
skífa ársins, aðallega í krafti smá-
skífanna þriggja „Independent
Women Part I“, „Bootylicious“ og
svo að sjálfsögðu titillagsins al-
ræmda. Vissulega kröftugir og skot-
heldir smellir sem þola ofspilunina
furðuvel, sérstaklega í sjónvarpi
þegar fallegs og taktfasts limaburð-
ar stúlknanna þriggja fær notið. Það
er þó sem betur fer
miklu meira sem
þær hafa upp á að
bjóða. Hæfileik-
arnir leyna sér
ekki, sérstaklega
hjá forsöngvaran-
um Beyoncé, sem er, hvað svo sem
stúlkurnar tauta og raula gegn slíku
hjali, ekkert annað en rakin Diana
Ross eða eiginlega frekar George
Michael, því hún er meðhöfundur
flestra laga og var með fingurna í
upptökustjórninni líka. Sólóferill þar
innan seilingar, sannið þið til.
Þrátt fyrir ótvíræða sönghæfileika
og augljósan tónlistarþroska verður
ekki hjá því komist að telja Survivor
standa síðustu plötu stúlknanna
Writing on the Wall töluvert að baki,
einkum vegna veikari lagasmíða og
minni ferskleika sem einmitt ein-
kenndi fyrri plöturnar. Tónlist
Þroskuð
örlagabörn
Destiny’s Child
Survivor
Sony/Skífan
Þriðja plata heitustu R&B stúlknasveitar
í dag. Segjast sjálfstæðar og geta alveg
komist af án karla.
Skarphéðinn Guðmundsson
SHARON Stone undirgengst nú
rannsóknir eftir að blætt hafði inn á
heila hennar. Hún var flutt með
hraði á spítala um helgina þegar hún
kvartaði undan sárum verkjum í
höfði. Við rannsókn kom í ljós að væg
heilablæðing hefði átt sér stað.
Stone viðurkennir að hafa verið af-
ar heppin að blæðingarnar urðu ekki
meiri. Þó er enn ekki komið í ljós
hvort hún hljóti varanlegan skaða af.
Það á ekki af þeim hjónum að
ganga, Stone og Phil Bronstein, yf-
irritstjóra San Francisco Chronicle.
Stutt er síðan hann þurfti að fá að-
hlynningu á spítala eftir að Komodo-
drekaeðla hafði ráðist á hann í dýra-
garði og bitið hann í fótinn. Við það
tilefni lét Stone þau orð falla að það
væri aldeilis munur, nú til dags, að
eiga riddara sem verndaði konu sína
gegn drekum.
Stone hætt komin
Reuters
Lánlítil en lífsglöð hjón.
Fékk heila-
blæðingar
HANN er óneitanlega stórbrotinn
fugl; hinn óttalausi leiðtogi Jethro
Tull, Ian Anderson. Allt frá því að
fyrsta platan, This Was, kom út árið
1968, hefur hann stýrt hinni fjöl-
kunnugu Tull-kerru í gegnum súrt
og sætt; yfir fjöll og firnindi og
meira en 30 tónleika-, hljóðvers- og
safnplötur.
Fyrir stuttu var enn ein safn-
platan gefin út og vekur það nánast
furðu því þær eru þó nokkrar fyrir
eða fimm talsins. Það er nú ekki
beint fyrir frumlegheitunum að
fara hvað titilinn varðar heldur
(The Very Best Of). En tónlistin
stendur að sjálfsögðu fyrir sínu og
vel það.
Ian Anderson gerir grín að þess-
ari safnplötumergð í meðfylgjandi
bæklingi og segir að þetta sé sú síð-
asta ... í bili allavega. Platan inni-
heldur annars sígild Tull-lög eins
„Living In The Past“, „Aqualung“,
„Thick As A Brick“, „Bourée“og
„Heavy Horses“ og er nokkuð skot-
heldur inngangur að listfengi þess-
arar sérstæðu sveitar.
Þess má að lokum geta að í kjöl-
far safnplötunnar hafa fyrstu þrjár
plötur Tull, This Was (1968), Stand
Up (1969) og Benefit (1970) verið
endurútgefnar með bættum staf-
rænum hljómgæðum. Fylgist með
frá byrjun ...
Ný safnplata með Jethro Tull
Ian Anderson, hinn dulúðugi
leiðtogi Jethro Tull.
Líf í hið
liðna
HUGSAÐU STÓRT