Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
Styttist
í opnun
TÆP vika er nú þar til verslun-
armiðstöðin Smáralind verður
opnuð í Kópavogi. Framkvæmdir
ganga vel og eru samkvæmt áætl-
un svo allt ætti að verða klappað
og klárt fyrir opnunardaginn 10.
október.
Fjöldi manns vinnur þessa dag-
ana hörðum höndum við margs
konar frágang, jafnt innan dyra
sem utan. Þessir félagar voru
önnum kafnir við vinnu að gang-
stétt utan Smáralindar er ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði í gær og nutu þeir félags-
skapar hunds sem tók lífinu með
mestu ró þrátt fyrir mikinn eril
við þessa stóru verslunarmiðstöð.
Snarpur lokasprettur/6
BANDARÍSK stjórnvöld fóru í
gær fram á að Atlantshafsbanda-
lagið veiti þeim aðstoð við und-
irbúning mótsvars við árásum
hryðjuverkamanna á Bandaríkin
11. september sl. Vegna beiðninn-
ar gekk í gildi 5. grein stofnsátt-
mála bandalagsins, um að árás á
eitt ríki jafngildi árás á þau öll, en
hún kveður á um slíka aðstoð.
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra var rætt um
þessa aðstoð á vettvangi NATO í
gær. Hins vegar hefur engin
beiðni enn komið fram um beina
hernaðaraðstoð af hálfu NATO,
enda hafa engar hernaðaraðgerðir
svo vitað sé verið ákveðnar, að
hans sögn.
Að sögn utanríkisráðherra er
annars vegar um tvíhliða sam-
skipti að ræða. ,,Þar erum við að
tala um að upplýsingaskipti verði
aukin og að hægt verði að beina
stuðningi til bandalagsríkja og
annarra ríkja, sem kunna að sæta
aukinni ógn fyrir það að standa
með okkar vina- og bandalags-
þjóð,“ segir hann.
Einnig er um að ræða að örygg-
isgæsla við mannvirki Bandaríkj-
anna og bandalagsins í viðeigandi
gistiríkjum verði efld. ,,Það getur
líka verið um það að ræða að aðild-
arríki hlaupi í skarðið vegna þess
að það þurfi að flytja til aðra aðila,
hugsanlega í Bosníu og í Kosovo.
Bandaríkjamenn hafa sagt að þeir
kunni að þurfa að flytja menn það-
an vegna þessa ástands.
Þetta felur það líka í sér að
veittar séu ótakmarkaðar heimildir
til yfirflugs bandarískra véla í ríkj-
um bandalagsins og það séu veitt-
ar heimildir til að nota hafnir í
bandalagsríkjunum, meðal annars
til eldsneytistöku. Þetta getur líka
falið það í sér að fastafloti banda-
lagsins sé í viðbragðsstöðu ef á
þarf að halda og ratsjárflugvélar
séu til afnota,“ segir Halldór.
Sjálfstæð ákvörðun um
beina þátttöku í aðgerðum
,,En það hefur enn sem komið er
ekki komið fram beiðni af hálfu
Bandaríkjanna um beina þátttöku
bandalagsins í aðgerðum. Það er
sjálfstæð ákvörðun og er undir
hverju ríki komið. Það er nátt-
úrlega alveg ljóst að bandalags-
ríkin hafa miklar siðferðislegar
skuldbindingar gagnvart Banda-
ríkjunum og ber að hjálpa þeim og
aðstoða eftir því sem við verður
komið í þessari baráttu við hryðju-
verkastarfsemina í heiminum. Það
vill svo vel til að nánast öll heims-
byggðin og allar helstu alþjóða-
stofnanir hafa einsett sér að taka
þátt í þessari baráttu af fullum
krafti,“ sagði Halldór.
Utanríkisráðherra um aðstoð aðildarríkja NATO við Bandaríkin
Heimildir til
yfirflugs og að-
staða í höfnum
Keflavíkurverktakar
Telur yfir-
tökutilboð
of lágt
KAUPÞING hefur, fyrir hönd Eisch
Holding S.A., gert hluthöfum í
Keflavíkurverktökum tilboð um
kaup á hlut þeirra í félaginu á geng-
inu 4,6 og rennur tilboðið út 1. nóv-
ember.
Guðrún Jakobsdóttir, stjórnarfor-
maður félagsins og dóttir Jakobs
Árnasonar, sem á 11,29% hlut í
Keflavíkurverktökum, segir að
menn muni nú taka sér tíma til þess
að íhuga stöðuna. Hún tekur hins
vegar fram að sér þyki verðtilboð
Eisch Holding of lágt miðað við eign-
ir, stöðu og framtíðarmöguleika
Keflavíkurverktaka.
Yfirtökutilboð/C16
Flugstöðin á
Keflavíkurflugvelli
Bandarísk
yfirvöld
gerðu
úttekt
SENDINEFND frá bandarísku
flugmálastjórninni gerði á þriðjudag
óvænta úttekt á öryggismálum í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Kefla-
víkurflugvelli. Hafa bandarísk flug-
málayfirvöld gert slíkar úttektir víða
um heim að undanförnu, í kjölfar
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september sl.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra upplýsti þetta í umræðum um
hryðjuverkin í Bandaríkjunum og
áhrif þeirra á Alþingi í gær. Komi í
ljós að öryggismál séu ekki í full-
nægjandi horfi getur slíkt leitt til
þess að allt flug verði bannað frá við-
komandi flugstöð til Bandaríkjanna,
að því er fram kom í ræðu utanrík-
isráðherra.
„Þessi yfirvöld voru mjög ánægð
með aðstæður á Keflavíkurflugvelli.
Það sýnir að við höfum brugðist þar
rétt við,“ sagði Halldór.
Þjóðir heims /34
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
umfangsmiklar breytingar í skatta-
málum fyrirtækja og einstaklinga
sem kynntar voru í gær. Meðal að-
gerða sem ákveðið hefur verið að
lögfesta er lækkun tekjuskatts fyr-
irtækja úr 30% í 18% um næstu ára-
mót, lækkun eignarskatta einstak-
linga og fyrirtækja úr 1,2% í 0,6%
miðað við árslok 2002 og niðurfelling
sérstaks eignarskatts fyrirtækja og
einstaklinga (Þjóðarbókhlöðuskatts-
ins) við árslok 2002.
Skattlagning húsaleigu-
bóta afnumin
Skattlagning húsaleigubóta verð-
ur afnumin frá og með árinu 2002.
Frítekjumörk í sérstökum tekju-
skatti einstaklinga (hátekjuskatti)
hækka um 15% vegna tekna á árinu
2001. Fríeignarmörk í eignarskatti
og sérstökum eignarskatti einstak-
linga hækka um 20% vegna eigna í
árslok 2001 til þess að koma í veg
fyrir að hækkun fasteignamats leiði
til hækkunar eignarskatta á næsta
ári. Þá verður lögfest 0,33% lækkun
tekjuskatts einstaklinga 1. janúar
næstkomandi, sem áður hafði verið
ákveðin.
Verðbólgureikningsskil verða af-
numin frá 1. janúar 2002 og fyrir-
tækjum verður heimilað að færa
bókhald og ársreikninga í erlendri
mynt frá 1. janúar 2002. Á móti þess-
um breytingum mun tryggingagjald,
sem leggst á launagreiðslur atvinnu-
rekenda, hækka um 0,77% frá 1. jan-
úar 2003. Heildarupphæð þess er um
2,5 milljarðar. Þá hefur verið ákveðið
að lækka stimpilgjald frá og með 1.
janúar 2003, bæði hjá fyrirtækjum
og einstaklingum. Áætlað er að
heildarskattalækkunin (brúttó) nemi
um 7,5 milljörðum kr., en talið er að
tekjur ríkissjóðs muni minnka um
3,5 milljarða kr. fyrst í stað, þegar
tekið hefur verið tillit til veltuáhrifa
og annarra þátta.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að þetta séu viðamestu skatta-
lækkanir í umhverfi íslenskra fyrir-
tækja og einstaklinga sem átt hafa
sér stað í háa herrans tíð. Eftir að
þessar skattalækkanir kæmust til
framkvæmda yrðu tekjuskattar á
fyrirtæki meðal samkeppnislanda
okkar lægstir á Íslandi.
,,Ríkissjóður stendur vel og hann
hefur efni á svona skattalækkun. Það
er mjög mikilvægt að gera sér grein
fyrir því að hér er ekki um að ræða
skattalækkanir sem nauðsynlega
kalla á einhvern niðurskurð annars
staðar,“ segir Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir aðgerðirnar
fyrst og fremst miða að því að gera
íslenskt skattaumhverfi samkeppn-
ishæfara í alþjóðlegri samkeppni.
,,Á heildina litið sýnist mér að rík-
isstjórnin sé með þessum aðgerðum í
skattamálum að koma til móts við
okkar sjónarmið og því ber að
fagna,“ segir Finnur Geirsson, for-
maður Samtaka atvinnulífsins.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, gagnrýnir breyt-
ingarnar og segir að aðgerðir stjórn-
valda eigi fremur að miða að því að
ná tökum á verðbólgunni og sam-
bandið leggi einnig mikla áherslu á
lækkun vaxta.
Tekjuskattar fyrirtækja
lækka úr 30% í 18%
Skattalækkanir/10
Frítekjumark hátekjuskatts
hækkar – eignarskattar lækka
♦ ♦ ♦