Vísir - 01.12.1979, Side 7
Laugardagur 1. desember 1979
*.r*V /■ '4“ V W
7
HVERNIG FARA KOSNINGARNAR I NORÐURLANDI EYSTRA?
FRAMSÓKN FÆR
ÞRJÁ ÞINGMENN
Áhugaleysiog ráðaleysi eru orö
sem Iýsa kjósendum I Norður-
landskjördæmi eystra best.
Óvenju margir hafa ekki enn
gert upp hug sinn hvaða lista
þeir kjósa i komandi kosningum
og hætt er við þvi að margir
þeirra kjósi ekki eða skili auðu.
Baráttan stendur á milli Hall-
dórs Blöndals, 2. manns á lista
Sjálfstæðisflokksins og Guð-
mundar Bjarnasonar 3. manns
á lista Framsóknarf lokksins.
Fæstir treysta sér til að spá um
úrslit og reyndar renna fram-
bjóðendur sjálfir algjörlega
blint I sjóinn hvar þeir standa i
kosningabaráttunni.
Framboð Jóns Sólnes setur
stórt strik I reikninginn og úr-
slitin velta að miklu leyti á þvi
hvaða fylgi listi hans fær.
Norðurlandskjördæmi eystra
á sex kjördæmakjörna þing-
menn og i síðustu alþingiskosn-
ingum fékk það einn uppbótar-
þingmann. Framsóknarflokk-
urinn fékk tvo þingmenn, Sjálf-
stæðisflokkurinn tvo, Alþýðu-
bandalagið einn og Alþýðu-
flokkurinn fékk einn kjördæma-
kjörinn þingmann og auk þess
uppbótarsartið.
Staða Sjálfstæðis-
flokksins veik
Staða Sjálfstæðisflokksins
hefur veikst mikið með sér-
framboði Jóns Sólnes og vegna
þess að ekki var efnt til próf-
kjörs I kjördæminu um skipan
framboðslistans.
Engu aðsiður fékk flokkurinn
byr I seglin i þeirri hægri vind-
hviðu sem gekk um landið en ó-
vist er að það dugi þeim til að
sigla i gegn um kosningabarátt-
una ef ekki kemur annað til.
Listi þeirra er ekki tiltakan-
lega sterkur og mörgum þykir
sjónarsviptir að Jóni Sólnes úr 1.
sætinu. Lárus Jónsson megnar
ekki að fylla það skarð og Hall-
dór Blöndal er umdeildur mað-
ur en hefur komið nokkuð vel út
úr kosningafundum. Vigfús
Jónsson bóndi á Laxamýri I 3ja
sæti höfðar ekki til kjósenda I
þéttbýli en þar ráðast úrslitin.
Fyrst eftir að listi Jóns Sólnes
kom fram virtist sem hann nyti
mikils fylgis. Fáir stjórnmála-
menn hafa verið jafn harkalega
gagnrýndir og Jón en hann
hefur unnið mjög vel fyrir kjör-
dæmi sitt og á harðsnúið lið per-
sónulegra stuðningsmanna.
Hins vegar gera menn sér
grein fyrir þvi að litlar likur eru
á að Jón Sólnes nái kosningu,
Siðustu viku hefur þvi komið
afturkippur i sókn Sólnes en
samt sem áður breytir það ekki
miklu um afstööu þeirra sem
eru óánægðir með framboð
flokka sinna og myndu greiöa
Jóni Sólnes atkvæði til að láta
þá óánægju i ljós.
En sá áróður andstæöinga
Sólnes hefur hrifið aö atkvæði
honum greidd falli dauð og
hætta sé á að fái Jón talsvert
fylgi missi kjördæmið uppbótar-
þingsætið.
Að öllu þessu samanlögðu má
geraráö fyrir þvi að Jón Sólnes
fái um 800 atkvæöi, en þar með
er jörðin lika farin aö gliðna
undir Halldóri Biöndal.
Aukning til
Framsóknar
1 tveim efstu sætum Fram-
sóknarf lokksins tróna þeir
Ingvar Gislason og Stefán Val-
geirsson. Yngri framsóknar-
menn vildu endurnýjun á efstu
sætunum og telja þá félaga bit-
litil vopn I baráttunni.
En Framsókn lumar á sterk-
um manni i 3ja sæti, Guðmundi
Bjarnasyni, nýjum manni á list-
Guðmundur Bjarnason
Jón Sólnes
anum og hefur hann þótt bera
höfuð og herðar yfir aðra fram-
bjóðendur I kosningaslagnum.
Alitið er að Framsóknarftakk-
urinn muni endurheimta I þess-
um kosningum það bændafylgi ,
sem hann tapaði i slöustu kosn-
ingum, aðallega til Alþýðu-
bandalagsins.
Þá hefur Þorsteinn Jónatans-
son san var efsti maður á lista
Samtakanna i siðustu kosning-
um gengið til liðs við Fram-
sóknarflokkinn og viðbúið að
eitthvað af Samtakamönnum
fylgi honum.
Það hnigur þvi allt i þá átt að
Framsóknarflokkurinn bæti
verulega við sig i Norðurlands-
kjördæmi eystra, enda hefur
flokkurinn löngum átt þar
traust fylgi og hafði 3 kjör-
dæmakjörna þingmenn þar allt
frá kjördæmabreytingunni
fram að siðustu kosningum.
Ýmsar blikur
hjá krötum
Alþýðuflokkurinn fékk ævin-
týralega fylgisaukningu i sið-
ustu kosningum en þá jókst fylgi
hansúr 1098 atkvæöum (9,1%) i
2876 atkvæði (22,1%).
Engum dettur i hug að þeir
haldi þessum atkvæðum, tapið
verður verulegt.
Alþýðuflokkurinn stendur vel
utan Akureyrar, en á Akureyri
hefur fylkingin riðlast m.a.
vegna átaka um skipan fram-
boðslistans. Árni Gunnarsson
sigraði Braga Sigurjónsson I
prófkjöri flokksins um fyrsta
sætið og Jón Armann Héðinsson
bar sigurorð af Jóni Helgasyni
formanni Einingar á Akureyri i
ööru sæti.
Kjartan
Stefánsson,
blaðamaður,
skrifar
Hvorki Jón Helgason né Bragi
Sigurjónsson eiga sæti á listan-
um og veikir það hann verulega,
sérstaklega að Jón vantar.
Arni Gunnarsson hefur unnið
ötullega fyrir kjördæmið en
honum er fundiö það til foráttu
að vera aðkomumaður. Jón Ar-
mann Héöinsson er óliklegur til
að afia ftakknum vinsælda.
En ýmislegt bendir til að Al-
þýðuflokkurinn hafi sótt i sig
veðrið siðustu viku. Ingólfur
Arnason rafveitustjóri á Akur-
eyri, fulltrúi Samtakanna i bæj
arstjórn, hefur lýst yfir stuðn-
ingi við Alþýðuflokkinn. Ingólf-
urhefur mikið persónulegt fylgi
á Akureyri, sem sést á þvf, að i
bæjarstjórnarkosningunum á
siðasta ári fékk hann 624 at-
kvæði en Samtökin fengu aðeins
448 atkvæði i öllu kjördæminu I
þingkosningunum sama ár.
Halldór Blöndal
Það má þvi búast viö þvi að
Alþýðuflokkurinn slagi hátt upp
I tvö þúsund atkvæði.
t herbúðum Alþýðubanda-
lagsins rikir mikil óeining og
hefur flokkurinn fengið litlar
undirtektir á kosningafundum.
Guðmundur nær kjöri
Vinstri kjarninná Akureyri er
óánægðurmeö Stefán Jónsson i
fyrsta sæti listans og verður
þetta áreiðanlega i siöasta sinn
sem Stefán verður þarna i efsta
sæti.
Eins og Alþýðuflokkurinn tap-
ar Alþýðubandalagið þó nokkr-
um atkvæðum en óliklegt er að
þeir óánægðu sem standa lengst
til vinstri hlaupi yfir á aðra
flokka.
Úrslit eru mjög tvisýn i
Norðurlandi eystra. Jón Sólnes
þarfa.m.k. 1500-1600 atkvæði til
aðkomast inn á þing. Svo mörg
atkvæöi fær hann ekki. Hins
vegar er liklegt að hann fái það
mörg atkvæði frá Sjálfstæðis-
flokknum að Halldór Blöndal
nái ekki kjöri en Guðmundur
Bjarnason verði kjördæmakjör-
inn. Þó verður mjótt á munun-
um varla meira en 20 til 30 at-
kvæði. Fari svo bendir allt til
þess að Halldór fái uppbótar-
þingsætið.
Nái hins vegar Halldór kjöri
er ekki vist að neinum flokki
nýtist umframatkvæði tíl þess
að kjördæmið fái uppbótarþing-
sæti.
—KS
Crslit i Norðurlandskjördæmi eystra I slöustu alþingiskosning-
um:
1974 1978
atkv. % atkv. %
Alþýðuflokkur 1098 9,1 287« 22,1
Fra msóknarf lokkur 4811 39,7 4150 31,9
Sjálfstæöisflokkur 3661 30,2 2944 22,7
Alþýöubandalag 1731 14,3 2580 19,9
Samtökin 772 6,4 448 3,4
Noröurlandskjördæmi eystra:
Kjördæmakjörnir þingmenn 1978
Atkvæöi aö
baki þingmanns
1. Ingvar Gislason Framsóknarflokkur 4150
2. Jón G. Sólnes Sjálfstæðisflokkur 2944
3. BragiSigurjónsson Alþýöuflokkur 2876
4. Stefán Jónsson Alþýðubandalag 2580
5. Stefán Valgeirsson Ffamsóknarflokkur 2075
6. Lárus Jónsson Sjálfstæöisflokkur 1472
Næstur I rööinni varö Árni Gunnarsson Alþýöuflokki meö 1438 at-
kvæöi.
Arni Gunnarsson
Lárus Jónsson
Ingvar Glslason