Vísir - 01.12.1979, Qupperneq 20
Jónas Haralz ásamt eiginkonu sinni Guöriinu Þorgeirsdóttur fyrir utan heimili þeirra i Kópavoginum.
20 Vl&lM Laugardagur 1. desember 1979 21
Hann er hár# grannur og dökkur yfirlitum. Augun
eru lifandi og athugul en laus viö forvitni eða hnýsni.
Yfir honum er hversdagsleg reisn — hann hreykir sér
ekki. Hann svarar hiklaust og án yfirlætist. Þegar
aðrir tala, hlustar hann af athygli og kurteisi fremur
en áhuga og er bersýnilega vanari því að hlustað sé á
hann. Það örlar þó ekki á sjálfbirgingshætti í fari
hans/ heldur er þetta óvenjulegt og að því er virðist
óbilandi traustá eigin dómgreind. Það er kannski ekki
að ófyrirsynju.
Foreldrar hans voru landsþekkt, hvort á sfnu sviði.
Faðir hans á andlega sviðinu en móðir hans hinu
veraldlega jafnt sem þvi andlega. Sjálfur hefur hann
verið ráðgjafi margra ríkisstjórna hérlendis og
erlendis og nafn hans tengist fyrst og fremst efna-
hagsmálum. Þetta er Jónas Haralz.
Þó hann hafi aldrei setið á þingi hefur hann haft
veruleg áhrif á landsmál hérlendis um árabil. Hann er
ekki maður hlutleysisins. Hann tekur afdráttarlausa
afstöðu til mála, en er óhræddur við að breyta þeirri
afstöðu ef reynslan sannar ekki ágæti hennar. Jónas
var róttækur og virkur kommónisti á yngri árum en er
nú einn af stefnusmiðum Sjálfstæðisflokksins.
Helgarblaðið ræddi við hann um leiðina frá vinstri
til hægri, viðhorf til andlegra og veraldlegra verð-
mæta, líf hans og störf.
Eilíftlíf íþessu lífi
— Ert þú ma&ur andans eöa
efnishyggjunnar? ”
„Þaö fer eftir hvernig þú
skilgreinir efnishyggju” segir
hann. „Faöir minn vorkenndi
þeim sem voru efnishyggjumenn
á sama hátt og músikalskur
maöur vorkennir þeim sem hafa
ekki tóneyra og vita ekki hvers
þeir fara á mis.
Ég var mikill efnishyggju-
maöur en hef smám saman veriö
að komast á þá skoöun fööur
mins, aö þeir sem ekki hafa skiln-
ing trúarreynslunnar á stööu
mannsins, fari mikils á mis og
komist i raun skammt þvi skiln-
ingur þeirra er ófullkominn — svo
ekki sé meira sagt.
Um líf eftir dauöann geta menn
svo haft mismunandi skoöanir.
Mér hefur alltaf siöan ég fór aö
hugsa um þessi mál fundist aö
eilifa lifiö sé i þessu lifi. Mér er
ekki unnt aö skilja þaö ööru visi.
— Hvað er eillft llf?
Hann veltir vöngum skamma
stund.
„Þaö hefur reynst erfitt aö
skilgreina þaö, eins trúarlega
reynslu yfirleitt, en segja mætti
aö þaö væri sérstak „kvalitet”
eða gæöi llfs. Þetta er öllum
trúarbrögöúm sameiginlegt en
þau túlka þaö meö mismunandi
hætti. Fyrir kristna menn er það
lif I Jesú Kristi.
Þau augnablik koma I llfi
manna, aö þeir fá sterka tilfinn-
ingu fyrir þvi aö þeir hafi ekki
trú, en hafi þörf yfir hana. Þetta
er upphaf sannfæringar um aö
þeir séu liöu i æöra samhengi. Ég
haföi ekki þessa tilfinningu né
sannfæringu þegar ég var ungur
en hún kom smátt og smátt
seinna á ævinni.
Ég held aö þaö sé misskilningur
að þröngva trúarlegum skilningi
upp á ungt fólk og finnst
fermingaraldurinn til dæmis
óheppilegur. Fólk er ekki sérlega
móttækilegt fyrir slikt á þeim
aldri, — þaö vekur jafnvel and-
stööu. Ég held aö fólk taki yfir-
leitt seint út trúarlegan þroska,
þó þaö sé auövitaö einstaklings-
bundiö”.
Hef ekki komist upp á
lag með að fara með
bænir
— Hefuröru oröið fyrir trúar-
legri reynslu sjálfur?
„Nei, ekki beinllnis, en mig
dreymir oft furðulega drauma
eins og móöur mlna gerði. Hún
fór I geimferöir I draumi og taldi
aö þaö væri eitt þaö merkilegasta
sem hún hefði lifaö. Þegar banda
rlskur geimfari kom hingaö fór ég
með hana á fyrirlestur þar sem
sýndar voru myndir úr
geimferðinni. Þá sagöi hún . „Ég
hef séð þetta allt saman áöur”.
Ég hef hinsvegar sjaldnast
veriö I vandræöum meö aö finna
eölilega skýringu á mlnum
draumum I tengslum við eitthvaö
sem ég hef verið aö hugsa eöa
gera. Þaö skemmtilega viö
drauma er, aö þeir segja manni
margt um sjálfan mann og maöur
gerir oftupp viö sigldraumi ýmis
vandamál, bæöi sálræn og vitræn.
— Feröu með bænir?
„Nei, ég hef aldrei komist upp á
lag meö aö fara meö bænir. Ég
held þó aö þaö geti veriö gott. Þaö
er hollt, ekki sist á timum eins og
núna þegar hraöi og spenna eru
ráöandi, að menn taki sér tima til
aö vera meö guði slnum. Siöir
gyöinga eru ekki út I bláinn. Bak
viö þaö sem manni kann aö
finnast bábiljur I siðum þeirra,
eins, og ströngum reglum um
livildardaginn, býr andleg
nauösyn til aö lifa fyllra og betra
lífi.”
— Hvaö er þaö sem sonur
Haraldar Nielssonar og Aðal-
bjargar Siguröardóttur hefur
ööru fremur fengiö I veganesti úr
foreldrahúsum?
„Lifandi áhuga á þvi sem er aö
gerast hverju sinni. Einnig var
faðir minn mikill náttúruunnandi
og opnaöi augu mln fyrir undrum
náttúrunnar og fegurö
umhverfisins. Siöast en ekki slst
rótgróna kristna lifsskoöun, en
þaö geröi ég mér ekki ljóst fyrr en
löngu siöar”.
Eftirminnilegir
kennarar
— Hvaö meturöu mest i fari
manna?
„Aö hægt sé aö treysta þeim.
Maöur lærir þaö i bankastarfsemi
hversu ómetanlegt gagnkvæmt
traust er. Ég met lika mikils
hreinskilni, samningsvilja og fólk
sem er lifandi, vel lesiö og fylgist
meö þvl sem er aö gerast. Ég held
aö iþað sé ekki gaman aö
umgangast fólk sem er mjög
framarlega á einhverju sviöi, þvi
þaö er oftast svo upptekiö af
sjálfu sér. Þeir sem hafa náð
mjög langt á afmörkuðu sviöi,
hafa oft ekkert frekar aflögu.
Skemmtilegastir eru þeir sem eru
fordómalausir, viösýnir og láta
sér ekkert mannlegt
óviökomandi.
— Einhver sem hefur haft áhrif
á þig til mótunar aörir en foreldr-
ar þlnir?”
„Já, fjöldi mánna. Einkum
kennarar minir og samstarfs-
menn.
Fyrst er aö nefna Eirik
Magnússon, sem var kennari
minn meöan ég var unglingur og
bjó um tlma heima hjá okkur.
Hann var guðfræðinemi og kenndi
mér og fleiri unglingum undir
menntaskóla, einlægur, kærleiks-
rikur og alvörugefinn maöur. I
rauninni mjög trúhneigöur, en
gekk kommúnismanum I hönd
eins og margir geröu á kreppuár-
unum.
Tveir kennarar minir I mennta-
skóla, þeir ólafur Daníelsson og
Pálmi Hannesson, höfðu líka
mikil áhrif á mig. Þetta voru dá-
samlegir kennarar, lifandi
áhugasamir og skemmtilegir, —
Geröu alla hluti nýja. Ólafur gat
fariö gegnum dæmi úr sinni eigin
kennslubók, sem hann var búinn
aö kenna i áratugi, á þann hátt aö
þaö var eins og hann hefði aldrei
reiknaö dæmiö áöur og uppgötvað
I fyrsta sinn hvernig það væri.
Pálmi var hinsvegar heimspek-
ingur, ef heimspeki er skilgreind
á þann hátt aö hún sé öguö
umræöa um mikilvæg og vanda-
söm mál. Pálmi ræddi viö
nemendur sina um mikilvæg og
vandasöm mál og geröi þaö þann-.
ig aö maöur gleymir þvi ekki.
Hann kenndi okkur tvo tima i viku
i fimmta og sjötta bekk. Ég held
aö fyrir utan timana hjá Óla Dan,
séu þessir tveir timar þaö sem
mér er minnisstæöast úr skólan-
um.
Síöar höföu kennarar minir viö
háskólann i Stokkhólmi mikil
áhrif á mig, sérstaklega einn
þeirra, Herbert Tingsten.
Tók virkan þátt
ístarfi kommúnista
Jónas Haralz á sæti i miðstjórn
Sjálfstæöisflokksins og er einn af
höfundum hinnar nýju efnahags-
stefnu hans. A yngri árum var
hann hinsvegar róttækur vinstri
maður og ég spyr, hvaö eöa hver,
hafi mótaö stjórnmálaskoöanir
hans á þim árum og hvaö hafi
oröið til aö breyta þeim,-
„Þærmótuöustheld ég, mest af
þeim viöhorfum sem voru
rikjandiá kreppuárunum. Einnig
af áhrifum frá sumum kennara
minna sem voru róttækir eins og
flestir menntamenn á þeim tima.
Þaö riktu svipuð viöhorf hér þá
eins og 1968. Þetta eru róttækni-
bylgjur sem ganga yrir heila kyn-
slóð og eru mótaöar af þeim ytri
aöstæðum sem rikja hverju sinni.
Sú fyrri af kreppunni en hin siðari
af Vietnam-striöinu og
vonbrigöum velferöarþjóöfélags-
ins.
Ég var áhugasamur I pólitik og
tók virkan þátt I starfi
kommúnista. Þegar ég i háskóla
fór svo aö leggja stund á
þjóöfélagsfræði, neyddist ég til aö
hugsa málin til botns á þann hátt
sem margir jafnaldrar minir
hafa aldrei þurft aö gera. Þar
meö gekk ég til uppgjörs viö
marxismann. Þaö var ekki
auðvelt mál að gera upp viö sig aö
þaö sem maöur haföi veriö sann-
færöur um og trúaö á„væri mis-
skilningur.
A þessum árum starfaöi ég
mikiö I félagi róttækra stúdenta i
Stokkhólmi sem heitir „Clarté”.
Þar lenti ég smátt og smátt i and-
stööu viö orþódoksa kommúnista.
Ég komst aö þeirri niöurstööu aö
hugmyndafræðin stæöist ekki þótt
ég enn um alllangt skeið aöhyllt-
ist sósialistisk viöhorf.
Agi i hugsun um
stjórnmál
Kennarinn minn, Herbert
Tingsten, hafði mikil áhrif á
þetta uppgjör. Hann var prófess-
or i stjórnmálafræöi og framúr-
skarandi mælskumaður og rithöf-
undur. Hann várö siöar aöalrit-
stjóri Dagens Nyheter i Stokk-
hólmi.
Tingsten geröi mjög strangar
kröfui; um miskunnarlausan
heiöarleika. Aö menn áttuöu sig á
hvaö væru þeirra eigin fordómar
og tilfinningar og létu þaö ekki
hafa áhrif á röksemdir slnar og
niðurstööur. Hann geröi skil-
yröirlausa kröfu um aö nemendur
hans hugsuöu „objektivt” um
stjórnmál og stjórnmálakenn-
ingar. Ég held aö þessi agi I
hugsun um stjórmál hafi mótaö
alla hans nemendur.
Sjálfur skipti Tingsten um
skoöun I stjórnmálum oftar en
einu sinni. Fyrst var hann hægri
maður, þá sósialdemókrati og
loks mikill frjálshyggjumaöur.
Hann segir einhvers staöar, aö
þeir sem skipti um skoöun séu
salt jaröar, þvl þaö séu þeir sem
hafi hugsaö málin til hlltar.”
Aldrei sett markið
mjög hátt
— Manni finnst eins og bæði
þér sjálfum.og öörum þyki
velgengni og áhrif sjálfsögö
þegar þú ert annars vegar. Sækja
aldrei aö þér efasemdir um aö
þetta sé veröskuldaö?
„Mér finnst sjálfum flest sem
ég hafi tekiö mér fyrir hendur,
hafi heppnast, en ef til vill er þaö
vegna þess aö ég hafi aldrei sett
markiö mjög hátt.
Ég byrjaöi þó á háskólanámi
sem ég fann að átti ekki viö mig
og hætti eftir tvö ár og fór I annaö.
Þaö var erfiö ákvöröun en ég held
hún hafi verið rétt.
Annars snúast málin oft undar-
lega. Ég hætti námi i efnaverk-
fræöi og fór i hagfræöi, en nú er
bekkjarbróöir minn sem lauk
námi I efnaverkfræöi, starfs-
bróöir minn og félagi I skrif-
stofunni viö hliöina á mér. Þetta
er Helgi Bergs.
Ég lit á háskólamenntun sem
almenna menntun og það er
skrýtiö, ef þeir merin sem læra
eitthvaö mjög sérhæft veröa ekki
átvinnulausir áöur en lýkur. Ég
held aö þaö sé dálitiö sérstakt
meö hagfræöinga aö þeir vinna
vel saman. Meöal sumra annarra
stétta, svo sem lækna, visinda-
manna eöa listamanna er oft
mikiö um árekstra og afbrýöi-
semi. Ég hef aldrei oröiö var viö
neitt af þessu tagi meöal hag-
fræðinga og reyndar ekki heldur
hjá bankamönnum, verkfræöing-
um eöa lögfræöingum. Þessir
menn eru praktiskir, vita hvernig
heimurinn er. og þeim er fyrir
öllu aö hlutirnir gangi. Þeir vita
að þaö er aldrei hægt aö höndla
hugsjónina, menn veröa aö sætta
sig viö eitthvaö minna, viöur-
kenna þetta og vinna i þeim anda.
Menn sem einblina á hugsjónina
eru aðdáunarveröir og viö gætum
ekki án þeirra veriö en þeir eru
oft og tiöum ósköp þreytandi og fá
litlu framgengt. Og þegar þeir fá
einhverju framgengt er eins vist
aö þaö sé til ills eins og góös.”
Það er ekkert dauðara
en sósíalismi
— Þú segir i viötali fyrir nokkr-
um árum, aö velferöarrlkiö sé á
leiö til þeirra stjórnarhátta sem
eru viö lýöi fyrir austan tjald.
Ertu enn á þeirri skoöun aö viö
færumst i átt til Austur-Evrópu?
„Já, eindregiö.
Þaö er til merkileg bók um
lýðræöiö i Bandarikjunum. Hún er
eftir Frakka aö nafni Alexis De
Tocqeville og var gefin út áriö
1835. Höfundurinn, þá ungur
maöur, dvaldi i Bandarlkjunum i
tvö ár og kynnti sér þjóölifshætti
þar. Þetta er klassisk bók. — Gæti
veriö skrifuö i dag. Rauöi þráöur
þessarar bókar er hversu illa
frelsi og jafnrétti fara saman,
þegar til lengdar lætur.
Lýöræöiö leiöir til vaxandi jafn-
réttis. En eftir þvi sem menn gera
meiri kröfur til jafnréttis, láta
þeir sér ekki lengur lynda aö allir
hafi sömu tækifæri, heldur
heimta, aö menn séu geröir jafn-
ir. — Þá fer frelsiö fljótlega veg
allrar veraldar.
Þaö er mikilvægast aö halda
réttu jafnvægi. Jafnrétti gengur
nú út I öfgar I velferöarrikjunum.
I Sviþjóö mega menn ekki lengur
skara framúr I skólum og hér á
landi stefnir I sömu átt. 1
helgarviðtalið
Þeir sem skipta um skoðun eru salt jaröar, þvl þaö eru þeir sem hafa
hugsaö málin til hlitar.
9,Pad er ekkert tií
dauöara en sósíalismi”
— segir Jónas Haraíz bankastjóri í heígarvidtaíi