Vísir - 01.12.1979, Blaðsíða 29
Laugardagur 1. desember 1979
29
Geir spáir i spilin ásamt frystihússkonum sem smelltu sér i eina
- ---—~ ^ ■ ■- ' • *
sandkasslnn
Það er erfitt að átta sig á hvað
eru fréttir og hvaö er áróður i
flokksblöðunum þessa dagana.
Senniiega er þetta mestan part
áróður, en óneitanlega staldrar
maður við sumar fyrirsagnir.
Þessi birtist i Tlmanum:
„ÓTTINN VIÐ ÓLAF”
Mér hefur alltaf fundist Ólaf-
ur vera heldur meinleysislegur
og skildi þvi ekki hvers vegna
menn ættu að óttast hann svo
mjög. Skýringuna fann ég I
Alþýöublaðinu en þar stóð eftir-
farandi:
„ÓLI JÓ FÆR ÆÐISKAST”
0000000000
„HITTUMST AFTUR EFTIR
SEX MANUÐI” segir Visir að
Geir Hallgrimsson hafi sagt
þegar hann kvaddi starfsfólk Is-
bjarnarins eftir að hafa messað
yfir þvi. Eftir þessu að dæma
veröur þá kosið aftur i mai.
0000000000
„HÉR FÆDDIST VINSTRI
STJÓRNIN — OG HÉR SKAL
HUN DREPIN LtKA” hefur
Dagblaðið eftir Birgi tsleifi
Gunnarssyni þar sem hann stóð
i pylsuvagninum hans Ásgeirs i
Austurstræti.
Eftir þetta þori ég ekki fyrir
mitt litla lif að fá mér pylsu
þarna. Hver veit nema Ásgeir
Hannes léti mig í ógáti fá pylsu
sem ætluð væri vinstri stjórn-
inni.
0000000000
„FRÉTT ÞJÓÐVILJANS
RÉTT” segir í fyrirsögn Þjóð-
viljans. Þeir á Þjóöviljanum
eiga þakkir skildar fyrir að
benda lesendum sérstaklega á
þær fréttir sem þeir telja að séu
réttar. Svona hugulsemi kann
ég vel að meta og vonandi verð-
ur þessu haldiö áfram, ekki
veitir af.
0000000000
„ÓVÖN AÐ GANGA A
HAHÆLUÐUM SKÓM” hefur
Visir eftir nýbakaöri feguröar-
drottningu. Það tóku vist allir
eftir þessu þar sem gestir á feg-
uröarsamkeppni horfa fyrst og
fremst á skó keppenda.
0000000000
„GEIR HALLGRtMSSON A
VINNUSTÖÐUM t KEFLAVtK”
æpir Mogginn I risafyrirsögn.
Það er mjög eðlilegt að skýra
frá þessu með striðsletri þvi ó-
neitanlega er hér um einstæðan
viðburð aö ræða.
0000000000
„FJÖLMENNI A FRAM-
SÓKNARSKEMMTUN” segir
Visir alveg forviöa. Timinn læt-
ur sér hins vegar hvergi bregöa
og slær upp grein eftir konu úti i
bæ undir fyrirsögninni:
ALLTAF SVO GAMAN AÐ
VERA FRAMSÓKNARMAÐ-
UR”
0000000000
„GJALDSKRA HITAVEIT-
UNNAR 34% HÆRRI EN HCN
ÞYRFTI AÐ VERA” fullyröir
Mogginn. Við megum þá búast
við LÆKKUN á gjaldskránni ef
Sjálfstæðisflokkurinn vinnur
kosningarnar, eða hvaö?
0000000000
0000000000
„TROUBLE-MAKER” seg-
ir i fyrirsögn á hernámssiðu
Þjóðviljans. Mér finnst nú aö
þeir geti skilgreint samtök sin á
islensku þótt enskan sé þeim ef-
laust tamari.
„DEILUR UM HEILSUFAR
HVALANNA” segir I fyrirsögn
Visis. Ég hef einmitt haft það á
tilfinningunni að þetta væri
aðaldeilumál þjóðarinnar I dag
og sannast það hér með. Enda
er varla neitt merkilegra til að
deila um þessa dagana.
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
LAUGARDAG- MÁNUDAG-ÞRIÐJUDAG
á pkiumobil
M 1 SYSTEM
LEIKFÖNGUM
Leikfangabúðin
Iðnaðarhúsinu - Hallveigarstig 1
VEFARINN HF.
ÁRMÚLI 21 - SÍMI 84700
Bókhald og eignaiimsýsla
Bókhaldsþjónusta og reikningsskil fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga.
Tölvuvinnsla eða spjaldfærsla.