Vísir - 01.12.1979, Blaðsíða 40
Veörið
hér 09 har
Veöriö klukkan 18:
Aþena heiöskirt 12, Akureyri
skýjaö 0, Bergen rigning 6,
Helsinki snjókoma -4,
Kaupmannahöfn súld 9, Osló
skýjaö 1, Reykjavikléttskýjaö
3, Stokkhólmurskýjaö 2, Þórs-
höfn léttskýjaö 3, Berlin
rigning 8, Feneyjar þoka 3,
Frankfurt þokumóöa 6, Nuuk
skýjaö -8, London súld 8,
Luxemborg skýjaö 6, Chicago
skýjaö -4, Las Palmas létt-
skýjaö 21, Mallorka heiöskirt
11, New York heiöskirt 4,
Paris skýjaö 9, Róm þoku-
móöa 13, Malaga heiöskirt 13,
Vln skýjaö 12, Winnipeg snjó-
koma -11.
Kosninga-
veOrflö
vand-
ræOaiaust
,/Ég sé ekki að veðrið
yfir helgina ætti að
valda neinum vandræð-
um í sambandi við kosn-
ingarnar" sagði Guð-
mundur Hafsteinsson
veðurfræðingur þegar
Vísir spurðist fyrir um
kosningaveðrið.
Guömundur sagöi aö lægö
væriaö nálgast landiö og bjóst
hann við aö skilin sem fylgdu
færu yfir landiö á laugardags-
morgni. A eftir fylgdi svo suö-
vestan átt og skúraveður viö-
ast hvar sunnan- og vestan-
lands. A Noröur- og Austur-
landi yröi ágætis veöur, lík-
lega bjart og úrkomulaust.
Taldi hann liklegt aö á þessu
yröi engin breyting á sunnu-
deginum. A mánudag yröi lik-
lega meiri vestanátt og held-
ur kaldara þannig aö hann
gætigegniöámeðéljum.en þó
væri erfitt að segja nákvæm-
lega til um horfur þá.
Loks sagöi Guömundur að
hugsanlega yröi skafrenning-
ur á fjöllum, einkum á Vest-
fjörðum og gætu vegir þvl
jafnvel teppst einhvers staöar.
Loki
segir
Nýtt eyöublaö hefur veriö
hannaö fyrir framtöl skatt-
borgara og var ætlunin sú aö
einfalda formiö. Ekki tókst
betur til en svo, aö starfsmenn
skattsins hafa enn ekki skiliö
hiö nýja eyöublaö og þvl ekki
hægtaö kynna þaö almenningi
strax.
Laugardagur 1. desember 1979, 267. tbl. 69. árg.
síminner 86611
úrslit kosninganna gætu
legið fyrir á briðjudag
- Kjörgögnin flult með bíium, skipum, fiugvéium,
snjóbílum og jafnvei snjðsleðum
,,Ef allt fer eins og best veröur á kosiö, þá gætu úrsiit alþingis-
kosninganna legiö fyrir á þriöjudaginn”, sagöi ólafur W. Stefáns-
son, skrifstofustjóri I dómsmálaráöuneytinu.
ólafur sagöi, aö óvissuþættirnir væru samt svo margir, aö úrslitin
gætu dregist I nokkra daga og væru fordæmi fyrir þvi.
,,Ef ekki berst beiöni um aö framlengja kosningarnar til þriöju-
dags einhvers staöar á landinu, þá gætu fyrstu töiur úr Reykjavlk
og Reykjanesi borist milli klukkan 23 og 24, rétt eins og um venju-
lega kosningú væri aö ræöa”.
Talning getur ekkihafist, fyrr
en öllum kjörstööum á landinu
er lokaö og talning atkvæöa I
hverju kjördæmi fyrir sig hefst
ekki fyrr en öll kjörgögn hafa
borist til yfirkjörstjórnar.
BUist er viö, aö flogiö veröi
meö kjörgögn Vestfiröinga til
Isafjaröar, þar sem yfirkjör-
stjórn er staösett, en þar er aö-
eins hægt aö fljúga i björtu.
Þannig getur talning á Vest-
fjöröum ekki hafist fyrr en á
þriöjudaginn, veröi kosiö á
mánudaginn. Þá veröur aö öll-
um likindum flogiö meö kjör-
gögn úr Grimsey til Akureyrar
og frá Vopnafirði og Bakkafiröi
til yfirkjörstjórnar á Seyöis-
firöi. Þar er sama sagan og á
Vestfjöröum, náttmyrkriö getur
tafiö flugiö og þar með talningu
atkvæöa.
Þá sagði Ólafur, aö ef ekki
yröi fhigveður og vegir væru
ófærir, þá yröi aö flytja kjör-
gögnin sjóleiöina og yröi þá
væntanlega leitaö til Land-
helgisgæslunnar og eigenda
stærribátaog skipa.Þaðyröi þó
bæöi dýrt og tfmafrekt aö flytja
kjörgögnin sjóleiöina.
Mestu vegalengdir frá kjör-
staö til yfirkjörstjórnar munu
vera frá Strandasýslu til Isa-
fjaröar, ef fariö er landleiöina.
Þá frá kjörstöðum austast I
V-Skaftafellssýslu til Selfoss og
frá kjörstööum vestast I.
A-Skaftafellssýslu til Seyöis-
fjaröar. Þá er gdöur spotti frá
Þórshöfn til Akureyrar.
Til aö sjá um flutning kjör-
gagna landleiðina, hafa verið
skipaöar sérstakar snjóruðn-
ingsnefndir I öllum kjördæmun-
um. Ef færö verður slæm, má
búast við aö vlöa þurfi aö gripa
til snjóbfla og jafnvel snjósleða
til aö koma kjörgögnunum
áleiöis.
—ATA
Pylsuvagninn I Austurstræti sem Guömundur J. hóf til vegs og viröingar þegar hann sótti þangaö styrk
áöur en hann fór I stjórnarráöiö á dögunum, var fundarstaöur frambjóöenda i gær. Hér sést Guömundur
ásamt Ellert Schram og Pétri Sigurössyni og þeir hafa fengiösér eina meö öllu. (Vísism. GVA)
Fjðrlegar ræður
undir pylsulykt
Fjöldi manna saf naðist saman á Lækjartorgi síðdegis í
gær þar sem haldinn var f ramboðsf undur við pylsuvagn
Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar. Þarna töluðu fulltrúar
allra flokka og framboða og var málflutningur bæði i
hefðbundnum stíl og f rjálslegum. Sumir töluðu um verð-
bólgu, kjarabætur og önnur alvarleg mál en aðrir vildu
meiri völd fyrir Rauðsokkahreyfinguna og heimtuðu að
fullorðið fólk fengi að drekka bjór.
Verslunarskólanemar komu
marserandi niöur Bankastrætiö
meö jólasveina I fararbroddi og
sungu jólalög. Jólasveinarnir
kepptu siöan viö stjórnmála-
mennina um athygli manna
nokkra stund. Veöriö var stillt og
óvenjulega gott fyrir þennan árs-
tima, markaöurinn á Torginu var
I fullum gangi og stemmningin
var nánast eins og 17. júni.
Morgunpóstsmenn kynntu þá
sem tóku til máls og slógu á létta
strengi aö vanda. Ræöumenn
stóöu upp á almenningsbekk sem
komið haföi veriö fyrir á upp-
hækkuninni i Austurstræti en
vegna þess að áhorfendur stóöu
einnig þar uppi sást ekki eins vel
til ræöumanna og var undir hæl-
inn lagt hvaö heyröist i þeim. Ein
og ein setning náöi þó eyrum
manna.
Ellert Schram sagði, aö hann
og Pétur Sigurðsson stæöu saman
og ætluöu báðir aö komast á þing,
og ekki aöeins það aö þeir tveir
stæöu saman heldur stæöi Sjálf-
stæöisflokkurinn og allir Reyk-
vikingar saman um XD.
Jón Baldvin Hannibalsson
sagöi að mesta afturhaldiö væri
þaö sem vildi viöhalda rikjandi
ástandi og Alþýðubandalagiö
væri mesta afturhald á tslandi.
Þá sagði hann einnig aö Reykvik-
ingar stóluöu ekki á hálfguö eins
og Ólaf Jóhannesson.
Dómsmáiaráöherra Vilmundur
Gylfason sagöi aö stjórnmála-
flokkar ætti aö þvi leyti aö vera
eins og menn aö þeir ættu aö hafa
samvisku og ganga ekki á bak
oröa sinna.
Guömundur J. sagöi aö Alþýöu-
flokkurinn ætti ekki að hæla sér af
þvi aö hann ætlaði að sprengja
allar rikisstjórnir ef hann kæmi
ekki fram stefnu sinni, þvi hann
væri sjálfur aö springa.
—JM
Bragl áfram
ráðherra efllr
kosningarnar
,,Ég tel vist aö þaö verði
óbreytt rikisstjórn, sem situr eftir
kosningar, þar til ný stjórn verö-
ur mynduö”, sagöi Bragi Sigur-
jónsson, landbúnaöarráöherra, er
hann var spurður hvort hann
myndi sitja áfram I ráðherrastól
eftir kosningarnar, en Bragi er
sem kunnugt er ekki I framboði.
,,Ég reikna meö, aö þegar
kosningaúrslitin liggja fyrir, segi
stjórnin af sér en forsetinn
biöji hana að sitja áfram þar til
ný veröur mynduö.
Þetta hefur ekki veriö rætt i
rikisstjórninni, en ég held að þaö
breyti engu þó ég sé ekki á þingi”.
—ATA
innbrot hjá SJálf-
stæðlsflokknum
á Akureyrl
Kosninga-
sjóðnum
SlOllðl
Þaö er hálfgert Watergate-
bragö af innbrotinu sem framið
var á Akureyri I fyrrinótt. Þá var
brotist inn á kosningaskrifstofu
Sjálfstæöisflokksins og kosninga-
sjóönum stolið.
Skrifstofanertil'húsa á annarri
hæð aö Kaupvangsstræti 4. Guö-
laug Siguröardóttir á kosninga-
skrifstofunni sagöi I samtali viö
Visi aö þjófurinn heföi komist inn
meö þvi að klifra upp á skúr aö
húsabaki og siðan inn um glugga.
Guölaug sagöi að kosninga-
sjóöurinn heföi verið hirtur en þar
voru um hundrað þúsund krónur.
Auk þess tók þjófurinn meö sér
sameiginlegan sjóð sem
flokkarnir hafa til sameiginlegra
útgjalda vegna framboösfunda.
Þar voru aöeins nokkur þúsund
krónur en einnig voru kvittanir
teknar úr þeim sjóöi.
Innbrotsþjófurinn snerti hins
vegar ekki við kosningagögnum
eöa nokkrum utankjörstaöaat-
kvæöum sem geymd voru á skrif-
stofunni. Gárungarnir segja aö
meö þvi hafi aðrir flokkar verið
hreinsaðir af öllum grun um aöild
að innbrotinu.
—SG