Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 1
245. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. OKTÓBER 2001
BANDARÍKJAHER var gagnrýnd-
ur í gær fyrir að beita umdeildum
sprengjum, svonefndum klasa-
sprengjum, í loftárásunum á Afgan-
istan. Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna sagði í gær að átta óbreyttir
borgarar hefðu látið lífið þegar
klasasprengjum hefði verið varpað á
afganskt þorp.
Klasasprengjur eru nokkur
hundruð hnefastórar sprengjur sem
komið er fyrir í hylki. Þegar það
springur dreifast smásprengjurnar
um stórt svæði og sundrast auk
þess í litlar flísar. Oft springa þess-
ar sprengjur ekki og þær liggja þá á
jörðinni eins og jarðsprengjur.
Nokkrar hjálparstofnanir hafa hvatt
til þess að klasasprengjur verði
bannaðar þar sem þær eiga það
sameiginlegt með hefðbundnum
jarðsprengjum að þær verða
óbreyttum borgurum að fjörtjóni
löngu eftir að átökum lýkur.
Stephani Bunker, talsmaður
Sameinuðu þjóðanna, sagði að
bandarískar klasasprengjur hefðu
orðið átta óbreyttum borgurum að
bana þegar þeim hefði verið varpað
á þorp í vesturhluta Afganistans á
mánudagskvöld. Einn þorpsbúi til
viðbótar hefði látið lífið síðar þegar
hann hefði tekið upp smásprengju.
Embættismaður í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu staðfesti að
klasasprengjum hefði verið beitt í
árásum í grennd við þorpið, sem er
nálægt borginni Herat.
Jakob Kellenberger, formaður
Alþjóðaráðs Rauða krossins, sagði í
gær að mannfallið meðal óbreyttra
borgara í Afganistan færi vaxandi.
Talibanar héldu því fram að 36
saklausir borgarar hefðu beðið bana
í loftárásum í fyrrinótt. Þeir segja
að alls hafi meira en 1.000 óbreyttir
borgarar látið lífið í árásunum frá 7.
október en ógjörningur er að hrekja
eða staðfesta þá fullyrðingu.
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í við-
tali við USA Today í gær að ef til
vill yrði aldrei hægt að ná Osama
bin Laden „dauðum eða lifandi“ eins
og Bandaríkjaforseti hefur fyrir-
skipað.
„Ég held að við náum honum,“
sagði þó varnarmálaráðherrann á
blaðamannafundi í Washington í
gær.
Bandaríski herinn gagnrýndur fyrir að beita umdeildu vopni í Afganistan
Óbreyttir borgarar sagðir
falla í klasasprengjuárás
Washington, Bagram. AFP, AP.
Reuters
Lítil stúlka í Norður-Afganistan
borðar baunasalat sem var í
matvælapakka sem varpað var
úr bandarískum flugvélum.
BJÖRGUNARMÖNNUM tókst í
gær að ná tökum á eldinum sem
geisaði í Gotthard-vegagöngunum í
Sviss í kjölfar áreksturs í þeim á
miðvikudagsmorgun. Ellefu lík
höfðu fundist í gær, og óttast var að
mun fleiri hefðu farist.
„Þetta er hryllingur, eyðilegging-
in er alger, ólýsanlegur harmleik-
ur,“ sagði forseti Sviss, Moritz Leu-
enberger, sem skoðaði slysstaðinn í
gær. Sagði hann slysið, og lokun
ganganna í ótilgreindan tíma, vera
mikla ógæfu fyrir Sviss og Evrópu.
Gotthard-göngin eru 16,9 km og
lengstu vegagöng í Evrópu, og einn
mikilvægasti samgönguhlekkurinn á
milli norður- og suðurhluta álfunn-
ar.
Alls höfðu yfirvöldum borist 128
tilkynningar um að fólks væri sakn-
að síðdegis í gær, og hafði þessi tala
hækkað snarlega síðan í gærmorg-
un, þegar tilkynningar voru um 80.
Segja yfirvöld að hærri töluna megi
að hluta rekja til þess að margar til-
kynningar hafi borist frá ættingjum
og vinum um sömu einstaklingana.
Þá væri þarna með talið fólk sem
hefði einfaldlega ekki látið vita af
sér.
„Það er mjög ólíklegt að það geti
verið svo mörg fórnarlömb inni í
göngunum,“ sagði Bruno Winkler,
slökkviliðsstjóri í svissnesku kant-
ónunni Bellinzona.
Fjórir hinna látnu voru Þjóðverj-
ar, einn Svisslendingur, Lúxem-
borgari, Ítali og Frakki. Ekki var í
gær vitað hverrar þjóðar hinir þrír
voru. Meðal hinna látnu er bílstjóri
flutningabílsins sem olli slysinu þeg-
ar hann ók yfir á rangan vegarhelm-
ing skömmu eftir að hafa farið inn í
göngin að sunnanverðu, og lenti
framan á öðrum flutningabíl sem
flutti hjólbarða. Mikill eldur kom
upp og bárust eitraðar lofttegundir
frá brennandi hjólbörðunum.
Flest fórnarlambanna köfnuðu,
annaðhvort inni í bílum sínum eða
þegar þau voru að reyna í örvænt-
ingu að komast á brott frá slys-
staðnum. Yfirvöld hafa ekki viljað
geta sér til um hversu margir kunni
að hafa farist í slysinu.
Um 100 brunnir bílar eru á því
svæði í göngunum sem verst varð
úti, en talið er að hitastigið þar hafi
farið í 1000–1200 gráður í eldinum.
Loftklæðning ganganna hrundi á
um 200 metra löngum kafla þar sem
eldurinn geisaði. Ekki var vitað
hvort þeir sem í bílunum voru náðu
að forða sér.
Hin meginsamgönguæðin um
Sviss, San Bernardino-skarðið, lok-
aðist einnig í gær í nokkrar klukku-
stundir í kjölfar áreksturs flutninga-
bíls og sendibíls. Bílstjóri
sendiferðabílsins lést. Umferðar-
öngþveiti skapaðist á hraðbrautum
víða í Sviss af þessum sökum og
langar raðir bíla mynduðust við
landamæri Sviss og Þýskalands og
Sviss og Ítalíu.
Ellefu látnir og fjölda
saknað eftir slysið í Sviss
Airolo í Sviss. AP, AFP.
128 tilkynningar
hafa borist um að
fólks sé saknað
Reuters
Brunnir bílar og fallin þakklæðning á slysstaðnum í Gottard-göngunum í Sviss í gær.
„Ég heyrði strax ... “/30
Forystugrein/34
ÍSRAELSSTJÓRN ákvað á fundi
um miðnætti í gær að hefja hægfara
brottflutning herliðs síns frá bæjum
á heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna á Vesturbakkanum, að því til-
skildu að Palestínumenn virði vopna-
hléssamkomulag, að því er
aðstoðarmaður Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels, greindi frá.
Ísraelskir, palestínskir og banda-
rískir öryggismálafulltrúar munu
hittast í dag og semja um frekari skil-
yrði brottflutningsins, sem verður
gerður stig af stigi og háður því að
allt verði með kyrrum kjörum á um-
ræddum svæðum, sagði aðstoðar-
maðurinn.
Ísraelar héldu með lið sitt inn í sex
bæi á svæðum Palestínumanna í kjöl-
far morðs á ísraelskum ráðherra í
síðustu viku. Sagði Sharon markmið
aðgerðanna vera að hafa hendur í
hári þeirra sem bæru ábyrgð á morð-
inu. Krafðist hann þess jafnframt að
Palestínumenn framseldu morð-
ingjana. Þeir hafa þó ekki enn náðst.
Fimm Palestínumenn féllu í átök-
um í Betlehem og Tulkarem í gær.
Ísraelar höfðu fyrr um daginn dregið
lið sitt til baka frá bænum Beit Rima,
sem þeir höfðu ráðist inn í í fyrradag.
Í innrásinni féllu fimm palestínskir
lögreglumenn.
Á meðan ísraelska stjórnin fundaði
í gærkvöldi hittu fulltrúar Samein-
uðu þjóðanna, Evrópusambandsins
og Rússlands Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, í því augnamiði að
renna stoðum undir vopnahléssam-
komulag sem gert var fyrir mánuði.
Ísraelar
verða á
brott
Jerúsalem. AP.
Heimastjórnarsvæði
Palestínumanna