Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FREYJA Sigurðardóttir, Íslands-
meistari í hreysti hjá IFBB-samband-
inu, hélt utan til Brasilíu í vikunni til
að keppa á heimsmeistaramótinu í
greininni en það hefst í dag.
Freyja er bikarmeistari og tvöfald-
ur Íslandsmeistari hjá Galaxy-sam-
bandinu auk þess að vera Íslands-
meistari hjá IFBB en hún tók ekki
þátt í Íslandsmóti Galaxy um helgina
vegna keppnisferðarinnar.
Freyja er Sandgerðingur að upp-
runa en er nú búsett í Keflavík. Hún
verður tvítug í nóvember og er nokk-
uð ung miðað við aðra keppendur,
sem verða líklega nær þrítugu.
– Hvað er undirbúningur fyrir
keppnina búinn að standa lengi?
„Ég tók þátt í Íslandsmóti í apríl og
er búin að lyfta á fullu síðan þá og
reyna að bæta það sem ég þurfti að
bæta. Mataræðið er hins vegar búið
að vera strangt í tvo mánuði.“
Kjúklingar og grænmeti
– Er ekki dýrt að taka þátt í svona
móti?
„Jú, maturinn er til dæmis mjög
dýr, en ég borða aðallega kjúklinga-
bringur, fisk og grænmeti meðan ég
er að undirbúa mig. Þetta tekur líka
mikinn tíma frá vinnu því ég þarf oft
að æfa tvisvar á dag. IFBB-sam-
bandið sér um ferðakostnaðinn, en
annars er ég búin að fá góða styrki frá
Sparisjóðnum í Keflavík og Leppin og
það kemur sér mjög vel.“
– Hvernig fer keppnin fram?
„Keppnin stendur yfir í þrjá daga,
26.–29. október. Hjá IFBB-samband-
inu er bara þolfimiatriði og saman-
burður, en engin tímaþraut eins og
hjá Galaxy.
Unnur Pálmadóttir hjálpaði mér að
finna lag og spor fyrir þolfimiatriðið.
Ég bætti síðan fimleikum inn í það, en
ég æfði fimleika í níu ár áður en ég fór
að æfa fyrir fitness,“ svarar Freyja og
bætir við:
„Ég hef ekki hugmynd um hvaða
möguleika ég hef í mótinu og verð
ánægð ef ég kemst í 15 manna úrslit,
en það eru 60–70 keppendur sem taka
þátt frá yfir þrjátíu þjóðum.“
– Hvernig hefur þér gengið á al-
þjóðlegum mótum fram til þessa?
„Ég keppti á tveimur alþjóðlegum
mótum á síðasta ári; Evrópumóti hjá
Galaxy-fitness þar sem ég varð í
fjórða sæti, en á alþjóðlegu móti í
Laugardalshöll hafnaði ég í öðru
sæti.“
– Ætlarðu svo að hvíla þig þegar þú
kemur heim?
„Nei, ég kem heim 30. október og
fer þá strax að undirbúa mig fyrir bik-
armót IFBB. Það verður haldið í
Keflavík 24. nóvember, en svo sé ég
bara til hvað ég geri eftir það,“ segir
hin unga og hrausta Freyja Sigurð-
ardóttir.
Freyja Sigurðardóttir tekur þátt í heimsmeistaramótinu í hreysti í Brasilíu
Hef ekki hugmynd
um sigurmöguleikana
Ljósmynd/Rúnar Þór
Freyja Sigurðardóttir sigraði á
Íslandsmóti IFBB í vor.
Keflavík
KEPPNIN um Herra Suður-
nes verður haldin í félagsheim-
ilinu Festi í Grindavík í kvöld.
Húsið verður opnað klukkan
hálf níu.
Tíu menn taka þátt í keppn-
inni og hafa þeir verið að und-
irbúa sig að undanförnu. Sig-
urvegararnir taka síðan þátt í
keppninni Herra Ísland en hún
verður haldin á Broadway 22.
nóvember næstkomandi.
Að lokinni keppni leikur
hljómsveitin Land og synir fyr-
ir dansi.
Herra Suður-
nes í Festi
í kvöld
Grindavík
ÝSUKVÓTI smábáta á Suðurnesj-
um þrefaldast í sumum tilvikum
vegna þess viðbótarkvóta sem fyrir-
hugað er að láta þeim í té í kjölfar
kvótasetningar krókabáta í haust.
Aðrir fá minna en allir fá einhverja
viðbót.
Ekki kom fram mikil gagnrýni á
rekstraraðstæður smábátasjómanna
á opnum fundi um sjávarútvegsmál
sem sjálfstæðismenn á Suðurnesjum
efndu til í Vitanum í Sandgerði í
fyrrakvöld. Þeir menn sem höfðu sig
mest í frammi í almennum umræðum
gagnrýndu kvótakerfið almennt en
sjávarútvegsráðherra og þingmenn
tóku til varna. Einnig komu fram efa-
semdir um vísindalegan grundvöll
veiðiráðgjafar Hafrannsóknastofn-
unar og vísað til ýmissa dæma á und-
anförnum árum í því sambandi.
Á fundinum rakti Árni Mathiesen
aðdraganda þeirra reglna um veiðar
krókabáta sem tóku gildi í haust og
þær breytingar sem unnið hefur ver-
ið að á undanförnum mánuðum til að
auðvelda trillukörlum aðlögun að
kerfinu. Auk Árna voru alþingis-
mennirnir Kristján Pálsson og Árni
Ragnar Árnason gestir fundarins og
tóku þátt í umræðum.
Fram kom hjá Kristjáni að hagur
Suðurnesjamanna ætti að vera
þokkalega tryggður með þeim við-
bótarkvóta í ýsu og fleiri tegundum
sem smábátasjómönnum yrði úthlut-
að. Rakti hann nokkur dæmi um við-
bótina sem menn fengju. Bátur sem
er nú með tíu tonn af ýsu fær níu
tonn til viðbótar, annar er með 29
tonn og fær 19 til viðbótar og sá
þriðji, bátur í Grindavík, er með 6
tonn af ýsu og fær 15 tonn til við-
bótar. Sagði Kristján að ýsukvóti
sumra allt að þrefaldaðist, aðrir
fengju minna en allir fengju ein-
hverja viðbót. Því hefði ekki verið til
einskis barist.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Ragnar Ragnarsson skipstjóri, Þorsteinn Erlingsson útgerðarmaður og
Reginn Grímsson bátasmiður voru meðal fundarmanna.
Ýsukvóti krókabáta
allt að þrefaldast
Sandgerði
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Reykjanesbæjar leggur til að Meist-
arahúsum ehf. verði úthlutað svæði í
Innri-Njarðvík og fyrirtækinu heim-
ilað deiliskipuleggja svæðið sem
íbúðarbyggð og annast gatnagerð,
gegn því að gatnagerðargjöld verði
ekki innheimt. Umrætt bygginga-
svæði er þríhyrningur sem liggur frá
verksmiðjuhúsi sem kennt er við
Ramma og niður að sjó. Það afmark-
ast af Njarðarbraut að sunnan,
Seylubraut að austan og Njarðvík-
urfitjum að norðan og vestan. Áætl-
að er að þar sé hægt að koma fyrir
30–50 íbúðum, miðað við sérbýli.
Verktakinn
skipuleggur
hverfið
Innri-Njarðvík