Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 55
ÁSGERÐUR Halldórsdóttir á Sel-
tjarnarnesi var einróma endurkjörin
formaður suðvesturkjördæmis á
fyrsta aðalfundi kjördæmisins sem
haldinn var 23. október.
Auk hennar voru kosnir í sjö
manna stjórn: Lúðvík Örn Steinars-
son, Kristinn Andersen, Halldór
Jónsson, Pétur M. Birgisson, Sig-
urður Borgar Guðmundsson og Ár-
sæll Hauksson.
Gestir fundarins voru Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra,
Sólveig Pétursdóttir dóms- og
kirkjumálaráðherra og Hákon
Björnsson, oddviti sjálfstæðismanna
í Mosfellsbæ. Á fundinum, sem var
fjölsóttur, urðu miklar umræður um
sjávarútvegsmál, dómsmál og sveit-
arstjórnarmál, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Endurkjörin
formaður
GUÐRÚN Kristjánsdóttir prófess-
or, hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands, flytur fyrirlesturinn: Barna-
hjúkrun á tímamótum: Þjónusta við
börn og fjölskyldur þeirra í krafti
þekkingar. Fyrirlesturinn verður
haldinn í dag föstudaginn 26. októ-
ber kl. 16 í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands. Hann er öllum opinn.
Erindið fjallar um þær breytingar
sem eru að verða í heilbrigðisþjón-
ustu við börn og fjölskyldur þeirra
með nýjum rekstraráherslum og
nýju skipulagi Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, segir í fréttatil-
kynningu.
Fyrirlestur um barnahjúkrun
HÁTÍÐIN „Við vorum ung í Kópa-
vogi 1950–1970“ verður haldin í Fé-
lagsheimili Kópavogs laugardaginn
3. nóvember nk.
Húsið verður opnað kl. 21 og leik-
ur Gunnar Páll Ingólfsson fyrir
gesti. Eftir það mun Lúdó og Stefán
leika fyrir dansi til kl. 3. Aðgöngu-
miðar verða seldir í Café Catalínu,
Hamraborg 11 frá og með laugar-
deginum 27. október. Athugið, ekki
tekið við greiðslukortum. Verð að-
göngumiða 1.500 kr.
Kópavogsgleði
ÁRLEG landskeppni Smalahunda-
félags Íslands verður haldin á Eyr-
arlandi í Fljótsdal um næstu helgi,
27.–28. október, og er það í fyrsta
sinn sem hún fer fram á Austur-
landi. Keppt verður í þremur flokk-
um, unghunda-, byrjenda- og al-
mennum flokki. Keppnin hefst með
forkeppni kl. 10 á laugardag en á
sunnudag verða úrslit og hefjast þau
kl. 13.30. Að þeim loknum verður
verðlaunaafhending og kaffi á
Skriðuklaustri.
Mótshaldarar eru nýstofnuð Aust-
urlandsdeild Smalahundafélags Ís-
lands og Smalahundafélag Íslands.
Landskeppni
smalahunda
á Austurlandi
FYRSTA ganga vetrarins á vegum
Sjálfboðaliðasamtaka um náttúru-
vernd verður farin laugardaginn 27.
október kl. 11. Farið verður frá
strætisvagnaskýlinu í Mjódd. Þetta
er létt innanbæjarrölt við flestra
hæfi. Minnt er á aðalfund samtak-
anna sem haldinn verður sunnudag-
inn 28. október kl. 3 í Lækjar-
brekku.
Létt innan-
bæjarrölt
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 23. októ-
ber sl. kl. 19,30 varð árekstur á Bú-
staðavegi til móts við Landspítala-
háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Þar rakst rauð Honda fólksbifreið
á aðra bifreið sem ekið var til aust-
urs. Ökumaður síðarnefndu bifreið-
arinnar mun hafa ekið viðstöðulaust
áfram af vettvangi.
Vitni að atvikinu, svo og ökumað-
ur sjálfur, eru beðin um að hafa
samband við lögregluna í Reykja-
vík.
Lýst eftir vitnum
að árekstri
MÁLSTOFA hagfræðisviðs Seðla-
banka Íslands verður haldinn mánu-
daginn 29. október kl. 15.30 í Sölv-
hóli. Yfirskrift fundarins er: Hvað
eru margir þorskar í sjónum? Frum-
mælandi er Guðmundur Guðmunds-
son. Fundurinn er öllum opinn.
Málstofa Seðla-
banka Íslands
Ráðstefna og málþing í tilefni af ári sjálfboðaliðans
Hótel Loftleiðir, 2. og 3. nóvember 2001
Skráning og nánari upplýsingar: www.redcross.is/radstefna
í síma 570 4000 og tölvupósti; konrad@redcross.is
Ráðstefna
Föstudaginn 2. nóvember kl. 12.45-17.00 – Ráðstefnugjald: 3.000 kr.
Afhending gagna kl. 12.45
Setning: Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands
Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands:
Saga og þróun sjálfboðastarfs
Karl Björnsson, bæjarstjóri Árborgar:
Sjálfboðaliðinn og samfélagið – gagnkvæmur hagur
Kaffihlé
Dr. Katharine Gaskin, Institute for Volunteering Research:
Fjárhagslegur ávinningur samfélagsins af sjálfboðastarfi
Helgi Grímsson, skólastjóri Laugarnesskóla:
Sjálfboðastörf og menntakerfið
Ráðstefnulok: Kristbjörn Óli Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Sjálfboðasamtök kynna starfsemi sína – veitingar – ráðstefnuslit kl. 17.00.
Málþing
Laugardaginn 3. nóvember kl. 9.00-15.15 – Aðgangur ókeypis
Afhending gagna kl. 9.00
Setning: Anna Þrúður Þorkelsdóttir, formaður Rauða kross Íslands
Dr. Katharine Gaskin, Institute for Volunteering Research:
Mikilvægi sjálfboðastarfs
Kaffihlé
Lögreglukórinn
Hafþór Jónsson, aðalsviðsstjóri hjá Almannavörnum ríkisins:
Sjálfboðastarf á neyðar- og hættutímum
Sigríður Ósk Lárusdóttir, hjúkrunardeildarstjóri Blóðbankans:
Öflun sjálfboðaliða
Árni Birgisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar:
Réttarstaða sjálfboðaliða
Guðmundur Björnsson, forseti Skátafélags Reykjavíkur:
Er sjálfboðastarf úrelt fyrirbæri?
Hádegisverður
Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands:
Ungir sjálfboðaliðar
Helga Guðmundsdóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands:
Sjálfboðastörf og kynhlutverk
Ómar H. Kristmundsson, formaður Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands:
Kröfur til sjálfboðaliða
Pallborðsumræður undir stjórn Garðars Guðjónssonar
og Konráðs Kristjánssonar
Sjálfboðastörf
- fjölbreytt afl í þágu samfélagsins
Ráðstefnan er haldin
í samvinnu við
Slysavarnafélagið
Landsbjörg
og Bandalag
íslenskra skáta
með styrk frá
utanríkisráðuneytinu
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
oroblu@sokkar.is
skrefi framar
KYNNUM
í Lyf og heilsu í dag,
föstudag, kl. 14-18.
20% afsláttur af öllum
vörum. Austurveri, sími 581 2101