Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 30
ERLENT
30 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„GÖNGIN fylltust skyndilega af
kolsvörtum reyk og ég heyrði
strax skelfingaróp í fólki,“ sagði
flutningabílstjórinn Marco
Frischknecht, en honum tókst að
forða sér út eftir slysið í St. Gott-
hards-jarðgöngunum í fyrradag.
Um miðjan dag í gær höfðu
slökkviliðsmenn ekki komist nema
hálfan km inn í göngin vegna gíf-
urlegs hitans frá brennandi bílum
en sjálfur slysstaðurinn er í rúm-
lega km fjarlægð frá syðri gang-
amunnanum.
Björgunarmenn voru búnir að
finna lík 11 manna í gær, ýmist á
götunni eða inni í bílum, en talið
er, að fólkið hafi kafnað í eitruðum
reyknum. Þá var enn verið að
grafast fyrir um örlög margra
tuga manna þannig að flest benti
til, að tala látinna ætti eftir að
hækka verulega.
Um 800 slökkviliðsmenn unnu á
vöktum við gangamunnann, um
150 í senn, en eins og fyrr segir
gekk þeim illa að komast inn í
göngin vegna hitans. Talið er, að
hann hafi verið um 1.000 gráður á
celsíus þegar hann var mestur en
önnur flutningabifreiðanna, sem
rákust saman, var hlaðin bíldekkj-
um.
Moritz Leuenberger, forseti
Sviss, sagði í gær, að mörgum
hefði tekist að forða sér út um
neyðarútganga og ljóst er, að ann-
ar neyðarútbúnaður í göngunum
varð mörgum til lífs. Sjálfvirkar
slár féllu niður og stöðvuðu um-
ferðina fljótlega eftir að eldurinn
braust út og sjálft loftræstikerfið
virkaði eins og það átti að gera við
þessar kringumstæður.
Varð að þreifa
sig áfram
„Göngin fylltust skyndilega af
kolsvörtum reyk og ég heyrði
strax skelfingaróp í fólki. Ég
stöðvaði bílinn og reyndi að bakka
en það gekk ekki, það var svo mik-
ið af bílum fyrir aftan mig,“ sagði
flutningabílstjórinn Marco Frisch-
knecht en honum tókst að forða
sér út. „Sem betur fer þekki ég
göngin vel, fer um þau daglega, og
veit um alla neyðarútgangana.
Reykjarkófið var hins vegar svo
mikið, að ég sá næstum ekkert,
ekki einu sinni birtuna við gang-
amunnann, og því varð ég að
þreifa mig áfram þar til ég fann
neyðarútganginn.“
Öðrum bílstjóra bílanna, sem
rákust á, tókst líka að komast út
en talið er víst, að hinn sé látinn.
Hrundi úr
gangaloftinu
Romano Piazzini, lögreglustjóri í
Ticino-kantónu í Sviss, hélt í gær
blaðamannafund þar sem meðal
annars voru sýndar ljósmyndir,
sem slökkviliðsmenn höfðu tekið
inni í göngunum. Sýndu þær
brunna og brennandi bíla í einum
haug og gapandi geil í gangahvelf-
ingunni. Þar hafði hrunið úr á all-
löngu bili vegna hitans. Sagði
Piazzini í gær, að hugsanlega
mundu líða tveir eða þrír dagar
áður en unnt yrði að komast á
sjálfan slysstaðinn.
St. Gotthards-göngin voru opn-
uð fyrir 21 ári og eru 16,5 km löng,
næstlengstu vegagöng í heimi á
eftir Lærdal-göngunum í Noregi.
Þau hafa verið talin nokkuð örugg
en í þeim var þó ekkert vegrið á
milli akreina.
Hitinn frá brennandi bílum í St. Gotthards-göngunum allt að 1.000 gráður
„Ég heyrði
strax skelfing-
aróp í fólki“
'(
# )
%*+%,- . % /001!23%4'5656
!
"
!!
"#$
%&
#$ " % &
%
!
' !
(
'
(
)
*
'+
,! -,
.
/
0+ % ! -
'(
/+ % *&
1/2 ! -
)* +, --
%.
/0 /
12- %.
30
Reuters
Moritz Leuenberger, forseti Sviss (2. frá hægri), við St. Gotthards-göngin ásamt embættismönnum.
Airolo. AFP.
SLYSIÐ í St. Gotthardsjarðgöngunum í Sviss er
mikið áfall fyrir verslun og viðskipti milli Norður-
og Suður-Evrópu enda eru þau ein fjölfarnasta
flutningaleið í álfunni.
Áætlað er, að vöruflutningar um Alpana hafi
verið 160 milljónir tonna 1998 og þar af tveir þriðju
hlutar með flutningabifreiðum. Er því spáð, að
þeir muni aukast um 75% á næstu 15 árum.
Mont Blanc-göngin frá Frakklandi og Sviss til
Norður-Ítalíu hafa verið lokuð frá 1999 eftir mikið
slys, sem kostaði 39 manns lífið, og verði síðan St.
Gotthards-göngunum lokað í allt að þrjá mánuði
eins og nú er talað um, þá er ljóst, að verulegir erf-
iðleikar blasa við í vöruflutningum milli Norður-
og Suður-Evrópu. Bifreiðarnar verða að fara
miklu lengri leið en áður og kostnaður við flutning-
inn mun því aukast. Raunar er að því stefnt að
opna Mont Blanc-göngin aftur í næsta mánuði eða
í desember en margir spá því, að þessi tíðu og
miklu slys muni flýta fyrir endurreisn járnbraut-
arflutninga í álfunni. Á hverjum degi fara meira en
5.000 stórar flutningabifreiðar um St. Gotthards-
göngin milli Þýskalands og Ítalíu. Vegna þess hve
veðrið hefur verið gott að undanförnu geta þær
farið um St. Gotthards-skarðið en að því kemur
eins og alltaf, að það mun lokast vegna snjóa.
Áætlað að fjölga lestargöngum
Slysið í fyrradag mun gera það enn brýnna en
áður fyrir Evrópusambandið, ESB, að auka á fjöl-
breytnina í flutningum. Nú eru fjórir fimmtu hlut-
ar þeirra með bifreiðum enda er það ódýrara,
áreiðanlegra og miklu þægilegra hvað varðar
flutning frá seljanda til kaupanda. Járnbrautar-
kerfið hefur auk þess verið að drabbast niður ár-
um og áratugum saman en innan ESB er nú unnið
að áætlunum um fleiri lestargöng. Verði þau að
veruleika munu þau draga úr álaginu á bifreiða-
göngin og gera þau öruggari fyrir almenna um-
ferð.
Frakkar og Ítalir hafa náð samkomulagi um
Mont-Cenis-göngin, rúmlega 50 km löng lestar-
göng undir Alpana í Suðaustur-Frakklandi, og
Austurríkismenn og Ítalir eru að ráðgera 53 km
löng lestargöng undir Brenner-skarð. Stjórnvöld í
Sviss hafa í hyggju að endurnýja norður-suður-
járnbrautakerfið fyrir um 188 milljarða ísl. kr. og
inni í því eru tvenn ný göng, um 63 km löng, á svip-
uðum stað og St. Gotthards-göngin en í miklu
minni hæð. Ljóst er þó, að fjármögnun þessara
framkvæmda verður erfið og þær hafa þegar mætt
andstöðu umhverfissinna, sem segja, að þær muni
verða til að auka enn á umferðina um Alpana.
Áfall fyrir viðskipti milli
Suður- og Norður-Evrópu
Slysið mun líklega flýta
fyrir endurnýjun járn-
brautarkerfisins
SLYSIÐ í St. Gotthards-
göngunum er aðeins eitt af
mörgum, sem orðið hafa í
jarðgöngum í Ölpunum á
síðustu árum. Í þeim hefur
farist að minnsta kosti nokk-
uð á þriðja hundrað manns.
Í nóvember í fyrra varð
mikið slys í Austurríki en þá
kviknaði í kláf, sem dreginn
var í göngum upp á fjallið
Kitzsteinhorn. 159 manns,
aðallega skíða- og útivist-
arfólk, týndu lífi.
Í maí í fyrra létust 12
manns í árekstri milli fólks-
bifreiða og flutningabíls í
Tauern-göngunum suð-
austur af Salzburg. Eru þau
mikilvæg samgönguæð milli
Þýskalands og Ítalíu.
Í mars 1999 fórust 39
manns er eldur kom upp í
bíl í Mont Blanc-göngunum
og um 30 önnur farartæki
lokuðust inni. Hafa göngin
verið lokuð síðan en til
stendur að opna þau fyrir
áramót.
Meira en
200 hafa
farist
STÓRSLYS
Í ALPAGÖNGUM