Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLAN í Kópavogi hafði í síð- ustu viku afskipti af 11 ára gömlum dreng eftir að ábendingar bárust um að hann hefði meðhöndlað fíkniefni. Málið var kannað og þegar rök- studdur grunur var kominn um að ábendingin væri rétt var lögð fram krafa um húsleit á heimili hans og féllst Héraðsdómur Reykjaness á kröfuna. Á heimili hans fannst lítið magn fíkniefna sem lagt var hald á. Grétar Sæmundsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir að lögreglan telji að hér hafi verið um fikt að ræða. Drengurinn hafi komist í fíkniefni á heimili sínu og hann hafi síðan með- höndlað þau. Drengurinn sé að sjálf- sögðu ósakhæfur og lögreglan telji að aðrir en hann beri ábyrgð á því að hann komst í tæri við fíkniefni. Barnaverndaryfirvöld voru látin vita af málinu og eru með það til með- ferðar. Fyrir nokkru var 15 ára piltur í Kópavogi uppvís að því að flytja inn og selja hass. Lagt var hald á um 260 grömm af hassi sem hann játaði að hafa flutt innvortis inn til landsins frá Kaupmannahöfn. Eitthvað af efninu hafði hann selt áður en lögregla hafði spurnir af málinu en talið er að það hafi verið selt í hópi jafnaldra hans. Hassið hafði hann falið á nokkrum stöðum en ekkert fannst á heimili hans. Pilturinn er sakhæfur en málið er í höndum barnaverndaryfirvalda í Kópavogi. Grétar Sæmundsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Kópavogi, segir að talsverður þrýstingur sé á unglinga að kaupa fíkniefni og slíkt færist sí- fellt neðar í aldursflokka. Þannig sé vitað til þess að nemendum í 9. og 10. bekk hafi verið boðin fíkniefni. Yfir- leitt byrji þetta með því að þeir sem selji landa bjóði einnig upp á hass, e- töflur og fleira. Ljós í myrkrinu Grétar segir að kannanir sem gerð- ar hafi verið á fíkniefnaneyslu í grunnskólum sýni að heldur hafi dregið úr spurn eftir fíkniefnum. „Það er nú samt ljós í myrkrinu,“ segir Grétar. „Ég hef alltaf haldið því fram að á meðan ekki er hægt að draga úr eftirspurninni þá er erfitt að sporna við innflutningi.“ Hann telur kannanirnar mjög marktækar enda fari niðurstöður þeirra saman við álit þeirra sem vinni að þessum málum. „Það hefur verið þannig undanfarið í bekkjarpartíum í 10. bekk að enginn segir neitt þótt einhver mæti með pípu og byrji að reykja hass,“ segir Grétar. Meirhluti unglinga taki engan þátt í þessu en láti þetta afskiptalaust. Fyrir um 10 árum hafi þeir sem vildu reykja hass þurft að vera aðskildir frá hinum í hópnum. Grétar segist hafa frétt af því að þetta sé að breytast á ný. 11 ára drengur með fíkniefni 15 ára piltur uppvís að smygli á yfir 260 g af hassi MIKIL kyrrð ríkti í Þórsmörk í gær og notuðu starfsmenn Skógræktar ríkisins góða veðrið til að dytta að göngustígum á milli Húsadals og Langadals en þeir ráðgera að ljúka áfanganum í dag. Loftur Jónasson skógarvörður segir að kominn hafi verið tími til að fúaverja pallastíginn við Smára- ríki, sem er á milli Húsadals og Langadals, en ekki væri hægt að gera það á sumrin vegna fjölda ferðamanna á svæðinu. Pallastíg- urinn var reistur fyrir um þremur árum og dreifast rúmlega 100 þrep- in nokkuð jafnt á milli pallanna. Loftur og félagar hans voru þarna fyrir tveimur vikum og gerðu þá við skemmdir á mannvirkinu, sem virt- ust vera af mannavöldum, en í gær báru Loftur, Knútur Jóhannesson og Guðni Gíslason á timbrið. Guðni er nær á myndinni og Knútur fjær. Arinbjörn Þorvarðarson var að laga aðra stíga, þegar Morgunblaðs- menn bar að garði og hundurinn Pan var skammt undan, en ekki varð vart við aðra á þessum slóðum. Dyttað að göngu- stígum í Þórsmörk Morgunblaðið/Golli HÆSTIRÉTTUR vísaði í gær frá héraðsdómi máli sem forsetar Al- þýðusambands Íslands höfðuðu gegn íslenska ríkinu vegna laga sem sett voru á verkfall sjómanna síðasta vor. Taldi Hæstiréttur m.a. að kröfu- gerð ASÍ, eins og hún væri orðuð, beindist ekki að ákveðnu sakarefni, heldur fæli það eitt í sér, andstætt ákvæði laga um meðferð einkamála, að leitað væri lögfræðilegrar álits- gerðar dómstóla. Sjö dómarar skip- uðu Hæstarétt í málinu en héraðs- dómur Reykjavíkur hafði sýknað ríkið af kröfum ASÍ 18. júlí sl. ASÍ höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á að lögin sem bundu enda á verkfall sjómanna tækju ekki til tilgreindra stéttar- félaga sem ekki voru í verkfalli. Einnig krafðist ASÍ viðurkenningar á að ákvæði laganna fælu í sér ólög- mæta skerðingu á samningsfrelsi og að lögin yrðu dæmd óskuldbindandi. Máli ASÍ gegn rík- inu vísað frá dómi  Kröfugerð/10 ATKVÆÐAGREIÐSLA stendur nú yfir í Fé- lagi flugumferðarstjóra um verkfallsboðun. At- kvæðagreiðslunni lýkur þriðjudaginn 30. októ- ber og fer í kjölfarið fram talning atkvæða. Samningar flugumferðarstjóra eru lausir 16. nóvember en undir þá var skrifað í febrúar sl. eftir sextán klukkustunda langt verkfall. Um 100 manns eru í Félagi flugumferðarstjóra. Loftur Jóhannsson, formaður Félags flug- umferðarstjóra, staðfesti í samtali við Morg- unblaðið í gær að fram hefði komið tillaga á fundi félagsins sl. miðvikudagskvöld um að efnt yrði til atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Var hún samþykkt. Loftur vildi ekki tjá sig um efni tillögunnar, sem nú eru greidd atkvæði um, en verkfallið í febrúar átti að standa í tvo sólarhringa, auk þess sem boðað hafði verið til annars verkfalls, frá 28. febrúar til 3. mars. Má gera ráð fyrir að til verulegrar röskunar hefði komið í flug- samgöngum ef verkfallið hefði varað lengur en raun bar vitni. „Í sömu sporum og í febrúar“ Verkfallinu í febrúar lauk þegar skrifað var undir skammtímasamning. Fylgdi honum sér- stakt samkomulag um að á samningstímanum yrðu kannaðir til hlítar möguleikar á breyt- ingum á samningsréttarlegri stöðu og kjara- tilhögun flugumferðarstjóra. Var markmiðið að byggja nýjan kjarasamning á tillögum svokall- aðrar réttarstöðunefndar frá júní 1997, líkt og flugumferðarstjórar hafa gert kröfu um. Loftur sagði í samtali við Morgunblaðið að þessar viðræður hefðu farið af stað í vor en síð- an runnið út í sandinn. „Þannig að í raun erum við núna komnir aftur í sömu spor og við vorum í í febrúar,“ sagði hann. Fram kom hjá Lofti að fundur var haldinn með samninganefnd ríkisins síðastliðinn mið- vikudag og að annar hefur verið boðaður á þriðjudag. Lítið er þó að gerast í viðræðunum. Kjarasamningar flugumferðarstjóra og ríkisins verða lausir 16. nóvember Atkvæði greidd um verkfallsboðun KARLMAÐUR á fertugsaldri, sem grunaður er um ölvun við akstur, ók á ofsahraða um íbúðargötur á Seyð- isfirði síðdegis í gær eftir að hann virti ekki stöðvunarmerki lögregl- unnar. Hófst þá eftirför sem eftir akstur um nokkrar götur endaði í miðbæ Seyðisfjarðar þegar flótta- bíllinn stöðvaðist uppi á gangstétt. Ökumaðurinn var handtekinn og eft- ir frumskýrslutöku og blóðprufu var honum sleppt. Ók á ofsahraða um götur Seyðisfjarðar RANNSÓKN sýklafræðideildar Landspítala – háskólasjúkra- húss leiddi í ljós að enginn milt- isbrandur var í dufti sem fannst í bréfi sem barst inn á heimili Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra um miðjan dag á þriðju- dag. Ólafur Steingrímsson, yfir- læknir á sýklafræðideild, segir ekki ljóst um hvernig efni var að ræða en það er álitið skaðlaust. Embætti ríkislögreglustjóra fer með rannsókn málsins. Skaðlaust duft í bréfinu til for- sætisráðherra Silja á leið til náms og æfinga í Bandaríkjunum/C1 Birgir Leifur Hafþórsson er reynslunni ríkari/C4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag 8 SÍÐUR Þegar ég verð stór Íslam er friður – múslímar á Íslandi Feigðarboð og nafnavitjun  Hryðjuverk án ofbeldis Auðlesið efni DANINN Peter Heine Nielsen situr einn í efsta sæti minningarskák- mótsins með fullt hús vinninga eftir þrjár umferðir. Mótið er haldið til minningar um Jóhann Þóri Jónsson en þátttakendur eru fjörutíu talsins, þar af tólf stórmeistarar. Nielsen vann í gær Svíann Jonny Hector en meðal annarra úrslita má nefna að Hannes Hlífar Stefánsson og Ivan Sokolov gerðu jafntefli, sömuleiðis Jaan Ehlvest og Henrik Danielsen og Jan Timman og Jón Viktor Gunnarsson. Þá vann Murray Chandler Ingvar Ásmundsson, Lars Schandorff vann Stefán Kristjáns- son, Tomi Nyback vann Halldór Halldórsson, Helgi Ólafsson vann Áskel Örn Kárason, Friðrik Ólafs- son vann Lenku Ptacnikova og Þröstur Þórhallsson vann Pál A. Þórarinsson. Nielsen hefur þrjá vinninga, sem áður segir, en í humátt á eftir honum koma Sokolov, Ny- back, Hannes Hlífar og Danielsen. Jafnt hjá Hannesi Hlífari og Sokolov
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.