Morgunblaðið - 26.10.2001, Page 14
Morgunblaðið/Ásdís
ÞESSI litli fugl söng undurblítt fyr-
ir forsætisráðherra í góða veðrinu.
Ekki vitum við hvaða laglínur hann
fór með en hugsanlega hefur það
verið „Vorið er komið“, svo mikil
blíða hefur verið undanfarið.
Sungið fyrir ráðherra
FRÉTTIR
14 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HRYÐJUVERKAÁRÁSIRNAR í
Bandaríkjunum geta skapað ýmis
tækifæri í ferðamennsku hingað til
lands ef rétt er að málum staðið, að
sögn Hauks Birgissonar, forstöðu-
manns landkynningarskrifstofu
Ferðamálaráðs í Frankfurt.
Haukur sagði að það væri alveg
ljóst að minnkun yrði í ferðalögum í
vetur vegna hryðjuverkanna og við
því væri ekkert að gera. Hins vegar
væri sumarið langmikilvægasti
ferðatíminn fyrir okkur og því
skipti máli að nota tímann í vetur
vel til kynningar- og útbreiðslu-
starfs.
„Allar landkynningarskrifstofur
hér á stærsta ferðamarkaðnum ætla
að spýta í lófana og nýta sér þau
tækifæri sem eru fyrir hendi í ljósi
þessara aðstæðna. Ég held að það
sé alveg ljóst að það er lykilatriði að
vinna náið með stærsta ferðaþjón-
ustuaðilanum, Flugleiðum, og
tryggja leiðakerfi þeirra, en það er
einnig ljóst að ferðaþjónustan og
ríkið þurfa að bregðast skjótt við og
leggja fram aukið fjármagn,“ sagði
Haukur.
Þjóðverjar fjölmennasti hóp-
urinn sem kemur til Íslands
Hann sagði að það yrði alvarlegt
áfall fyrir okkur ef ferðamönnum
myndi fækka næsta sumar og land-
kynningarskrifstofur almennt mið-
uðu starf sitt við að koma í veg fyrir
það að ferðamönnum fækkaði yfir
þennan háannatíma.
Haukur benti á að Þjóðverjar
væru langfjölmennasti hópurinn
sem kæmi til Íslands yfir sumar-
mánuðina. Þýski markaðurinn væri
því mikilvægasti ferðamarkaðurinn.
Þar væru tækifæri fyrir hendi í vet-
ur til að vinna gegn þeim slæmu
áhrifum sem hryðjuverkin hefðu
haft á ferðamennsku, en til þess
þyrfti að nota tímann vel. Fjöl-
miðlar í Þýskalandi leika lykilhlut-
verk í þeim efnum að hans mati.
Það hefði komið skýrt fram á ráð-
stefnu sem hann hefði setið nýlega
með aðilum í landkynningarmálum
og fjölmiðlun í Þýskalandi.
„Kynningarstarf okkar helst í
hendur við framboð í flugi og annað
slíkt. Flugleiðir hafa ákveðið að
fljúga hingað til Þýskalands fjórum
sinnum í viku frá 1. febrúar og við
munum sinna aðallega þessum
stóru mörkuðum hér í Þýskalandi,
enda tel ég það mikilvægast fyrir
ferðaþjónustuna að eyða kröftunum
þar,“ sagði Haukur ennfremur.
Hann bætti því við að hryðju-
verkin virtust hafa haft minni áhrif
á löngun Þjóðverja til ferðalaga en
annarra samkvæmt könnunum og
því væru allir möguleikar fyrir
hendi á að koma í veg fyrir að
ferðamönnum þaðan fækkaði næsta
sumar. Í nýrri könnun yrði spurt
um ferðahug Þjóðverja á næstu
misserum, þar sem sérstaklega yrði
spurt um ferðalög til Norður-
landanna og gaman yrði að fylgjast
með hvað kæmi út úr því.
Haukur sagði að fyrirspurnum til
skrifstofunnar í Frankfurt hefði
fækkað fyrst í stað í kjölfar hryðju-
verkanna og farið niður í 60% af því
sem var. Núna í október væru þær
komnar í það sama og var í fyrra og
meira að segja aðeins rúmlega það
og það teldi hann vera vísbendingu
um að ástandið væri að komast í
samt lag. Hjá mörgum öðrum land-
kynningarskrifstofum væri um hrun
að þessu leyti að ræða.
Forstöðumaður landkynningarskrifstofu
Ferðamálaráðs í Frankfurt
Ýmis tækifæri í ferða-
málum fyrir hendi
VIÐ húsleit sem lögreglan gerði í á
þriðjudag hjá konu sem nú situr í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um inn-
brot og innbrotstilraunir í apótek í
Reykjavík, fundust gullmunir sem
stolið var þegar brotist var inn í gull-
smíðaverkstæði í Foldahverfi í júlí
fyrr á þessu ári. Alls var gullmunum
fyrir á fimmtu milljón króna stolið í
innbrotinu.
Samstarf lögreglumanna í Breið-
holti og Grafarvogi leiddi til þess að
á þriðjudag fannst þýfi úr innbroti í
BT tölvur í Grafarvogi. Rimlar höfðu
verið spenntir í sundur og hafði þjóf-
urinn teygt sig í fartölvu og stafræna
myndavél. Þýfið fannst í framhaldi af
handtöku tveggja manna. Annar
þeirra er tæplega tvítugur en hinn er
fæddur 1977.
Í fréttatilkynningu frá lögreglunni
í Reykjavík kemur fram að verðmæti
þýfisins var tæplega 1,4 milljónir
króna.
Gullmunir fundust
við húsleit lögreglu
Verkfall á
Grund og Ási
VERKFALL Sjúkraliðafélags
Íslands á sjálfseignarstofnun-
unum Grund og Ási hófst á mið-
nætti í nótt og stendur næstu
þrjá daga. Þegar því lýkur tek-
ur við þriggja daga verkfall
sjúkraliða hjá ríkinu og stendur
það frá mánudegi til miðviku-
dags í næstu viku.
Þetta er þriðja þriggja daga
verkfall sjúkraliða í október-
mánuði.
Síðasti samningafundur
deiluaðila var á mánudaginn
var og er annar fundur boðaður
í dag. Er allt við það sama í
kjaradeilunni.