Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 24
LANDIÐ
24 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
V
e
rð
s
e
m
s
læ
r
ö
ll
m
e
t
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
40%
afslæ
tti
OFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR
Falleg, fullkomin og vönduð ítölsk
raftæki á fínu verði.
2ja ára ábyrgð og fullkomin
varahluta- og viðgerðarþjónusta.
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
VERÐ SEM SLÆR ÖLL MET
Við efnum nú til sérstaks kynningarátaks á hinum
fallegu og fullkomnu ELBA raftækjum og bjóðum
ALLT AÐ 50% TÍMABUNDINN AFSLÁTT
VERÐDÆMI:
Innbyggingarofnar frá kr. 29.750,- (31% afsláttur)
Helluborð m/4 hellum - 11.300,- (50% afsláttur)
4ra hellu keramikborð - 35.870,- (27% afsláttur)
Helluborð 2raf + 2gas - 19.990,- (37% afsláttur)
Gasborð 4 blúss - 25.930,- (27% afsláttur)
PAKKATILBOÐ: ofn + helluborð + vifta – frá kr. 47.830,-
Veggvifta, hvít eða stál frá kr. 5.960,- (28% afsláttur)
Veggháfar, stál - 23.960,- (23% afsláttur)
Einnig keramik grill, barbecue grill og djúpsteikingarpottar,
niðurfellt í borð, með 50% afslætti.
TAKMARKAÐAR BIRGÐIR – FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR
mánudaga–föstudaga kl. 9-18
laugardag 29/9 10–16 og sunnudag 30/9 13–16OPIÐ
FYRIR skömmu voru afhent verð-
laun í samkeppni um besta skóla-
vefinn og besta bekkjarvefinn á
Skólatorgi.is, athöfnin fór fram í
Íþróttahöllinni á Húsavík.
Niðurstaða dómnefndar varð að
í flokki skólavefja hlaut 1. verð-
laun Borgarhólsskóli á Húsavík, í
öðru sæti varð Öldutúnsskóli í
Hafnarfirði og í þriðja sæti
Grunnskólinn á Ísafirði. Í þessum
flokki kepptu tólf skólar víðs-
vegar að af landinu.
Í umsögn um vef Borgarhóls-
skóla segir á Skólatorginu:
„Borgarhólsskóli blandar saman
með skemmtilegum hætti mynd-
um og texta. Auk þess er á vefn-
um þeirra að finna mjög miklar
og gagnlegar upplýsingar um
skólastarfið, bæði fyrir foreldra
og kennara.“
Í flokki bekkjarvefja bar Borg-
arhólsskóli einnig sigur úr býtum,
var það vefur 3. bekks í stofu 26
sem sigraði. Fyrsti bekkur Barna-
skólans á Stokkseyri og Eyr-
arbakka hreppti annað sætið og
Barnaskólinn á Ísafirði það
þriðja. Í þessum flokki kepptu 22
bekkir úr skólum af öllu landinu.
Á Skólatorginu segir um sig-
urvefinn: „Á bekkjarvef 3.26
Borgarhólsskóla er að finna frétt-
ir og tilkynningar, áætlanir og
upplýsingar um nemendur, auk
þess sem notkun mynda og texta
þykir til fyrirmyndar.“ Verðlaun-
in í samkeppninni voru gefin af
Aco-Tæknivali hf. og Skýrr hf. og
voru þau ekki af verri endanum.
Fyrir besta skólavefinn var það
Compaq-ferðatölva af nýjustu
gerð og fyrir besta bekkjarvefinn
Epson digital-myndavél.
Tækin komu ekki vegna þoku
Til stóð að Jónína Bjartmarz,
formaður Heimilis og skóla og
formaður dómnefndar, kæmi til
Húsavíkur og afhenti verðlaunin.
Af því varð þó ekki þar sem þoka
kom í veg fyrir flug til Akureyrar
þennan dag. Kristbjörg Hjalta-
dóttir, framkvæmdastjóri Heimilis
og skóla, hljóp í skarðið og keyrði
frá Egilsstöðum til að geta afhent
þau. Hún gat þó ekki afhent tæk-
in sjálf þar sem þau áttu einnig
að koma með fluginu til Akureyr-
ar. Kristbjörg afhenti því þeim
Dagnýju Annasdóttur skólastjóra
og Óskari Birgissyni tölvukenn-
ara skólans skjal til staðfestingar
því að verðlaunin séu skólans.
Það er Óskar sem á heiðurinn
af báðum þessum vefjum sem
unnu til verðlauna en hann hann-
aði þá og er umsjónarmaður
þeirra.
Tólf skólar af öllu landinu kepptu um hver ætti besta skólavefinn
Morgunblaðið/Hafþór
Óskar Birgisson tölvukennari ásamt börnunum í 3.26-bekk sem áttu besta bekkjarvefinn. Óskar Birgisson og Dagný Annasdóttir taka við verðlaun-
unum úr hendi Kristbjargar Hjaltadóttur. Krakkarnir eru að vonum stoltir, enda voru 22 bekkir af öllu landinu sem kepptu um þessi verðlaun.
Borgarhólsskóli sigraði í báðum flokkum
Húsavík
NÚ stendur yfir leit að heitu vatni á
Gálmaströnd í landi Þorpa í Kirkju-
bólshreppi, en um miðhluta Stranda-
sýslu hefur í nokkur ár verið kannað
hvort ekki fyndist heitt vatn í jörðu.
Helst er það svæðið umhverfis þétt-
býliskjarnann á Hólmavík sem kann-
að hefur verið. Sá staður sem nú er
verið að bora er sá eini á svæðinu þar
sem ákveðnar vísbendingar hafa
verið um að hiti væri í jörðu, að sögn
Matthíasar Lýðssonar oddvita
Kirkjubólshrepps.
„Það hefur verið borað niður á 500
m dýpi og hitinn við holubotn var 80
gráður og var hækkun hitastigs jöfn
niður og ef stigull hækkar í sama
hlutfalli og hann hefur gert ætti að
vera um 100 gráða heitt vatn við 600
metra dýpi. Þegar þeim áfanga er
náð verður holan mæld og ákvörðun
tekin í framhaldi af því hvað gera
skuli,“ sagði Matthías.
Það er jarðborinn Trölli frá Rækt-
unarsambandi Flóa og Skeiða sem
notaður er til verksins.
Borað eftir
heitu vatni
Strandir
Morgunblaðið/Arnheiður
Jarðborinn Trölli við jarðhita-
leit á Gálmaströnd í Kirkjubóls-
hreppi. Sveinbjörn Jóhannsson
og Johnný Símonarson.
MILT veður hefur einkennt haustið hingað til og einn
bjartan föstudag fóru nemendur í grunnskólunum á Sval-
barði og Þórshöfn saman í útreiðartúr. Það voru nem-
endur í 7. og 8. bekk sem fjölmenntu með skólastjórum
sínum, þeim Fanneyju og Esther, sem báðar eru vanar
hestakonur. Lagt var upp frá Gunnarsstöðum, þar sem
feðgarnir Ragnar og Sigfús ásamt fleiri aðstoðarmönnum
lögðu á hestana en bændur í sveitinni höfðu lánað rólega
og trausta hesta í þetta ferðalag.
Krakkarnir stóðu sig vel þótt margir þeirra væru alls
óvanir hestum og þótti ferðin góð viðbót við skólastarfið
en um leið eflast tengsl og kynni nemendanna í skólunum
tveimur, á Þórshöfn og Svalbarði.
Ferðinni lauk rétt tímanlega áður en þokan lagðist yfir
og endaði hjá Laufeyju húsfreyju á Gunnarsstöðum sem
beið ferðalanganna með súkkulaðiköku og rjóma.
Morgunblaðið/Líney
Hópur tilbúinn í útreiðatúr – krakkar úr Svalbarðs-
og Þórshafnarskóla njóta sín í haustblíðunni.
Hestaferð
í haustblíðu
Þórshöfn
MIÐVIKUDAGINN 17. október sl.
voru haldnir stórtónleikar í Íþrótta-
miðstöðinni í Þorlákshöfn. Það var
Stórsveit Reykjavíkur ásamt gesta-
söngvara sínum, Páli Óskari Hjálm-
týssyni, sem flutti fjölbreytta tónlist
frá ýmsum tímum.
Tónleikarnir voru liður í myndar-
legum hátíðahöldum í tilefni af 50 ára
afmæli þéttbýlis í Þorlákshöfn á
þessu ári.
Það er skemmst frá því að segja að
tónleikar þessir voru frábær skemmt-
un. Stórsveitin hóf tónleikana með
,,big-band“-tónlist af bestu gerð og
var flutningurinn frábær; hljóðfæra-
leikurinn stórkostlegur og flytjendur
líflegir. Þá settu kynningar Sigurðar
Flosasonar skemmtilegan svip á tón-
leikana og einleikarar áttu frábæra
takta. Páll Óskar vann líka hug og
hjörtu tónleikagesta með glæsilegum
söng og líflegri framkomu. Hann
flutti með stórsveitinni íslensk og er-
lend lög frá ýmsum tímum. Hvort
sem hann tókst á við Simon og
Garfunkel, ameríska söngleikjatónlist
eða íslenskar ballöður var allt jafn vel
flutt. Lokasyrpa tónleikanna var
samsuða ýmissa vel þekktra laga, út-
sett af Veigari Margeirssyni. Var hún
einstaklega skemmtileg og féll svo
sannarlega í kramið hjá áheyrendum
sem fylltu íþróttamiðstöðina þetta
kvöld. Áheyrendur þökkuðu fyrir sig
með langvinnu lófataki og hlutu að
launum frábæran flutning á ,,New
York, New York“.
Sannarlega vel heppnað atriði í af-
mælisveislu Þorlákhafnar.
Stórsveit Reykjavíkur og Páll Óskar
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Páll Óskar Hjálmtýsson og Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum sem boð-
ið var til í tilefni 50 ára afmælis Þorlákshafnar.
Afmælistónleikar
í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn