Morgunblaðið - 26.10.2001, Page 32
LISTIR
32 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DANSKIR kvikmyndagerðarmenn,
með Lars von Trier í fararbroddi,
hafa verið að þróa dogme-myndina,
með eftirtektarverðum árangri.
Ítalska fyrir byrjendur er sú nýj-
asta, segir sögu sex, ósjálfstæðra
einstaklinga, er leiðir þeirra liggja
saman á myrkum og grámygluleg-
um vetri í Kóngsins Kaupinhafn.
Andreas (Anders W. Bertelsen), er
fljótlega settur í að veita sóknar-
börnum sínum tilsögn í ítölsku, eftir
að hann er settur aðstoðarklerkur í
niðurníddu úthverfi í borginni.
Hann verður þungamiðja í ástaræv-
intýrum þessara guðsvoluðu smæl-
ingja, þar sem hver og ein hinna
einmana sálna finnur að lokum
sæmilegt hlutskipti undir erfiðum
kringumstæðum kuldalegs raun-
veruleikans.
Ítalska fyrir byrjendur tekur
nýja stefnu í gerð dogme-mynda,
þar sem handritið, frekar en kvik-
myndastíllinn, hefur frumkvæðið.
Spuni er einnig ofarlega á blaði,
engin lýsing, leikmunir né búning-
ar, hannaðir fyrir myndina.
Leikstjórnin er í höndum Lone
Scherfig, sem fædd er 1959 í Dan-
mörku, útskrifaðist frá kvikmynda-
skóla ríkisins ’84 og hóf þegar að
skrifa handrit, leikstýra stuttmynd-
um og vinna við útvarp og sjónvarp.
Frumraun á kvikmyndasviðinu var
The Birthday Trip (keppti um
Panorama verðlaunin á Berlínarhá-
tíðinni ’91, og verðlaun til handa ný-
liðum á leikstjórnarbraut, hjá Mus-
eum of Modern Art, í New York).
Myndin vann til verðlauna í Rúðu-
borg það árið og setti Scherfig á
stall með athyglisverðari kvik-
myndagerðarmönnum Dana af
hennar kynslóð.
Næsta verk Scherfig var barna-
og fjölskyldumyndin On Our Own,
sem hreppti verðlaun í Amsterdam
og Montreal. Ítölsku fyrir byrjend-
ur, þriðja og nýjasta framlagi henn-
ar á kvikmyndasviðinu, var einkar
vel tekið af gagnrýnendum og al-
menningi í heimalandinu.
Leikarar: Anders W. Berthelsen (Mif-
une); Anette Stövelbæk, Ann Eleonora
Jörgensen, Lars Kålund, Peter Gantz-
eler, Sara Indrio Jensen. Leikstjórn og
handrit: Lone Scherfig.
Úr kvikmyndinni Ítalska fyrir byrjendur.
Einmana sálir sameinast
Góðar stundir og Regnboginn frumsýnir
Ítölsku fyrir byrjendur – Italiensk for
begyndere. Með Anders W. Berthelsen,
Annette Stövelbæk, Ann Eleonoru Jörg-
ensen, Lars Kålund.
ÞAÐ er kunnara en frá
þurfi að segja að oft
myndast blikur á lofti er
að því kemur að einhver
æskuvinanna hyggur á
hjúskap. Þar með er skarð
höggvið í fastmótaðan
vinahóp og jafnvel gripið
til örþrifaráða er slík ógn
steðjar að. Gamanmyndin
Evil Woman segir einmitt frá slíkri
krísu, sem reynist jafnvel mun
háskalegri en gengur og gerist.
Darren (Jason Biggs), Wayne
(Steve Zahn) og J.D. (Jack Black)
hafa verið bestu vinir síðan á barna-
skólaárunum. Nú er farið að saxast
á táningsárin, þeir spila ennþá í
hljómsveit og standa saman sem
einn maður. Þá birtist váin og vin-
aspillirinn í líki hinnar glæstu en
kaldrifjuðu Judith (Amanda Peet),
sálfræðings að mennt, sem vill öllu
ráða, með illu ef ekki góðu, og læsir
klónum í ljúfmennið Darren. Sér til
þess að áhyggjulausir dagar vináttu
og hljómleikahalda eru taldir.
Nú eru góð ráð dýr, þeirra leita
félagarnir hjá harðjaxlinum, ruðn-
ingsþjálfaranum (R. Lee Ermey),
sem ráðleggur þeim að ræna skess-
unni og endurheimta Darren með
bellibrögðum. Judith er ekki öll þar
sem hún er séð, kann m.a. ýmislegt
fyrir sér í austurlenskum bardaga-
íþróttum, og brýtur á bak aftur allar
áætlanir vinanna.
Þegar neyðin er stærst kemur
óvænt hjálp til skjalanna í líki
söngvarans Neils Diamonds (sem
hefur ekki sést á tjaldinu í tvo ára-
tugi). Björgunaraðgerðirnar taka
ýmsar óvæntar stefnur. Vinirnir
þrír eru ekkert alltof skarpir, en
Zahn og Black hafa einmitt getið sér
gott orð fyrir nokkur afrek í aula-
hlutverkum. Biggs er einnig vel-
þekktur leikari af yngri kynslóðinni,
hefur haldið uppi fjörinu í unglinga-
myndum einsog Amercan Pie I og
II.
Söngvarinn Neil Diamond er enn
einn eftirsóttasti skemmtikraftur á
næturklúbba- og hljómleikasviðinu.
Hann hefur ekki látið sjá sig á tjald-
inu síðan hann lék á móti Sir Laur-
ence Olivier í The Jazz Singer, fyrir
margt löngu.
Leikarar: Jason Biggs (American Pie I
og II, Jay and Silent Bob Strike Back);
Steve Zahn (Out of Sight, Joy Ride, Dr.
Dolittle 2); Jack Black (High Fidelity,
Bob Roberts); Amanda Peet (Isn’t She
Great?, The Whole Nine Yards); R. Lee
Ermey (Full Metal Jacket, Mississippi
Burning, Seven). Leikstjóri: Dennis
Dugan (Big Daddy, Happy Gilmore,
Beverly Hills Ninja). Handrit: Hank
Nelken, Greg DePaul.
Flagð undir
fögru skinni
Smárabíó og Stjörnubíó
frumsýna Evil Woman, með
Jason Biggs, Steve Zahn,
Jack Black og Amöndu Peet.
Jack Black, Steve Zahn og Jason Biggs
holdvotir í Evil Woman.
GRÍSKA smáeyjan Cephalloria, var
flestum gleymd og grafin í bláma
Jónahafsins, öðrum en íbúunum,
sem elskuðu og dáðu þetta friðsæla
land feðra sinna. Náttúran hafði tek-
ið eylandið óblíðum tökum, hrist það
og skekið í hamrömmum jarðskjálft-
um. Það hafði tekið hamförunum
með reisn og stillingu og gætt sögu
sinnar, hefða og leyndardóma, um
aldir.
Uns upp rann árið 1941. Þá var
eyjan ekki lengur friðsæll, hálf-
gleymdur staður í eilífðar útsænum,
heldur vettvangur hernaðarátaka
síðari heimsstyrjaldarinnar. Í einu
vetfangi drógust íbúarnir, nauðugir
viljugir, útí hrunadansinn, er ítalskir
fasistar hernámu eyjarnar grísku
undir merkjum möndulveldanna.
Friðurinn var úti, miskunnarleysi
vopnavaldsins setti mark sitt á líf og
tilveru eyjarskeggja.
Captain Corelli’s Mandolin, er
óvenjuleg, forboðin ástarsaga Cor-
ellis (Nicolas Cage), kapteins í inn-
rásarliðinu, og Pelagliu (Penelope
Cruz), ungrar, fagurrar, metnaðar-
fullrar og viljasterkar, grískrar
sveitastúlku. Er Corelli
og menn hans leggja und-
ir sig óspillta eyjuna,
finnst þeim þeir vera
komnir í vel þegið frí,
fjarri heimsins raunum.
Til að byrja með er her-
námsliðið afskipt af hálfu
eyjarskeggja, en smám
saman vinna hinir kátu og
lífsglöðu gestir hugi
þeirra – og hjörtu sumra.
Læknir íbúa eyjarinn-
ar (John Hurt), á dótt-
urina og kvennablómann
Pelagliu, sem hefur her-
tekið hjarta fiskimanns-
ins Mandras (Christian
Bale). Því ævintýri lýkur
um sinn er Mandras heldur til Al-
baníu, að berja á fasistunum, sem
hafa hertekið nágrannalandið.
Skömmu síðar koma Ítalir og Þjóð-
verjar til Cephalloriu, læknirinn
verður að hýsa einn af yfirmönnum
setuliðsins, sá er enginn annar en
kapteinn Corelli. Hann er tónlistar-
maður og spilar og syngur sig inní
hjörtu eyjarskeggja, ásamt félögum
sínum. Þau Pelaglia verða ástfangin,
Mandras kemur til baka og, allt í
einu hætta stríðsátökin að líta út eins
og langþráðir frídagar, verða þess í
stað grimm og ljót. Örlög persón-
anna eru í uppnámi einsog lönd og
þjóðir.
Leikarar: Nicolas Cage (Wild at Heart,
Leaving Las Vegas, Bringing Out the
Dead); Penelope Cruz (Belle Epoque,
Allt um móður mína); Christopher
Guest (Empire of the Sun, American
Psycho), John Hurt (Midnight Express,
The Elephant Man); Irene Papas (Zorba
the Greek). Leikstjóri: John Madden
(Shakespeare in Love, Mrs Brown).
Handrit: Shawn Slovo (A World Apart).
Mandólínleikur
í miðju stríði
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna
Captain Corelli’s Mandolin, með Nicol-
as Cage, Penelope Cruz og John Hurt.
Penelope Cruz og Nicolas Cage í Captain
Corelli’s Mandolin.
WALT Disney kvikmynda-
fyrirtækið hefur löngum
haft dálæti á ævintýrum.
Það nýjasta er Princess
Diaries, tilbrigði við Þyrni-
rós, í nútímalegri útgáfu.
Leikstjóri er Garry Mars-
hall, maðurinn sem stóð á
bak við Pretty Woman, eina
langvinsælustu mynd fyrir-
tækisins frá upphafi – og
ósvikið Þyrnirósu-ævintýri.
Að þessu sinni er aðal-
persónan Mia Thermopolis
(Anne Hathaway), klaufsk
og stirðbusaleg táningsstelpa í 10.
bekk grunnskóla í San Fransisco.
Einn góðan veðurdag er henni til-
kynnt að í raun renni blátt blóð í
æðum hennar, hún sé erfingi kon-
ungsríkisins Genoviu, einhversstað-
ar í Evrópu. Mia lætur sér fátt um
finnast í fyrstu, setur markið á að
ná einkunnum uppúr bekknum, ekki
að stjórna ríki sínu. „Get ég ekki
einfaldlega sagt öllum að ég hafi
ekki áhuga?“ spyr hún Clarisse
drottningu og ömmu sína (Julie
Andrews), sem komin er um langan
veg til að tilkynna stúlkunni upp-
runa sinn.
Amma gamla er hreint ekki á því
að gefa barnabarninu vonarglætu
um undankomuleið, heldur tekur að
þjálfa hana á alla lund og fær sér til
aðstoðar danskennara, siðameist-
ara, snyrtipinna, o.s.frv., uns, hókus,
pókus, ljóti andarunginn er orðinn
flott gella, tilbúin að taka við Bessa-
stöðum, ef útí þá sálma er farið.
„Mér líkaði afar vel við söguna
því hún höfðar til allrar fjölskyld-
unnar,“ segir hinn gamalreyndi
Garry Marshall. „Hún sýnir einnig
unga stúlku breytast í konu sem
gerir sér grein fyrir að hún getur
haft áhrif á heimsmálin.“ Ekki
ónýtt, það.
Meðal framleiðandanna er söng-
konan og poppstjarnan Whitney
Houston, meðframleiðendur eru all-
ir kvenkyns og myndin því að tals-
verðu leyti kvennamynd. Fjallar um
umhverfi, uppákomur og viðhorf
sem að þeim snýr. Meðal leikaranna
er söngkonan Mandy Moore, sem
háir frumraun sína í kvikmynda-
heiminum. Þar er einnig Hector
karlinn Elizondo, sem lesendur
þekkja sjálfsagt best úr sjónvarps-
þáttunum Chicago Hope. Elizondo
er fastaleikari hjá Marshall, hefur
leikið, gott ef ekki, í öllum hans
myndum.
Leikarar: Julie Andrews (Mary Poppins,
The Sound of Music, S.O.B., Victor
Victoria); Anne Hathaway (sjónvarps-
þættirnir Get Real); Hector Elizondo
(The Flamingo Kid, Pretty Woman,
Runaway Bride).
Prinsessa
í álögum
Sambíóin frumsýna Princess
Diaries, með Julie Andrews,
Anne Hathaway, Hector Eliz-
ondo, Heather Matarazzo, o.fl.
Julia Andrews og Anne Hathaway veifa í
Dagbók prinsessunnar.
FRÁ bókaútgáfunni Orms-
tungu eru væntanlegar
þrjár bækur.
Skáldsaga Samuels Beck-
ett Molloy í þýðingu
Trausta Steinssonar. Bókin
skiptist í tvo hluta. Í fyrri
hlutanum segir Molloy sögu
sína en í seinni hlutanum
kemur Moran til sögunnar,
sendur út af örkinni til að
leita að Molloy. Sigurður A.
Magnússon ritar eftirmála.
Úlfur Hjörvar þýðir bók
danska listfræðingsins og
rithöfundarins Poul Vad,
Norðan Vatnajökuls. Poul
kom til Íslands kringum
1975 og var það nokkurs
konar pílagrímsferð á slóðir
Hrafnkels sögu Freysgoða.
Bókin segir frá þessari
ferð. Árið 1999 hlaut þýsk
útgáfa bókarinnar verðlaun
í Austurríki sem besta
ferðabók ársins.
Bók um íslenska hestinn
– liti og erfðir
Eftir dr. Stefán Að-
alsteinsson kemur út bókin
Íslenski hesturinn – litir og
erfðir. Hún er prýdd ljós-
myndum eftir Friðþjóf Þor-
kelsson. Í bókinni setur
hann fram umfangsmikinn
fróðleik um hestaliti og
erfðir á þeim.
Þrjár bækur frá Ormstungu
Stefán
Aðalsteinsson
Samuel
Beckett