Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 63
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal,
Catherine Zeta-Jones og John Cusack fara
hér á kostum í stórskemmtilegri
rómantískri gamanmynd.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frá framleiðendum Big Daddy kemur
drepfyndinn gamanmynd um
klikkaðarkærustur og vitlausas vini!
Hvað gera bestu vinir Silvermans þegar
kærastan er að eyðleggja ævinlangan
vinskap... þeir ræna henni að sjálfsögðu!!!
Þú deyrð úr hlátri!
Frumsýning
Varúð!!
Klikkuð kærasta!
Sýnd kl. 6. Vit 269Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal,
Catherine Zeta-Jones og John Cusack fara
hér á kostum í stórskemmtilegri
rómantískri gamanmynd.
Sýnd kl. 8 og 10.
Hún þarf að læra upp á nýtt að borða, ganga,
klæða sig og umfram allt hegða sér! Höfundur
og leikstjóri Pretty Woman kemur hér með aðra
frábæra gamanmynd fyrir alla fjölskylduna.
Frumsýning
Sýnd kl. 8.
Miðnætursýning
kl. 12 Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6. Vit 269
ÓHT. RÚV
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Hún þarf að læra upp á nýtt að borða, ganga,
klæða sig og umfram allt hegða sér! Höfundur
og leikstjóri Pretty Woman kemur hér með aðra
frábæra gamanmynd fyrir alla fjölskylduna.
Frumsýning
Forsýning Frumsýning
Smellin gamanmynd frá
leikstjóra Sleepless in
Seattle og You've Got Mail.
JOHN TRAVOLTA
LISA KUDROW
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý
Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar,
brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir
pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling
Stone Magazine
Hann Rokkar feitt!
Sýnd. 8, 10 og 12.
FRUMSÝNING
Frá framleiðendum Big Daddy kemur drepfyndin gamanmynd um klikkaðar
kærustur og vitlausa vini! Hvað gera bestu vinir Silvermans þegar
kærastan er að eyðileggja ævinlangan vinskap?
Þeir ræna henni að sjálfsögðu!!! Þú deyrð úr hlátri!
Varúð!!
Klikkuð kærasta!
www.laugarasbio.is
Kvikmyndir.com RadioX
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Kvikmyndir.com
HK. DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.
Sýnd kl. 5.40, 8
og 10.15.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og John
Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri gamanmynd sem
fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur skemmtileg vandamál.
Kvikmyndir.com
UNGLIST hefur verið haldin á hverju ári síðan 1992 en
hátíðinni er ætlað að gefa mynd af því hvað ungt fólk er
að stússa í listaheiminum, og þá í sem fjölbreyttustu sam-
hengi. Hátíðin er haldin í Reykjavík, á Akureyri, í Borg-
arnesi, á Ísafirði og á Egilsstöðum. Hátíðinni lýkur nú
um helgina með tvennum rokktónleikum sem fram fara í
kvöld og annað kvöld í Tjarnarbíó. Tónleikarnir hefjast
kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Það er gaman frá því að segja að á þessum tveimur
kvöldum verður hægt að heyra sýnishorn af tveimur
mjög ólíkum rokkstefnum sem vinsælar eru í rokkmenn-
ingu landans en þær eru einmitt hvað mest stundaðar af
ungu fólki.
Fyrra kvöldið munu sveitirnar Mínus, Klink, Andlát,
Snafu og I Adapt leika. Óhætt er að segja að hér fari
fimm atkvæðamestu harðkjarnasveitir landsins en sú
tónlist er hröð, þung og brjáluð mjög.
Seinna kvöldið leika sveitirnar Fidel, Úlpa, Sofandi,
Kuai og Lúna og fara þar nokkrar af þeim íslensku sveit-
um sem leggja stund á hið svokallaða síðrokk sem á það
til að vera hægt og dreymið þótt nokkrar þessara sveita
gefi reyndar hressilega í ef því er að skipta.
Morgunblaðið setti sig í samband við Harald Örn
Sturluson, trommuleikara Úlpu, og innti hann frétta.
Hann sagðist nú lítið vita um sjálfa tónleikana en var fús
að segja blaðamanni af ævintýrum sínum og félaganna.
„Jú, jú, mikil hamingja,“ segir Haraldur, þegar hann
er spurður um hvort menn séu ekki kátir yfir frumburð-
inum, Mea Culpa.
„Við fengum að fara í það hljóðver sem við vorum búnir
að óska okkur að fara í (Gróðurhús Valgeirs Sigurðs-
sonar). Það var mjög indælt að taka upp þar. Valgeir er
alger fagmaður.“
Framundan er svo meira spilerí til að fylgja nýju plöt-
unni eftir en stefnan er svo tekin á hljóðver í janúar.
„Næsta plata er tilbúin,“ segir Haraldur og blaðamað-
ur hváir, það er ekki oft sem afköstin eru svona hröð í
poppheimi samtímans. „Hún var eiginlega tilbúin stuttu
eftir að hin var kláruð.“
Hratt rokk/
hægt rokk
Morgunblaðið/Sverrir
Síðrokkssveitin
Lúna.
Morgunblaðið/Ásdís
Frosti Logason úr Mínus er einn fjölmargra ungra
listamanna sem troða upp í Tjarnarbíói um helgina.
Unglist
um helgina
BRÉF og bögglar frá
aðdáendum kvikmynda-
leikara og tónlistar-
manna hljóta nú var-
færna meðhöndlun
vegna miltisbrands-
tilfellanna sem upp
hafa komið að und-
anförnu. Slíkur póstur
er undir venjulegum
kringumstæðum sendur
til umboðsfyrirtækja
stjarnanna. Julia Ro-
berts fær mikinn aðdá-
endapóst sem hefur
aukist mjög að umfangi
eftir að hún lék í kvik-
myndinni America’s
Sweethearts. Sony fyr-
irtækið, sem hefur Ro-
berts og fjölmargar aðrar stjörn-
ur á sínum snærum, hefur tekið
þá stefnu að opna ekki slíkan
póst uns línur fara að skýrast í
þessum efnum. MGM kvikmynda-
fyrirtækið hefur ráðið
fleiri öryggisverði til
að skoða grunsamlegar
póstsendingar sem
stjörnunum berast.
Aðdáendabréf til leik-
manna hafnaboltaliðs-
ins New York Yankees
eru yfirleitt sett í skáp-
ana þeirra í búnings-
herbergi liðsins, en nú
er öldin önnur. For-
svarsmenn liðsins
geyma nú allan póst
sem berst til leikmann-
anna. Sögusagnir hafa
verið á kreiki um að
aðdáendabréfum og
bögglum sé hent en
enginn hefur viljað
staðfesta það. Slíkur póstur er að
öllu jöfnu sendur með velvilja í
huga og getur innihaldið ýmisleg-
an varning, eða allt frá heima-
bökuðum kökum til undirfata.
Stjörnurnar
hræðast miltisbrand
Aðdáendabréf til
Juliu Roberts eru
grandskoðuð
þessa dagana.
Reuters