Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 14

Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 14
LANDIÐ 14 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LANDGRÆÐSLUVERÐLAUNIN fyrir 2001 voru afhent í Gunnars- holti síðastliðinn miðvikudag, 14. nóvember. Þessi árlega verðlaunaaf- hending er í samræmi við markmið Landgræðslunnar og stefnu stjórn- valda, að styðja störf almennings við hvers konar landbætur. Að þessu sinni hlutu verðlaunin; Skógræktarfélag Mosfellsbæjar, Ferðafélag Íslands, hjónin Gísli Halldór Magnússon og Ásta Sverr- isdóttir, bændur á Ytri-Ásum í Skaftártungu, og Kristófer Bjarna- son, kirkjuvörður í Selvogi. Verðlaunagripirnir nefnast „Fjör- egg Landgræðslunnar“ og eru unnir af Eik – listiðju í Miðhúsum á Egils- stöðum. Það var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn. Í máli Sveins Runólfssonar land- græðslustjóra kom fram að á síðustu 9 árum hefði Landgræðslan veitt ár- lega nokkrum aðilum sérstaka við- urkenningu fyrir vel unnin störf en með verðlaununum vill Landgræðsl- an vekja athygli almennings á því hve mikið starf er innt af hendi við ræktun og fegrun ásýndar landsins. Gróðursnauðir melar klæddir skógi Skógræktarfélag Mosfellsbæjar sem var stofnað 20. maí 1955 hefur á 46 árum gróðursett um 900 þúsund plöntur. Félagið hefur þá stefnu að skógur umkringi alla byggð í Mos- fellsbæ og þjóni sem athvarf og skjól fyrir íbúana. Skógræktardagur er árviss viðburður hjá félaginu sem fjöldi manns tekur þátt í. Skógi er plantað á tíu svæðum og er áhersla lögð á að klæða skógi gróðurlausa mela í nágrenni bæjarins. Unnið er markvisst að því að auð- velda almenningi aðgang að skóg- arsvæðum með gerð göngustíga og upplýsingaskilta ásamt því að kynna unglingum hið göfuga skógræktar- starf. Stórvirki við uppgræðslu lands Ferðafélag Íslands fær land- græðsluverðlaunin fyrir að hafa frá upphafi ferils síns lagt rækt við um- hverfismál, uppgræðslu og skóg- rækt. Félagið er einn af frumbyggj- um Heiðmerkur og hefur umsjón með stærsta skógarreitnum þar. Landgræðslusjóður félagsins styrkir starfsemi þess að umhverf- ismálum og landgræðslu. Stærsta einstaka landgræðsluverkefni fé- lagsins, fyrir utan skógrækt í Heið- mörk, er uppgræðsla í Þórsmörk sem hófst um 1990. Þar hefur félagið unnið stórvirki í samstarfi við Land- græðsluna og nú er uppgræðslan í nágrenni Skagfjörðsskála í Þórs- mörk á lokastigi og félagið að hasla sé völl á nýjum stað, í Efri-Botnum á Emstrum sem er að heita má örfoka en var gróið land fyrr á öldum. Hafa grætt tugi hektara af eyddu landi Í umsögn Landgræðslunnar segir að Gísli Halldór og Ásta á Ytri-Ás- um í Skaftártungu hafi með þraut- seigju og elju sáð grasfræi, borið áburð á og grætt upp tugi hektara af eyddu landi með afar góðum árangri við erfiðar aðstæður. Hluti jarðar þeirra hefur verið hart leikinn af óblíðum náttúruöflum í aldanna rás. Með þátttöku sinni í Suðurlands- skógum hafa Gísli Halldór og Ásta plantað nær 100 þúsund trjám í hluta af uppgræðslusvæðunum. Þau hjónin hafa lagt fram ómælda vinnu við að græða og fegra jörðina sem þau hafa ábúð á. Þannig hafa þau af alkunnum dugnaði hlúð að því landi er þau leigja og skila til eftirlifandi kynslóða með vöxtum og vaxtavöxt- um. Það er mat Landgræðslunnar að þau séu landgræðslubændur í orðs- ins bestu merkingu og verðugir fulltrúar þeirra hundraða bænda sem leggja rækt við uppgræðslu landsins. Hrjóstrin víkja fyrir gjöfulu starfi Kristófer Bjarnason hefur verið kirkjuvörður í Selvogi um árabil en land kirkjunnar hefur verið afar illa leikið af ágangi sands og sjávar í ald- anna rás. Talið er að fyrstu varnir gegn sandfoki hafi verið gerðar í Selvogi. Ekkert réðst við sandfokið og jörðin fór í eyði 1690, þrátt fyrir fjölkynngi presta, eins og segir í um- sögn Landgræðslunnar.Lítið gerðist í uppgræðslu í landi kirkjunnar fyrr en Kristófer hefst þar handa vorið 1989. Hann hefur sáð miklu magni af lúpínufræi, stungið upp plöntur og dreift um landgræðslusvæðið af ein- stökum dugnaði og elju. Þetta starf hans hefur skilað þeim árangri að á þessum liðlega áratug hafa gróður- lausar klappir og sandbollar vikið fyrir blómlegum gróðri. Eftir nokk- urra alda baráttu margra mætra manna við sandfokið hefur Kristófer nú tekist á örskömmum tíma að láta hrjóstrin víkja fyrir gjöfulu landi til- búnu til skógræktar sem Kristófer hefur reyndar hafið fyrir nokkru. Kristófer fær viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í þágu lands og þjóða, segir í greinargerðinni. Landbúnaðarráðherra afhendir landgræðsluverðlaunin 2001 í Gunnarsholti Viðurkenning- ar fyrir upp- græðslu og end- urheimt lands Morgunblaðið/Sig. Jóns. Handhafar Landgræðsluverðlaunanna með landgræðslustjóra og landbúnaðarráðherra. Kristófer Bjarnason, kirkjuvörður í Strandakirkju, Guðrún Halldórsdóttir, formaður Skógræktarfélags Mosfellsbæjar, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Ásta Sveinsdóttir og Gísli Halldór Magnússon, Ytri Ásum í Skaftártungu, og Haukur Jóhannesson, forseti Ferðafélags Íslands. Selfoss SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands- björg fékk á dögunum afhenta björg- unarbifreið að gjöf frá þýskum stjórnvöldum. Um er að ræða 10 tonna brynvarinn trukk sem áður var í notkun hjá þýsku landamærasveit- unum. Þessi höfðinglega gjöf var afhent við athöfn á Akranesi og tók Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, formlega við bílnum af þýska sendi- herranum á Íslandi, dr. Henrik Bern- hard Dane. Ráðherrann afhenti síðan Jóni Gunnarssyni, formanni Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, bif- reiðina. Björgunarbíllinn verður staðsettur á Akranesi og í umsjá Björgunarfélags Akraness og tók Hannes Sigurðsson, formaður félags- ins, að síðustu við lyklum að bílnum. Bíllinn var í þjónustu þýsku landa- mærasveitanna og þessi gerð bíla er einnig notuð af þýsku óeirðalögregl- unni. Þar sem um er að ræða hern- aðartæki, án vopna, er það form haft á að þýska innanríkisráðuneytið af- hendir tækið íslenska utanríkisráðu- neytinu sem síðan afhendir Slysa- varnafélaginu Landsbjörgu það til afnota. Þetta er annar bíllinn af þess- ari gerð sem þýsk stjórnvöld gefa ís- lenskum björgunarsveitum. Fyrri bíllinn kom í september sl. og er hann staðsettur hjá björgunarsveitinni Kára í Öræfum. Hér er um að ræða fjórhjóladrifinn bíl með 10 mm brynvörn. Hann verð- ur notaður í sérhæfðum björgunar- aðgerðum við Hafnarfjall og á Kjal- arnesi þar sem vindhviður hafa feykt á loft stórum og þungum vörubílum með tengivagna. Sérstaða bílsins er þyngd hans og brynvörn og hann fýk- ur væntanlega ekki af vegum svo auðveldlega og vegna brynvarnar hans skiptir ekki máli þó að malbik, grjót eða annað lauslegt fari á bílinn á fullum krafti. Bifreiðin tekur alls níu farþega. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, og Jón Gunnarsson, formaður Landsbjargar, þökkuðu í stuttum ávörpum þýska sendiherranum þessa höfðinglegu gjöf. Almenn ánægja ríkir með að þetta öfluga björgunartæki sé staðsett á Akra- nesi. Brynvarinn dreki tekinn í notkun Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Halldór Ásgríms- son afhendir Jóni Gunnarssyni, for- manni Landsbjarg- ar, lykla að hinum nýja björgunarbíl, sem er á myndinni hér að ofan. Með þeim á myndinni er dr. Henrik Bern- hard Dane, sendi- herra Þýskalands á Íslandi. Akranes GENGIÐ hefur verið frá samningi á milli Þórshafnarhrepps og Ráð- gjafarstofunnar ehf. í Hafnarfirði um að starfsmaður Ráðgjafarstof- unnar ehf., Björn Ingimarsson, gegni starfi sveitarstjóra Þórs- hafnarhrepps til loka júní 2002. Björn mun koma til starfa á næstu dögum. Björn hefur reynslu sem ráð- gjafi og stjórnandi fyrirtækja og stofnana bæði hér á landi og er- lendis. Einkum hefur hann starfað fyrir fyrirtæki á sviði sjávarút- vegs, verslunar og þjónustu auk sveitarfélaga. Björn hefur setið í stjórnum margra fyrir- tækja og stofn- ana. Síðastliðin tvö ár hefur Björn starfað fyrst sem fjár- málastjóri hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. og síðan sem starfandi meðeigandi hjá Ráðgjafarþjónustunni ehf. í Hafnarfirði. Björn er kvæntur Sigrúnu Jónu Óskarsdóttur, förðunarfræðingi, og eiga þau 5 börn. Gegnir starfi sveit- arstjóra til vors Þórshöfn Björn Ingimarsson MINKAPELSUN er nú hafin á loðdýrabúum landsins. Það er í fyrra lagi miðað við undanfarin ár, oft var minkurinn ekki pels- aður fyrr en kom fram í desem- ber. Nú er ráðlagt að klára minkapelsunina um miðjan nóv- ember. Refapelsun fer einnig að byrja og eru menn farnir að taka ref og ref og athuga hvort þeir séu tilbúnir. Það er hvort feldurinn sé nógu þroskaður til að hann sé nothæfur til vinnslu. Verð á minkaskinnum hefur verið að síga hægt upp á við und- anfarið, þar spilar þó mest inn í hækkun á erlendum gjaldmiðlum, aðallega dollara. Dýrustu minka- skinnin í dag eru skinnin af hvíta minknum sem eru í tvöfalt hærra verði en önnur minkaskinn. Pelsun haf- in og hækk- andi verð á skinnum Norður-Hérað Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson Guðmundur Þór Ármannsson og Kazimierz Kubielas vinna við að pelsa mink.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.