Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ragnheiður Val-dórsdóttir hús- móðir fæddist á Hrúteyri við Reyðar- fjörð 19. desember 1918. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 8. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Valdór Bóas- son útgerðarmaður, f. 24.6. 1885 í Borg- argerði við Reyðar- fjörð, d. 22.4. 1927, og Herborg Jónas- dóttir húsmóðir, f. 23.8. 1886 á Hrúteyri við Reyðar- fjörð, d. 22.8. 1964. Þau bjuggu á Hrúteyri við Reyðarfjörð. Seinni maður Herborgar var Þorleifur Þórðarson, f. 17.4. 1891, d. 29.6. 1951. Ragnheiður var næstyngst í hópi ellefu alsystkina, sem voru Jónas, f. 1.2. 1908, d. 19.3. 1977, Sigurbjörg, f. 27.12. 1908, d. 1909, Guðrún Bjarney, f. 24.12. 1909, d. 16.4. 1961, Bóas, f. 16.4. 1911, d. 23.10. 1983, Eðvald, f. 10.8. 1912, d. 12.8. 1942, Benedikt, f. 21.8. 1913, d. 1913, Guðlaug Jóhanna, f. 15.10. 1914, d. 1920, Óskar, f. 10.10. 1915, d. 5.12. 1981, Jóhann Björgvin, f. 6.1. 1917, d. 14.2. 1991, og Jóhann, f. 20.2. 1920, d. 25.10. 2000. Auk þess átti Ragnheiður Edda, Júlíana Sara og Kristín Olga. 1.2) Ragnheiður, f. 28.5. 1967, dóttir hennar er Silja Elsa- bet Brynjarsdóttir. 1.3) Emilía, f. 20.10. 1973, hennar sambýlismað- ur er Karl Guðmundsson. 1.4) Pál- ey, f. 6.2. 1975, hennar sambýlis- maður er Arnsteinn Ingi Jóhannesson, sonur þeirra er Borgþór Eydal. 2) Guðrún, f. 15.3. 1949, gift Reyni Árnasyni, börn þeirra eru: 2.1) Páll Eydal, f. 22.4. 1966, sambýliskona hans er Geeta Kaur, dóttir hans er Karen Ösp. 2.2) Elísabet, f. 2.8. 1968, sambýlis- maður hennar er Gunnar Hrafn Gunnarsson, börn þeirra eru Reynir Rafn og Auður. 3) Bjarney, f. 5.9. 1961, gift Ívari Gunnarssyni, börn þeirra eru: 3.1) Anna Ragn- heiður, f. 4.12. 1986, 3.2) Rakel Ýr, f. 12.3. 1990, 3.3) Páll Eydal, f. 12.8. 1997, samfeðra eldri systir er Sigríður Þóra. Ragnheiður kom ung til Vest- mannaeyja sem vinnukona. Hún var húsmóðir og starfaði einnig lengi vel hjá Vinnslustöð Vest- mannaeyja við snyrtingu í fisk- vinnslu og var hún 75 ára að aldri þegar starfsævi hennar lauk árið 1994. Ragnheiður var mikil hann- yrðakona alla tíð og liggja ófá verk eftir hana. Með eiginmanni sínum tók hún þátt í félagsstarfi íþróttafélagsins Þórs. Hún var fé- lagi í Kvenfélaginu Líkn og sín seinni ár var hún virk í félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Útför Ragnheiðar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. samfeðra yngri hálf- systur, Valdóru, f. 30.9. 1927, d. 1929, sem móðir hennar tók að sér. Þá ólu móðir Ragnheiðar og Þor- leifur upp fimm fóst- ursyni: Jón Arnfinns- son, f. 27.3. 1915, d. 24.12. 1985, Guðjón Jónsson, f. 7.5. 1925; Jón Björgvin Ólafs- son, f. 9.12. 1926, d. okt. 1993; Ingólfur Njálsson, f. 1.5. 1928, og Magnús Hörður Magnússon, f. 27.7. 1935. Hinn 18. nóvember 1941 giftist Ragnheiður Páli Eydal Jónssyni á Eskifirði, f. 8. desember 1919 á Garðstöðum í Vestmannaeyjum. Hann starfaði lengst af sem slipp- stjóri í Vestmannaeyjum. Hann lést 27. október 1996. Foreldrar hans voru Jón Pálsson ísláttar- maður, f. 24.4. 1874 undir Eyja- fjöllum, d. 10.1. 1954, og Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 9.10. 1887 í Keflavík, d. 9.7. 1923. Börn Ragnheiðar og Páls eru: 1) Borg- þór Eydal, f. 27.9. 1941, kvæntur Guðbjörgu Októvíu Andersen, dætur þeirra eru: 1.1) Þórdís, 5.8.1963, gift Gunnari Þór Gunn- arssyni, dætur þeirra eru Októvía Elsku mamma, nú þegar ég kveð þig langar mig að skrifa nokkur orð um þig. Ætíð gat ég stólað á þig þegar ég stofnaði fjölskyldu, hvort sem það var að passa eða hjálpa mér með saumaskapinn. Þú varst mikil saumakona og naut ég góðs af því, bjóst til samkvæmiskjóla, kápur og barnaföt, sem ég var mjög stolt af enda mikið listaverk. Mér var ávallt sagt frá því hversu dugleg þú varst við sveitastörfin á ungum aldri þótt smá værir, varst snögg og lipur og þóttir myndarleg ung heimasæta með fallegt sítt dökkt hár og brostir með djúpum spékoppum. Þegar ég var lítil og á vorin kom fiðringur í þig að komast austur á æskustöðvar. Við fórum þá með skipi og var oft allra veðra von en þú varst einstaklega sjóhraust kona þó þú værir bæði lágvaxin og fíngerð og ætíð fórst þú í hlutverk hjúkr- unarkonu að hlúa að þeim sjóveiku enda kom ekki til greina síðar meir að taka koju í Herjólfi. Það var líka ótrúlegt að upplifa stemmninguna sem myndaðist í eld- húsinu á Boðaslóðinni þegar ég var lítil. Þú varst að vinna í Ísfélaginu og vorkenndir Austfirðingunum sem komu á vertíð, þú bauðst fólkinu með þér heim enda mundir þú hvernig það var að vera ný í Eyjum. Oft hefði ekki verið hægt að bæta við svo mikið sem einni manneskju í eldhúsið og þó var það stórt, en það var oft glatt á hjalla á þessu aust- firska kaffihúsi. Fyrsta utanlandsferðin sem þú fórst var til Danmerkur og þú fórst hana sem fararstjóri með hóp af ungum strákum úr Þór. Alla tíð tal- aðir þú um hvað þessi ferð hefði ver- ið skemmtileg og gefið þér góðar minningar. Þú varst einstakur dýravinur sem hefur skilað sér beint til barnanna minna og hlógum við í sumar þegar ég kom með Auði langömmubarnið þitt, þá átta mánaða, í heimsókn. Hún sá kisustyttu hjá þér og voru hennar fyrstu orð: „Mjá, mjá.“ Mik- ið varst þú glöð og sagðir að hún hefði genin þín. Þú hlúðir vel að ætt- ingjum þínum og fyldist vel með öll- um. Í gosinu flutti ég austur á Vopna- fjörð og þú og pabbi komuð oft þangað til okkar, en aldrei gleymi ég þegar pabbi tók bílpróf 1979 og þið keyrðuð austur án þess að segja mér nokkuð. Þegar ég kom heim úr vinnu þann daginn var dekkað borð og þið ótrúlega montin af fyrstu ökuferð ykkar. Það var lítið mál eft- ir þetta að renna austur á sumrin, það var keypt spóla með Eyjalögum eða Jónas og fjölskylda og oft voruð þið full af bröndurum af þeirri góðu spólu. Alltaf varð að redda lagningu fyr- ir þig hvar sem þú varst stödd því þú gast ekki hugsað þér að hafa hárið í óreiðu, enda hugsaðir þú alla tíð ein- staklega vel um útlit þitt og ósjaldan sem ég sagði: „Mamma, þú getur ekki verið á pinnahælum hér.“ En þú hefðir farið maraþon á þeim, svo ákveðin varst þú að þetta væru bestu skór fyrir þig. Þið tókuð vel á móti börnunum mínum þegar þau fóru til ykkar pabba í skóla í Eyjum og erum við þakklát fyrir það. Elsku mamma, takk fyrir allar góðu stundirnar. Guð geymi þig. Þín Guðrún. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilis prýðin í hinzta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. (V. Briem.) Amma og afi hafa verið sameinuð á ný. Þótt söknuðurinn sé mikill hjá okkur gleðjumst við yfir því að þessi einstaklega samrýndu hjón ganga saman hönd í hönd um himnastíga. Amma var ung stúlka austur á fjörðum er hún ákvað að fara að heiman til Vestmannaeyja og fara að vinna hjá stóra bróður sínum og eiginkonu hans. Móðir hennar sagði við hana áður en hún fór að fyrsti maðurinn sem tæki í hönd hennar þegar þangað kæmi yrði eiginmaður hennar. Ungur maður, mágur bróð- ur ömmu, var sendur til að sækja ömmu þegar skipið kom í höfn. Þeg- ar hann tók í hönd hennar og leiddi hana frá borði horfðust þau í augu og var það ást við fyrstu sýn. Seinna sagði amma okkur að hún vissi það strax þá að þetta var hann, hinn eini sanni, en það var ekki fyrr en löngu seinna sem hún mundi eftir orðum móður sinnar. Hjónaband ömmu og afa var einstaklega ástríkt og mikil tillitssemi ríkti ætíð á milli þeirra. Enda gerðu þau allt saman, þau voru ekki bara hjón heldur einnig bestu vinir. Þau báru mjög mikla virðingu fyrir hvort öðru og nutu sín bæði í hjónabandinu. Amma var stórglæsileg kona og þegar hún kom til Eyja í fyrsta sinn héldu menn að kvikmyndastjarna frá Hollywood væri komin í bæinn, svo glæsileg var hún. Amma var alltaf fín í tauinu og fór í hverri viku í lagningu þrátt fyr- ir að ekkert sérstakt stæði til. Hún var líka alltaf svo mikil dama og þó að rigndi eldi og brennisteini fór hún samt í háhælaða skó, kuldaskór og strigaskór komu alls ekki til greina hjá henni ömmu. Amma var einstakur dýravinur og átti iðulega gæludýr, fugla og/eða ketti. Lengst af átti hún páfagauk- inn Rómeó og kenndi hún honum ýmsar kúnstir. Hún hugsaði sér- staklega vel um dýrin sín og sauð t.d. alltaf nýja ýsu handa kisunum sem voru jafnan feitar og pattara- legar. Þau voru ófá skiptin sem amma var með veika fugla til að hugsa um á heimilinu, vængbrotna og ofkælda sem hún hjúkraði af alúð og kom aftur til síns heima. Orðspor um gæsku ömmu í garð dýra var vel þekkt og komu krakkar gjarnan til hennar með veikburða dýr því þau vissu að þar var dýrunum borgið. Amma gleymdi aldrei smáfuglunum og smurði meira að segja tólg ofan á brauð handa þeim svo þeir fengju meiri næringu á veturna. Ógleym- anlegt er þegar hún hringdi sérstak- lega til að minna okkur systurnar á að gefa smáfuglunum. Amma hafði mikið samband við okkur alveg sama hvar við værum staddar í heiminum og fylgdist hún alltaf mik- ið með því hvað við höfðum fyrir stafni hverju sinni. Hún kynntist mönnum okkar enda lagði hún rækt við sitt fólk. Aldrei fannst ömmu hún gera nóg fyrir okkur og lét jafn- an fylgja þegar hún gaf okkur gjafir, hvort sem þær voru stórar eða smá- ar, að þetta væri nú bara smáræði. Svona góð og gjafmild var hún amma okkar. Amma var alltaf með handavinnu og minnumst við þess að hún hafði búið um sig í herbergi þar sem hún var með saumadótið og lampann með stækkunarglerinu, allt tilbúið og hver stund notuð. Hún lagði hart að sér þegar hún var í handavinn- unni á elliheimilinu, en þangað fór hún á hverjum degi, hún gaf sér varla tíma til að fara í kaffi með hin- um konunum vegna þess að hún var annaðhvort að klára jólagjafirnar handa okkur eða aðrar gjafir handa börnunum okkar. Í sumar þegar amma fékk vitneskju um krabba- meinið var það fyrsta sem henni kom í hug að það eina sem hún ætti eftir að gera væri að ljúka við að smyrna mynd handa yngsta lang- ömmubarninu. Amma hafði átt góða ævi og var jafnan þakklát fyrir það. Hún sagði okkur eftir að afi dó hve mikilvægt væri að eiga góðar minn- ingar og þurfa ekki að sjá eftir neinu í lífinu. Amma og afi kenndu okkur það með sínu lífi hvað það er mik- ilvægt að vera góð við hvort annað og njóta hverrar stundar. Þau voru ófá heilræðin sem þau gáfu okkur og munum við alltaf búa að þeim. Amma var mjög frændrækin og dugleg að heimsækja ættingja sína og einnig var henni umhugað um að við kynntumst fjarskyldum ættingj- um okkar. Eigum við henni það að þakka að hafa kynnst frændfólki okkar um landið vítt og breitt. Fannst henni mjög mikilvægt að við mættum á ættarmótin og lét hún sig aldrei vanta á þau. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu og afa því það var alltaf tími fyrir okkur. Við spjölluðum um allt milli himins og jarðar og amma sagði okkur frá því þegar hún var ung að alast upp í sveitinni. Amma var hafsjór af fróð- leik um ýmis heimilisráð og leituð- um við óspart til hennar. Þegar kött- ur meig í gardínurnar hjá okkur, rauðvín fór í dúkinn eða baksturinn var að klúðrast hafði amma ráð við því. Hjá ömmu var alltaf eitthvert bakkelsi, pönnukökur, vöfflur, heitt súkkulaði og ýmislegt góðgæti. Hún veigraði sér heldur ekki við að baka pönnukökur handleggsbrotin því hún var góður gestgjafi og heldur betur hörð af sér. Eftir að afi dó og hún fór í ferðir með eldri borgurum tók hún iðulega að sér að hjálpa þeim sem voru henni veikari og gerði þeim kleift að fara með í ferð- irnar. Það mikinn náungakærleika og fórnfýsi hafði amma okkar að geyma. Amma var mjög mikil fé- lagsvera og vildi alltaf vera þar sem fjörið var enda liðtæk á mannamót- um og þar á meðal á þjóðhátíð. Nú síðast þegar hún var orðin rúmliggj- andi vildi hún samt endilega sjá ljós- in í dalnum enda átti hún margar góðar minningar þaðan með honum afa. Amma vildi hafa hreint í kringum sig og þegar hún tók til í garðinum heima á Boðaslóðinni sást oft á eftir henni upp götuna að tína upp sæl- gætisbréf, svo umhugað var henni um umhverfið. Amma var mikill vinnuþjarkur og vann hún í fiski til 75 ára aldurs og gaf unga fólkinu ekkert eftir í bónusnum. Hún hélt sér alltaf í góðu formi og fannst mik- ilvægt að vinna meðan hún hafði heilsu til. Á níræðisaldri hlaut amma tvisvar beinbrot og var hún ótrúlega fljót að ná sér. Hún píndi sig í gegn- um allar æfingar og gerði þær það vel að hún hélt fyrri liðleika og hreyfigetu þrátt fyrir háan aldur. Hún var mikil áhugamanneskja um íþróttir og fylgdist vel með í öllum íþróttum, hún átti sér meira að segja uppáhaldslið í NBA og horfði gjarnan á leiki á nóttunni. Fótbolti og handbolti í sjónvarpi var hennar dægrastytting en ekki ,,sápur“ og þegar heimsmeistaramót voru þá var hátíð í bæ og mátti hún ekki missa af leik. Það kom mönnum okk- ar í opna skjöldu þegar hún ræddi um kappleiki við þá því hún var vel inni í málunum og hafði skoðanir á því hvernig þetta ætti að vera eins og þeir hörðustu. Við vorum nánar henni ömmu og eigum margar góðar minningar sem við munum varðveita í hjarta okkar og með börnum okkar. Amma var trúrækin kona og við vitum að nú er hún hjá Guði með afa. Minning þín er ljós í lífi okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Systurnar Þórdís, Ragnheiður, Emilía og Páley. Elsku amma, nú þegar ég kveð er margs að minnast og margar stund- ir sem ég á eftir að sakna. Ég á margar minningar um afa og ömmu á Boðaslóðinni frá því að ég var lítil og bjó í Eyjum, því flest jól og hátíðir vorum við fjölskyldan saman. Mér fannst þú svo fróð um hvaða vítamín og næringarefni væru í hverju. Þegar ég gekk síðan á þig og spurði með aðdáun hvernig á því stæði sagðir þú: „Elskan mín, þegar maður verður veikur þá lærir mað- ur.“ Í vetur kom sannleikurinn upp á yfirborðið, þú og Badda sögðuð mér sannleikann, sem var að auðvit- að hafðir þú lesið þér til, en mest skáldaðir þú í það og það skiptið. Ég fer ekki ofan af því að þú hafir verið mjög fróð og er eiginlega bara fúl að þú og Badda skylduð eyðileggja þessa hrifningu mína en ég veit bet- ur. Eftir að ég var flutt á Vopnafjörð og kom í heimsókn til þín varð ég að færa þér súkkulaði, því ég vissi hversu gott þér fannst það og fyrir utan að ég fékk ætíð bita með þér. Þannig að ég vissi alveg hvað ég var að gera. Ég var svo lánsöm að búa hjá þér og afa þegar ég kom til Eyja í fram- haldsskóla, það eru ljúfar minningar og góð bönd sem mynduðust bæði til ykkar afa og Böddu sem þá var farin að búa og nýbúin að eignast sitt fyrsta barn. Ég er oft búin að stríða Böddu á því að hún hafi aldrei flutt að heiman því hún fór aldrei langt frá þér, eiginlega var hún ætíð við hlið þér, þó að þú hafir verið yfir fer- tugt þegar þú áttir hana. Var ótrú- legt hversu góðar vinkonur þið vor- uð og þú sagðir oft við mig eftir að afi dó að þú vissir ekki hvað þú gerð- ir ef þú hefðir ekki hana Böddu þína. Við munum áfram hlúa að minn- ingum um þig og afa því við höfum lofað þér að láta böndin ekki slitna, vonandi bara styrkjast ef eitthvað er. Margar góðar stundir áttum við í eldhúsinu þegar ég kom heim á kvöldin og þú og afi sátuð þar og spjölluðuð saman, eða þegar ég kom mjög seint heim og þú varst sofnuð með Moggann í fanginu og gleraug- un á nefinu. Ég læddist að þér og þú vaknaðir og sagðir: „Ég var ekki sofnuð,“ en ég vissi betur enda brostum við bara og þú fékkst koss á vangann. Mér finnst mjög gott að geta kvatt þig með eins miklar minningar og ég hef, enda þegar þú RAGNHEIÐUR VALDÓRSDÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.