Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 42

Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 42
UMRÆÐAN 42 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ S telpudálkar og „skutlu- rit“ hafa notið mikilla vinsælda síðustu miss- erin. Frægust fyrir skrif af því tagi er lík- lega breski blaðamaðurinn og rit- höfundurinn Helen Fielding. Hún byrjaði að skrifa dálka í breska vikuritið Independent á níunda áratugnum og skrifaði síðar í Daily Telegraph. Dagbók Bridget Jones kom fyrst fyrir sjónir lesenda í þessum dálkum og varð strax mjög vinsæl. Eftirleikinn þekkja allir: út hafa komið tvær met- sölubækur um dagbók Bridget auk þess sem kvikmynd, sem einnig hefur sleg- ið aðsóknarmet, hefur verið gerð eftir fyrri bókinni og verður að öllum líkindum gerð önnur eftir síðari bókinni. Stelpudálkarnir svokölluðu eru upprunnir í Bretlandi á síðasta áratug og státuðu öll helstu blöðin af einum slíkum. Þeir áttu það allir sameiginlegt að fjalla um líf ungra (og helst ógiftra) kvenna á hispurs- lausan hátt og draga nafn sitt það- an. Síðan þessir dálkar hófu göngu sína hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þeir urðu flestir mjög vin- sælir og í kjölfarið hefur fylgt tímabil þar sem ný hlutverk kvenna hafa komið fram í bók- menntum og kvikmyndum. Kvikmyndin Charlie’s Angels er ein slíkra kvikmynda, en hún var frumsýnd hérlendis í fyrra og naut mikilla vinsælda. Hetjur mynd- arinnar eru þrjár ungar konur, sem kunna að berjast og takast á við þau verkefni sem þeim eru falin af yfirmanni þeirra, Charlie. Þær eru allar miklar skutlur, sjálf- stæðar, en oft seinheppnar eins og stelpurnar í dálkunum og Bridget. Skutlurnar hans Charlie’s voru hetjur og það var Bridget Jones líka, þrátt fyrir alla sína galla og ósiði. En stelpubækur af þessum toga, eða „skutlurit“ eins og þau hafa verið kölluð hafa einnig verið skrifuð af íslenskum höfundum. Bókin Dís, eftir þrjár ungar ís- lenskar skáldkonur, kom út seint á síðasta ári. Dís fjallar um sam- nefnda persónu sem er einhleyp á þrítugsaldri og býr í miðbæ Reykjavíkur. Hún er óráðsett og ráðvillt í bæði karlamálum og sinni eigin framtíð. Dís naut mjög mik- illa vinsælda eins og aðrar bækur af sama meiði og var ein söluhæsta bókin í jólabókaflóðinu í fyrra. Aðrar vísbendingar, en sölutöl- ur bókanna Dísar og Dagbókar Bridget Jones, benda einnig til þess að íslenskar konur taki þátt í þeirri alheimsvakningu kvenna að lesa bækur og horfa á sjónvarps- þætti og kvikmyndir eftir konur, sem fjalla um konur. Vinsældir sjónvarpsþáttanna Beðmál í borg- inni, sem sýndir eru í Sjónvarpinu, eru enn ein vísbendingin um það. Þátturinn hlaut nýverið Emmy- verðlaunin sem besti gamanþátt- urinn og hefur einnig hlotið Golden Globe-verðlaunin síðastliðin tvö ár fyrir það sama. Í þáttunum takast leikkonan Sarah Jessica Parker og einhleypar vinkonur hennar á við hversdagsleikann og spennuna í samskiptunum við hitt kynið. Þessi listi yfir vinsælar bækur, dálka, sjónvarpsþætti og kvik- myndir sem fjalla um konur og höfða til kvenna, er nú orðinn nokkuð langur. Og þá er von að menn velti fyrir sér af hverju þess- ar vinsældir stafa? Spurningunni er alls ekki auð- svarað en sú skýring kemur einna helst upp í hugann að konur hafi lengi verið sveltar umfjöllun um sjálfa sig og sínar leiðir til að lifa lífinu. Allir hafa þörf fyrir að vera hluti af einhverjum hóp eða stefnu og eiga fyrirmyndir. Það hefur komið fram að margar konur tengja sig alls ekki þjóðmála- umræðunni vegna þess að hún er fyrst og fremst rædd á forsendum karla, samanber nýlega rannsókn um konur og umræðu um sjáv- arútvegsmál. Þær hafa heldur ekki getað sett sjálfar sig í samhengi eða fundið fyrirmyndir í hetjum kvikmyndanna eins og til dæmis James Bond-myndunum, nema þá helst í líki einhverra af hans ótal ástkonum sem sitja brjóstgóðar við fætur hetjunnar. Kvikmyndin um engla Charlies leysir þennan vanda og ungar stúlkur og konur gátu loksins átt sér fyrirmyndir sem voru snjallar og klókar kven- hetjur sem kunnu að slást og redda málunum. Bridget Jones leysir líka ákveð- inn vanda kvenna. Hún sýnir þeim fram á að fleiri en þeim gengur brösulega í karlamálum, eiga erfitt með að vera í sífelldri megrun og drekka eins og dama. Þetta eru staðreyndir úr lífi margra nútíma- kvenna sem loksins fengust við- urkenndar með Bridget. Sama á við um ungrú Bradshaw sem Sarah Jessica Parker leikur í sjónvarpsþáttunum Beðmál í borginni og vinkonur hennar. Þær eru einhleypar konur á fertugs- aldri sem fara á stefnumót, stunda skyndikynni og fara á bömmera. Með þáttunum er sýnt fram á að bömmerar og skyndikynni eru hluti af lífi kvenna og Jóna í Hlíða- hverfinu og vinkonur hennar þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að vera einar í þeim bransa. Það sem öll þessi dæmi eiga sameiginlegt eru veikleikar „stelpnanna“ og frávik þeirra frá hefðbundinni og viðtekinni ímynd þar sem konan er falleg, prúð og skynsöm. Þau eru mótvægi við hina fullkomnu kvenímynd sem við sjáum á forsíðum tímarita, í kvik- myndum og fjölmiðlum, þar sem konan er falleg og grönn, gengur í nýjustu tísku og er í sambandi við myndarlega menn. Vinsældir áð- urnefndra þátta, kvikmynda og bóka felast kannski fyrst og fremst í því að þessi fullkomna kvenímynd er tilbúin blekking sem á alls ekki við konur nútímans. Ófullkomnar sögupersónur stelpudálka, skutlu- rita og sjónvarpsþátta eiga mun betur við. Stelpu- dálkar og skutlurit „Bridget Jones leysir líka ákveðinn vanda kvenna. Hún sýnir þeim fram á að fleiri en þeim gengur brösulega í karlamálum, eiga erfitt með að vera í sífelldri megrun og drekka eins og dama.“ VIÐHORF eftir Rögnu Söru Jóns- dóttur rsj@mbl.is ÉG HEF hagsmuna að gæta og krefst þess að ríkisvaldið verji þá, því mínir hagsmunir eru um leið almannahagsmun- ir. Ég krefst þess að allar þrjár greinar ríkisvaldsins, löggjaf- arvald, framkvæmda- vald og dómsvald, leggist á eitt um að stöðva þá aðför sem nú er gerð að kvóta- kerfinu, sem er eitt mikilvægasta hag- stjórnartæki Íslend- inga. Hagsmunir mínir felast ekki í því að ég eigi kvóta, því hann á ég ekki, heldur í því að fiskveiðiauðlindin verði nytjuð með hámarkshagkvæmni. Í því felst m.a. að sem allra verðmætastur afli sé dreginn á land með eins litlum tilkostnaði og frekast er unnt. Með því móti fáum við þann mesta arð sem unnt er að fá af fiskveiðiauðlindinni. Þar liggja mínir hagsmunir og þar liggja al- mannahagsmunir. Því meiri arð sem fyrirtækin í landinu skapa, þar með talin sjávarútvegsfyrir- tæki, því meiri verður velmegun Íslendinga. Kvótakerfið er skilvirk aðferð til að ná hámarksafrakstri við nýt- ingu fiskveiðiauðlindarinnar. Þó hefur það innbyggðan veikleika, sem tengist brottkastinu. Þennan veikleika hafa óprúttnir útgerðar- menn og skipstjórar tekið að berja í til að brjóta það niður. Það sem verra er, allmargir al- þingismenn og fjöl- miðlar taka undir og réttlæta óhæfuverk þessara manna. Þátt- ur fréttastofu RÚV er afar sérstæður í þessu samhengi. Þeir sýna gagnrýnislaust svið- settar myndir af brottkasti. „Líður eins og glæpamanni“, er letrað þvert yfir forsíðu helgarblaðs DV. Þannig lýsir skip- stjóri annars RÚV bátsins tilfinningum sínum þegar hann kastar brott fiski og landar framhjá vigt. Er þetta ekki eðlileg tilfinning? Er ekki eðlilegt að þeim, sem fremji glæp, líði eins og glæpamanni? Brottkast er veikleiki kvótakerf- isins. Hér er ekki fjallað um lönd- un fram hjá vigt. Þar er um að ræða glæpastarfsemi og fjármála- legt misferli, sem ekki verður séð að tengist einu fiskveiðistjórnunar- kerfi fremur öðru. Brottkast hefur ætíð tengst fisk- veiðum og á sér miklu lengri sögu en kvótakerfið. Alla síðustu öld, þar til kvótakerfið var tekið upp stóðu sjómenn á mörgum skipum við lensportin og tróðu í sjóinn margskonar meðafla og smáfiski. Færa má rök fyrir því að fyrst eft- ir að kvótakerfið var tekið upp hafi dregið úr brottkasti, þegar farið var að nýta meðafla eins og kola, svo dæmi sé tekið. Kolinn er nú þjóðinni mikilvæg auðsuppspretta, en skapaði lítinn auð áður. Einnig hefur kvótakerfið stuðlað að því að skip hafa sótt út fyrir fiskveiði- lögsögu landsins, þar sem útgerð- armenn hafa aflað sér og þjóðinni allri fiskveiðiréttinda. Þetta er einn af stórum kostum kvótakerf- isins og ræðst einkum af þeim eig- inleika þess sem kallaður er frjálst framsal. Verðmæti fiskveiðiauðlindarinn- ar fyrir þjóðarbúið felst í mismun á verðmæti aflans og kostnaði við að ná honum á land. Margt getur orsakað rýrnun auðlindarinnar. Þar á meðal er: 1. Sóun í útgerðarkostnaði vegna samkeppni um að ná fisk- inum áður en aðrir ná honum. 2. Fiskurinn skemmist eða rýrn- ar í veiðarfærum. 3. Léleg meðferð um borð, þar sem meira er hugsað um magn en gæði. 4. Í aflahrotum er fiskinum mok- að á land þannig að ekki hefst undan að vinna aflann. 5. Brottkast afla. Ég hef hags- muna að gæta Halldór Árnason Kvótinn Skúrkarnir, fjölmiðlar og sumir þingmenn, segir Halldór Árnason, ganga í einn kór til að nota brottkastið til að fá kvótakerfið afnumið. AUÐVITAÐ eiga öll dýrin í skóginum að vera vinir, en flest þeirra eru jurtaætur en ekki öll og þá vand- ast málið. Maðurinn hefur valdið svo mikilli röskun á yfirborði jarðar og í lífríkinu að nú er svo komið, að öll svæði heims liggja undir ásókn og sum þeirra líða æ meiri skaða af margvíslegu tagi, skógar- og gróð- ureyðing, uppsöfnun þrávirkra efna, tak- mörk orkubeislunar og umhverfisspilling; til- vist mannsins er ógnað víðsvegar um heiminum. Öryggi er flestum eftirsóknarverðast og öðrum lífs- gildum þyngra á metum. Frelsi, jafnræði og bræðralag voru slagorð frönsku byltingarinnar og vestræn menning hefur reynst fólki gjöful um flest gildi og öryggi hefur fylgt í kjölfarið, en í þeim efnum verður fólk stundum að taka fleiru en gott þykir, ekki síst sjúkdómum og ham- förum. Ef fólk rispar sig á fingri er farið til læknis en öryggisþörfin veldur oft öfgafullum viðbrögðum út af smámunum en sumir verja meiri fjármunum til heilsu kjöltudýra en fólk hefur annars staðar; skyndilega vaknar fólk svo upp við vondan draum og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Aðrir hafa safnað birgðum matvæla og útbúið sér byrgi með öllum nauð- synjum til að tryggja sig ef til stríðs eða hamfara kemur. Öryggi hinna útvöldu er orðið svo mikið að það veldur öryggisleysi og óstöðugleika, ekki síst af hálfu þeirra sem ekki njóta hins sama; lifnaðarhættirnir eru orðnir dýrir og skaðsamlegir og þrengja að öðrum sem fyllast ör- væntingu, ekki síst þeim sem búa á mörkum tilvistar vegna hungurs, sjúkdóma og landeyðingar. Er öryggi forsenda hagvaxtar? Í hinni helgu bók segir að fuglar himins- ins safni ekki korni í hlöður; full ástæða er til að minna fólk á að ekkert algilt öryggi er til og að hollt er að líta í kring um sig og fylgj- ast með því hvernig aðrir fóta sig í tilver- unni, en öryggi getur allt eins falist í því að veita nágrönnum að- stoð svo samfélag þjóða sé stöðugt og varanlegt. Kapitalismi og alheimsviðskipti felast að stórum hluta til í bjartsýni og viðskiptavilja fólks, jafnvel eyðslusemi og ofgnótt í bland. Augljóst er hvað gerist ef veraldarvafstur fólks er skorið nið- ur við brýnustu þarfir. Sjálfþurft- arbúskapur í öllum efnum skerðir heimsviðskipti og neyslugleði og efnahagslegir yfirburðir dragast saman. Alheimsviðskipti hafa gert alla jörðina að markaði án þess að nokkur vissa sé fyrir því að lögmál frjáls markaðar gangi upp á heims- vísu fyrir alla þótt þau hafi gert margar þjóðir ríkar. Japanir hafa siglt hraðbyri upp í hæstu hæðir meðan þeir voru að leggja undir sig heimsmarkaði; þegar það hafði gerst stöðvaðist vöxturinn og eig- inleikar sem voru styrkleiki breytt- ust í veikleika; predikarinn segir jú að hinir fyrstu verði síðastir. Marg- prísaður hagvöxturinn vinnur eins og vél sem gengur sjálfala meðan framleiðsluafurðir seljast; fátækum þjóðum er ráðlagt að „þróast“ og hefja framleiðslu og kaupa hitt og þetta til að komast inn í heimsvið- skiptin, jafnvel með því að hefja framleiðslu á hátækniafurðum og öðru rjómaafsprengi ríku landanna. Tæknin hefur valdið byltingu á heimsvísu í samskiptum, vísindum, afköstum og lífskjörum með frelsi og bjartsýni. Nýi veruleikinn býður upp á umferðabrautir og greiðan flutning alls stafnanna á milli; þegar frelsi til alls nálgast að vera algjört, kemur í ljós að glæsileikinn er oft mestur þegar tortímingin er næst. Netið er sýkt af mannavöldum og upplýsingaverðmæti eyðilögð; þeg- ar skapaður er frjáls aðgangur að öllu gildir það einnig fyrir tortím- andi öfl. Frelsið er orðið svo mikið að það skapar nýtt ófrelsi; því fylgir einnig afskipta- og skeytingarleysi gagnvart þeim sem ekki geta notið þess. Fasismi á fátæktarslóðum „Við“, hinir útvöldu, um fimmt- ungur mannkyns í háborgum lífs- kjaranna, byggjum múra í kring um okkur til að varðveita lífsgildi og forréttindi en verjumst aðgangi „annarra“ með hörku. Það gengur tæpast upp á alheimsvísu þannig að „allir hinir“ geti notið hins sama; til þessa er ekki nægilegt svigrúm í mörgum efnum. Ef íbúar frumskóga fella þá til eigin nota verður mikil vá fyrir dyrum. Meðan heimur hinna útvöldu getur lifað við hrópandi andstæður í efnahag í heiminum með leikreglum frjáls markaðar, verða margir að sinnulausum og for- dómafullum ofneysludýrum, líkust- um vatnahestum. Hagsmunir „okk- Vér vatnahestar Jónas Bjarnason Stríð Stríðið er ekki bara um gott og illt, segir Jónas Bjarnason, heldur einn- ig og ekki síður um var- anlegt réttlæti og virð- ingu annarra manna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.