Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 30
LISTIR 30 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Caritas á Íslandi í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar, efnir til tónleika til styrktar neyðaraðstoð í Afganistan í Kristskirkju, Landakoti, sunnudaginn 18. nóvember kl. 16.00 Á efnisskrá eru verk eftir: Árna Thorsteinsson, Atla Heimi Sveinsson, J.S. Bach, G. Bizet, L. Boccherini, Z. Kodály, W.A. Mozart, Max Reger. Flytjendur: Gunnar Kvaran, selló, Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla, Sigurður I. Snorrason, klarinett, Sigurður Skagfjörð, bariton, Ulrik Ólason, orgel, Vox Feminae, Margrét H. Pálmadóttir, stjórnandi. Aðgöngumiðar verða seldir hjá skrifstofu kaþólsku kirkjunnar, Hávallagötu 14, sími 552 5388, Kirkjuhúsinu við Laugaveg, eða við innganginn. Miðaverð kr. 2000. BIRNA Smith opnar myndlistarsýn- ingu í Galleríi Smíðar og skart, Skólavörðustíg 16a, í dag kl. 14. Á sýningunni eru 25 verk unnin með olíu á striga. Verkin eru öll unnin á þessu ári og er þetta hennar þriðja einkasýn- ing. Birna stundaði myndlistarnám í Reykjavík árin 1990 til 1996. Hún lagði stund á portrett-málun í Flór- ens haustið 2001. Birna hélt myndlistarsýningu á Stokkseyri í haust og til gamans má geta að Jóakim Danaprins og eig- inkona hans, Alexandra, festu kaup á einu verka Birnu. Sýningin stendur til 30. nóv- ember og er opin frá kl. 10–18 virka daga og kl. 10–16 laugardaga. Eitt olíuverka Birnu Smith. Olíuverk í Galleríi Smíðar og skart MARGMIÐLUNARDISKURINN Alfræði íslenskrar tungu, í ritstjórn Þórunnar Blöndal og Heimis Pálsson- ar, kom út í gær, 16. nóvember, á Degi íslenskrar tungu. Var Davíð Oddssyni forsætisráðherra afhent fyrsta ein- takið við formlega athöfn í Þjóðmenn- ingarhúsinu að viðstöddum aðstand- endum útgáfunnar, Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra, Halldóri Blön- dal, forseta alþingis og fleiri gestum. Höfðar til breiðs hóps Diskurinn er gefinn út af Lýðveld- issjóði og Námsgagnastofnun. Það var Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstjóri Námsgagnastofnunar sem afhenti forsætisráðherra diskinn, sem hefur að geyma margvíslegan fróðleik um íslenskt mál og málnotkun. Efni disksins er framsett í ólíkum hlutum og hefur aðgengilegt viðmót. Í aðal- hluta verksins, Alfræði, er fjallað um allt frá máltöku barna til þróunar ís- lenskrar tungu, og fjalla þar margir af fremstu fræðimönnum þjóðarinnar á alþýðlegan hátt um íslenskt mál. Í Málslóðum er hluti alfræðiefnisins endursagður og einfaldaður, m.a. í myndrænu formi, hægt er að ferðast í gegnum mannkynssöguna og ís- lenska málsögu á tímaás og að lokum má fletta upp í safni mynd- og hljóð- efnis sem finna má á disknum. Útgáfa margmiðlunardisksins er eitt af fjórum stórum verkefnum sem verkefnisstjórn Lýðveldissjóðs ýtti úr vör árið 1995. Að mati Eiríks Rögn- valdssonar prófessors og fulltrúa verkefnisstjórnar sjóðsins, er um bæði stóran og ánægjulegan áfanga að ræða, sem lengi hefur verið í und- irbúningi. „Fyrir útgáfu disksins var eingöngu til margmiðlunarefni af þessu tagi um erlend mál og á erlend- um málum. Þetta þótti okkur óviðun- andi tilhugsun og var því ákveðið að gera eitt af verkefnunum fjórum að margmiðlunarverkefni. Með því að koma fræðsluefni um íslenskt mál á framfæri á þessu formi vonumst við til að höfða til ungs fólks, og koma í veg fyrir að því fari að þykja íslenskan „gamaldags“ eða „hallærisleg“ í sam- anburði við erlendu málin,“ segir Ei- ríkur. Hann bætir því við að aðstandend- ur útgáfunnar sjái nú mikinn árangur erfiðis síns, enda hafi vinnsla disksins tekið langan tíma og vaxið nokkuð að umfangi frá því sem áætlað var. „Þetta form gerir okkur kleift að setja efnið fram með aðgengilegum hætti með möguleika á að ná til miklu breiðari hóps en nokkur bók hefði gert. Því var lögð geysileg vinna í það að velta fyrir sér hvernig ætti að koma efninu best á framfæri og telj- um við af útkomunni að dæma að það hafi tekist mjög vel.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Margmiðlunardiskurinn Alfræði íslenskrar tungu var kynntur við formlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Íslensk tunga í máli og myndum Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.