Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 15
Handmáluð
eplabörn
sími 462 2900
Blómin
í bænum
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli á
morgun kl. 11. Afmæli kirkjunnar. Hátíðar-
messa kl. 14. Sr. Svavar A. Jónsson og sr.
Guðmundur Guðmundsson. Þórhildur Örv-
arsdóttir sópran og Sigrún Arna Arngríms-
dóttir mezzosópran syngja einsöng. Kór Ak-
ureyrarkirkju syngur. Organisti: Björn
Steinar Sólbergsson.
Kaffisala og basar Kvenfélags Akureyrar-
kirkju í safnaðarheimili eftir messu. Fundur
í Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju kl. 17 í
kapellu.
Sjálfshjálparhópur foreldra kl. 20:30 á
mánudagskvöld í safnaðarheimili. Morgun-
söngur kl. 9 á þriðjudag. Mömmumorgunn
á miðvikudag kl. 10-12. TTT-starf kl. 17-18
á miðvikudag í safnaðarheimili. Biblíulestur
kl. 20:30 á miðvikudagskvöld. Kyrrðar- og
fyrirbænastund kl. 12 næsta fimmtudag.
Bænarefnum má koma til prestanna.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og messa
í kirkjunni kl. 11 á morgun. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18:10 á þriðjudag. Hádeg-
issamvera frá kl. 12 til 13 á miðvikudag,
orgelleikur, helgistund, fyrirbænir og sakra-
menti. Léttar veitingar í safnaðarsal á eftir.
Opið hús fyrir foreldra og börn frá kl. 10 til
12 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl.
11 á morgun. Sameiginleg samkoma á
Sjónarhæð, Hafnarstræti 63, sama dag kl.
17 og fellur samkoma Hjálpræðishersins
því niður. Heimilasamband kl. 15 á mánu-
dag. Örkin hans Nóa kl. 17 á mánudag fyrir
6-7 ára. Hjálparflokkur fyrir konur kl. 20 á
þriðjudag. Mannakorn fyrir 10 til 12 ára á
miðvikudag kl. 17:30. Krakkaklúbbur fyrir
8-9 ára á fimmtudag kl. 17. Söngæfing kl.
19:30 sama dag og unglingasamvera kl.
20:30. Flóamarkaður á föstudag frá kl. 10
til 18.
HRÍSEYJARPRESTAKALL: Sunnudagaskóli
kl.11 á morgun í Hríseyjarkirkju. Undirleik
annast Guðmundur Bjarni Gíslason.
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun í Stærra-
Árskógskirkju. Umsjónarmaður er Sif Sverr-
isdóttir og undirleik annast Arnór Brynjar Vil-
bergsson.
Kirkjukvöld verður í kirkjunni á sunnudags-
kvöldið kl. 20:30. Ræðumenn verða Krist-
ján Sigurðsson skólastjóri Árskógsskóla og
sr. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í
Ólafsfjarðarprestakalli. Kór Stærra-Ár-
skógskirkju mun syngja undir stjórn Arnórs
Brynjars Vilbergssonar organista. Að lok-
inni athöfn mun kirkjukórinn selja kaffiveit-
ingar í Árskógi og taka nokkur lög.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðsbrotning kl.
20 á laugardag. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar kl. 11:30 á morgun, kennsla fyrir alla
aldurshópa. Stella Sverrisdóttir sér um
kennslu fullorðinna. Vitnisburðarsamkoma
kl. 16:30 sama dag, fjölbreytt lofgjörðartón-
list, fyrirbænaþjónusta og barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag,
laugardag, og kl. 11 á morgun, sunnudag.
KFUM og K: Sameiginleg samkoma á Sjón-
arhæð kl. 17 á morgun, sunnudag. Fundur í
yngri deild kl. 17 á mánudag fyrir 10 til 12
ára drengi og stúlkur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta á
morgun, sunnudag, kl. 13:30 og síðan kl.
15 á Kristnesspítala. Þeir eru nokkrir sveit-
ungar okkar sem þurfa á bænum og stuðn-
ingi að halda. Höfum það í huga á sunnu-
daginn kemur.
SJÓNARHÆÐ: Fótsporið fyrir 6-12 ára kl.
13.30 á morgun, sunnudag í Lundarskóla.
Sameiginleg samkoma Sjónarhæðar,
Hjálpræðishers og KFUM og K kl. 17 á
morgun. Frjáls vitnisburður og mikill söng-
ur. Fótsporið kl. 17 á Sjónarhæð á þriðju-
dag kl. 17.
Kirkjustarf
SEINNI hluti fyrstu umferðar
spurningakeppni kvenfélagsins Bald-
ursbrár verður annað kvöld, sunnu-
dagskvöldið 18. nóvember og hefst kl.
20.30 í safnaðarsal Glerárkirkju.
Átta lið keppa að þessu sinni en þau
eru: Brekkuskóli, DV, Eldri borgar-
ar, Heilsugæslan, Karlakór Ak-
Geysir, Morgunblaðið, Slippurinn og
Trillukarlar.
Aðgangseyrir kr. 700 og gildir sem
happdrættismiði. Allur ágóði rennur í
söfnun fyrir steindum glugga í Gler-
árkirkju.Skemmtiatriði, kaffi og
drykkur í hléi.
Spurningakeppni
Baldursbrár
AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda fund í Félagsmiðstöðinni Víði-
lundi 22 á Akureyri á mánudags-
kvöld, 19. nóvember, kl. 20. Ræðu-
maður verður Pétur I. Reynisson
forstöðumaður hvítasunnukirkjunn-
ar á Akureyri.
Aglow fundur
KARLMAÐUR hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi
vegna kynferðisbrots. Þá var hon-
um gert að greiða 600 þúsund
krónur auk vaxta í miskabætur og
að greiða þóknun réttargæslu-
manns síns sem og allan sakar-
kostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir
kynferðisbrot með því að hafa
nokkrum sinnum haft kynferðis-
mök við telpu, sem þá var á tíunda
og ellefta aldursári. Brotin áttu
sér stað á árunum 1995 og 1996.
Ætluð kynferðisbrot mannsins
komu upp í venjubundnu sjálfs-
matsviðtali við telpuna hjá hjúkr-
unarfræðingi og barst tilkynning
þar um til Barnaverndarnefndar
Eyjafjarðar í desember á síðasta
ári. Málið var í framhaldinu kært,
maðurinn handtekinn og yfir-
heyrður hjá lögreglu.
Telpan var vinkona dóttur
mannsins og fengu þær stundum
að gista hvor heima hjá annarri.
Brotin framdi maðurinn þegar
stúlkan gisti á heimili hans.
Minntist þess að stúlkan hefði
grátið í eitt eða tvö skipti
Játaði maðurinn brot sín við yf-
irheyrslur hjá lögreglu sem og fyr-
ir dómi. Kvað hann brotin hafa
verið framin síðla kvölds eða að
næturlagi, þegar dóttir hans var
sofnuð og eiginkonan fjarverandi
af heimilinu. Lýsti maðurinn at-
hæfi sínu á þann hátt að hann
hefði látið telpuna krjúpa nakta á
hjónarúminu, hann komið sér fyrir
aftan við hana og nuddað stífum
lim sínum milli fóta hennar um
stund. Minntist maðurinn þess að
stúlkan hefði grátið í eitt eða tvö
skipti meðan á þessu stóð.
Frásögn telpunnar um athæfi
mannsins þótti einlæg og trúverð-
ug í öllum aðalatriðum og bar því
að áliti dómsins að legga frásögn
hennar til grundvallar um að mað-
urinn hafi í endurtekin skipti við-
haft þau kynferðisbrot sem honum
var gefið að sök í ákæru.
Í dómnum segir að brot manns-
ins gagnvart telpunni séu alvarleg
og hafi beinst að mikilvægum
hagsmunum, brotin hafi verið
framin er hún var ung að árum,
gestkomandi og í tímabundinni
umsjá á heimili hans. Maðurinn
hafi hins vegar játað brot sín og
samþykkt að greiða skaðabætur að
hluta auk þess sem hann hafi ekki
áður gerst sekur um háttsemi sem
áhrif hefði við ákvörðun refsingar í
málinu. Því þótti refsing hans
hæfilega ákveðin tveggja ára fang-
elsi.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Tveggja ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot
DAGUR íslenskrar tungu var
haldinn í skólum á Akureyri í
gær á fæðingardegi Jónasar
Hallgrímssonar og gerðu nem-
endur sér dagamun af því til-
efni.
Nemendur framhaldsskólanna,
Menntaskólans á Akureyri og
Verkmenntaskólans á Akureyri,
fengu góða gesti í heimsókn,
þau Felix Bergsson og Þórdísi
Arnljótsdóttur sem fluttu leik-
þátt um ævi og störf Jónasar við
undirleik Reynis Helga Schiöt
og var gerður góður rómur að.
Nemendur á miðstigi í Gler-
árskóla fóru út á meðal fólks og
buðu því að hlýða á ljóðalestur
við góðar undirtektir. Lögðu
þau leið sína í verslunarmið-
stöðvarnar á Glerártorgi og
Sunnuhlíð þar sem lesið var upp
úr ljóðum ýmissa skálda.
Tókst lesturinn með miklum
ágætum, en þó gátu menn ekki
varist brosi þegar ungri dömu
fipaðist í kvæði Tómasar Guð-
mundssonar og las: „Það var
fyrir átta árum, að þú kvaldir
mig með tárum.“
Ljóð í hávegum höfð
Morgunblaðið/Kristján
Leikararnir Þórdís Arnljótsdóttir og Felix Bergs-
son fluttu leikþátt um Jónas Hallgrímsson ásamt
undirleikaranum Reyni Schiöth í Verkmennta-
skólanum á Akureyri á Degi íslenskrar tungu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stúlkur úr Glerárskóla, Oddný Elva Bjarnadóttir,
Fanney Kristjánsdóttir og Berglind Jóna Þor-
láksdóttir, lesa ljóð fyrir starfsfólk og viðskipta-
vini hársnyrtistofunnar Samson.
SJÖ ungmenni á aldrinum 16–19 ára
hafa undirritað samninga um þátt-
töku í afreksþjálfun í alpagreinum
hjá Skíðafélagi Akureyrar. Fimm
þessra ungmenna tilheyra skíða-
landsliði Íslands. Áður höfðu for-
maður Skíðafélags Akureyrar,
skólameistarar Menntaskólans á Ak-
ureyri og Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri og forráðamenn ungmenn-
anna undirritað samningana.
Samkvæmt samningunum skuld-
binda allir aðilar sig til að leggja sig
fram um að hámarksárangur náist
hjá viðkomandi skíðamönnum. Þetta
eru fyrstu samningar sinnar tegund-
ar hér á landi og er mikils vænst af
þeim. Í næstu viku heldur skíðahóp-
urinn í fjögurra vikna æfingaferð til
Geilo í Noregi en gert ráð fyrir
tveimur slíkum ferðum á árinu.
Dagbjartur Halldórsson, stjórnar-
maður í SKA, sagði þegar ungmenn-
in undirrituðu samningana að tölu-
vert væri um að unga fólkið hætti
skíðaiðkun 13 eða 16 ára. Við 13 ára
aldurinn hætti þau þátttöku á Andr-
ésar Andar leikunum og við 16 ára
aldurinn blasi við þeim miklar og
kostnaðarsamar æfingar. Því hafi
margir lagt skíðin á hilluna við þessi
tímamót.
Stunda áfram nám
í MA og VMA
Á vordögum ákvað stjórn SKA að
fara af stað með afreksþjálfun fyrir
félagsmenn sína og er hugmyndin að
gefa ungum og efnilegum skíða-
mönnum á Akureyri tækifæri á iðka
íþrótt sína í heimabyggð í stað þess
að fara til útlanda með þeim kostnaði
er því fylgir. Undirbúnings- og þrek-
æfingar hafa staðið yfir frá því í
byrjun sumars en með ferðinni utan í
næstu viku hefst æfingatímabil
þeirra í snjó.
Ungmennin stunda nám í MA og
VMA og því komu skólameistarar
skólanna að samningunum en skíða-
fólkið þarf að sinna námi sínu af full-
um krafti á ferðum sínum til útlanda
og jafnvel getur komið til þess að
þau þurfi að taka próf á Netinu.
Sjö ungmenni
taka þátt í afreks-
þjálfun á skíðum
Morgunblaðið/Kristján
Ungmennin sem taka þátt í afreksþjálfun Skíðafélags Akureyrar. Aftari
röð f.v. Hrefna Dagbjartsdóttir, Eva Dögg Ólafsdóttir, Arna Arnardótt-
ir og Elín Marta Eiríksdóttir. Fremri röð f.v. Ingvar Steinarsson, Óðinn
Guðmundsson og Skafti Brynjólfsson.
AKUREYRARLIÐIN Þór og KA
eigast við í úrvalsdeildinni í hand-
knattleik mánudagskvöldið 19. nóv-
ember og hefst leikurinn kl. 20.
Liðin mættust síðast í úrvalds-
deild í handbolta á útmánuðum árið
1993 og fór KA þá með sigur, en
lokatölur voru 24:23. Síðan hafa leið-
in einu sinni att saman kappi en það
var í bikarkeppni árið 1998 og vann
KA leikinn með einu marki, 23:22.
Forsala aðgöngumiða á leikinn
hefst í dag, laugardag, í verslunum
Pennans-Bókavals í Hafnarstræti og
á Glerártorgi.
Fyrsti leik-
urinn í úrvals-
deild í 8 ár
Akureyrarliðin Þór og
KA mætast í handbolta
FYRSTI samlestur á verkinu Slav-
ar, sem er næsta verkefni Leikfélags
Akureyrar, var í vikunni.
Höfundur verksins er Tony Kus-
hner og er það í leikstjórn Halldórs
E. Laxness sem jafnframt hefur um-
sjón með leikmynd og búningum.
Slavar eru kraftmikið, skemmtilegt,
ögrandi og afar nýstárlegt leikrit,
segir í frétt frá leikfélaginu, og er
sýning þess frumflutningur á Ís-
landi. Höfundurinn, sem er banda-
rískur, hefur hlotið merkustu verð-
laun sem veitt eru fyrir leikritaskrif
þar í landi, meðal annars Pulitzer-
verðlaunin og hann hefur tvívegis
fengið Tony-verðlaunin.
Yrkisefnið er fall Sovétríkjanna og
skipbrot sósíalismans í Austur-Evr-
ópu. Sögusviðið er Moskva vorið
1985 og Síbería 1992. Það verður
frumsýnt 18. janúar 2002.
Leikfélag Akureyrar
Samlestur á
verkinu Slavar