Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Daily Vits
FRÁ
S
ta
n
sl
a
u
s
o
rk
a
Inniheldur 29 tegundir af
vítamínum, steinefnum og
Rautt Panax Ginseng.
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Apótekin
FRÍHÖFNIN
NÝ TILLAGA að skipulagi
Skuggahverfis verður kynnt
íbúum hverfisins í lok mán-
aðarins. Að sögn eins af
hönnuðum tillögunnar er í
henni gengið mun skemur í
að að rífa hús sem fyrir eru
á svæðinu auk þess sem lóð-
armörk eru í grófum drátt-
um látin halda sér eins og
þau eru.
Svæðið sem um ræðir af-
markast af Skúlagötu,
Klapparstíg, Lindargötu og
Frakkastíg. Í maí síðastliðn-
um var ákveðið að fresta
deiliskipulagi milli Lindar-
götu og Hverfisgötu eftir
mótmæli íbúa á svæðinu, en
þær tillögur sem lágu fyrir
þá gerðu ráð fyrir að um 40
hús yrðu rifin, langflest á
efri hluta svæðisins.
Að sögn Ögmundar
Skarphéðinssonar, arkitekts
hjá Hornsteinum arkitekt-
um, hafa mestu breytingarn-
ar á deiliskipulagstillögunum
orðið á milli Lindargötu og
Hverfisgötu en samstarfsað-
ilar Hornsteina eru dönsku
hönnuðirnir Arkitekterne
Maa Schmidt og Hammer og
Lassen k/s og VSÓ ráðgjöf.
„Fyrri hugmyndir gerðu
ráð fyrir að þarna yrði mun
meira byggt upp og því
meira rifið. Þá voru menn að
styðjast við niðurstöður
húsakönnunar Árbæjarsafns
sem hefur skilgreint hvaða
hluti byggðarinnar þarna
hefur verndunargildi og
hvaða hluti ekki. Í þeirri til-
lögu var kannski gengið
lengra í því að fjarlægja þau
hús sem höfðu ekki afdrátt-
arlaust verndunargildi.
Í þessum tillögum sem nú
liggja fyrir er gengið mun
skemur í þeim efnum, þann-
ig að lagt er til að mun fleiri
hús geti verið þarna áfram.
Hins vegar er það auðvitað
eigendanna sjálfra að ákveða
hvort þeir vilji endurnýta
þau eða byggja öðruvísi upp
á lóðunum sínum. Þannig að
það eru kannski mestu frá-
hvörfin,“ segir Ögmundur.
14 til 24 hús fjarlægð
Þá segir hann að önnur
meginbreyting sé að Vatns-
stígurinn verði látinn halda
sér í núverandi mynd. „Í
fyrri hugmynd var gert ráð
fyrir að hann yrði fluttur til
norðurs. Þannig að nú er
lögð meiri áhersla á að varð-
veita það byggðarmynstur
sem fyrir er á svæðinu og
ekki farið í eins róttækar
breytingar. Þetta er kannski
í takt við sjónarmið íbúa
þarna í hverfinu.“
Samkvæmt tillögunni er
gert ráð fyrir að fjarlægja
eða flytja 14 til 24 bygg-
ingar, eftir því hvaða út-
færsla verður fyrir valinu.
„Engin þessara bygginga
hefur verndunargildi, sam-
kvæmt úttekt Árbæjarsafns,
en af þeim eru 5 í eigu
Reykjavíkurborgar,“ segir
Ögmundur. „Það sem er
meginmálið í þessu skipulagi
er að það eru smærri ein-
ingar sem eru byggðar upp
þannig að í grófum dráttum
er núverandi lóðarmörkum
haldið. Gamla hugmyndin
var sú að það þyrfti kannski
að slá saman 5 til 8 lóðum til
að mynda eina fram-
kvæmdaheild en nú er meira
svigrúm fyrir einstaka lóð-
arhafa að byggja upp á sín-
um eigin lóðum í samræmi
við meginhugmyndir skipu-
lagsins.“
Hann segir þetta bjóða
fleiri kosti fyrir íbúana.
„Þeir sem vilja taka þarna
þátt í uppbyggingu geta gert
það og þeir sem vilja það
ekki ráða því þá. Þannig að á
endanum getur þetta leitt til
þess að þeir sem eiga þarna
eldri hús kjósi að fjarlægja
þau eða flytja og byggja ný
hús á lóðunum og þá er þeim
möguleika haldið opnum.
Það er þá algerlega ákvörð-
un íbúanna sjálfra.“
Ekkert rifið án
samþykkis eigenda
Ögmundur undirstrikar að
húsin muni einungis fara ná-
ist samkomulag við eigendur
um það. „Það verður ekki
eitt einasta hús fjarlægt, rif-
ið eða flutt, nema eigendur
séu sammála því og það
verður ekki farið í neina
eignaupptöku eða slíkt. Það
er skýr stefna um að sam-
komulag verði að vera á milli
aðila,“ segir hann.
Hvað varðar neðri hluta
svæðisins segir Ögmundur
að tillagan sé í öllum meg-
indráttum óbreytt á milli
Skúlagötu og Lindargötu.
„Það er svipað byggingar-
magn og rætt hefur verið
um en menn hafa þróað hug-
myndina áfram þannig að af-
staða einstakra hluta svæð-
isins hefur svolítið breyst
innbyrðis. En byggingar-
magnið er svipað og sömu-
leiðis hæð á húsum og annað
þess háttar, þannig að mestu
tíðindin eru á svæðinu milli
Lindargötu og Hverfisgötu.“
Hann segir afskaplega
mikilvægt að uppbygging
efri og neðri hluta svæðisins
haldist í hendur. „Með þess-
um hugmyndum teljum við
að það verði tryggt að hverf-
ið fái ákveðna endurnýjun
sem er mjög mikilvægt.
Þetta hefur verið alveg
staðnað undanfarin ár fyrir
utan að einstaka húseigend-
ur hafa ráðist í endurbætur
á eigin húsum en engin
heildaruppbygging hefur átt
sér þarna stað. Með því að
prjóna saman uppbygg-
inguna á efra og neðra svæð-
inu, viðhalda byggðar-
mynstrinu á efra svæðinu og
tryggja ákveðinn grundvöll
fyrir þjónustu þarna eru
menn að vonast til að hægt
verði að ná fram upphafleg-
um markmiðum með skipu-
laginu þó að útfærslan sé þó
nokkuð öðruvísi en upphaf-
lega var lagt af stað með.“
Kynningarfundur
hinn 28. nóvember
Skipulags- og byggingar-
nefnd Reykjavíkur hefur
samþykkt að tillagan verði
kynnt fyrir hagsmunaaðil-
um, þar með íbúum á svæð-
inu og verður kynningar-
fundur haldinn í Tjarnarsal
Ráðhússins hinn 27. nóvem-
ber kl. 17. Íbúum gefst þá
kostur á að koma fram með
sín sjónarmið varðandi til-
löguna áður en ákveðið verð-
ur að auglýsa hana formlega.
Auglýsingatíminn auk at-
hugasemdafrests er 6 vikur
áður en tillagan er endan-
lega samþykkt.
„Næsta skref er að fá
fram sjónarmið íbúanna áður
en skipulagsnefnd fjallar um
auglýsingu hennar,“ segir
Ögmundur.
Ný tillaga að deiliskipulagi verður kynnt íbúum á fundi innan skamms
Óbreyttur Vatnsstígur
og færri hús fjarlægð
!
" #
$%&"
'%()"
*
+
!
" ,!-
Skuggahverfi
Litlar breytingar á skipulagi milli Lindargötu og Skúlagötu