Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 39

Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 39 Hafrannsóknastofnunin hef-ur tekið gagnrýni illa oger ófús til faglegrar um-ræðu í kjölfar gagnrýni. Þetta kom m.a. fram á fyrirspurna- þingi sjávarútvegsráðuneytisins um stofnstærðarmat þorskstofnsins sem hófst í gær. Á þinginu var mjög deilt um aðferðir Hafrannsóknastofnunar- innar við stofnstærðarmatið og komu fram ólík sjónarmið um hvort auka ætti sókn í smáþorsk til uppbygging- ar stofnsins eða hvort halda ætti áfram þeirri stefnu að friða ókyn- þroska fisk. „Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar- innar síðastliðið vor varð okkur öllum mikil vonbrigði, þar sem stofnstærð þorsksins mældist mun minni en áð- ur var talið. Við stóðum þannig frammi fyrir þeirri staðreynd að samkvæmt aflareglu yrðu aðeins veidd 190.000 tonn af þorski á yfir- standandi fiskveiðiári, en í skýrslu stofnunarinar tveimur árum áður var talið að við gætum veitt 275.000 tonn á þessu fiskveiðiári,“ sagði Árni Mat- hiesen sjávarútvegsráðherra er hann setti fyrirspurnarþingið. Uppbyggileg gagnrýni mikils verð Árni sagði að miklar umræður um nákvæmni fiskifræðirannsókna Haf- rannsóknastofnunar hefðu fylgt í kjölfarið. Hann hefði tekið þá ákvörð- un engu að síður að fara að ráðum stofnunarinnar, enda væri vísinda- starf stofnunarinnar það bezta mat, sem Íslendingar hefðu til að byggja fiskeiðistjórnun á. „Uppbyggileg gagnrýni er mikils verð og hjálpar vísindamönnum í störfum sínum, en óábyrg hleypidómafull gagnrýni bætir hins vegar engu við nema síður sé,“ sagði Árni. Árleg afrakstursgeta þorsk- stofnsins um 300.000 tonn Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, rakti starf- semi stofnunarinnar og benti meðal annars á að árlega væru gerðar 200.000 mælingar hjá stofnuninni og 25.000 þorskar vegnir og metnir. Hann benti á að gögn stofnunarinnar sýndu að frávik í stofnstærðarmati hefðu að meðaltali verið lítil, á bilinu 5 til 20%. Þegar þau hefðu verið mest mætti rekja það til minni göngu þorsks frá Grænlandi en gert hefði verið ráð fyrir eða vegna minni þyngdar þorsk- ins vegna snöggra breytinga á stærð loðnustofnsins. Mestu frávikin í spám hefðu verið nú síðustu þrjú árin. Skýringin á því væri meðal annars lækkun meðalþyngdar, aukinn veið- anleiki, breytingar á sókn, aukið af- rán hvala og hugsanlega aukið brott- kast. Hann sagði mikilvægt að miða væntingar um afrakstur þorskstofn- ins við raunverulega burðargetu svæðisins fyrir þorsk, sem líklegast væri nú rúmlega 300.000 tonn. Jóhann var m.a. spurður að því hvers vegna ekki væri haft nánara samband við sjómenn við upplýsinga- öflun. Sagði hann að öllum vísinda- mönnum væri hollt og skylt að vera í öflugu og virku sambandi við sjó- menn og skipstjóra. Sagði hann að þessi tengsl væru of lítil í dag og úr því þyrfti að bæta. Takmarka sóknina Björn Ævar Steinarsson, fiski- fræðingur á Hafrannsóknastofnun kynnti aðferðir stofnunarinnar við stofnstærðarmat með áherzlu á þorskstofninn út frá líffræðilegum sjónarmiðum. Hann sagði greinilegt samband milli stærðar hrygningar- stofns og nýliðunar og að stærri stofn gæfi betri nýliðun. Jafnframt benti hann á það að stórar hrygnur skiluðu mun betri hrygningu og sagði að eina leiðin til að byggja stofninn upp væri að takmarka sóknina. Aukið afrán hvala og brottkast gæti skekkt myndina Höskuldur Björnsson, verkfræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, fjallaði einnig um aðferðir við stofn- stærðarmat, en út frá tölfræðilegu sjónarmiði. Hann fór yfir þær aðferð- ir sem hafa verið notaðar við stofn- stærðarmat á undanförnum áratug- um og þá aðallega svokallaðar aldurs-aflaaðferðir. Þá ræddi hann notkun á vísitölum úr stofnmæling- um við samstillingu í stofnstærðar- mati. Hann talaði loks um möguleika á að meta óskráðan dauða, náttúru- legan dauða auk brottkasts, í stofn- mati. Hann sagði að aukið afrán hvals gæti skekkt myndina og sömu sögu væri að segja af brottkasti, ykist það. Uppbygging hefur mistekist Jón Kristjánsson fiskifræðingur og sjálfstætt starfandi ráðgjafi, ræddi það sem betur má fara í störf- um Hafrannsóknastofnunarinnar við stofnstærðarmat, út frá líffræðilegu sjónarmiði. Sagði hann að tilraunir tilað byggja upp stofninn með friðun hefðu þannig mistekist. Sagði Jón að margt villti sýn. M.a. væri náttúruleg dánartala þorsks ekki fasti eins og líkön Hafrannsóknastofnunarinnar gerðu ráð fyrir, heldur væri hún breytileg eftir ríkjandi aðstæðum, aldri fiska og samkeppni um fæðu. Á sama hátt benti Jón á að vaxtarhraði væri ekki fasti, heldur væri hann háð- ur fæðu og þar með stofnstærð og samkeppni frá öðrum tegundum. Ekki væri lögð nægileg áhersla á að fylgjast með vaxtarhraða svæðis- bundið og stýra veiðiálagi í samræmi við það. Sagði Jón að aflamarksstýr- ing eða kvótastýring ýtti enn frekar undir misnýtingu miðanna, enda leit- uðust menn þá við að velja besta fisk- inn. Ennfremur taldi Jón að rök- semdir Hafrannsóknastofnunarinnar um nauðsyn stórs hrygningarstofns væru léttvægar. Unnt væri að sýna fram á að í mörgum fiskistofnum væri öfugt hlutfall milli nýliðunar og stærðar hrygningarstofns. „Haf- rannsóknastofnunin hefur tekið gagnrýni illa og lítt eða ekki svarað henni á viðunandi hátt. Í umsögnum sínum til sjávarútvegsráðherra hefur stofnunin gert lítið úr rökstuddum faglegum ábendingum frá utanað- komandi sérfræðingum og stofnunin hefur einnig gefið ráðherra neikvæð- ar umsagnir við rannsóknarbeiðnum annarra og þar með lagt stein í götu vísindamanna utan stofnunarinnar,“ sagði Jón. Í svari við fyrirspurn sagði Jón að afrakstur fiskistofna yrði bestur þeg- ar veiddar væru allar stærðir af fiski, einnig smáfiskur. Þannig næðist jafnvægi í nýtingunni. Þess vegna þyrfti að láta reyna á sóknarstýringu við fiskveiðar, jafnvel mætti gera á því svæðisbundnar tilraunir. Hann sagðist þó ekki getað svarað því hversu mikla sókn þyrfti að leyfa í smáfisk, umfram það sem nú er gert. Þorskstofninn að hruni kominn Einar Júlíusson, eðlisfræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri, fjallaði einnig um það sem betur má fara við stofnstærðarmat Hafrann- sóknastofnunarinnar en út frá töl- fræðilegu sjónarmiði. Sagði hann þorskstofninn að hruni kominn, stærð hans væri nú innan við 300 þús- und tonn. Þessi staða væri veiklyndi stofnunarinnar að kenna, rangri veiðiráðgjöf, ekki hefðu verið gerðar tilraunir til að leiðrétta heildarafla- markið fyrir ofveiði fyrri ára, auk þess sem stofnunin skráði þorsk- stofninn alltaf helmingi stærri en hann raunverulega er. Misskráningin væri samt ekki beint ofmat eða röng mæling, heldur fremur misskilningur á hugtakinu stofnstærð. Stofnunin hafi auk þess verulega vanmetið ný- liðun þorskstofnsins eða hversu stór- ir einstaka árgangar voru, sérstak- lega stórir árgangar. Einar tók þó fram að fræðilega séð væri enn hægt að bjarga þorskstofninum. Í yfirliti Tuma Tómassonar, fiski- fræðings og forstöðumanns Sjávar- útvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna, um þá vísindalegu og faglegu gagn- rýni sem komið hefur fram á störf Hafrannsóknastofnunarinnar við stofnstærðarmat og veiðiráðgjöf, kom fram að gagnrýnin hefði mun fremur beinst að túlkun og úrvinnslu gagna en öflun þeirra. Gagnrýni hefði helst beinst að notkun náttúrulegrar dánartölu við útreikninga stofnmats og að þeirri stefnu að koma í veg fyrir veiði smáfisks, þriggja ára og yngri, og að draga verulega úr veiðum á fjögurra ára fiski. Ennfremur teldu margir að þorskstofninn við Ísland væri samsettur úr mörgum minni stofnum og hætt væri við að sumir þeirra væru ofnýttir og aðrir van- nýttir með núverandi fyrirkomulagi, þar sem veiðiráðgjöf Hafrannsókna- stofnunarinnar miðaðist við heildar- aflamark í hverri tegund. Tumi sagði að stofnunin væri í mörgum tilfellum ófús til faglegrar umræðu í kjölfar gagnrýni. Sagði hann að veiðiráðgjöf Hafrannsókna- stofnunarinnar væri ekki haf- in yfir gagnrýni, gagnrýni væri nauðsynleg og gæti að- eins bætt ráðgjöfina og eflt stofn- unina. Í svari við fyrirspurn sagði Tumi að umræðan um störf stofnun- arinnar hefði oft farið út af sporinu og orðið að persónulegu skítkasti um aukaatriði. Það ætti jafnt við um Haf- rannsóknastofnunina og þá sem beindu gagnrýni að henni. Stórfiskagrisjun? Í fyrirspurnum að loknum fram- söguerindum var bæði spurt um töl- fræðilegar aðferðir og líffræðilegar við stofnstærðarmat, hvort verið gæti að of lítil sókn gæti rústað fiski- stofnum, hvort ekki þyrfti að grisja stofna og hvort smáfiskavernd Haf- rannsóknastofnunar leiddi ekki til stórfiskagrisjunar. Í svörum frummælenda sem starfa á Hafrannsóknastofnuninni kom meðal annars fram að verndun á smáfiski væri nauðsynleg til að byggja upp stofninn, að of lítil sókn gæti ekki verið til skaða og að grisjun væri alls ekki leiðin til að byggja stofninn upp. Það hefði ekki áhrif á stofnstærðarmat hvaða fiskveiði- stjórnkerfi væri notað og að togara- rallið svokallað væri gott tæki til stofnstærðarmats. Þá kom fram að skilnaður ráðgjafar og rannsókna var ekki talinn skynsamlegur og að slaka stöðu þorskstofnsins mætti umfram allt rekja til ofveiði. Fyrirspurnaþinginu lýkur í dag. Hafrannsóknastofnunin gagnrýnd á fyrirspurnaþingi Ófús til faglegr- ar umræðu Hörð gagnrýni kom fram á störf Hafrann- sóknastofnunarinnar á fyrirspurnaþingi um stofnstærðarmat í gær og hún sökuð um að taka óstinnt upp gagnrýni á starfsaðferðir sínar. ’ Umræðan um störf stofn-unarinnar hefur oft farið út af sporinu og orðið að persónu- legu skítkasti um aukaatriði. ‘ avæða ennta- m n und- r væri amsýn ferðar- hann mfylk- ðtæku óla til il end- vildi fælist dreifðu r sýn um að í sama að vera reldra t barn viljum kingin tekin en sú öllum taf að t fyrir a auð- hvort fi, fall- rásir í við að llu að- nnt að ríkis- m. „Á fyrir- rtækj- um, ekki síst sprotafyrirtækjum nýja hagkerfisins. Þeim blæðir vegna hárra vaxta, vegna gengis- fellingar, vegna verðbólgunnar, vegna hækkunar á flutningsgjöldum. Þeim mun ekki síst blæða vegna fyrirhugaðrar hækkunar ríkis- stjórnarinnar á tryggingagjaldi, sem við núverandi aðstæður er ekk- ert annað en bylmingshögg fyrir ákaflega mörg smáfyrirtæki í land- inu.“ Ranglæti í gjafakvótanum Össur sagði að mesta ranglæti í íslenskum efnahagsmálum væri gjafakvótinn. „Örfáir menn hafa náð yfirráðum yfir sameign okkar í sjónum. Það er ekki hægt að verja að fáeinir útvaldir geti rakað saman milljörðum með því að selja óveidd- an fisk í sjónum, sem þeir eiga ekki – heldur við, þjóðin! Það ranglæti þolum við aldrei. Kjarninn í auðlindastefnu okkar er stríðsyfirlýsing gagnvart gjafakvót- anum. Við höfum leitt baráttuna fyrir afnámi hans,“ sagði Össur. „Fljótvirkasta leiðin til að draga úr brottkastinu er því ekki að hringja á lögguna heldur lækka verðið á kvótanum. Það er hægt með því að innleiða réttlæti og jafn- ræði, innkalla gjafakvótann í áföng- um, bjóða hann til leigu á markaðn- um og auka þannig framboðið. Um leið og framboðið eykst minnkar þrýstingurinn á brottkast- ið. Þegar búið er að innkalla allan kvótann verður leigugjaldið aðeins brot af okurverðinu sem nú er við lýði. Um leið dregur stórlega úr þrýstingnum á brottkastið sem er innbyggt í núverandi kerfi og rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyr- irtækjanna verður heilbrigðara.“ Póstatkvæðagreiðsla um Evrópumál Fyrir landsfundinum liggur ítar- leg skýrsla sem Samfylkingin lét vinna um Evrópumál. Össur sagði að mikil vinna hefði verið lögð í stefnumótun í þessum málaflokki. „Spurningin um tengsl Íslands við Evrópusambandið er eitt stærsta viðfangsefni stjórnmálanna í náinni framtíð. Ástæðan er einfald- lega sú að Evrópusambandið er mikilvægasti samningavettvangur evrópskra ríkja. Við eigum ekki beina aðild að honum en tökum af- leiðingum ákvarðana á þeim samn- ingavettvangi á mörgum mikilvæg- um sviðum löggjafar og efnahagsstarfsemi. Ýmis sannfærandi rök koma fram í Evrópuúttektinni um kosti þess að huga að aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Ég hef sannfærst um það enn betur en áður í þessari vinnu að kostirnir við aðild að Evrópusam- bandinu reynist þyngri á metum en gallarnir,“ sagði Össur. Össur sagðist leggja til við lands- fundinn að Evrópuúttekt Samfylk- ingarinnar yrði tekin til umræðu og kynningar í öllum félögum flokksins á næstu mánuðum. Þannig fengju allir flokksmenn tækifæri til að gaumgæfa öll rök með og á móti. Hann sagðist vilja að að lokinni um- ræðunni færi fram almenn póst- kosning um málið meðal flokks- manna. „Í þessari flokkskosningu verði afstaða Samfylkingarinnar gagnvart umsókn að Evrópusam- bandinu ráðin.“ Össur vék að deilum um nýtingu hálendisins. Meginreglan ætti að vera sú að ekki yrði ráðist í neinar stórframkvæmdir nema þær væru í anda þeirrar rammaáætlunar um nýtingu lands sem unnið er að. „Varðandi virkjun við Kára- hnjúka eru uppi ýmis sjónarmið í samfélaginu öllu. Nú er það að mínu mati meginmálið að láta feril um- hverfismats ganga sinn gang og skila niðurstöðum sem hægt er að byggja á hina pólitísku afstöðu. Þetta var sameiginleg og einróma ákvörðun þingflokks og fram- kvæmdastjórnar á fundi 9. septem- ber. Ég veit að hjá þeim félögum okkar sem láta sig Kárahnjúka- virkjun mestu varða er sátt um þessa leið.“ Össur sagði að Samfylkingin væri sterkari en stjórnmálaumhverfið héldi. Andstæðingir hefðu ekki sparað árásirnar á þessum mótun- artíma Samfylkingarinnar. Þær sýndu að þeir óttuðust ekkert eins og sterka hreyfingu jafnaðar- manna. Flokkurinn hefði hins vegar líka fengið uppbyggilega gagnrýni. Þessi gagnrýndi kenndi flokknum að menn þyrftu að vinna vel, hlusta á fólkið og setja sér jarðbundin markmið um fylgi og áhrif og láta aðra um að byggja skýjaborgir. með ræðu Össurar Skarphéðinssonar kkar er nnsins Morgunblaðið/Kristinn nnar, var mjög vel tekið á landsfundinum. un meira en áður hefur þekkst eða yfir 50% og Samfylkingin ætti enskra stjórnmálaflokka að taka ð í þessum efnum. Þórunn Svein- dóttir sagði stækkun ESB myndu iri áhrif en menn grunaði. Ein- ma hlyti að koma að því að um- iddu að ákveðnum endapunkti og di gerast fyrr en menn ættu von á. ur Bergmann Eiríksson sagði að n um aðild Íslendinga að Evrópu- dinu snerist fyrst og síðast um þrjá llveldið, fiskinn og peninga og að ingar aðildar spiluðu á þessa að væri hins vegar staðreynd að gar hefðu fórnað fullveldi með num um evrópska efnahags- Gerðust Íslendingar aftur á móti ngjum við hlutdeild í því fullveldi hefðum misst. Hann benti og á að shugtakið hefði verið og væri að á tímum örrar alþjóðavæðingar. gði fátt í stefnu ESB í sjáv- smálum sem Íslendingar gætu ekki sætt sig við og þetta hefði m.a. komið fram í ummælum Franz Fischlers í Morg- unblaðinu. Þá væri ljóst að efnahagslegur ábati væri að því ef Íslendingar gerðust aðilar að myntbandalaginu. Nokkrir urðu til að benda á að það væri ekkert sérstakt sem ræki Íslendinga til þess að taka afstöðu til aðildar að Evrópu- sambandinu. Þá var á það bent að hag- vöxtur hefði hér verið mun meiri mörg undanfarin ár en í ESB auk þess sem at- vinnuleysi væri langt umfram það sem Ís- lendingar þekktu. Því væri erfitt að sjá eftir hverju Íslendingar væru að slægjast með aðild að ESB; margir hagfræðingar hefðu einnig bent á að efnahagslegum hagsmunum Íslendinga væri best borgið utan ESB og með sjálfstæðri pen- ingastefnu. Ágúst Ágústsson sagði að það væri rangt að hafna aðildarsamningi sem ekki væri til. Íslendingar þyrftu beinlínis að sækja um aðild til þess að meta málið og taka síðan afstöðu. ar ekki til lengdar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.