Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 69
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 69
ANNA Kristine Magnúsdóttir ætti að vera lands-
mönnum að góðu kunn fyrir útvarpsþætti sína Á
milli mjalta og messu. Hún hefur nú ritað bók
sem hún kallar Litróf lífsins en þar ræðir hún við
fimm konur sem eiga það sammerkt að hafa siglt
á milli skers og báru í lífsins ólgusjó. Allar hafa
þær þó skilað sér heilar í höfn og í bókinni deila
þær reynslu sinni, sorgum og sigrum með les-
endum.
Konurnar eru þær Anna Margrét Jónsdóttir,
Sigríður Geirsdóttir, Þuríður Billich, Sigurjóna
Marsibil Lúthersdóttir og Margrét J. Pálmadótt-
ir.
Á dögunum hittist þessi hópur heima hjá Önnu
og þáði góðgerðir; kaffi og líkast til bók með því.
Ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn af tilefninu
og smellti mynd af hópnum.
Morgunblaðið/Þorkell
Kvennafansinn föngulegi hittist í kaffisamsæti hjá Önnu Kristine: (f.v.) Sigurjóna Marsibil, Anna
Margrét, Anna Kristine, Þuríður Billich, Sigríður og Margrét.
Fimm
kjarnakonur
Anna Kristine Magnúsdóttir skrifaði bókina Litróf lífsins
Svefngengillinn
Sleepwalker
Hrollvekja
Svíþjóð/Noregur, 2000. Myndform VHS.
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Jo-
hannes Runeborg. Aðalhlutverk Ralph
Carlsson.
SVEFNGENGILLINN er kræf
hryllingsmynd sem fer sér að engu
óðslega í uppbygginu söguþráðs og
andrúmslofts og nær fyrir vikið fram
sterkum áhrifum. Þar segir frá
byggingarverkfræðingi sem virðist
lifa fullkomnu lífi, er í góðu starfi og
á ástríka fjöl-
skyldu. Dag einn
breytist allt er
hann vaknar al-
blóðugur í rúmi
sínu og fjölskyldan
er horfin. Hann til-
kynnir hvarfið til
yfirvalda en óttast
þó að sú nýlega
venja hans að
ganga í svefni kunni að tengjast
hvarfi fjölskyldunnar. Þegar óvissan
verður óbærileg bregður hann á það
ráð að festa við sig myndbandsupp-
tökuvél áður en hann fer að sofa og
skal það viðurkennast hér og nú, að
þegar hann horfir á afrakstur nætur-
innar í sjónvarpinu heima hjá sér
nær leikstjórinn að skapa einhverja
óhugnanlegustu stemmningu sem ég
hef lengi séð.
Fléttan er margbrotin, spennan
helst fram undir það síðasta og mörg
atriði fá kalt vatn til að renna milli
skinns og hörunds. Fyrsta flokks
efni fyrir spennufíkla. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Undirliggj-
andi hryll-
ingur
Að njóta lífsins
(La Gran Vida/Living it up)
Gamanmynd
Spánn 2000. Skífan VHS. Öllum leyfð.
Leikstjórn Antonio Cuadri. Aðalhlutverk
Carlmelo Gómes, Salma Hayek.
HÉR ER á ferð lítil snotur
spænsk gamanmynd með alvarleg-
um undirtón um lífsleiðan stræt-
isvagnstjóra sem ákveður að rasa
út áður en lætur verða af því að
fremja sjálfsmorð. Hann fær sand
af seðlum að láni frá okurlánurum
og ætlar sér að lifa
lífi milljónamær-
ings sína síðustu
daga. Hlutirnir
taka hins vegar
allt aðra stefnu
þegar hann fellur
fyrir gengilbeinu
og áttar sig á að
lífið er svo sann-
arlega þess virði
að lifa því.
Salma Hayek leikur gengilbein-
una og gerir heilmikið fyrir þessa
þægilegu og óvenju aðgengilegu
mynd af evrópskri mynd að vera.
Hún sver sig líka mun frekar í
ætt við rómantískar gamanmyndir
Hollywood en nokkuð annað og
kemur fyrst upp í hugann Pretty
Woman enda virðast höfundarnir
hafa verið fullkomlega meðvitaðir
um það. Um leið og það er athygl-
isvert að sjá hvernig spænskur
kvikmyndagerðarmaður tekur á al-
þekktri Hollywood-uppskrift og
tekst býsna vel er það jafnframt
helsti galli myndarinnar. Klisjurnar
eru einfaldlega fullmargar. Sem af-
þreying er myndin meinlaus og
þægileg. Skarphéðinn Guðmundsson
Fagra
kona