Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, lagði til á
landsfundi Samfylkingarinnar í
gær að flokkurinn tæki ákvörðun
um afstöðu til umsóknar að Evr-
ópusambandinu í almennri póst-
kosningu. Til grundvallar þessari
kosningu liggur úttekt, sem gerð
hefur verið á vegum Samfylkingar-
innar á samningsmarkmiðum Ís-
lendinga ef til aðildarviðræðna
kæmi.
Össur sagði í setningarræðu á
landsfundinum að ýmis sannfær-
andi rök kæmu fram í Evrópuút-
tektinni um kosti þess að huga að
aðildarumsókn að Evrópusamband-
inu. Hann hefði sjálfur sannfærst
um það enn betur en áður í þessari
vinnu að kostirnir við aðild að Evr-
ópusambandinu myndu reynast
þyngri á metum en gallarnir.
Össur sagði að í samræmi við
þann lýðræðishátt sem flokkurinn
boðaði væri það eðlilegasti fram-
gangur stefnumótunar flokksins
um aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið að flokksmenn allir
tækju þá ákvörðun með skynsam-
legri yfirvegun og íhugun á grunni
fyrirliggjandi upplýsinga.
„Tillaga mín er því sú að nú verði
Evrópuúttekt Samfylkingarinnar
til umræðu og kynningar í öllum fé-
lögum flokksins á næstu mánuðum.
Þá fá flokksmenn allir tækifæri til
að gaumgæfa öll rök með og á móti
á svipaðan hátt og helstu áhuga-
menn í okkar röðum gerðu kringum
Evrópuúttektina. Að lokinni ítar-
legri umfjöllun flokksfunda og op-
inna funda um málið fari fram al-
menn póstkosning um málið meðal
flokksmanna. Í þessari flokkskosn-
ingu verði afstaða Samfylkingar-
innar gagnvart umsókn að Evrópu-
sambandinu ráðin,“ sagði Össur.
Ekki mjúk lending
í efnahagsmálum
Össur gagnrýndi efnahagsstjórn
ríkisstjórnarinnar og sagði að þau
áföll sem riðið hefðu yfir væru ekki
öll óhjákvæmileg.
„Hvar er hin mjúka lending sem
forsætisráðherra lofaði? Birtist hún
í gengisfellingu sem nemur rúmum
25%? Birtist hún í verðbólgu sem er
meira en þrefalt hærri en í ná-
grannalöndunum? Birtist hún í
vaxtastigi sem er að sliga fjölskyld-
ur og fyrirtæki? Er þetta snerti-
lendingin sem fjármálaráðherrann
lofaði?“ spurði Össur í ræðunni.
Formaður Samfylkingarinnar við upphaf landsfundar
Morgunblaðið/Kristinn
Össur Skarphéðinsson sagði að framtíðarsýn Samfylkingarinnar væri framtíðarsýn jafnaðarmannsins.
Póstkosning
um stefnuna í
Evrópumálum
Framtíðarsýn/38
Í DAG hefst Landsglíman í
íþróttahúsinu á Laugarvatni og
heitir hún nú Primo-Leppin-
mótaröðin. Er hún kennd við
samnefndan orkudrykk. Þetta er
í fyrsta sinn sem Glímusamband
Íslands gerir samning við fyrir-
tæki um nafn á keppni en þetta er
algengt í öðrum íþróttagreinum.
Aðspurður hvort það væri ekki
með blendnum hug að Glímusam-
bandið kenndi þjóðaríþróttina við
vörumerki sagði Kristján Ingv-
arsson, formaður sambandsins,
að nýir siðir fylgdu nýjum herr-
um. Reksturinn kostaði stöðugt
meira og við því yrði að bregðast
með þessum hætti. Með þessu
væri líka verið að reyna að fá nýtt
blóð í íþróttina, auka fjölbreytn-
ina og þátttökuna. Það virtist
hafa tekist því í þessu fyrsta móti
af þremur væru sjö karlar, sex
konur og fjórir unglingar skráðir
til leiks.
Grettisbeltið heilagt
Hann sagði að nýju fyrirkomu-
lagi fylgdi ákveðinn hvati því þeir
sem tækju þátt í öllum mótunum
fengju ákveðna viðurkenningu frá
Leppin, en hin mótin verða í jan-
úar og febrúar.
Spurður hvort til stæði að
skipta um nafn á Grettisbeltinu
sagði hann svo ekki vera. „Grett-
isbeltið er heilagt. Það er elsti og
dýrasti keppnisverðlaunagripur á
Íslandi og hefur sérstöðu,“ segir
hann.
Landsglíman
kennd við
orkudrykk
SKÓLABÖRN um allt land héldu í
gær upp á Dag íslenskrar tungu á
afmælisdegi Jónasar Hallgríms-
sonar með lestri á sögum og ljóðum.
Nemendur og kennarar grunn-
skóla Mýrdalshrepps höfðu skreytt
skólann og sáu um að skemmta
fólki með upplestri á þjóðsögum og
söng. Ómar Ragnarsson var heið-
ursgestur og flutti hann þjóðleg
gamanmál við mikinn fögnuð. Síðan
sáu nemendur og starfsfólk um
veitingar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Dagur íslenskrar tungu
Fagradal. Morgunblaðið.
Dagur íslenskrar/6
FÉLAGSÞJÓNUSTAN í Reykjavík
hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í
læknisþjónustu á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum, heimili aldraðra í
Seljahlíð og á Vitatorgi þar sem er
dagdeild fyrir minnisskerta og verða
útboðsgögn afhent á þriðjudaginn.
Að sögn Þórdísar Lóu Þórhalls-
dóttur, framkvæmdastjóra þjónustu-
sviðs Félagsþjónustunnar, er útboð af
þessu tagi nýjung í læknisþjónustu á
dvalar- og hjúkrunarheimilum. Mark-
miðið sé að stuðla að hagkvæmum
rekstri í læknisþjónustu fyrir aldraða
auk þess að ná fram betri nýtingu
fjármagns stofnunarinnar án þess að
slakað sé á gæðakröfum fyrir þá þjón-
ustu sem veitt er.
Nýtt form sem stuðla á
að hagkvæmum rekstri
„Það má segja að þetta sé nýtt form
sem er í samræmi við stefnu borg-
arinnar um að stuðla að hagkvæmni í
rekstri. Til þessa hefur þetta verið
þannig að hjúkrunar- og dvalarheim-
ilin hafa gert samninga við heilsu-
gæslur, heilsugæslulækna, einka-
reknar læknastofur eða spítalana.
Þetta hefur hins vegar aldrei verið
boðið út með þessum hætti áður. Það
er eingöngu formið sem er nýtt og
þetta tengist ekki einkarekinni
heilsugæslu. Með útboði næst fram
ákveðið jafnræði gagnvart þeim að-
ilum sem Félagsþjónustan kaupir
þjónustu af.“ Aðspurð segir Þórdís að
vonandi muni læknar, s.s. sérfræðing-
ar og öldrunarlæknar, spítalarnir,
heilsugæslustöðvarnar eða þeir sem
hafa fullnægjandi sérfræðiþekkingu
taka þátt í útboðinu.
Félagsþjónustan býð-
ur út læknisþjónustu