Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað frá JPV útgáfu,
„Útgáfubækur 2001“. Blaðinu
verður dreift um allt land.
UMRÆÐUR um sjávarútvegsmál
settu sterkan svip á miðstjórnar-
fund Framsóknarflokksins í gær-
morgun, laugardag. Tillaga Hall-
dórs Ásgrímssonar, formanns
flokksins, um skynsamlegt veiði-
gjald á sjávarútveginn var þar helst
til umræðu og sýndist sitt hverjum.
Lauk umræðunni þó á þann veg að
tillaga Halldórs, sem hann bar upp
til atkvæðagreiðslu á laugardags-
morgun, var samþykkt samhljóða.
Hljóðar hún svo: „Miðstjórnarfund-
ur Framsóknarflokksins haldinn í
Hafnarfirði, 23. til 24. nóvember
2001, ítrekar samþykkt síðasta
flokksþings um að auðlindir sjávar
eru sameign þjóðarinnar sem stað-
festa beri í stjórnarskrá. Í því ljósi
telur miðstjórnin rétt að innheimt
verði magntengt veiðigjald af þeim
sem hafa fengið úthlutað eða greitt
fyrir aflaheimildir.“
Sjávarútvegsumræðunum í gær
lágu einnig til grundvallar úttekt og
skýrsla umræðuhóps eða nefndar
um sjávarútvegsmál þar sem farið
var yfir kosti og galla helstu leiða
við gjaldtöku af nýtingu fiskveiði-
auðlindarinnar.
Í fundargögnum framsóknar-
manna kemur fram að gerð hafi ver-
ið skoðanakönnun á vegum Gallup á
meðal nefndarmanna í sjávarútvegs-
nefnd flokksins um viðhorf til gjald-
töku í sjávarútvegi. Af 166 nefnd-
armönnum tóku 138 þátt í
könnuninni. Urðu helstu niðurstöð-
ur þær að 72 voru hlynntir gjald-
töku vegna nýtingar fiskistofnanna
en 62 voru henni andvígir. Fjórir
tóku ekki afstöðu. Það þýðir sam-
kvæmt úrvinnslu könnunarinnar að
marktækt fleiri eru hlynntir gjald-
töku en andvígir. Ekki var þó mark-
tækur munur á milli afstöðunnar til
þess hvort fara ætti fyrningarleiðina
eða veiðigjaldsleiðina.
Málefni Ríkisútvarpsins voru
einnig til umræðu á miðstjórnar-
fundinum en fyrir fundinum lá álit
nefndar flokksins um Ríkisútvarpið
undir forystu Einars Skúlasonar,
formanns Sambands ungra fram-
sóknarmanna (SUF).
Tillögur um RÚV samþykktar
Meðal þess sem nefndin lagði til
var að dregið yrði úr vægi stjórn-
málaflokka í stjórn Ríkisútvarpsins
og að þess í stað verði hleypt að
stjórnun fjölbreyttari hópi, eins
konar þverskurði af samfélaginu.
Það yrði best gert með því að gera
Ríkisútvarpið að sjálfseignarstofn-
un.
Þá var í áliti nefndarinnar kveðið
á um mikilvægi þess að faglegt og
rekstrarlegt öryggi Ríkisútvarpsins
verði aukið þannig að stjórnendur
þessi búi við eins stöðugt rekstr-
arumhverfi og kostur er. Sem leið að
því marki kæmi til greina, sam-
kvæmt nefndinni, að afnema afnota-
gjöld Ríkisútvarpsins ef tryggja
mætti stofnuninni faglegt og rekstr-
arlegt öryggi með öðrum hætti, s.s.
með gerð þjónustusamnings milli
hennar og ríkisvaldsins til lengri
tíma. Þá segir í áliti nefndarinnar að
til greina komi að takmarka þátt-
töku RÚV á auglýsingamarkaði en
þó þannig að auglýsingatími í hverj-
um miðli RÚV verði afmarkaður en
ekki tekjurnar með beinum hætti.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var góður rómur gerður að
tillögum nefndarinnar og var að til-
lögu formanns flokksins samþykkt
samhljóða að fela forystu flokksins
að vinna að málefnum Ríkisútvarps-
ins á grundvelli þessara tillagna.
Verða þær því veganesti Framsókn-
arflokksins inn í fyrirhugaðar við-
ræður ríkisstjórnarinnar um fram-
tíð Ríkisútvarpsins.
Miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins lauk síðdegis í gær
Samþykkt að innheimta
magntengt veiðigjald
LÖGREGLAN á Höfn í
Hornafirði hafði afskipti af
slagsmálum við veitingastað-
inn Víkina aðfaranótt laugar-
dags þar sem ganga þurfti á
milli tveggja manna í slags-
málum. Málavextir voru þann-
ig að eldri maður var í bíl sín-
um þegar ungur og mjög
ölvaður maður svipti upp hurð
á bíl eldri mannsins og krafð-
ist þess að fá bílinn „lánaðan“
því tími væri kominn til að
halda heim eftir gleði nætur-
innar. Eigandi bílsins varð
ekki við kröfum þess yngri
sem brást þá hinn versti við
og sló til hins með flösku.
Eldri maðurinn hlaut sár á
höfði og var fluttur á heilsu-
gæslustöð þar sem gert var að
sárum hans og fjögur spor
saumuð til að loka skurðinum
eftir flöskuna.
Ætlaði að
fá bíl
„lánaðan“
DREGIÐ hefur verulega úr tíðni
sjálfsmorða í Svíþjóð og Ungverja-
landi samfara aukinni notkun geð-
deyfðarlyfja. Á tímabilinu 1978–
1996 rúmlega þrefaldaðist notkun
slíkra lyfja í Svíþjóð og á sama
tímabili fækkaði sjálfsmorðum um
19%. Tölur frá Ungverjalandi
styrkja ennfrekar þá kenningu að
fylgni sé þarna á milli því að á ár-
unum 1984–1998 fimmfaldaðist
notkun geðdeyfðarlyfja og sjálfs-
morðum fækkaði um 30%. Þetta
kom m.a. fram í erindi Jóns G.
Stefánssonar geðlæknis um kvíða-
og lyndisraskanir á fræðslu- og
kynningarfundi Wyeth Lederle á
Hótel Sögu í gær, laugardag.
Jón sagði í samtali við Morg-
unblaðið að erfitt væri að draga
ályktanir um tengsl milli tíðni
sjálfsmorða og notkunar geðdeyfð-
arlyfja hér á landi vegna fámennis.
Til þess þyrfti langtímarannsóknir
en notkun geðdeyfðarlyfja hefur
aukist mjög mikið á undanförnum
árum á Íslandi. „Það er eftirtekt-
arvert að hugsanir um dauðann og
sjálfsmorð og tilraunir til þess eru
nær eingöngu hjá fólki sem upp-
fyllir skilmerki um einhverja geð-
röskun,“ sagði Jón. „Það virðist
því vera að fólk sem ekki hefur átt
við geðraskanir að stríða hugsi
minna um dauðann eða reyni
sjálfsmorð.“
Jón sagði á fræðslufundinum frá
sláandi tölum um fjölda ungmenna
sem reynt hafa sjálfsmorð eða
hugsa um sjálfsmorð. Samkvæmt
könnun Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála frá 1992 hafa
um 6,1% unglinga í aldurshópnum
14–16 ára einhvern tímann reynt
sjálfsmorð. Þá sýndi rannsóknin
fram á að hugsanir um sjálfsmorð
sækja að um 23% drengja á aldr-
inum 15–16 ára og 38% stúlkna í
sama aldurshópi.
Grunur um áhættu við töku
hormóna virðist staðfestur
Arnar Hauksson kvensjúkdóma-
læknir fjallaði um tíðahvörf á
fræðslufundinum og sagði að sam-
tímis rannsóknum á nýrri gerð
lyfja sem beinast að ákveðnum
einkennum breytingaaldurs hafi
sérfræðingar víða um heim farið
að endurmeta eldri rannsóknir um
áhrif og aukaverkanir hormóna-
meðferðar. „Í framhaldi af því hef-
ur komið í ljós að ákveðinn grunur
um áhættu við töku hormóna virð-
ist staðfestur, þar með talin örlítil
aukning en marktæk áhætta á
brjóstakrabbameini.“
Arnar sagði ennfremur að ný-
lega hefðu einnig vaknað spurn-
ingar um aukna áhættu á krabba-
meini í eggjastokkum við
hormónagjöf. „Þá hefur síðustu
tvö árin verið sett spurningar-
merki við varnargildi hormóna
gegn kransæðasjúkdómum og
einnig hafa vaknað spurningar um
hvort verndunaráhrif hormóna
gegn þvagleka og minnistapi séu
ef til vill ekki algild og geti jafnvel
verið háð því hvenær meðferð
hefst.“ Arnar benti þó á að enn
sem komið er þætti sýnt að horm-
ón ykju lífsgæði kvenna á breyt-
ingaaldri.
Geðdeyfðarlyf draga
úr sjálfsmorðstíðni
Sjálfsmorðshugsanir sækja að 23% drengja og 38% stúlkna
MALARNÁMI í Arnarfirði á vegum
verktakafyrirtækisins Norðurtaks
á Sauðárkróki er lokið en unnið var
að malarnáminu vegna vegabóta á
veginum um Arnarfjörð. Alls voru
teknir um 2.500 rúmmetrar af efni í
veginn á þremur vikum en Vega-
gerðin þurfti á efninu að halda til
að breikka vegarstæðið og laga
blindbeygju á veginum. Mun þetta
vera í fyrsta skipti sem efni til
vegagerðar er tekið úr skriðunum
á milli Hrafnseyrar og Mjólkár.
Þrír starfsmenn Norðurtaks unnu
að verkinu en 20 manns vinna hjá
hinu þriggja ára gamla fyrirtæki
þegar mest er að gera. Starfsmenn
Norðurtaks vinna nú að gerð grjót-
garðs á Ísafirði.Morgunblaðið/RAX
Malarnámi
í Arnar-
firði lokið
Í AUGLÝSINGU í Morgunblaðinu í
dag er Perlan í Öskjuhlíð auglýst til
sölu eins og meðfylgjandi mynd
sýnir. Samkvæmt auglýsingunni
munu fasteignasölurnar Eignamiðl-
unin, Eignanaust, Fasteignaþjón-
ustan, Frón, Íslensk auðlind og
Stóreign veita nánari upplýsingar
um eignina.
Perlan aug-
lýst til sölu
SVANFRÍÐUR Óladóttir og Karl
Jóhannsson, loðdýrabændur á
Þrepi í Eiðaþinghá, hafa fest kaup
á nýrri fláningsvél til að flá refi á
búi sínu. Vélin er loftknúin og léttir
mjög störfin við fláninguna. Ref-
irnir hafa þyngst mjög síðustu ár
eftir að skipt var á Þrepi yfir í nýj-
an refastofn frá Finnlandi. Það var
þess vegna orðið erfitt að flá refina
upp á gamla mátann á flánings-
borði, eftir að þeir hafa tvöfaldast í
þyngd og lengst til muna.
Ný vél
til refa-
fláningar
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Karl Jóhannsson, bóndi á Þrepi,
prófar nýju fláningsvélina, hún
er loftknúin og léttir störfin við
fláninguna til mikilla muna.
HÖRÐUR Jónsson, framkvæmda-
stjóri þjónustusviðs Íslandspósts,
sagði í samtali við Svæðisútvarpið á
Ísafirði að 10 manns myndu missa
vinnuna á Vestfjörðum vegna breyt-
inga á afgreiðslustöðum fyrirtæk-
isins þar. Hann sagði að nokkur hús
Íslandspósts á Vestfjörðum yrðu
sett á söluskrá.
Um síðastliðin mánaðamót fluttist
afgreiðsla pósthúsa á Bíldudal, Suð-
ureyri og í Bolungarvík yfir til
sparisjóðanna. Næst verður af-
greiðslan í Súðavík flutt til spari-
sjóðsins þar. 15. janúar tekur spari-
sjóðurinn yfir á Þingeyri og 1.
febrúar er Tálknafjarðarútibúið á
dagskrá. Þá verða pósthúsin á Pat-
reksfirði og Ísafirði þau einu á Vest-
fjörðum sem áfram verða í rekstri
hjá Íslandspósti.
Tíu manns
missa vinnuna
á pósthúsum
Vestfirðir