Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 269 Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Ísl. tal. Vit 271  HÖJ Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i.14. Vit 291 RadioX Ég spái The Others fjölda Óskarsverðlaunatilnefning; fyrir leik í aðal- og auka- kvenhlutverkum, kvik- myndatöku, leikstjórn, handrit, svo nokkuð sé nefnt. SV Mbl Sýnd kl. 2, 3.50 og 6. Mán kl. 3.50 og 6.Íslenskt tal. Vit nr. 292 Sýnd í Lúxus VIP kl. 1.50, 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Mán kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.10.Vit 309 Sýnd kl. 3.45 og 5.50. Vit 289. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16. Vit nr. 296 Það eina sem er hættulegra en að fara yfir strikið er lög- reglan sem mun gera það Hingað til hefur Denzel Wasington leikið hetjur og góða gæja, en nú breytir hann hressilega til og leikur löggu með vafasamt siðferði. Telja margir að hann eigi eftir að sópa til sín verðlaunum með leik sínum hér Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Mán kl. 4, 6, 8 og 10.10.Vit nr. 297 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Vit nr.310 Saturday Night Live stjarnan Chris Kattan bregður sér í dulargervi sem FBI fulltrúinn „Pissant“ til að ná í sönnunar- gögn sem geta komið föður hans í tukthúsið. Hreint óborganlega fyndin mynd sem þú mátt ekki missa af! HVER ER CORKY ROMANO? Geðveik grínmynd!  ÞÞ strik.is SÁND  Kvikmyndir.is Mögnuð og eftirminnileg hrollvekja sem sló hryllilega vel í gegn í Bandaríkjunum. Hér er komin hrollvekja ársins. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Mán kl. 4. Vit 245 FRUMSÝNING Glæpir hafa aldrei verið svona æsandi!  Kvikmyndir.is  DV Strik.is Sýnd. kl. 2. Ísl. tal. Vit 265. HÁSKÓLABÍÓ Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919 Stærsti salur landsins með 220 fm tjaldi. Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15. Mán kl. 2, 5.45 og 8. Sýnd kl. 5.15 og 8. Mán kl. 8 og 10.45. B. i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Málverkasýning á verkum Sveins Björnssonar fyrir bíógesti í innri forsal Dramatískt listaverk! ÓTH Rás 2 Metnaðarfull, einlæg, vönduð! HJ-Morgunblaðið ..fær menn til að hlæja upphátt og sendir hroll niður bakið á manni. SG DV ..heldur manni í góðu skapi frá fyrsta ramma til þess síðasta! EKH Fréttablaðið Þvílíkt náttúrutalent! SG - DV Ugla Egilsdóttir er hreint út sagt frábær! HJ Morgunblaðið Bræðralag úlfsins 123 fórnarlömb. Tveir menn. Aðeins eitt svar. l i i i Hörkuspennandi hasar sem hlaðin er af hreint ótrúlegum mögnuðum áhættuatriðum. Frá leikstjóra Crying Freeman. Með Vincent Cassel (Crimson Rivers, Joan of Arc), Mark Dacascos (Crying Freeman) og ítölsku gyðjunni, Monica Belucci (Under Suspicion, Malena). N I C O L E K I D M A N Sýnd kl. 10.45. Mán kl. 5.45 og 10.15. B.i.14. Edduverðlaun6 ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2  HL Mbl  SG DV Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson Sýnd kl. 6, 8 og 10. Mán kl. 8 og 10. SV Mbl  Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com MÁLARINN og sálmurinn hans um litinn. Kvikmynd eftir Erlend Sveinsson  Ó.H.T Rás2  SV Mbl Kvikmyndir.com Mögnuð og eftirminnileg hrollvekja sem sló hryllilega vel í gegn í Bandaríkjunum. Hér er komin hrollvekja ársins. FRUMSÝNING - ÓGNVALDURINN  HJ. MBL ÓHT. RÚV Sýnd kl. 3. Mán kl. 5.45. Sýnd sunnudag Kl. 4.  Ó.T.H Rúv Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10. Heftig og begeistret  SV Mbl Sýnd sunnudag Kl. 4. LJÓÐ OG tónlist eiga vel saman, hvort sem menn eru að ljóða yfir svellandi bíbop, sveitatónlist eða myljandi rokk. Sú staðreynd er ekk- ert leyndarmál ljóðskáldum sem mörg eru einnig rokkskáld nú á tím- um þegar ein besta leiðin til að koma kveðskap á fram- færi er að klæða hann í rokkfötin eða bara gallabuxur og köflótta skyrtu sveitamannsins eins og er á diskn- um From Iceland to Kentucky and Beyond, en hann hefur meðal annars það sér til ágætis að leiða saman ís- lensk ljóð og erlend. Þeir Michael Pollock og Ron Whitehead áttu hug- myndina að útgáfunni og hún komst á koppinn þegar Michael og Bragi Ólafsson fóru til Kentucky í mars sl. og tóku upp megnið af disknum með Whitehead og fleiri tónlistarmönnum og skáldum. Tónlist er samtvinnuð ljóðunum og flutningur oft spunakenndur, eins og tónlistin sé að verða til um leið og ljóð- in. Það gefur einkar skemmtilega lif- andi stemmningu, ekki síst þegar vel tekst til að flétta saman ljóð og texta eins og í flutningi Rons Whiteheads á Kentucky Blues, þar sem nútímaleg- ur flutningur er skemmtilega tengdur fortíðinni með upphafs- og endastefi. Gaman er líka að heyra samlestur/ leik Braga Ólafssonar og Danny O’Bryan, þar sem því er líkast að O’Bryan sé að hlusta á ljóðið samfara því sem hann spilar og lækkar í sér eða stoppar til að hlusta á ljóðin. O’Bryan leikur einnig undir hjá W. Loran Smith, en flutningur þess síð- arnefnda er svo kraftmikill að menn taka varla eftir saxófóninum, það eru færri eyður fyrir blásturinn. Snake Bite Michaels Pollock er skemmtilegt ljóð um hetjudýrkun æskunnar þar sem faðirinn heillar drenginn með ævintýralegum sögum með lærdómsundirtón og fellur vel saman undirleikur Susie Wood. Hún flytur einnig lag sjálf á skífunni, upp- hafslagið The L & L Don’t Run Here Anymore eftir Jean Ritchie sem hún snýr úr Apalachian-söng í seinni tíma mótmælamærð. Ron Whitehead á tvö ljóð á diskn- um, áðurnefnt Kentucky Blues og Apocalypse Rag, sem er heldur síðra upphrópanaljóð, en tónlistin við það er skemmtilega rómantísk og eigin- lega þvert á inntak textans. Mickey Hess segir frá því er Clint frændi giftir sig, sem endar heldur illa fyrir Clint. Hess flytur ljóðið skemmtilega og tónlistin er lifandi, en sagan sjálf / ljóðið er frekar tilgerð- arleg. Dream a Little Dream of Me kemur eins og skrattinn úr sauðar- leggnum, enda flytur Jim James lagið eins og það er, þrungið rómantík og tilfinningasemi og syngur það einkar skemmtilega. Family Man er mjög áhrifamikið ljóð í sterkum flutningi W. Loran Smith. Næstsíðasta lag plötunnar stingur nokkuð í stúf við það sem á undan er komið og spillir í raun heildarmynd- inni, spunastemmningunni og heillandi einfaldleikanum, með hljóð- versíburði. Það er einnig ljóður á að ekki sé getið um flytjanda ellefta ljóðsins sem er mjög skemmtileg hringrás, en samkvæmt leynilegum upplýsingum er þar á ferð saxófón- leikarinn Danny O’Bryan. Tónlist Ljóð milli landa Ýmsir listamenn From Iceland to Kentucky and Beyond ÓMI Ljóðatónlistardiskur með þeim Michael Dean Óðni Pollock, Ron Whitehead, Braga Ólafssyni, Susie Wood, Danny O. Bryan, Jim James, Mickey Hess og fleir- um. Tekinn upp í Kentucky og á Íslandi. Ómi gefur út. Árni Matthíasson VÉDÍS Hervör er ekki nema nítján ára gömul en á þegar nokkur ár að baki í söngbransanum, búin að taka þátt í söngleikjauppfærslum hjá Verzlunarskólanum og syngja m.a. með Bang Gang. Höfuðpaur þeirrar sveitar, Barði Jóhannsson, er Védísi innan handar við gerð þessarar plötu, stýrir upptökum og semur með henni nokkur lög og skil- ar sínu afar fag- mannlega. Tónlistina hér mætti í einfölduðu máli kalla poppað R&B en einnig bregður fyrir hressum diskótöktum. Einhverra hluta vegna stillir mað- ur þessu verki Védísar ósjálfrátt upp við hlið Svölu og plötu hennar, The Real Me. Um afar ólíkar plötur er þó að ræða; hér er ekki verið að gera táningapopp og heildarmyndin er ekki ýkjukennd eins og þar. In The Caste er til muna heilsteyptara verk þó hér vanti þessi ofurgrípandi lög sem eru nokkur á annars ójafnri plötu Svölu. Védís semur allflest lögin sjálf, auk þess að leika á píanó. Í popp- heimi samtímans, og þá meina ég popp, virðast hlutirnir oftar en ekki snúast fyrst og fremst um fönguleik stúlkna frekar en hæfileikaríka tón- listarmenn. Platan ber með sér ferska og skemmtilega nýbreytni að þessu leyti. Að vísu eru lagasmíðar Védísar sosum engar meistarasmíð- ar, sumum þeirra hættir til að vera nokkuð flatar og mörg laganna eru nokkuð keimlík og áhrifalítil. En að þessi plata komi úr brunni sem þessi unga stúlka hefur grafið sjálf ljær listinni óneitanlega meiri trúverðug- leika en ella og það skilar sér í heild- arupplifuninni. Þetta gerir líka að verkum að það er góð og heildstæð áferð yfir plötunni og um hana leikur kaldur og svalur andvari. Platan er í raun nokkuð vélræn og kuldaleg en alls ekki á neikvæðan máta. Það mætti líkja þessu við fönkaðan Gior- gio Moroder (bjó til byltingarkennt „ómennskt“ tölvupopp við enda átt- unda áratugarins og vann m.a. með Donnu Summer). Í lakari lögunum hér gera þessir eiginleikar þó að verkum að þau virðast hálf lífvana. Í söngnum á Védís það til að halda nokkuð aftur af sér. Mörg laganna hefðu grætt á því ef hún hefði gefið ögn betur í. Þegar hún leyfir rödd- inni að detta niður í netta hæsi (eins og t.d. í hinu mjög svo góða „Won’t See Me Around“) gefur það lögunum Védísar-legt sérkenni sem er kostur. Röddin hennar er tær og góð og þessi nálgun hennar við sönginn; að halda aftur af dívu-rembingum, er vel skiljanleg og pælingin er góð. Það þyrfti þó að hugsa hana aðeins betur út, t.a.m. hvenær það hentar og hvenær ekki. Til að taka einstök lög út má nefna ábreiðu yfir smell Cars, „Drive“, sem er flott. Mér hefur alltaf þótt lagið hundleiðinlegt en furðulegur, sveimkenndur blær Védísar nær að blása nýju og áhugaverðu lífi í það. Diskókenndu lögin eins og „Lady“ og „Hands off“ eru og svöl. Hér er í raun ekki að finna léleg lög en heldur ekki „popplög dauðans“, þessi sem límast við heilann á þér og þú ert hummandi í tíma og ótíma, þrátt fyr- ir að þú hafir engan áhuga á því. Í síðasta laginu sleppir Védís svo af sér öllum beislum og leyfir tilfinn- ingunum að flæða óheftum. Hiklaust besta lag plötunnar, melódískt, fal- legt og þægilega stingandi. Vert líka að geta umslagshönnunar sem er sérlega glæsileg. Allt í allt er þetta hin boðlegasta frumraun og vaxtarverkirnir hérna eru ekki nema sjálfsagðir fylgihlutir er listamenn byrja að þreifa fyrir sér. Hjarta Védísar er í þessu verk- efni, á því leikur ekki vafi, og það er líkast til það mikilvægasta hérna. Maður finnur fyrir því þegar maður hlustar og það bætir upp flest það sem á kann að vanta, tónlistarlega. Það er því óhætt að gefa þessum efnilega listamanni auga og eyru í framtíðinni og forvitnilegt verður að fylgjast með næstu skrefum. Tónlist Védís In The Caste SPOR/SKÍFAN In The Caste, frumburður Védísar Her- varar Árnadóttur. Védís syngur aðal- og bakraddir ásamt því að leika á píanó og Rhodes. Með Védísi spila Barði Jóhanns- son (hljómborð, gítar og forritun), Hjör- leifur Jónsson (slagverk), Hafþór Guð- mundsson (gítar), DJ Rampage (plötu- klór), Valgeir Sigurðsson (forritun), Samúel J. Samúelsson (básúna), Kjartan Hákonarson (trompet), Eyjólfur Þorleifs- son (tenór-saxafónn), Jóhann Jóhanns- son (forritun), Guðrún Theodóra Sigurð- ardóttir (selló) og Kjartan Valdemarsson (píanó). Lög og textar eru eftir Védísi utan fjögur lög sem Barði Jóhannsson semur með henni. Einnig er að finna hér lagið „Drive“ en það er samið af Ric Ocasek. Upp- tökustjórn og útsetningar voru í höndum Barða Jóhannssonar fyrir utan lagið „Fin- ished Melody“ en þar stjórnaði Védís upptökum og útsetti ásamt Kjartani Valdemarssyni. 36.47 mínútur. Arnar Eggert Thoroddsen In The Caste er frumburður hinnar nítján ára gömlu Védísar. Lævíst og lipurt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.