Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námskeið í hugleiðslu
„Taking the stress out of modern living“
Enski búddamunkurinn Venerable Kelsang Drubchen mun hefja nýtt námskeið um
hugleiðslu og hvernig nota megi hana til að útrýma stressi úr nútíma lífsstíl.
Gjald fyrir hvert skipti er 1.000 kr., en námsmenn og öryrkjar greiða 500 kr.
Almennar upplýsingar: 568 3417, 554 0937 eða www.karuna.is
á þriðjudögum 27. nóv - 18. des.
frá kl. 20.00 - 21.30
í stofu 101, Odda, Háskóla Íslands
FAGUR fiskur í sjó heitir
ný barna- og fjölskylduplata
með helstu söngperlum Atla
Heimis Sveinssonar sem út
kemur um þessar mundir
hjá Óma, tónlistarútgáfu
Eddu miðlunar og útgáfu.
Það er Edda Heiðrún Back-
man leikkona sem annast
listræna útfærslu verksins –
flytur börnum og fullorðn-
um frumsamda tónlist Atla
Heimis úr íslenskum leik-
verkum, í nýjum búningi.
Edda Heiðrún er aðal-
söngvari plötunnar, en við
flutninginn hefur hún feng-
ið til liðs við sig gestasöngv-
ara, útsetjara og hljóðfæra-
leikara en tónlistarstjórn er í
höndum Vilhjálms Guðjónssonar.
Á hljómplötunni er sótt til hefðar
sem á sér ríkulega sögu hér á landi,
þ.e. leikhústónlistar, og hefur Sveinn
Einarsson ritað inngangsritgerð í
umgjörð hljómdisksins um hinn ríka
þátt slíkrar tónlistar í íslenskri list-
sköpun seinni ára. Lögin sem valist
hafa á plötuna eru úr íslensku leik-
verkunum Dimmalimm, Ofvitanum,
Ég er gull og gersemi og Sjálfstæðu
fólki, en auk þess hefur Edda Heið-
rún valið á plötuna nokkur ný og
gömul sönglög eftir Atla Heimi.
„Ég átti þann draum að gera vand-
aða plötu fyrir börnin. Jafnframt
langaði mig að vinna með eitthvað
sem tengdist atvinnu minni sem leik-
kona og fór þá að líta til þeirrar tón-
listar sem samin hefur verið við ís-
lensk leikverk,“ segir Edda Heiðrún
um aðdraganda þessa hljómplötu-
verkefnis. „Milli tónlistar og leikhúss
er dularfullt ástarsamband, en mörg
þessara laga sem eru upphaflega
flutt í leikhúsinu hafa orðið mjög ást-
sæl meðal Íslendinga. Þó gera ekki
allir sér grein fyrir því að þau eru
sprottin úr leikverkum. Kannski er
þetta vegna þess að í leikhúsinu er
tónlistin oft notuð á mjög drama-
tískum eða kómískum augnablikum.
Það er a.m.k. einhver dularfullur
kraftur í þessum lögum sem hefur
fleytt þeim út í samfélagið þar sem
þú hafa lifað.“
Sem dæmi um þessi leikhúslög
nefnir hún Skólavörðuholt Þórbergs,
Kvæðið um fuglinn, og Marívers úr
Sjálfstæðu fólki. „Lögin er mér síðan
sérstaklega hjartfólgin því ég hef
tekið þátt í mörgum af þessum sýn-
ingum.“
Edda Heiðrún segist hafa byrjað á
því að líta til verka Atla Heimis, og
fundið þar tónlist til að fylla heila
hljómplötu. Í kjölfarið kallaði hún til
sjö útsetjara, Atla Heimi sjálfan,
Ólaf Gauk, Vilhjálm Guðjónsson,
Guðna Franzson, Þóri Baldursson,
hljómsveitina Drum n’ brass og Pét-
ur Grétarsson og hefur hver þessara
aðila unnið með tónlistina með sínum
hætti.
„Mig langaði með þessu til að auka
fjölbreytnina og búa til einhvers kon-
ar nálgun samtímatónlistarfólks á
tónlist Atla Heimis. Það má segja að
þetta sé nokkurs konar virðingar-
vottur við tónskáldið,“ segir
Edda Heiðrún og segir að
hennar eigin þáttur í hljóm-
plötunni felist í því að ganga
inn í ákveðna tónlistarheild,
fremur en að stilla sér upp í
forsæti þess.
Söngtúlkun leikarans
Við vinnslu plötunnar seg-
ist Edda almennt hafa haft
það að leiðarljósi að vanda til
verksins í alla staði, en með
því hafi hún viljað færa börn-
unum ríkulega tónlist til að
hlusta á og kynnast. Þannig
leika á plötunni klassískir
hljóðfæraleikarar sem
fremstir eru á sínu sviði og
fríður flokkur gestasöngvara syngur.
Edda Heiðrún bendir á að utan Ólafs
Kjartans Sigurðarsonar óperu-
söngvara séu gestasöngvararnir
flestir úr röðum leikara. „Atli Rafn
Sigurðarson syngur Söng Péturs úr
Dimmalimm og Ég hef farið víða ver-
öld úr Gull og gersemi eftir Svein
Einarsson sem byggist á ævisögu
Sölva Helgasonar. Baldur Trausti
Hreinsson syngur lög úr Sjálfstæðu
fólki, ásamt Steinunni Ólínu Þor-
steinsdóttur, Ásu Hlín Svavarsdótt-
ur og Ingu Backman. Þá syngur Eg-
ill Ólafsson Skólavörðuholtið,“ segir
Edda Heiðrún og bendir á að með
vali á gestasöngvurum og í sínum
söng leggi hún einmitt áherslu á hið
líflega yfirbragð söngtúlkunar leik-
ara þar sem röddin fær að njóta sín
sem næst talröddinni. „Þannig er
ekki endilega róið á mið ærsla og
léttleika í lögunum. Í túlkun þeirra er
oft mikil dramatík, sem gefur börn-
um og fullorðnum hlustendum tilefni
til að kynnast tilfinningum og vanga-
veltum sem sækja á í lífinu en eiga
sér jafnframt djúpar rætur í okkar
bókmennta- og leikhúshefð,“ segir
Edda Heiðrún að lokum.
Dularfullt ástarsamband
tónlistar og leikhúss
Atli Heimir
Sveinsson
Edda Heiðrún
Backman
FLAUTUTÓNLIST sem á rætur
sínar að rekja til Frakklands er vin-
sæl á efnisskrám flautuleikara víða
um heim og ekki að ástæðulausu.
Efnisskrá kvöldsins, sem bar yfir-
skriftina „100 ár af flaututónlist“,
hafði að geyma verk frá blómatíma
flaututónlistarinnar. Tónlist sem ann-
aðhvort var samin í París eða henni
tengd, nema vera skyldi upphafsverk-
ið, eftir Johann Nepomuk Hummel,
sem passaði stíllega, kannski ekki al-
veg fyllilega í heildarmyndina. Hum-
mel þessi lærði tónsmíðar hjá Haydn,
og eftir því sem kemur fram í tón-
leikaskrá, einnig hjá Mozart. Hlýtur
Hummel (1778–1837) því að hafa ver-
ið mjög ungur í námi hjá honum, að-
eins þrettán ára er Mozart deyr.
Sónatan í D-dúr eftir Hummel er
falleg og björt þótt hún sé nokkuð
fantasíuleg í formi. Á upphafstónum
heyrðist brátt að flytjendurnir, þær
Áshildur Haraldsdóttir og Anna
Guðný Guðmundsdóttir,
væru á allan hátt mjög
vel samstilltar. And-
stæður voru í byrjun
ekki mjög skarpar en
það breyttist þó er á
leið. Andante-kaflinn er
mjög stuttur og virkaði
sem nokkurskonar
Intró í lokakaflann,
Rondo, þar sem flytj-
endur voru einkar sam-
taka í ryþma-
breytingum.
Flaututónlistin hefur
þróast í meðförum
franskra flautuleikara
sem oft hafa einnig sam-
ið fyrir sitt eigið hljóð-
færi. Þótt þær tónsmíðar hafi sjaldn-
ast valdið straumhvörfum í
tónlistarsögunni, sýna þær okkur
hverju hljóðfæraleikarar sem þekkja
sitt hljóðfæri fá áorkað og hvar mörk
þess eru. Nocturne et Allegro Scherz-
ando eftir franska flautuleikarann
Philippe Gaubert flokkast þar á með-
al. Sykursætt kvöldljóðið, þar sem
flytjandi verður að geta sýnt fram á
hlýjan og fallegan tón, og Scherz-
andóið fyrir virtúós-spilamennsku.
Áshildur sýndi okkur fram á allt þetta
og meira en það.
Tónskáld kvöldsins var André Jol-
ivet. Kyngimögnuð tónlist hans kref-
ur áheyrandann um skilyrðislausa at-
hygli frá byrjun til enda. Fyrsti
þáttur hans, sem bar yfirskriftina
Fluide, var mikið samspil þrástefja,
ryþma, og tónsviðið nýtt til hins ýtr-
asta. Straumur sem maður fylgir ef
maður fellur út í. Annar kafli, Grave,
einkenndist af tilbúnum „modus“ í
anda Messiane þar sem flautan lék
mikið á neðsta tónsviði sínu með hlýj-
um opnum tón. Í síðasta kaflanum,
Violent, þar sem reyndi ekki síst pí-
anóleikarann, var samleikur þeirra
Áshildar og Önnu Guðnýjar mjög
kraftmikill og skýr. Flutningur þessa
frábæra verks var í heild afar sann-
færandi og sterkur.
Eftir hlé var fyrsta
sónatan eftir Bohuslav
Martinu, sem skrifuð
var árið 1945. Fyrsti
kaflinn, sem hafði að
geyma litlar einleiks-
strófur í píanói, lék
Anna Guðný yfirmáta
skýrt og fyrirhafnar-
laust. Annar kaflinn var
mjög fallega mótaður,
með miklum litbrigðum
og lokakaflinn var
hreint út sagt „brill-
iant“.
Það var nokkuð ljóst
að flytjendur voru í
toppformi, og þegar
þarna var komið sögu
hefði ég haldið að nóg væri komið til
að fylla heila „bravúr“-tónleika.
En til að sýna fram á, eftir alla
þessa dagskrá, að þær væru ekki einu
sinni farnar að blása úr nös, léku þær
það verk sem talið er vera einn af
mikilvægari prófsteinum flautuleik-
ara um allan heim, Chant de Linos,
samið árið 1944 fyrir tónlistarháskól-
ann í París gagngert sem prófstykki.
Verkið, sem er eftir Jolivet, lýsir
sorgarsöng gríska guðsins Linosar.
Eins og fram kemur í tónleikaskrá er
verkið skrifað í kirkjutóntegundum
og „krefst þess að flytjendur fari út á
ystu mörk tæknilegrar getu og túlk-
unar“. Verkið byggist mikið upp á
þrástefjum og er mjög spennandi og
„töff“ áheyrnar, og fluttu þær Áshild-
ur það af mjög miklum glæsibrag og
með tilþrifum og verður vart annað
sagt um tónleikana í heild sinni en
það.
Í toppformi
TÓNLIST
Salurinn
Áshildur Haraldsdóttir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir léku verk eftir Hummel,
Gaubert, Martinu og Jolivet. Þriðjudaginn
20. nóvember kl. 20.
FLAUTUTÓNLEIKAR
Kári Þormar
Áshildur
Haraldsdóttir
MÁNUDAGUR
Ársfundur Listaháskóla Íslands
verður kl. 20.30 í leikhúsi Listahá-
skólans, Sölvhólsgötu 13.
Rektor, framkvæmdastjóri og deild-
arforsetar kynna starfsemi skólans
og framtíðaruppbyggingu. Fyr-
irspurnir og umræður verða að lokn-
um framsöguerindum. Fundurinn er
öllum opinn.
Hlaðvarpinn Tveir kvenrithöfundar
og tveir kvenþýðendur lesa úr verk-
um sínum kl. 20.30. Jónína Bene-
diktsdóttir les úr bók sinni Dömufrí
og Unnur Úlfarsdóttir les úr ævi-
sögu Úlfars Þórðarsonar, augnlækn-
is. Anna Valdimarsdóttir les úr bók-
inni Leiðin til lífshamingju og Halla
Sverrisdóttir les úr bókinni Eyði-
merkurblómið.
Hús málarans Upplestrarkvöld á
vegum bókaforlagins Bjarts hefst kl.
20.30. Rakel Pálsdóttir les úr bók
sinni Kötturinn í örbylgjuofninum,
flökkusögur úr samtímanum, Bragi
Ólafsson les úr skáldsögu sinni
Gæludýrin, Jón Kalman Stefánsson
les úr skáldsögunni Ýmislegt um
risafurur og tímann, Sigfús Bjart-
marsson les úr ferðabókinni Sól-
skinsrútan er sein í kvöld og Óskar
Árni Óskarsson les úr prósasafninu
Lakkrísgerðinni. Kynnir er Huldar
Breiðfjörð.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Lesið úr ljóðabókum bókaútgáf-
unnar Eddu, kl. 20.30. Bækurnar
eru eftir Margréti Lóu Jónsdóttur,
Valgerði Benediktsdóttur, Matthías
Johannessen, Magnús Ásgeirsson,
Egil Jónasson og Pálma Örn Guð-
mundsson. Að auki verða lesin ljóð
eftir Tomas Tranströmer í þýðingu
Ingibjargar Haraldsdóttur og Hal
Sirowitz í þýðingu Aðalsteins Ás-
bergs Sigurðssonar. Tónlistarmenn-
irnir Sigurður Flosason og Jóel
Pálsson leika af fingrum fram. Þá
skemmtir djasssöngkonan Kristjana
Stefánsdóttir og Óskar Guðjónsson
saxófónleikari, höfundur geisla-
disksins „Láttekkieinsogðúsértekk-
iðanna“.
JL-húsið við Hringbraut, 3. hæð
húsakynni Alliance Française. Í til-
efni Evrópska tungumálaársins flyt-
ur Jacques Melot fyrirlestur kl.
20.30, sem ber heitið Fordómar og
áróður í tungumálum – Hugleið-
ingar um núverandi stöðu franskrar
tungu og annarra.
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesvegi 91 Polly Apfelbaum
heldur fyrirlestur kl. 12.30. Hún til-
heyrir hópi listamanna sem hafa
endurskilgreint málverkið á síðasta
tug 20. aldar. Hún er þekkt fyrir
notkun sína á gólfinu sem „rými fyr-
ir málverk“.
Í DAG
KÓR Menntaskólans við
Hamrahlíð flytur tónlist á 13
tungumálum í hátíðarsal skól-
ans í dag, sunnudag, kl. 16.
Flutt verður veraldleg tónlist á
öllum tungumálum sem kennd
eru við skólann og er efnisskrá-
in flutt í tilefni af evrópska
tungumálaárinu 2001.
Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
á 13
tungu-
málum
Bíósalur Mír, Vatnssíg 10 Balt-
neski fulltrúinn (Dépútat Baltíkí)
nefnist gömul sovésk kvikmynd sem
sýnd verður kl. 15. Myndin sem gerð
var á árunum 1936 og 1937 varð víð-
fræg á sínum tíma, og segir frá öldn-
um og virtum vísindamanni, Polesaj-
ev prófessor, sem gekk til liðs við
alþýðuna í rússnesku byltingunni
1917.
Myndin er með enskum texta. Að-
gangur er ókeypis.
Miðgarður, Skagafirði Tenórarnir
Jóhann Friðgeir Valdimarsson og
Sigurjón Jóhannesson frá Víðimel
halda tónleika kl. 21. Undirleikari á
píanó er Ólafur Vignir Albertsson.
Þeir flytja eftirlætis einsöngslög sín
og dúetta.
Félagsheimilið Drangey, Stakka-
hlíð 17 Söngsveitin Drangey heldur
jólatónleika kl. 17. Stjórnandi er
Snæbjörg Snæbjarnardóttir.
Háteigskirkja Kór Háteigskirkju
og kammersveit heldur tónleika kl.
20. Á efnisskrá er kirkjutónlist fyrir
kór og kammersveit. Flutt verða
verk eftir Vivaldi, Johann Sebastian
Bach, W.A. Mozart og íslenskt verk
fyrir kór, eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. Stjórnandi er Douglas A.
Brotchie, organisti Háteigskirkju.
Með kórnum syngja Gyða Björg-
vinsdóttir, sópran, Hólmfríður Jó-
hannesdóttir, alt, Eyjólfur Eyjólfs-
son, tenór og Hjálmar P. Pétursson,
bassi. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Norræna húsið Í tengslum við Æv-
intýrasýninguna Köttur úti í mýri...
hafa nokkrir ráðherrar lesið sögur
fyrir börnin í Söguherberginu. Nú
er komið að sögu Valgerðar Sverr-
isdóttur iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra og les hún kl. 13.
Nýlistasafnið Geir Svansson, annar
tveggja sýningarstjóra sýning-
arinnar „Omdúrman“ verður með
leiðsögn kl. 15. Aðgangur er ókeypis.
Safnið er opið frá 12-17.
Ráðhús Reykjavíkur
Harmonikufélag Reykjavíkur held-
ur létta tónleika kl. 15 undir heitinu
Dagur harmonikunnar.
Fram koma m.a.: Tríó Ulrichs Falk-
ner, Ragnheiður Hauksdóttir söngv-
ari, Kjartan Jónsson og Þórir Lár-
usson auk hrynsveitar, og tvær
stærstu hljómsveitir félagins, Létt-
sveit Harmonikufélags Reykjavíkur
undir stjórn Jóhanns Gunnarssonar
og Stormurinn undir stjórn Arnar
Falkner. Aðgangur er ókeypis.
Hveragerðiskirkja Unnur Fadila
Vilhelmsdóttir píanóleikari heldur
tónleika kl. 17. Flutt verður Píanó-
sónata op. 31 í Es dúr eftir L. v.
Beethoven, Ballaða nr. 4 eftir F.
Chopin og Píanósónata nr. 8 eftir S.
Prokoffieff.
Í DAG
Selfosskirkja
Tónleikar til heið-
urs Pálmari Þ.
Eyjólfssyni tón-
skáldi og org-
anista verða kl.
16. Fram koma
Unglingakór Sel-
fosskirkju,
Hörpukórinn,
Jórukórinn, Sam-
kór Selfoss,
Kirkjukór Eyrarbakka, Stokkseyrar
og Gaulverjabæjarkirkna, Kór Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, Kirkjukór
Selfoss og Karlakór Selfoss. Glúmur
Gylfason leika á Brúðarmars eftir
Pálmar á orgel kirkjunnar og Hel-
ena R. Káradóttir leikur píanóverkið
Sólnætur. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Edinborgarhúsið, Ísafirði Opin
bók nefnist bókmenntavaka sem
hefst kl. 16. Einar Már Guðmunds-
son les úr bókinni Kannski er póst-
urinn svangur, Ingibjörg Hjart-
ardóttir les úr bókinni Upp til
Sigurhæða, Þórunn Valdimarsdóttir
les úr bókinni Hvíti skugginn, Sigfús
Bjartmarsson les úr bókinni Sól-
skinsrútan er sein í kvöld og Svein-
björn I. Baldvinsson les úr bókinni
Sólin er sprungin. Sigrún Eldjárn
flytur erindi um barnabækur og
bókaskreytingar.
Villi Valli sér um tónlistarflutning
milli atriða.
Í DAG
Pálmar Þ.
Eyjólfsson