Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Úlfar Þórðarson hafði aðeins lokið öðru ári í læknisfræði þegar hann var kvaddur til að leysa Jónas Kristjánsson, frænda sinn og hér- aðslækni í Skagafirði, af í tvo mán- uði og leist honum ekki á blikuna. Eftir þessa tveggja daga innsetn- ingu í störf héraðslæknis í Skaga- firði fór Jónas og ég sat eftir með tuttugu rúma spítala, sem var tölu- vert á þessum árum, þar sem ég kunni engin skil á neinu. Ég var tuttugu og þriggja ára, nýbúinn með miðhlutann í læknisfræði og kunni ekkert í læknisfræði. Ég var óskap- lega kvíðinn og miður mín yfir þessu öllu, hræddastur að sjálfsögðu við að klúðra öllu saman og valda e.t.v. óbætanlegu tjóni. En það var ekki um annað að ræða en að duga eða drepast og ég ákvað að taka fyrri kostinn. Þegar ég hugsa um þetta í dag 65 árum síðar skil ég ekki hvernig þetta var látið viðgangast. Tanndráttur á túkall Daginn eftir að Jónas fór kom fyrsti sjúklingurinn. Það var minn fyrsti sjúklingur og ég ekki einu sinni orðinn læknir. Það var snemma morguns að ég stóð fyrir utan hús Jónasar þar sem ég bjó. Þá bar þar að ungan mann sem spurði eftir Jónasi. ,,Hann er ekki heima,“ svaraði ég. Það kom á hann og hann spurði, hálförvæntingarfullur: ,,Er þá enginn læknir fyrir hann?“ Á milli okkar var girðing, svona u.þ.b. í mjaðmarhæð: ,,Jú, hann er hér, þarftu að tala við mig?“ sagði ég og stökk jafnfætis yfir girðinguna. Manninum varð svo um að hann hrökk undan og starði vantrúaður á mig. Bæði var að honum brá þegar ég skaust svona upp fyrir framan hann og svo hitt, að ég var nú ekki beint trúverðugur sem staðgengill héraðslæknisins. Ég var ekki aðeins kornungur, heldur fremur strákslegur í útliti. Ég var jafnan álitinn yngri en ég var. Maðurinn reyndist mjög illa hald- inn af tannverk. Það vildi svo vel til að ég hafði notað morguninn til að lesa mér til um hvernig ætti að draga tennur og hafði rétt nýlokið við að lesa um hvernig ætti að deyfa neðri kjálkann. Ég reyndi að bera mig mannlega og sagði: ,,Við skul- um fara út á sjúkrahús og líta á þetta. Hvar er verkurinn?“ Og bað í hljóði að tönnin væri í neðri góm. ,,Í neðri kjálkanum,“ svaraði maður- inn. ,,Það var nú gott,“ sagði ég og andaði léttar. Við gengum saman út að spít- alanum sem var örstutt. Maðurinn var augljóslega ekki búinn að ná sér eftir áfallið og gekk eins langt frá mér og hann gat. Ég gekk hægra meginn á götunni og hann hélt sig á vinstri kantinum og gaut til mín augum annað slagið. Sem við nálg- uðumst spítalann nam hann staðar og sagði eftir nokkurt hik: ,,Ertu vanur að draga tennur?“ ,,Blessaður vertu, ég er alltaf að þessu,“ sagði ég öllu öruggari með mig eftir að ég vissi að tönnin var í neðri góm. Aft- ur kom löng þögn. ,,Hvað kostar það,“ spurði hann þá. Ég sagði hon- um að það kostaði tvær krónur með deyfingu en eina krónu ódeyft. Svo fáránlegt sem það hljómar, var þetta val sem menn urðu raunveru- lega að velta fyrir sér. Króna til eða frá skipti verulegu máli, svo mikil var fátæktin til sveita þá. Hann hugsaði sig lengi um en sagði svo: ,,Ég held ég fái deyfingu.“ Ég átti eftir að draga tennur úr mörgum sveitamanninum, oft án deyfingar. Það höfðu ekki allir ráð á þeim munaði. Það kom ósjaldan fyr- ir að menn biðu mín við vegkantinn þegar ég var á ferð um héraðið í læknisvitjunum og báðu mig að kippa úr sér tönn. Ég lærði því fljótt að vera alltaf með tangirnar með mér og einhvern veginn virtust menn alltaf vita hvort ég var á ferð um héraðið í læknisvitjunum og hvar mig var að finna. Jónas átti forláta tangir og hafði kennt mér að blanda deyfilyf. Þótt ég kynni ekki að draga tennur, þá kunni ég talsvert í anatómíu, sem kom sér vel. Ég hitti svo vel á taug- ina að maðurinn steindofnaði upp í haus. Ég dró svo tönnina upp með glæsibrag. Allt gekk þetta hratt og vel fyrir sig, sjúklingnum til mikillar undrunar og mér til óumræðanlegs léttis. Fréttin barst eins og eldur ís- inu um sveitina. Ég hafði staðist mína eldskírn sem héraðslæknir í Skagafirði. Engu að síður hafði fólk greinilega sínar efasemdir um þenn- an strákling og það með réttu. Sósíalisti á sólóflugi Árið 1932 tilkynnti Úlfar foreldr- um sínum að hann væri farinn til Englands að læra að fljúga. En hann tók sig ekki aðeins á flug í bókstaflegri merkingu og kvöld eitt á Englandi fór hann á flug í hlut- verki innblásins sósíalista. Eftir að skólanum lauk vorið 1932 fengum við Baldvin [Jónsson hæsta- réttarlögmaður] vinnu við að leggja túrbínuleiðslu í rafstöð- ina inn við Elliðaár. Þessi fyrsta raf- stöð Reykjavíkur var reist 1921 en nú hafði verið ákveðið að leggja vara-túrbínuleiðslu að stöðinni. Leiðslan, sem var mikið mannvirki á þessum tíma, var byggð úr timbri og þéttar gjarðir utan um sem voru skrúfaðar saman. Síðan var hún tjörguð og tyrft að mestu yfir hana alla. Okkar verk var að slá saman plankana með mikilli sleggju. Þetta var erfið vinna en mér fannst hún afskaplega skemmtileg. Baldvin var að vísu fljótlega hækkaður í tign og gerður að nokkurs konar uppskip- unarstjóra niður við höfn. Átti hann að fylgjast með og skrá allt efni sem flutt var til landsins í leiðsluna og sjá um flutningana inn í Elliðaárdal. Þessi starfsframi Baldvins atvikað- ist þannig að hann hafði tekið upp á því að koma skipulagi á vinnufyr- irkomulagið hjá okkar vinnuhóp sem varð til þess að umsjónarmaður verksins fylltist slíkri aðdáun á skipulagshæfileikum hans að hann hækkaði hann umsvifalaust í tign. Yfirumsjón verksins var hins vegar í höndum þýsks verkfræðings sem var óttalega fýldur og stór upp á sig og eyddi aldrei einu orði á okkur vinnuþrælana. Það gerði nú ekki mikið til og við létum hann ekki gera okkur lífið leitt. Karlarnir sem ég vann með voru hver öðrum frum- legri og skemmtilegir. Flestir þeirra voru utan af landi, komnir til Reykjavíkur í leit að vinnu og höfðu unnið erfiðisvinnu allt sitt líf. Allir voru þeir miklir vinir mínir og mörgum árum seinna þegar ég var orðinn starfandi læknir í Reykjavík urðu margir þeirra sjúklingar mínir. Þetta sumar varð ég tuttugu og eins árs. Allt frá unglingsárum, eða frá því að draumar mínir um að verða sjómaður biðu endalegt skip- brot, hafði ég átt mér annan draum, að læra að fljúga. Ég var sannfærð- ur um að í fluginu lægi framtíðin. Í mörg ár hafði ég lagt til hliðar hverja krónu sem ég vann mér inn með það fyrir augum að læra að fljúga. Ég var ákveðinn í að fara í flugnám á Englandi þegar ég hefði skrapað saman nægilega miklu til að taka sólópróf. Enginn vissi um þessar fyrirætlanir mínar annar en Lauga barnfóstran okkar, sem var mér sem önnur móðir, henni trúði ég fyrir þessu leyndarmáli mínu. Lauga brást heldur ekki trúnaði mínum og studdi mig sem best hún gat. Hún þekkti sjómann sem sigldi á England og af honum keypti hún fyrir mig ensk pund. Nú var ferða- sjóðurinn orðinn það gildur að ég gat farið að gera ráðstafanir til að Gæðingarnir hans Jónasar Kristjáns- sonar. Úlfar og Kristján Jónasson, hressir með lífið, í útreiðartúr í Skagafirði, sumarið 1938. Systkinin á Kleppi (f.h.) Hörður, Úlfar, Sveinn, Nína, Agnar, Gunnlaugur og Sverrir. Myndin er tekin árið 1927. Úlfar Þórðarson, ungur og áhugasamur flugmaður, fyrir framan vélina sína í Reading á Englandi 1932. Úlfar Þórðarson augnlæknir er þjóðkunnur eftir 60 ára fer- il sem læknir. En hann lét einnig að sér kveða í uppbygg- ingu í íþrótta- og heilbrigðismálum og var einn af frum- kvöðlum flugs á Íslandi. Unnur Úlfarsdóttir fjallar um litríkan feril hans og uppruna. Lífskraftur og léttleiki hefur opnað LASIK-aðgerðarstofu þar sem leiðréttir eru sjónlagsgallar (nærsýni, fjarsýni og sjónskekkja) með lasertækni. Fyrirtækið er starfrækt í Spönginni 39, 112 Reykjavík og hægt er að leggja inn tímapantanir í síma 577 1001. Einnig er bent á eftirfarandi vefsíður: www.lasik.is og www.sjonlag.is Augnlæknar stöðvarinnar eru Jóhannes Kári Kristinsson og Einar Stefánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.