Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁTAK GEGN BRJÓSTAKRABBAMEINI Í OKTÓBER 2001 Þökkum öllum þeim sem studdu þetta átak H INN 27. ágúst, ein- ungis tveim vikum áður en hryðjuverkin voru framin í Banda- ríkjunum 11. septem- ber, var hringt í Abu Dahdah, meintan forsprakka útibús hryðju- verkasamtakanna al-Qaeda á Spáni. Maðurinn sem hringdi gekk undir nafninu Shakur. „Við erum komnir inn á flug- svæðið og við erum jafnvel búnir að skera fuglinn á háls,“ sagði Shakur. Hann var staddur utan Spánar, og þetta var eitt af mörgum símtölum, sem fram fóru á dulmáli, milli þess- ara tveggja manna. Símtölin voru hleruð af spænsku lögreglunni fyr- ir og eftir hermdarverkin í New York og Washington. „Markmið mitt er markmiðið og ég vil ekki ræða það í smáatriðum,“ sagði Shakur ennfremur. Átján dögum eftir tilræðin hringdi Shakur, sem sagður var tala með miklum norður-afrískum hreim, aftur í Abu Dahdah og sagð- ist hafa sagt sameiginlegum vini þeirra nýtt símanúmer sitt, þar eð það gamla hefði verið orðið „heitt“. Hann sagðist líka þurfa að „skipta um andrúmsloft“, að því er fram kemur í dómsskjölum. Þessi atriði eru kjarninn í ákæru sem birt var opinberlega sl. mánu- dag, 19. nóvember, og er sögð tengja spænskan hryðjuverkahóp við undirbúning árásanna 11. sept- ember. Vísað var til þeirra sér- staklega í viðtali sl. þriðjudag við spænskan saksóknara, sem kvaðst telja að „fuglinn“ væri bandaríski örninn, tákn Bandaríkjanna. Og rannsóknardómarinn sem úrskurð- aði Abu Dahdah og sjö aðra í ótímabundið varðhald sagði að „samræðurnar bendi óbeint til þess að þeir séu að tala um árásirnar“. Hermenn Allah Í úrskurði rannsóknardómarans, Baltasars Garzóns, segir m.a. að Dahdah, sem var leiðtogi hópsins, hafi verið lífsglaður fjölskyldumað- ur sem ók börnunum sínum í skól- ann og hafði nafnið sitt í síma- skránni, að því er fram kemur í The New York Times. Sá sem talinn er hafa verið að- stoðarmaður hans virtist öllu nei- kvæðari, gekk með dökk sólgler- augu nótt sem dag, en tók þátt í gróðursetningarátaki við blokkina sem hann bjó í. Einn í hópnum var hávaðaseggur, Spánverji sem hafði snúist til íslams, látið sér vaxa skegg og fannst varið í að þeyta lúðra á samkomum þar sem stríð- inu í Afganistan var mótmælt. Hópurinn tók að myndast 1994 þegar nokkrir róttæklingar í Madr- íd reyndu að ná völdum í mosku í miðborginni til þess að koma þar á aukinni bókstafstrúarkennslu, að því er New York Times hefur eftir Garzón dómara. Tilraun róttækl- inganna mistókst vegna þess að deildir urðu meðal upphlaupsmann- anna og þeir skiptust upp í hópa. Einn hópurinn laut forystu Pal- estínumanns og varð Dahdah helsti aðstoðarmaður hans. Hópurinn kallaði sig Hermenn Allah. Í mosk- unni dreifði hópurinn bæklingum um aðgerðir herskárra múslima í Alsír, á heimastjórnarsvæðum Pal- estínumanna, í Egyptalandi og Afganistan. Einnig var dreift skila- boðum frá Osama bin Laden. For- ingi hópsins og Dahdah hófu inn- rætingu hjá ungum múslimum sem sýndu bæklingunum áhuga, og fengu nokkra til að halda til bar- daga í Bosníu, þar sem múslimir voru í stríði við Serba, að því er fram kemur í úrskurði dómarans. Frásögn Garzóns dómara er að hluta til byggð á upplýsingum er fengist hafa með símahlerunum sem spænsk yfirvöld hafa stundað í mörg ár. Af úrskurði dómarans má ráða að spænskir leyniþjónustu- menn hafa fylgst með Dahdah og hlustað á samskipti hans við aðra meinta al-Qaeda-liða í Evrópu og Asíu síðan 1997 að minnsta kosti. Fréttaskýrandi New York Times bendir á, að ef frásögn dómarans sé rétt hafi Dahdah lifað fullkom- lega tvöföldu lífi. Hann er um fer- tugt, hárið er tekið að þynnast en skeggið er ræktarlegt. Hann er kvæntur spænskri konu sem snér- ist til íslams og fór að hylja hár sitt, að því er haft er eftir nágrönn- um þeirra hjóna. Dahdah keypti íbúð í rúmgóðri, fjögurra hæða blokk þar sem eink- um búa arkitektar og opinberir starfsmenn. Nafnið hans er í síma- skránni. Hann keyrði börnin sín yf- irleitt í skólann, sem er í stærstu moskunni í borginni. En á sama tíma, að því er segir í úrskurði dómarans, fór Dahdah að fá til liðs við sig sífellt fleiri herskáa múslima og fór að ferðast víða. Síðan 1996 hefur hann farið rúmlega 20 sinnum til Bretlands þar sem hann hefur fundað með leiðtogum Mujahedeen-hreyfingar- innar. Hann hefur líka farið til Tyrklands, Belgíu, Danmerkur, Svíþjóðar, Indónesíu, Malasíu og Jórdaníu, að því er segir í úrskurði spænska dómarans. Byggt á ályktunum En á heildina litið sýna sönn- unargögnin, sem vitnað er til í skriflegum úrskurði Garzóns dóm- ara, að meint tengsl Madrídarhóps- ins við hryðjuverkin – að minnsta kosti í opinberum gögnum – eru byggð á ályktunum ekki síður en hörðum staðreyndum. Í skjalinu eru þónokkrar vafasamar fullyrð- ingar og villur um hóp í Hamborg, undir forystu aðalflugræningjans, Mohameds Attas. Í viðtali sl. þriðjudag sagði spænski saksóknarinn Pedro Rub- ira að hann væri sannfærður um að ásakanirnar, er lagðar væru fram í úrskurði dómarans, þ.á m. um bein tengsl Madrídarhópsins við Atta og hermdarverkin 11. september, væru á rökum reistar. En hann vildi ekki svara mörgum spurning- um um tilteknar tilvísanir í úr- skurðinum. Hann vildi heldur ekki segja frá því hvort hann gæti borið kennsl á Shakur og vildi ekki ræða frekar um önnur sönnunargögn sem yfirvöld kunna að hafa undir höndum til að renna stoðum undir fullyrðingar sínar um tengsl milli Madrídarhóps Abus Dahdahs og Hamborgarhópsins. Í ákærunni er Dahdah, sem er Spánverji af sýrlenskum uppruna og heitir réttu nafni Imad Eddin Barakat Yarkas, sagður hafa fjár- magnað starfsemi sína, þ.á m. mikil ferðalög, með krítarkortasvindli og ránum. Að þessu leyti svipar Madr- ídarhópnum og Yarkas til fjölda annarra hryðjuverkahópa, sem komið hefur verið upp um í Evr- ópu, þ.á m. í Mílanó og Frankfurt, sem snéru sér að glæpum til fjár- öflunar, en liðsmenn þeirra létu líta svo út fyrir, að þeir lifðu eðlilegu lífi. En það sem er óljóst í úrskurði spænska dómarans er hvort Madr- ídarhópurinn hafi verið jafn ná- tengdur hryðjuverkunum 11. sept- ember og Garzon gaf í skyn þegar hann skrifaði að liðsmennirnir í Madríd hafi verið „beinlínis í tengslum við undirbúning og skipu- lagningu árásanna sem fram- kvæmdar voru af sjálfsmorðsflug- mönnum 11. september“. Í skjalinu er til dæmis engu ljósi varpað á tvær ferðir sem Atta fór til Spánar í janúar og júlí sl. Þar er fullyrt að meðal þeirra er Abu Dahdah hafði samband við í Evr- ópu hafi verið Atta og Said Bahaji og Ramzi Binalshibh. Tveir síðar- nefndu mennirnir bjuggu stundum á sama stað og Atta í Þýskalandi og flýðu landið skömmu áður en til- ræðin voru framin. Mannanna tveggja, auk þriðja manns sem hafði bækistöð í Hamborg, er leitað af þýskum yfirvöldum vegna að- ildar að morði. Ekki sama íbúðin Gamla símanúmer Abus Dahd- ahs í Madríd kom fram í dagbók sem fannst í íbúð í Þýskalandi sem ýmsir skipuleggjendur hryðjuverk- anna höfðu deilt, að því er fram kemur í úrskurði Garzons dómara. Þessi dagbók var í eigu Bahajis, segir í úrskurðinum. Þýska lögreglan leitaði í íbúð sem Bahaji, sem talinn er hafa ver- ið viðhaldssérfræðingur Hamborg- arhópsins, bjó í með konu sinni og ungabarni. Þar lagði lögreglan hald á ýmis skjöl. En þarna var ekki um að ræða íbúðina við Marienstræti, þar sem Atta og annar flugræningi, Marwan al-Shehhi, höfðu búið, öf- ugt við fullyrðingu Garzons dóm- ara. Bahaji flutti frá Marienstræti í ágúst 1999, að því er fram kemur í gögnum fasteignasalans sem leigði íbúðina út, og samkvæmt upplýs- ingum þýskra rannsóknarfulltrúa. Atta flutti úr íbúðinni í maí í fyrra, og þegar hinir leigjendurnir, þ.á m. Binalshibh, fóru út í mars sl. var íbúðin máluð og skilin eftir tóm, að sögn þýskra yfirvalda. Þetta virðast allt vera smáatriði, en í úrskurði spænska dómarans er dregin af þessu sú stórfellda álykt- un, að annar hópur í Evrópu hafi vitað fyrirfram um og tekið þátt í hryðjuverkunum í Bandaríkjunum. Þar að auki er gefið í skyn að Bahaji hafi lært til flugmanns en hafi verið synjað um vegabréfsárit- un til Bandaríkjanna. Þýsk yfirvöld draga þetta í efa og segja hvorki vísbendingar um að Bahaji hafi lært flug né að hann hafi haft uppi áform um að fara til Bandaríkj- anna. Þýskir rannsóknarfulltrúar segja ennfremur, að Bahaji, sem var einu sinni undir eftirliti í Hamborg, hafi haft samskipti við fjölmarga rót- tæka múslima víðs vegar í Evrópu, en sú staðreynd ein og sér sé ekki sönnun þess að þessir menn hafi vitað um fyrirætlanirnar 11. sept- ember, eins og gefið er í skyn í úr- skurði spænska dómarans. Síma- númer annarra róttæklinga, fyrir utan Abu Dahdah, fundust í skjöl- um Bahajis, en þýsk yfirvöld telja ekki að fjöldi manns hafi vitað um tilræðið fyrirfram. Fjölskyldumaður og útibússtjóri hjá al-Qaeda AP Lögreglumynd af meintum forsprakka al-Qaeda-hópsins á Spáni, Imad Eddin Barakat Yarkas, öðru nafni Abu Dahdah, eftir að hann var handtekinn ásamt sjö öðrum og úrskurðaður í varðhald um ótilgreindan tíma. Spænski hópurinn sem talinn er tengjast hermdarverkunum 11. september á sér langa sögu. Svo virðist sem forsprakki hans hafi ekki bara gengið undir tveimur nöfnum, heldur hafi bókstaflega lifað tvöföldu lífi. Á bak við jákvæða manninn sem keyrði börnin sín í skól- ann var annar maður sem atti börnum út í stríð. Madríd. The Washington Post.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.