Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ var skipstjórinn. Menn voru að setja á sig björgunarvesti.“ Mennirnir um borð í Notts County, sumir sjómenn með áratug- areynslu, fundu nú einkennilegar hreyfingar og heyrðu torkennileg hljóð sem þeir höfðu jafnvel aðeins heyrt áður í hryllingskvikmyndum. Í hvert skipti sem alda kom undir skipið og lyfti því heyrðust óhugnan- legir brestir í stálinu á botninum sem var að merjast í stórgrýtinu þar sem þetta mörg hundruð tonna skip var að skorða sig. Menn setti hljóða að heyra draugalegt brakið í skipsskrokknum og yfirbyggingunni, gálgum, blökk- um og öðrum málmi innan um öskrandi vindrokurnar þar sem sjór- inn, um eða undir frostmarki, fruss- aðist um allt og smaug inn um hverja glufu. Hraðinn á söltum sjónum var svo mikill að minnsti dropi var eins og skerandi ísnál ef hann skall á and- liti eða öðru mjúku holdi. Richard fannst skipið vera að brotna í spón: „Það var eins og allt væri að slitna og liðast í sundur. Við heyrðum hátt, urgandi brakhljóð. Skipið hafði rek- ist á eitthvað en hvað var það og hvar var það? Klettar, sker eða stórgrýti? Björgunarbáturinn fýkur burt Algjör örvænting ríkti um borð – öngþveiti. Allir vildu helst komast burt frá þessu. Nú tók blóðið að streyma fyrir alvöru. „Burt frá skipinu, burt frá skip- inu!“ hrópuðu menn. „Hvar eru líf- bátarnir?“ Það var að renna upp fyrir okkur hvað hafði gerst. „Yfirgefið skipið,“ kallaði skip- stjórinn. Mér fannst þó augljóst að skipið væri að farast með okkur alla. Ég skynjaði óskaplega hræðslu í kringum mig. Björgunarbátarnir voru það eina sem komst að í huga okkar. Einn þeirra var áveðurs aftarlega á skip- inu. Honum hentum við fyrir borð. Í fyrstu virtist allt ætla að ganga að óskum. Báturinn blés upp um leið og hann var kominn fyrir borð og það kipptist í spottann sem var bundinn við skipið. En þegar báturinn var út- blásinn í öldunum við skipshlið feykti vindurinn honum skyndilega upp. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eig- in augum. Eins og hendi væri veifað tókst báturinn á loft, fauk upp með síðunni, yfir lunninguna og upp að yfirbyggingunni. Við horfðum allir skelfingu lostnir á það sem var að gerast. Ekki varð við neitt ráðið. Báturinn hélt áfram. Þetta rífandi, öskrandi fárviðri lyfti nú bátnum alla leið yfir bátadekkið og yfirbygg- inguna. Þungur báturinn sveif líkt og loftbelgur. Þegar tók í bandið sem hann var festur við slitnaði það eins og tvinni. Báturinn var horfinn – yfir skipið. Út í skelfilegt svartnættið. Við færðum okkur yfir að hlésíðu skipsins þar sem annar gúmbátur var. Nú var að minnsta kosti skjól af yfirbyggingunni. Báturinn blés upp. En þetta gekk illa. Við toguðum bát- inn í átt að brúnni þannig að við hefð- um sem best skjól. Báturinn lét mjög illa á öldunum. Eitthvað varð að gera til að halda honum stöðugum svo að menn gætu stokkið niður í hann.“ Hékk á fingurgómunum Robert Bowie háseti, maðurinn sem hafði hreytt ónotum í Richard og hinn manninn er þeir komu um borð í skipið á Humberfljóti í upphafi ferðar, ákvað að stökkva fyrir borð í því skyni að reyna að hemja gúmbát- inn. „Einn af okkur verður að reyna að halda bátnum flötum á meðan allir hinir stökkva um borð,“ sagði hann. Robert stökk niður í bátinn. Hann lagðist á bakið ofan á yfirbreiðslu bátsins með bæði hendur og fætur útglennta. Richard horfði á þegar einn af fé- lögum hans hélt í lunninguna og ætl- aði að láta sig síga niður í bátinn nið- ur til Roberts: „Maðurinn var kominn með annan fótinn á gúmbátinn þegar geysiöflug vindhviða reið yfir. Skyndilega fannst mér gúmbáturinn stingast niður. Ég stökk til að grípa í mann- inn sem var að fara niður. Hann var að sleppa lunningunni til að fara í gúmbátinn. Mér fannst hann hanga á fingurgómunum. Gúmbátnum var að hvolfa. Vindurinn lyfti bátnum upp og Robert Bowie flæktist í yf- irbreiðslunni og varð undir honum. Ég greip í stakk mannsins sem var að fara á eftir honum og hélt dauða- haldi í hann. Engu hafði mátt muna að hann færi sömu leið og Robert. Nokkrir félagar okkar komu og hjálpuðu mér við að draga manninn um borð aftur. Robert var undir gúmbátnum í jökulköldum sjónum. En við náðum ekki bátnum. Hann var bundinn við skipið en öldurnar og stormurinn tóku af okkur öll völd. Bátinn rak nú alveg aftur með skipinu. Sjórinn flæddi öðru hvoru upp á ísilagt þil- farið til okkar þar sem við áttum mjög erfitt með að fóta okkur. Menn misstu jafnvægið hver á fætur öðr- um. Bjargið mér út úr þessu! Við heyrðum skerandi ópin í Ro- bert. Hrollur fór um mig er ég ímyndaði mér hvernig maðurinn barðist um á hæl og hnakka þarna niðri í bátnum í jökulköldum og brimsöltum sjó í myrkrinu. Ég fann hjartað ólmast, ekki bara af áreynslu heldur ótta. Við toguðum allt hvað af tók. „Við verðum að ná manninum aftur um borð!“ öskruðu menn móðir og más- andi. Hávaðinn í rokinu var svo mik- ill að við heyrðum naumast hver í öðrum nema með því að hrópa upp í eyrað á næsta manni. Menn rembdust og æptu: „Samtaka strákar! Toga núna!“ Aftur og aftur og aftur. Við horfðumst í augu við þá skelfi- legu staðreynd að því lengri tími sem leið því meiri var hættan á að við misstum félaga okkar. Robert æpti: „Komið mér aftur um borð, komið mér aftur um borð!“ Ég var með grátstafinn í kverk- unum að heyra skerandi ópin. En við megnuðum ekki að toga bátinn til okkar. Við höfðum ekkert í náttúru- öflin. Þótt gúmbáturinn væri á hvolfi tók hann óskaplegan vind í sig. Þetta var eins og að vera með uppblásinn risaflugdreka. Vindstyrkurinn, snjó- koman og krafturinn í öldunum voru ofjarlar okkar. Stundum náðum við að toga hann örfáa metra í átt að skipinu en aldrei þannig að við næðum taki á sjálfum bátnum. Það var líkt og sjórinn skolaði Ro- bert fram og til baka, eins og í þvottavél, inni í gúmbátnum. „Hjálpið mér! Bjargið mér út úr þessu!“ veinaði hann. Aldrei áður hafði ég kynnst bar- áttu upp á líf og dauða. Rödd Ro- berts dofnaði smám saman. Hann var greinilega að örmagnast.“ Bókin Útkall í djúpinu, eftir Óttar Sveinsson, kemur út hjá Íslensku bóka- útgáfunni. Bókin er 216 blaðsíður að lengd. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Átök brutust út á Keflavíkurflugvelli og síðar við sjúkrahúsið á Ísa- firði. Á myndinni sést þegar Úlfur Gunnarsson yfirlæknir reynir að stugga blaðamönnum og ljósmyndurum frá – allir vilja komast inn til að fylgjast með endurfundum Eddomhjónanna. Morgunblaðið/P. Jackson Smaladrengurinn Guðmann Guðmundsson á Kleifum með for- eldrum sínum og yngri systkinum. Guðmann hjálpaði Harry Eddom heim á bæ og bjargaði með því lífi hans. Í Útkallsbókinni greinir Guðmann frá atburðunum. The Sun Myndin sem slegist var um á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Blaða- menn The Sun höfðu tryggt sér einkarétt á að taka myndir af endurfundum hjónanna og var þessi mynd á forsíðu blaðsins. Högni Torfason Harry Eddom á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Næturlangt og fram á morgun rak hann með látnum félögum í gúmbát, allan næsta dag gekk hann eftir héluðu og tor- færu skriðubelti áður en hann kom að sumarbústað. Hann gat ekki brotið sér leið inn vegna dofinna útlima. Heila nótt norpaði hann undir húsvegg, nær dauða en lífi, áður en smalapiltur kom undir hádegi daginn eftir og fann hann. Við lifum á póst-módernískum, einsleit-um og afstöðulausumtímum. Þetta eru eng-in ný sannindi, því segja má að þetta hafi blasað við um alllangt skeið hér á Vest- urlöndum. Tískan sveiflast með þvílíkum leifturhraða að engin leið er að henda reiður á henni, myndband á MTV er orðið gamaldags eftir vik- una og klassískt eftir hálfan mán- uð. Allt umhverfi okkar er meira og minna eins, hvort sem við sveimum um Reykjavík, Kaupmannahöfn, London, Berlín eða New York. Sömu auglýsing- arnar blasa við um sömu sjónvarps- þættina og bíómyndirnar. Hvar- vetna eru sömu búðirnar, sömu skyndibitastaðirnir og meira að segja sami leigubílstjórinn við stýr- ið, ættaður frá Austurlöndum. En það felst ákveðin mótsögn í þeirri staðreynd að á sama tíma er umhverfi okkar fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. Við erum ein- faldlega með allt litróf verald- arinnar fyrir augunum, allan tím- ann, alls staðar, þökk sé spámanni okkar tíma, sem réttara sagt, skjá- manni. Með sífellt einfaldari og ódýrari tækni færir sjónvarpsskjárinn okk- ur statt og stöðugt myndir og hljóð frá öllum heimshornum. Skjámað- urinn, sem auðvitað hefur þúsund mismunandi andlit, leiðir okkur í augsýnilegan sannleika um allt sem linsan beinist að hverju sinni og stundum verður áhrifamesti sann- leikurinn beinlínis til fyrir augum okkar, alveg óvart, eða hver mun gleyma myndskeiðinu þar sem maður með kaffibolla hrekkur í kút þegar farþegaþota ristir sér leið inn í WTC-turninn í bakgrunni. En hefur þetta upplýsingaflóð gert okkur að betri mönnum? Ég held ekki. Ég held að það hafi gert okkur að enn meiri sérhags- munaseggjum en nokkru sinni fyrr. Einmitt vegna þess hve áreiti allrar veraldarinnar er orðið mikið og stöðugt og á okkur dynja jöfnum höndum veruleikabrot frá Hús- dýragarðinum og Kabúl, höfum við glatað eiginleikanum til að taka ígrundaða afstöðu, byggða á raun- verulegri yfirsýn. Það bylur á okk- ur stanslaust pus af upplýsingum og við náum ekki að vinsa úr þeim og búa til raunverulega þekkingu. Það eina sem við náum að gera, fyrir utan hrein tilfinninga- viðbrögð, er að bregðast við sam- kvæmt eðlisávísun. Að halda nán- ast eðlislægri vöku okkar yfir eigin hagsmunum. Áleitnasta spurningin er ekki: Ef þetta er svona, hvað finnst mér um það og hvað get ég gert til að hafa áhrif á það? Áleitn- asta spurningin er fremur: Hefur þetta í för með sér eitthvert vesen fyrir mig, eða kannski eitthvert tækifæri? Tími samtaka um tiltekna hug- sjón gagnvart samfélagi mannanna virðist að mestu liðinn. Við kjósum okkur ekki leiðtoga vegna trúar okkar eða þeirra á einhvern mál- stað, heldur einvörðungu út frá því sem við teljum henta okkur best sjálfum, hér og nú. Við erum ekki lengur virkir þátttakendur í sam- félagi. Eina félagið sem við erum öll í er Félag áhugamanna um eigin velgengni. Í Félagi áhugamanna um eigin velgengni er gott að vera. Þar er ekkert vesen. Engir formlegir fundir, engar félagslegar skyldur eða sjálfboðavinna. Það eru ekki heldur nein árgjöld eða söfn- unarátök. Mottó félagsins segir allt sem segja þarf: Allt og allir fyrir einn, það er að segja mig. Félag áhuga- manna um eigin velgengni HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.