Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ 24. nóvember 1991: „Vaxandi þrýstingur er nú á banka- kerfið að lækka raunvexti. Af ummælum forsvarsmanna samtaka atvinnuvega og verkalýðssamtaka má ráða, að veruleg vaxtalækkun sé ein helzta forsenda þess að skynsamlegir samningar tak- ist á vinnumarkaði. Þá er að sjálfsögðu átt við lækkun raunvaxta en síðustu vikur og mánuði hafa verið töluverðar sviptingar um lækkun nafn- vaxta. Er bersýnilegt að bankar og sparisjóðir hafa ekki verið á einu máli um, hvernig standa bæri að þeim málum. Yfirlýsing Baldvins Tryggvasonar, sparisjóðs- stjóra í Sparisjóði Reykjavík- ur og nágrennis, hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum þess efnis að sparisjóðirnir gætu ekki gengið lengra í vaxta- lækkunum vegna tregðu Landsbanka og Íslandsbanka til þess að gera slíkt hið sama vakti verulega athygli. Deil- urnar um nafnvaxtalækkun, sem að nokkru leyti eru til komnar vegna hins tvöfalda kerfis verðtryggðra og óverð- tryggðra útlána sem hér rík- ir, hafa hins vegar beint at- hyglinni frá kjarna málsins, sem er nauðsyn þess að lækka raunvexti verulega.“ . . . . . . . . . . 29. nóvember 1981: „Í einu dagblaðanna í Reykjavík birtist þessi málsgrein fyrir nokkrum dögum: „Þjóðir Evrópu frá Póllandi til Portúgal, frá Grikklandi til Íslands eiga einum rómi að krefjast þess, að Rússar dragi SS-20 eldflaugar sínar nú þegar burt og með- aldrægum eldflaugum á veg- um NATO verði ekki komið upp í Vestur-Evrópu.“ Þessi málsgrein gæti orðið tilefni spennandi spurningaleiks, þar sem leitað væri svara við því, í hvaða dagblaði hún hafi birst. Flestum dytti líklega í hug, að hún hefði birst í ein- hverju þeirra blaða, sem af tillitssemi fjalla um viðhorf Bandaríkjastjórnar á al- þjóðamálum, því að í máls- greininni felst einmitt hið sama og var kjarninn í boð- skap Ronalds Reagans, þeg- ar hann flutti ræðu sína um utanríkismál 18. nóvember síðastliðinn. Þar lagði Banda- ríkjaforseti áherslu á það sjónarmið sitt, sem nýtur stuðnings allra ríkisstjórna í Atlantshafsbandalaginu, að hætt verði við að smíða gagn- eldflaugakerfi Atlantshafs- bandalagsins í Evrópu, ef Sovétmenn leggja niður SS-20, SS-4 og SS-5 kjarn- orkueldflaugar sínar. Hin umrædda málsgrein birtist í forystugrein Þjóðviljans laugardaginn 7. nóvember, á sjálfu byltingarafmæli Sov- étríkjanna, daginn áður en Lúðvík Jósepsson, fyrrum formaður Alþýðubandalags- ins, hyllti ráðstjórnina með sovéska sendiherranum á fundi MÍR í Þjóðleikhúskjall- aranum.“ . . . . . . . . . . 28. nóvember 1971: „Eftir að Kommúnistaflokkur Íslands var stofnaður fundu áhang- endur hans fljótt, að þeir áttu enga von um að komast til áhrifa í þjóðfélaginu, meðan þeir sýndu réttan lit. Þeir urðu þess varir, að íslenzka þjóðin var mjög fráhverf draumsjónum þeirra um sæluríkið í austri. Enda var það svo, er þannig og verður, að vafasamt er, að nokkur þjóð sé í eðli sínu lýðræð- issinnaðri en Íslendingar og andsnúnari hvers kyns kúg- un og takmörkun á frelsi manna til orðs og athafna.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BANKAR ERU EKKI BYGGÐASTOFNANIR Miklar breytingar hafa orðið íbankaviðskiptum hér á landiá undanförnum árum. Tæknibreytingar leika þar stórt hlut- verk. Svokallaðar bankalínur gera fólki kleift að eiga viðskipti við bank- ana í gegnum síma og í netbönkum geta einstaklingar og fyrirtæki sinnt stórum hluta bankaviðskipta sinna. Notkun debet- og kreditkorta hefur farið hraðvaxandi og er hvergi meiri en á Íslandi. Þessi breyting hefur komið öllum viðskiptavinum bankanna til góða, ekki sízt fólki í hinum dreifðu byggð- um landsins. Ekki er lengur nauðsyn- legt að ferðast um lengri eða skemmri veg til að fara í bankaútibú; hægt er að sinna heima við öllum algengustu erindum, sem fólk átti áður í banka. Í annan stað hefur orðið mikil breyting á rekstrar- og samkeppnis- umhverfi banka. Samkeppnin er orðin alþjóðleg og fer sífellt harðnandi. Til þess að gera ríkisbönkunum kleift að standa sig í þeirri samkeppni – og jafnframt til að jafna samkeppnisað- stöðu fjármálastofnana hér innan- lands – hefur Alþingi ákveðið að selja hlut ríkisins í þeim og ljúka einkavæð- ingunni á næstu tveimur árum. Bún- aðarbankinn og Landsbankinn eru orðnir hlutafélög, sem eiga að láta stjórnast af viðskiptalegum sjónar- miðum eins og önnur fyrirtæki á hlutabréfamarkaði. Þetta er bakgrunnur þeirra ákvarð- ana, sem Landsbanki Íslands hf. hef- ur tekið um að fækka starfsfólki og draga úr þjónustu útibúa sinna á Kópaskeri, Raufarhöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka, Vopnafirði og Seyðis- firði. Í máli Björns Líndal, fram- kvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Landsbankans, í Morgunblaðinu í gær kemur fram að þessar ákvarðanir eru framhald þróunar, sem hafin er fyrir allnokkrum árum og takmarkast alls ekki við landsbyggðina. Þannig hefur stöðugildum í útibúum Lands- bankans á höfuðborgarsvæðinu fækk- að um 200 sl. 10 ár, en um 130 á lands- byggðinni. Útibúum hefur verið fækkað um allt land, líka í Reykjavík. Málflutningur sumra þingmanna þeirra svæða, þar sem Landsbankinn grípur nú til hagræðingaraðgerða, bendir til að ofangreind þróun mála hafi farið framhjá þeim. Það er skilj- anlegt að heimamenn á þeim stöðum, sem um ræðir, hafi áhyggjur af því þegar fólki er sagt upp vinnunni, en það er ósköp fátt sem ríkisvaldið, þar með talið Alþingi, getur gert eða á að gera í því. Alþingi hefur samþykkt að selja bankann og þar með gefið frá sér og stjórnvöldum yfirleitt valdið til að hlutast til um rekstur hans. Kröfur um skýringar, greinargerðir og að „tekið verði á málum“ vegna þessara ákvarðana Landsbankans benda til að þingmennirnir telji ríkisvaldið eiga að nota síðasta tækifærið og þvinga Landsbankann til að hafa byggða- sjónarmið í huga fremur en hag- kvæman rekstur. Slíkt yrði í fyrsta lagi skammgóður vermir, því að bank- inn verður ekki mikið lengur í eigu ríkisins. Í öðru lagi hefði það varla góð áhrif á áhuga fjárfesta á hlut í Landsbankanum ef það yrði gert að skilyrði við sölu hans að bankinn gætti hagsmuna einstakra byggðar- laga fremur en hagsmuna hluthafa. Í þriðja lagi væri fráleitt að nýta ekki þau tækifæri til hagræðingar, sem tækniþróunin hefur skapað. Það er einfaldlega liðin tíð að bankar séu reknir öðrum þræði eins og byggða- stofnanir. Þ að er uppi athyglisverður skoðanamunur á milli manna í stjórnmálum og atvinnulífi um ástand og horfur í efna- hagsmálum um þessar mundir. Augljóst er að for- ystumenn verkalýðshreyf- ingarinnar hafa þungar áhyggjur og telja, að efnahagsþróunin sé að fara úr böndum. Þetta viðhorf kom skýrt fram á fundi forystusveitar Alþýðusambandsins og landssam- banda þess fyrr í vikunni. Það endurspeglaðist í ósk Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ, og Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra ASÍ, um óformlegan fund með Davíð Oddssyni for- sætisráðherra, sem fram fór í fyrradag, fimmtu- dag. Áhyggjur verkalýðsforystunnar eru skiljan- legar. Allt bendir til að forsendur verði fyrir upp- sögn kjarasamninga eftir áramót. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar þurfa að taka afstöðu til þess, hvort þeir segi upp samningum. Geri þeir það vakna spurningar um hvers konar kröfugerð sett verður fram í nýjum samningum. Þeir vita jafn vel og aðrir, að kröfur um auknar kjarabætur mundu auka á þann vanda í efna- hagsmálum, sem þeir sjálfir lýsa meiri áhyggjum af en flestir aðrir. En jafnframt er ljóst að þrýst- ingur á forystuna frá félagsmönnum verkalýðs- félaganna fer vaxandi, þegar verðlag á nauð- synjavörum, ekki sízt matvörum, hækkar dag frá degi. Innflytjendur, byggingariðnaður, talsmenn framleiðslufyrirtækja o.fl. tala á mjög svipaðan hátt og verkalýðsforingjarnir. Sumir þessara að- ila takast nú á við vanda, sem fylgir nánast hruni í viðskiptum. Það á t.d. við um bílainnflytjendur og þá sem selja tölvur og hugbúnað. Fjölmiðla- fyrirtækin í landinu, sem veita á annað þúsund manns vinnu, verða rækilega vör við samdrátt í þessum geira atvinnulífsins í minnkandi auglýs- ingamagni, sem að vísu er miðaður við árið 2000, sem var toppár. Og það er athyglisvert í þessu samhengi, að hið sama á við um fjölmiðlafyrir- tæki um allan heim. Matvöruverzlanir verða varar við þessa þróun á þann veg, að verzlunin er að færast frá þeim verzlunum, sem eru með hærra verð en þá vænt- anlega meira vöruúrval og meiri þjónustu yfir í búðir, sem eru með lægra verð. Samdráttur á þessum sviðum segir hins vegar aðeins hálfa söguna. Á móti kemur, að sjávar- útvegurinn græðir nú á tá og fingri. Þegar gengi krónunnar var sem hæst fyrir nokkrum miss- erum var talað um að verulega kreppti að í sjáv- arútvegi og öðrum útflutningsfyrirtækjum. Þá blómstruðu fyrirtæki í innflutningi, byggingar- iðnaði, fjölmiðlun o.s.frv. Nú hefur þetta alveg snúizt við. Auk sjávarútvegsfyrirtækjanna er augljóst, að tryggingafyrirtækin eru að skila góðum hagnaði, olíufélögin þurfa ekki að kvarta og flest bendir til þess að sum fjármálafyrirtækjanna skili miklum hagnaði á þessu ári, þótt önnur búi við mun lakari afkomu. Þá fer ekki á milli mála, að samdráttur hér og raunar bæði í Bandaríkjunum og Evrópu hefur ekki dregið kjark úr ungum athafnamönnum. Til marks um það eru umfangsmikil kaup bræðr- anna í Bakkavör á fyrirtæki í Bretlandi og áform Baugs um stærsta viðskiptasamning í sögu Ís- lands, þ.e. kaupin á Arcadia í London. Á þessari stundu liggur ekki ljóst fyrir, hvort af þeim kaup- um verði, þótt hitt liggi fyrir, að fjármögnun kaupanna hefur verið tryggð. Það skortir ekki kjark hjá þeim sem ráðast í slík stórvirki eða gera tilraun til að framkvæma þau eins og í þess- um tveimur tilvikum. Þegar horft er til baka má ætla, að menn í við- skiptalífinu hafi byrjað að marka samdrátt í verzlun og þjónustu undir lok síðasta árs og al- veg ljóst að frá byrjun þessa árs hefur hann verið mjög skýr. Auglýsingar í fjölmiðlum endurspegla þessa þróun með skýrum hætti og þær byrjuðu að dragast saman strax í janúar. Breytingu á við- skiptaháttum almennings, þ.e. að færa viðskiptin frá verzlunum með hærra vöruverð til verzlana með lægra vöruverð, mátti líka marka í byrjun ársins. Hið sama á við um bílainnflutninginn. Lækkun á gengi krónunnar hefur svo hert á þessari framvindu mála. Henni hafa líka fylgt al- varleg vandamál í viðskiptalífinu, sem koma víða við. Þeir athafnamenn, sem haft hafa mikil um- svif á undanförnum árum og keypt stóra hluti í almenningshlutafélögum, stundum í krafti er- lendrar lántöku, hafa orðið fyrir þungum búsifj- um vegna gengislækkunarinnar. Um skeið var hægt að hagnast mikið á því að taka erlend lán og ávaxta peningana hér vegna þess hve vextir voru lágir í öðrum löndum en háir hér og aðrir ávöxt- unarmöguleikar góðir. Þeir sem tóku þá áhættu að gengi krónunnar yrði stöðugt og mundi ekki breytast að ráði standa nú frammi fyrir alvar- legum vanda, sem leitt hefur til margvíslegra átaka í viðskiptalífinu. Þegar á heildina er litið eru því alveg tvær hlið- ar á því umræðuefni, sem hefur einna mest ein- kennt þjóðfélagsumræðurnar síðustu vikurnar. Vandamálin, sem hluti atvinnulífsins stendur frammi fyrir, hafa valdið því, að svartsýni er um- talsverð og menn hafa þungar áhyggjur af því, að efnahagsmálin séu að fara úr böndunum, verð- bólgan muni aukast en ekki minnka með öllum þeim afleiðingum, sem því fylgja og yngri kyn- slóðir t.d. þekkja ekki. Það er athyglisvert að á sama tíma og umræð- ur hér einkennast af þessum áhyggjum skjóta nú upp kollinum í bandarískum blöðum aðvörunar- orð um að þar í landi kunni verðhjöðnun að vera í aðsigi, sem geti ekki síður leitt af sér vandamál en aukin verðbólga. Að einhverju leyti má segja að svartsýni margra í atvinnulífinu hér endurspeglist í verði hlutabréfa á Verðbréfaþingi Íslands en þar má nú kaupa hlutabréf í þjóðkunnum fyrirtækjum á ótrúlega lágu verði. Þrátt fyrir það eru viðskipti lítil, sem helgast m.a. af því, að það er mikil pen- ingaþurrð í viðskiptalífinu. Fyrir utan lífeyris- sjóðina er lítið um aðila á markaðnum, sem ráða yfir verulegum fjármunum. Þess vegna m.a. hreyfast hlutabréfin lítið, þótt verð þeirra sé lágt. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Við þessar aðstæður er hin hefðbundna spurning eins og allt- af: Hvað ætlar ríkis- stjórnin að gera? En það má vel vera, að þetta sé úrelt spurning, sem eigi ekki lengur við. Ef það er rétt, að hún eigi ekki lengur við má með rökum segja, að það sé einn merkasti árangurinn af starfi þeirra ríkisstjórna, sem hér hafa setið í áratug. Var ekki krafan alltaf sú, að ríkisvaldið léti atvinnulífið í friði og drægi úr afskiptum sín- um? En um leið má spyrja, hvort það hafi kannski ekki allur vandi verið leystur með því að draga úr afskiptum hins opinbera. Lengi var krafan sú, að Seðlabankinn fengi sjálfstæðari stöðu, eins og seðlabankar í öðrum löndum. Hann hefur nú fengið hana. En frá þeirri stundu má segja, að Seðlabankinn hafi legið und- ir stöðugri gagnrýni bæði frá stjórnmálamönn- um og forystumönnum í atvinnulífi vegna þess hvernig hann hefur haldið á málum. Sú var tíðin að ríkisstjórnir voru gagnrýndar fyrir að stjórna gengi krónunnar með valdboði. Nú ræður markaðurinn gengi krónunnar og um leið og það fer að gerast vakna spurningar um það, hvort markaðurinn á Íslandi sé svo lítill að einn eða tveir aðilar á þeim markaði geti haft veruleg áhrif á gengið með sama hætti og fullyrt er að gerist á verðbréfamarkaðnum. Sú var tíðin, að vaxtabreytingar voru ákveðnar af stjórnvöldum. Nú er þetta vald í höndum Seðlabankans og ekki þarf að rifja upp þær um- ræður, sem staðið hafa undanfarnar vikur og mánuði um það hvernig Seðlabankinn hafi farið með það vald. Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Í samtali við aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins í sumar, þá Karl Blöndal og Ólaf Þ. Stephensen, sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra m.a.: „...ég held, að meginmálið sé kannski að þótt allir hafi verið fylgjandi því – að minnsta kosti í orði, því að ég man ekki eftir neinum, sem var það ekki – að við hyrfum frá gengisviðmiðuninni yfir í verðbólgumarkmiðin, þá höfum við ekki séð al- veg allt fyrir. Það mætti líkja þessu við að aðilar fjármagnsmarkaðarins væru áfram í djúpu laug- inni en það væri búið að taka af þeim kútinn. Þá byrja þeir vitaskuld að hamast og halda að þeir séu að drukkna en auðvitað læra þeir sundtökin smám saman. Þá þurfa þeir ekki lengur kútinn og til lengdar fer hann bara að þvælast fyrir eins og þegar var verið að kenna okkur að synda í gamla daga.“ „Gengisfestan hafi þá verið kúturinn?“ „Gengisfestan var kúturinn, sem hélt þeim uppi og þeir gátu þess vegna verið rólegir í djúpu lauginni með svartan kút á bakinu. Nú er hann skyndilega tekinn og þá kemur klórvatn upp í þá og þeim líður bölvanlega í bili, en svo læra þeir sundtökin og þá synda þeir miklu frjálslegar og betur en þegar kúturinn var á bakinu. Þannig man ég að minnsta kosti eftir sundkennslunni í Sundhöllinni við Barónsstíg.“ Það má velta því fyrir sér hvort þessi athygl- isverða samlíking forsætisráðherra eigi ekki bara við um fjármagnsmarkaðinn heldur þjóðfé- lagið allt um þessar mundir. Við þær aðstæður, sem skapaðar hafa verið vitandi vits, getur ríkisstjórnin ekki gripið til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.