Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 51 DAGBÓK Sérmerkt handklæði 70x140 cmMargir litir Póstlistinn sími 557-1960 Íslenski www.postlistinn.is auðvelt - hringdu! Kr. 1.950 án afsl. magnafsláttur 5%, 10% eða 15% stighækkandi eftir magni LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7 HELDUR ÁFRAM Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17. Tökum bæði debet- og kreditkort. Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus. Sími okkar er 567 1210 HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR Á HVERN ÞINN FINGUR LAUGAVEGI 49 S: 551-7742HV ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Viðskiptavinir athugið! Hef hafið störf í Hárseli. Verið velkomin. Hildur Sæmundsdóttir. Þarabakka 3, 2. hæð í Mjódd, sími 557 9266 Meðvirkni Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið 30. nóvember og laugardaginn 1. desember í kórkjallara Hallgrímskirkju. Stefán Jóhannsson, MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning í síma 553 8800 Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið Kæri viðskiptavinur! Hef hafið störf eftir barnseignarfrí á hársnyrtistofunni Space, Rauðarárstíg 41. Tímapantanir eru í símum 551 3430 og 552 3430. Sigga Árnað heilla SUÐUR spilar fjögur hjörtu og fær á sig mjög beinskeytta vörn: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 963 ♥ Á2 ♦ KD4 ♣K9632 Suður ♠ ÁD5 ♥ DG109854 ♦ G3 ♣7 Vestur Norður Austur Suður – 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 1 grand Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspil vesturs er laufgosi. Sagnhafi lætur lítið lauf úr borði og gosinn á slaginn. Vest- ur hugsar sig nú um nokkra stund, en skellir svo óvænt hjartakóng á borðið! Hvað er á seyði? Vestur er ekki að gera að gamni sínu, svo mikið er víst. Ein- hverra hluta vegna þykir honum brýnt að ráðast strax á innkomu blinds á hjartaás, og líklegasta skýringin er sú að hann haldi á tíg- ulás og spaðakóng. Hann hyggst þá dúkka tígul einu sinni og frysta einn tígulslag í borði. Þetta er góð vörn, en dugir hún? Norður ♠ 963 ♥ Á2 ♦ KD4 ♣K9632 Vestur Austur ♠ KG84 ♠ 1072 ♥ K6 ♥ 73 ♦ Á865 ♦ 10972 ♣G104 ♣ÁD85 Suður ♠ ÁD5 ♥ DG109854 ♦ G3 ♣7 Ef sagnhafi túlkar þessa vörn á réttan máta sér hann mögu- leika á gagnbragði. Hann tekur á hjartaás- inn og trompar strax lauf. Tekur næst eitt tromp í viðbót og spilar síðan tígli á kóng blinds. Innkoman er notuð til að trompa lauf – ekki til að svína í spaða – og síðan er tíg- ulgosa spilað. Lauf vesturs er nú upp urið og hann verð- ur að spila spaða upp í gaffalinn eða tígli og gefa blindum þar tí- unda slaginn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LESANDI þessara pistla hefur minnzt á lo. rasandi við mig, en honum finnst það ekki alltaf rétt notað, miðað við máltilfinningu sína. Mælist hann því til, að hér verði farið nokkrum orðum um það og merk- ingu þess. Ég geri ráð fyr- ir, að allir þekki þetta orð og noti e.t.v. á stundum. Að sjálfsögðu er þetta tökuorð úr dönsku, og er elzta dæmi um það í OH frá 18. öld. Samkv. mál- venju lesanda míns er þetta einkum haft um það að vera reiður, eða jafnvel öllu heldur að verða hissa á e-u. Þessi síðari notkun kemur ekki alveg heim við máltilfinningu mína. Fyrir mér er rasandi haft um þann, sem er ofsareiður. Maðurinn varð alveg ras- andi, þegar hann heyrði fréttina. Þá á ég við, að hann hafi orðið bálreiður eða komizt í mikið upp- nám, eins og tekið er fram í OM (1983). Þar er lo. þetta merkt sem vont mál, orð, sem forðast ber í ís- lenzku. Eins og áður segir, er orðið tekið að láni úr dönsku, og það er enn vel þekkt í máli okkar. Danir tala um að vera rasende og í sömu merkingu og þegar við segjum bálvondur, fjúkandi vondur. Við eig- um sem sé í máli okkar ýmis orð, sem ná dönsku merkingunni, svo að við þurfum þess vegna ekki á danska tökuorðinu að halda. Má þar nefna lo. eins og öskuvondur, ham- stola, óður, uppvægur, svo að nokkur orð séu tekin úr Dansk-íslenzkri orðabók. Aftur á móti munum við ekki hafa tekið að láni frá frændum okkar þá merk- ingu þeirra, að e-ð sé ra- sende dyrt eða billigt, svo sem nefnt er í dönskum orðabókum um það, sem er óheyrilega dýrt eða ódýrt. – J.A.J. ORÐABÓKIN Rasandi STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert sjálfstæður og kannt að haga störfum þínum svo að þér verði sem mest úr hverju viðviki. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er góð regla að læra eitt- hvað nýtt á hverjum degi. Meiri vitneskja kemur sér alltaf vel og hún bætir líf þitt og tryggir þér öruggt áfram- hald. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hafðu vakandi auga með fjár- málunum. Nú fer erfiður tími í hönd og eins gott að hafa alla hluti á hreinu. Láttu stressið ekki ná tökum á þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ekki fyrtast við þótt einhver segi þér til syndanna. Hlust- aðu og hugleiddu svo hvað er til í því sem sagt er. Sá er vin- ur sem til vamms segir. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Reyndu að skipuleggja þig betur því annars fer allt úr böndunum og þú stendur bara uppi með sárt ennið. Sýndu vinum þínum umbeð- inn trúnað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Slepptu engu tækifæri til að njóta samvista við vini og vandamenn. Þessar stundir eru dýrmætar en stundum tökum við þeim bara sem sjálfsögðum hlut. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Láttu ekki glepjast af yfir- borðsmennsku þeirra sem vilja telja þér trú um að þeir hafi sigrað heiminn. Þú ert í góðum málum án yfirboða þeirra. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hikaðu ekki við að segja vinnufélögum þínum hvernig þú vilt hafa hlutina. Þeim ber að taka tillit til þín eins og þú tekur tillit til þeirra. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Staldraðu við og íhugaðu hvað það er sem raunveru- lega skiptir máli í lífinu. Góð heilsa er öðru dýrmætari og því skaltu vinna að henni. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Leyfðu sjálfum þér að hafa svolítinn forgang í dag. Gerðu áætlun um það hvernig þú getur best unnið að heil- brigðri sál í hraustum líkama. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gefðu þér tóm til þess að vera einn með sjálfum þér. Slíkar stundir eru nauðsynlegar til að hlaða batteríin og gera þig hæfari til framhaldsins. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Reyndu að fá útrás fyrir orkuna með jákvæðum hætti; farðu í göngutúr eða eitthvað álíka en láttu hana ekki brjót- ast út í hávaða og skömmum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu ekki að slá ryki í augu annarra heldur vertu bara þú sjálfur. Þannig áttu líka mesta möguleika því hæfileikarnir leyna sér ekki. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 25. nóvember, er fimmtug Ásdís Helga Ólafsdóttir, Drafnar- götu 13, Flateyri. Hún er að heiman. 95 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 25. nóvember, er 95 ára Jó- hanna Dagmar Björnsdótt- ir, Keldulandi 21, fyrrum fatahönnuður og sauma- kona. Af þessu tilefni mun Jóhanna Dagmar taka á móti vinum og vandamönn- um á Spóahöfða 25, Mos- fellsbæ, í dag, sunnudag, frá kl. 16–20. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 a6 5. Dc2 g6 6. Rf3 Bg7 7. Bd2 O-O 8. Hc1 Bg4 9. Db3 Bxf3 10. Dxb7 Rbd7 11. gxf3 e5 12. Dxc6 exd4 13. exd4 He8+ 14. Kd1 He6 15. Da4 Rb6 16. Db3 dxc4 17. Bxc4 Rxc4 18. Dxc4 Hc8 19. Dd3 Rd7 20. Re4 Hb8 21. Kc2 Staðan kom upp í Evr- ópukeppni landsliða sem lauk fyrir stuttu í Leon á Spáni. Laurent Fressinet (2588) hafði svart gegn Boris Avr- ukh (2606). 21... Re5! 22. dxe5 Hc6+ 23. Dc3 23. Bc3 var ekki fýsilegra vegna 23...Hxb2+ og svartur vinnur. Í framhaldinu nær svartur að nýta sér liðsmuninn í nyt. 23... Dd5 24. Kb1 Hxc3 25. Bxc3 Bxe5 26. Ka1 Bxc3 27. Hxc3 De5 28. h4 h5 29. a3 Df4 30. He3 Hc8 31. Kb1 Hc7 32. Hd3 He7 33. Ka1 Kg7 34. Hc3 Hc7 35. He3 Hc2 36. Rg5 Dc7 37. Ka2 Dc4+ 38. Kb1 Hxf2 39. Hc3 Db5 40. Hc2 Dd3 og hvítur gafst upp. Íslandsmótið í netskák og lokamótið í Bikarkeppni Hellis, Striksins og Íslands- síma fer fram í kvöld, kl. 20.00 á ICC. Alls munu tutt- ugu skákmenn taka þátt, átján efstu úr 9 mótum bik- arkeppninnar og tveir aðrir sem mótshaldarar bjóða. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. LJÓÐABROT VÍSA Gakktu varlega, vinur minn. Vel getur skeð, að fótur þinn brotni, því urðin er ógurleg. Enginn ratar um þennan veg, því lífið er leiðin til dauðans. Jóhann Gunnar Sigurðsson MENNINGARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.