Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 6
ERLENT
6 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 18/11 – 24/11
ERLENT
INNLENT
BAKKAVÖR Group hef-
ur keypt breska matvæla-
fyrirtækið Katsouris Fresh
Food Ltd. í Bretlandi fyrir
15,6 milljarða króna. Um
er að ræða stærstu fyr-
irtækjakaup í íslenskri við-
skiptasögu. Kaupin eru að
helmingi fjármögnuð af
þremur breskum bönkum.
Áætluð velta sameinaðs fé-
lags á næsta ári er um 20
milljarðar króna og verða
starfsmenn 1.900 talsins.
Með kaupunum verður
Bakkavör Group eitt af
stærstu fyrirtækjunum á
Íslandi og verður þar m.a. í
hópi með Pharmaco, Baugi
og bönkunum.
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta
hefur gert samning til sex
mánaða við ríkisflug-
félagið í Nígeríu, Nigerian
Airways, um áætlunarflug
til og frá Nígeríu og innan-
lands. Nærri 100 manns fá
vinnu vegna þessa verk-
efnis, þar af eru Íslend-
ingar um helmingur.
LETTNESKUR karl-
maður sem handtekinn var
á Dalvík á fimmtudag
vegna gruns um aðild að
tveimur morðum í Lett-
landi var á föstudag úr-
skurðaður í tveggja vikna
gæsluvarðhald að kröfu
ríkislögreglustjóra.
GEIR H. Haarde fjár-
málaráðherra segir að sjá
megi glögg merki um öran
samdrátt um þessar mund-
ir og margt hafi breyst á
verri veg á undanförnum
vikum frá því að gengið
var frá forsendum fjár-
lagafrumvarpsins.
Sjúkraliðar semja
SJÚKRALIÐAFÉLAG Íslands und-
irritaði nýjan kjarasamning við samn-
inganefnd ríkisins í Karphúsinu á mið-
vikudag og við Reykjavíkurborg á
fimmtudag. Samningar höfðu þá verið
lausir í rúmt ár. Nýr kjarasamningur
gildir til 30. nóvember 2004 og var
hann borinn undir félagsmenn SLFÍ á
kynningarfundi á föstudag. Á næstu
dögum fer fram atkvæðagreiðsla um
samninginn.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formað-
ur Sjúkraliðafélagsins, segir samning-
inn við ríkið fela í sér launahækkun við
undirritun og 3% hækkun við hver
áramót á samningstímabilinu.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði samningaumleitanir hafa verið
flóknar og erfiðar og að hann væri
ánægður að samningar hefðu tekist.
Boðuðu þriggja daga verkfalli hefur
verið frestað.
Lífeyrisskuldbindingar
jukust um 68 milljarða
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR
ríkissjóðs jukust um rúma 68 milljarða
króna á árunum 1997 til 2000 eða um
72%. Ríkisendurskoðun bendir á þetta
í nýútkominni skýrslu um endurskoð-
un ríkisreikninga ársins 2000. Stofn-
unin vekur sérstaka athygli á stöðugri
aukningu skulda ríkisins, sem námu
um 413 milljörðum kr. í lok síðasta árs.
Ríkisendurskoðun segir hækkun líf-
eyrisskuldbindinga vega þungt í stöð-
ugri aukningu skulda ríkisins, sem eigi
rætur að rekja til kjarasamninga þar
sem samið var um að fella yfirvinnu-
og aukagreiðslur inn í dagvinnulaun.
Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs
námu samtals 163 milljörðum um síð-
astliðin áramót. Í skýrslunni kemur
einnig fram að langtímaskuldir ríkis-
sjóðs hafa hækkað um 91 milljarð
króna frá árinu 1995 eða um 33%.
Hægriflokkarnir vinna
stórsigur í Danmörku
STJÓRNARANDSTAÐA borgara-
flokkanna vann mikinn sigur í þing-
kosningunum í Danmörku á þriðju-
dag. Eru borgaraflokkarnir í fyrsta
sinn frá 1929 með meirihluta á þjóð-
þinginu.
Poul Nyrup Rasmussen, leiðtogi
jafnaðarmanna og fráfarandi forsætis-
ráðherra, afhenti Margréti Dana-
drottningu afsagnarbréf sitt og stjórn-
ar sinnar á miðvikudag og lagði til að
Anders Fogh Rasmussen, leiðtoga
Venstre og sigurvegara kosninganna,
yrði falin stjórnarmyndun. Nær
öruggt er talið að Venstre og Íhalds-
flokkurinn taki þátt í nýrri stjórn og
hugsanlega Kristilegi þjóðarflokkur-
inn. Ef meirihlutastjórn hægrimanna
á að verða að veruleika þarf hún að
njóta stuðnings Danska þjóðarflokks-
ins, sem orðinn er þriðji stærsti flokk-
urinn á danska þinginu, en búist er við
að Venstre reyni í lengstu lög að kom-
ast hjá því að mynda stjórn með þess-
um umdeilda flokki.
Umsátur um Kunduz
UMSÁTUR Norðurbandalagsins um
borgina Kunduz, síðasta vígi talibana í
norðurhluta landsins, hélt áfram í vik-
unni. Bandalagið gaf talibönum frest
til fimmtudags til að gefast upp, en hóf
sókn í átt að borginni er fresturinn
rann út.
Talibanar hétu því í vikunni að verj-
ast áfram í borginni Kandahar og ná-
lægum héruðum og sögðust síðar
myndu ráðast þaðan og leggja undir
sig allt Afganistan.
Norðurbandalagið gekk á þriðjudag
að boði Sameinuðu þjóðanna um að
koma til viðræðna í Berlín um framtíð
Afganistans. Markmið viðræðnanna
verður að koma á sameiginlegri stjórn
þjóðarbrotanna í landinu, er taki við af
stjórn talibana.
STAÐFEST var á
mánudag að fundist hefði
olía og gas í færeyskri
lögsögu. Eyðun Elttør,
ráðherra olíumála í fær-
eysku landstjórninni, ráð-
lagði fólki þó að taka tíð-
indunum með ró þar sem
ekki væri búið að ganga
úr skugga um að magnið
væri nógu mikið til þess
að hægt væri að nýta lind-
irnar. Olían fannst á svæði
skammt frá mörkum lög-
sögu Færeyinga og Breta
út af Hjaltlandi, sem
bandaríska fyrirtækið
Amerada Hess hefur til
umráða ásamt danska fé-
laginu DONG og færeyska
fyrirtækinu Atlantic
Petroleum.
SERGEI Ívanov,
varnarmálaráðherra Rúss-
lands, sagði á miðvikudag
að Rússar vildu fá til-
lögurétt innan NATO og
rétt til þess að hafa áhrif á
ákvarðanir bandalagsins.
Robertson lávarður, fram-
kvæmdastjóri NATO, hitti
Ívanov að máli í Moskvu á
fimmtudag og ræddu þeir
framkomnar tillögur
Breta um nánara samstarf
bandalagsins við Rússa.
FIMM palestínskir
drengir á aldrinum sex til
fjórtán ára biðu bana á
Gaza-svæðinu á fimmtu-
dag þegar einn þeirra
sparkaði í ósprungna
sprengju frá ísraelskum
skriðdreka. Sprengjan lá í
kjarrlendi milli byggðar
gyðinga og palestínska
bæjarins Khan Yunis þeg-
ar drengirnir fundu hana
á leið sinni í skóla.
HALLDÓR Grönvold, skrifstofu-
stjóri ASÍ, segist vonast eftir að
samkomulag sé að takast milli aðila
vinnumarkaðarins um innleiðingu
tilskipana um réttindi fólks í hluta-
störfum og fólks með tímabundna
ráðningu.
Í nýrri skýrslu um innleiðingu
tilskipana á EES kemur fram að Ís-
land stendur sig ekki tiltakanlega
vel við innleiðingu tilskipana á sviði
félagsmála og vinnuréttar. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra seg-
ir að ástæðan sé ekki síst sú að
hann hafi lagt áherslu á að aðilar
vinnumarkaðarins næðu samkomu-
lagi um framkvæmd reglnanna.
Enn ekki búið að lögfesta
ákvæði um vinnutíma
Halldór sagði að þessi skýring
ráðherrans væri rétt að vissu
marki. Páll hefði viljað fara þá leið
að aðilar vinnumarkaðarins næðu
samkomulagi. Því mætti þó ekki
gleyma að formlega bæru stjórn-
völd ábyrgð á því að gerðir sem
samþykktar hefðu verið af sameig-
inlegu EES-nefndinni tækju gildi
hér á landi.
Halldór sagði að efni sumra þess-
ara gerða væru hins vegar þannig
að það ætti ekkert sérstaklega vel
við að fela aðilum vinnumarkaðar-
ins að fjalla um málið. Það þyrfti
löggjöf til að skapa réttarstöðu í
málinu. Það ætti t.d. við um tilskip-
un um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. Halldór
sagði að hið sama ætti að nokkru
leyti við um vinnutímatilskipunina.
„Það lá alltaf ljóst fyrir að þó að
við gerðum samninga við samtök
atvinnurekenda í lok árs 1995 og
við ríki og sveitarfélög í ársbyrjun
1996 um vinnutímamál myndi sá
gjörningur ekki vera fullnægjandi.
Í vinnutímatilskipuninni sjálfri er
kveðið á um eftirlit og viðurlög sem
við aðilar vinnumarkaðarins höfum
ekki ráð yfir," sagði Halldór.
ASÍ og SA eru að ná saman
Frumvarp um vinnutímamál var
lagt fyrir Alþingi í vor, en var ekki
útrætt. Það er verið að endurskoða
vissa þætti þess í félagsmálaráðu-
neytinu en gert er ráð fyrir að það
verði lagt fram á þingi fljótlega.
Halldór sagði að nú væru til um-
fjöllunar á vettvangi aðila vinnu-
markaðarins tilskipanir um réttindi
starfsmanna í hlutastörfum og rétt-
indi starfsmanna með tímabundna
ráðningu, en báðar þessar tilskip-
anir væru hluti af samningum sem
Evrópusamband verkalýðsfélaga
og Evrópusamband atvinnurek-
enda hefðu samið um, en ASÍ og SA
eru aðilar að þessum samtökum.
Halldór kvaðst vona að þessi mál
yrðu leidd til lykta með samningi.
Ráðuneytið hefði gefið aðilum
vinnumarkaðarins þröng tímamörk
til að komast að samkomulagi.
Umfjöllun aðila vinnu-
markaðarins tekur tíma
Hrafnhildur Stefánsdóttir, lög-
fræðingur hjá Samtökum atvinnu-
lífsins, sagði að það tæki vissulega
nokkurn tíma fyrir aðila vinnu-
markaðarins að fara yfir tilskipanir
EES og ná samstöðu um fram-
kvæmdina.
Hrafnhildur sagði að umfjöllun
um tilskipanir um hlutastörf og
tímabundnar ráðningar hefðu tekið
talsvert langan tíma. Félagsmála-
ráðuneytið hefði hins vegar rekið á
eftir því að aðilar vinnumarkaðar-
ins kláruðu málið.
„Mál sem snerta hlutastörf og
tímabundnar ráðningar hafa verið í
góðu lagi hér á landi miðað við það
sem gerist í öðrum ríkjum. Það má
segja að það sé fyrst og fremst
pappírsvinna að ljúka málinu.
Menn hafa deilt svolítið um
áherslur, en ég tel að þetta sé að
koma.“
Hrafnhildur sagði að því mætti
ekki gleyma að vinnumarkaðurinn
væri dálítið sérstakur málaflokkur.
„Reglur Evrópusambandsins gera
ráð fyrir því að það sé heimilt að
semja um innleiðingu reglna um
vinnumarkað í aðildarríkjunum og
það á ekki við á öðrum sviðum. Það
er svolítið misjafnt hvaða leið lönd
hafa farið. Það er líka spurning
hvernig þessar reglur falla inn í
okkar kerfi. Það hefur ekki átt sér
stað nein misnotkun á almennum
vinnumarkaði hér á landi hvað
varðar hlutavinnu eða tímabundnar
ráðningar. Framsetning á þessum
reglum eru því dálítið framandi fyr-
ir íslenskan vinnumarkað. Það á
þátt í að þessi mál hafa tafist,“
sagði Hrafnhildur.
Samkomulag að tak-
ast um innleiðingu
Aðilar vinnumarkaðarins um innleiðingu tilskipana
LEIKSKÓLAR Reykjavíkur,
Menntaskólinn í Kópavogi og Jón
Torfi Jónasson hlutu Starfs-
menntaverðlaunin 2001 en það eru
Starfsmenntaráð og MENNT sem
standa að verðlaununum. Markmið
verðlaunanna er að styðja við ný-
sköpun og framþróun starfs-
menntunar á Íslandi ásamt því að
vekja athygli á málefninu. Það var
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sem afhenti verðlaunin að
þessu sinni.
Verðlaun voru veitt í þremur
flokkum. Í flokki fyrirtækja hlutu
Leikskólar Reykjavíkur verðlaun
fyrir að hafa m.a. um langt árabil
staðið að markvissri símenntun
starfsmanna sinna með áherslu á
ófaglærða starfsmenn. Mennta-
skóli Kópavogs hlaut verðlaun í
flokki fræðsluaðila fyrir náms-
brautirnar Hótel- og matvælaskól-
inn og Ferðamálaskólinn og Jón
Torfi Jónasson hlaut verðlaun í
opnum flokki sem tekur til rann-
sakenda, meistara, einstaklinga og
annarra sem taldir eru vinna
framúrskarandi starf á sviði
starfsmenntamála.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Páll Pétursson félagsmálaráðherra afhenti Helga Kristjánssyni, f.h. MK, Friðrik H. Jónssyni, f.h. Jóns Torfa
Jónassonar, og Önnu Hermannsdóttur, f.h. Leikskóla Reykjavíkur, Starfsmenntaverðlaunin 2001.
Starfsmenntaverðlaun 2001 afhent