Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 27
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri til að komast í sólina
fyrir áramótin á hreint ótrúlegum kjörum. Það er 25 stiga hiti á Kanarí,
frábært veðurfar og þú getur notið haustsins við frábærar aðstæður. Þú
bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför,
hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni
stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann.
Verð kr. 49.905
Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2
börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar.
13. desember, viku.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 59.950
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting,
skattar. 13. desember, vika.
Síðustu sætin
Út 13. des. Heim 20. des. eða 27. des.
Stökktu til
Kanarí
13. desember
frá kr. 49.905
- fyrir heilsuna
Beinþéttni
mæling
552 4045
TÍMAPANTANIR Í SÍMA
530 5800
TÍMAPANTANIR Í SÍMA
564 5600
TÍMAPANTANIR Í SÍMA
Mælingin kostar 950 kr.
-
Bjóðum beinþéttnimælingar
framkvæmdar af hjúkrunarfræðingum
Lyfju á eftirtöldum stöðum:
Lyfja Laugavegi
Mánudaga og þriðjudaga kl. 9-16.30
Lyfja Smáratorgi
Miðvikudaga kl. 8-16 og
fimmtudaga kl. 8-12
Lyfja Smáralind
Fimmtudaga og
föstudaga kl. 13-17
BÓK þessi hefur að geyma tvær
ritgerðir, ferðasögubrot, ævisögu-
brot, æviminningar, „landnáms-
sögu“, dagbækur, dagbókarbrot og
fjölskyldubréf. Fyrri ritgerðin er
eftir Sigurð Gylfa Magnússon og
nefnist Sársaukans land. Vestur-
heimsferðir og íslensk hugsun.
Þetta er mikil ritgerð, 57 bls.,
fræðileg og um margt upplýsandi.
Höfundur byrjar á yfirliti um Vest-
urheim í hugum Íslendinga og tek-
ur þar fyrir umræður um vestur-
heimsferðir á nítjándu öldinni og
viðhorf Íslendinga nú til Vestur-
Íslendinga. Þá er nokkur kafli um
baksvið vesturheimsferða. Saman-
burður er við ferðir vestur frá öðr-
um löndum og reynt er að átta sig
á hvaða Íslendingar fóru vestur. Í
síðasta hluta ritgerðarinnar er
fjallað um helstu kenningar um
innflytjendarannsóknir og lögð
drög að kenningaramma fyrir
væntanlegar rannsóknir.
Þó að margt sé gott um þessa
ritgerð að segja, er ekki því að
neita, að höfundur er nokkuð óvæg-
inn á stundum í gagnrýni sinni
bæði á eldri rannsóknir og skrif og
einnig á viðhorf Íslendinga nú á
tímum. Það háir höfundi, að honum
virðist ekki sýnt um lipran stíl.
Framsetning hans verður því nokk-
uð þurr og á stundum hálfklúð-
ursleg. Sumir myndu veigra sér við
að vitna jafnoft í sjálfan sig og
þessi höfundur gerir. Átján tilvitn-
anir á tæpum 60 blaðsíðum er
vissulega vel í lagt.
Seinni ritgerðin er eftir Davíð
Ólafsson og ber heitið Í frásögur
færandi. Vesturheimsferðir í per-
sónulegum heimildum. Hún er
einnig löng, 58 bls. Meginhluti rit-
gerðarinnar er umfjöllun um fólk
það sem flutti vestur, ástæður
flutninganna og aðstæður eftir að
vestur kom. Þá er gerð grein fyrir
þeim vesturförum, sem efni eiga
síðar í bókinni og skrifum þeirra.
Allmargar tilvitnanir eru í skrif
þeirra og verða þau því tvítekin.
Raunar má svipað segja um grein-
argerð þessa höfundar um ritarana.
Fyrir þeim er einnig gerð grein á
undan hverri ritsmíð. Eins er nokk-
ur skörun við fyrri ritgerðina. Ann-
ars er þessi ritgerð hin liprasta af-
lestrar og ánægjulegt hversu vel
höfundi tekst að halda sér við jörð-
ina. Í rauninni hefði þessi ritsmíð
verið nægileg sem inngangur bók-
arinnar. Hin ritgerðin hefði líklega
betur verið umsamin á ensku til
birtingar í fagtímariti.
Þá kemur að vesturförunum
sjálfum. Þar kennir margra og mis-
lystilegra grasa. Mormóninn Þórð-
ur Diðriksson ríður á vaðið með vel
skrifað ferðasögubrot frá Íslandi til
Utah. Þá er ævisögubrot Símonar
Símonarsonar frá Gönguskörðum
(Breiðstöðum, Heiðarseli og fleiri
kotum) í Skagafirði. Það er öllu
óhrjálegra og lýsir heldur óvið-
felldnum manni. Æviminningar
Jóns Jónssonar eru fróðlegar. Síð-
an koma ein sjö dagbókarbrot með
Landnámssögu Marteins Jónsson-
ar inni á milli.
Er skemmst frá því að segja, að
þessi dagbókarbrot eru skelfilega
leiðinlegur lestur. Þar eru enda-
lausar veðurlýsingar og frásagnir
af daglegu amstri, sem eiginlega er
sjaldnast hægt að fá botn í skýr-
ingalaust. En engar skýringar
fylgja þessum textum. Mér þykir
ósennilegt að þessi skrif geti vakið
áhuga annarra en fræðimanna á
þessu þrönga sviði sagnfræðinnar
eða ættingja, sem vilja vita meira
um líf forfeðra sinna. Ég hef velt
því fyrir mér hvort útgáfa af þessu
tagi sé ekki misráðin. Hefði ekki
verið betra, að Davíð Ólafsson hefði
lengt ritgerð sína til muna og gert
úr henni bók, en frumgögnin (dag-
bækurnar) gerð aðgengileg fræði-
mönnum í tölvuútprentunum? Um
þetta getur hverjum sýnst sitt.
Að villum leitaði ég ekki. Þó
rakst ég á eitt sem ég tel rangt.
Saga Íslendinga í Vesturheimi, sem
oft er vitnað í, er hvorki 4 né 6
bindi, eins og hér kemur fram,
heldur eru bindin 5. En vel er frá
þessari bók gengið og hún er
myndarlega útgefin. Varla hefur þó
verið áhlaupaverk að ganga frá
frumgögnum til prentunar.
Vesturheimsferðir
BÆKUR
Sagnfræði
Dagbækur og persónuleg skrif Vest-
urheimsfara á síðari hluta 19. aldar. 5.
sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
Davíð Ólafsson og Sigurður Gylfi Magn-
ússon tóku saman. Háskólaútgáfan,
Reykjavík, 2001, 377 bls.
BURT OG MEIR EN BÆJARLEIÐ
Sigurjón Björnsson
SKELLIBJÖLLURNAR Snuðra og
Tuðra eru komnar á kreik í Mögu-
leikhúsinu á nýjan leik með nýja
sýningu eftir að fyrri sýningin um
þær systur hefur verið leikin yfir
200 sinnum og einar sex leikkonur
tekið að sér hlutverkin frá upphafi.
Nú eru það Ingibjörg Stef-
ánsdóttir og Lára Stefánsdóttir
sem snuðra og tuðra fyrir jólin,
gera alls kyns rósir en allt í bestu
meiningu því inn við beinið eru þær
bestu skinn. Þær ætla sér t.d. að
vera góðar við mömmu sína og
baka fyrir hana piparkökurnar
þegar hún bregður sér frá. Hvernig
til tekst með baksturinn er áhorf-
enda að komast að. Síðan reyna
þær að taka til í herberginu sínu og
skreyta jólatréð og árangurinn er
ótrúlegur að ekki sé meira sagt og
engin meira þreytt en mamma þeg-
ar loks kemur að því að borða jóla-
matinn.
Það er upphaf aðventunnar og
mamma Snuðru og Tuðru ætlar að
kenna börnunum í skólanum
grundvallaratriði í bútasaumi,
þannig að þau geti sjálf útbúið sinn
eigin aðventukrans og annað
skemmtilegt jólaskraut. Við kennsl-
una nýtur hún aðstoðar Theodóru í
næsta húsi. En þeim gengur heldur
illa að koma sér að efninu, því þær
eru alltaf að rekast á eitthvað
skondið sem leiðir talið að uppá-
tækjum óþekktarormanna, Snuðru
og Tuðru. Þá birtast þær ljóslifandi
á sviðinu og áhorfendur verða vitni
að jólarósum þeirra systra, því eins
og við er að búast gengur jólahald-
ið ekki alveg snurðulaust fyrir sig
þegar þær Snuðra og Tuðra eru
annars vegar.
Sögurnar um Snuðru og Tuðru
eru eftir Iðunni Steinsdóttur en
leikgerðin er verk Péturs Eggerz.
Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni
Ingvarsson. Leikmynd er eftir
Katrínu Þorvaldsdóttur og Bjarna
Ingvarsson. Búninga gerði Katrín
Þorvaldsdóttir. Tónlistin í verkinu
er eftir Vilhjálm Guðjónsson.
Jólarósir
Snuðru
og Tuðru
Morgunblaðið/Ásdís
Snuðra og Tuðra taka til.
Morgunblaðið/Ásdís
Teódóra í næsta húsi á ekki orð yfir Snuðru og Tuðru.